Vísir - 18.01.1914, Page 2
V í S i R
f
skýra að öðrn leyti frá starfi Vestur-
íslendinga.
Skrifstofu setti bráðab.stjórnin hjer
á stofn í apríl og hefur hún verið
opin síðan.
Annars hefur árangurinn af
starfi nefnciarinnar verið sá. að hjer
á landi fengust loforð Fyrir 340
þús. kr. oghafa af þvíverið borgaðar
inn rúmar 320 þús. (317 þús.ípening-
um og um 5 þús. í ávísunum, sem
ekki eru fallnar enn til útborgunar).
—Frá Kaupmannahöfn hefur hvorki
komið bindandi Ioforð nje nokkurt
fje. Um þátttökuna að vestan mun
J. Bíldfell skýra frá.
Bráðab.stj. hafa borist tilboð
um útlent fje til fyrirtækisins frá
Kaupmannahöfn, Hamborg og Eng-
landi, sumpart skilyrðum bundið og
sumpart án skilyrða.
Kostnaður við undirbúningsstarfið
hefur orðið þessi: Prentun og
pappír kr. 2 209,80, vinna kr, 714,42,
símtöl cg þessháttar kr. 247,27, frí-
merki og auglýsingar kr. 375,91 og
ýmislegt kr. 293,00, eða alls um
kr. 3840,00. Bráðabirgðastjórnin
sjálf reiknar sjer ekki neitt fyri sitt
starf.
í sept. síðastl. var auðsjeð, að
tiltækilegt myndi að stofria fjelagið.
Var þá send út áskorun ti! manna
að hafa borgað inn að fullu hluti
sína fyrir 15. des., en aðalfund
skyldi halda 17. jan. Þá var og
sent út frumvarp til fjelagslaga og
menn beðnir að hafa sent breyt-
ingartillögur sínar fyrir 12. jan.
Spjaldaskrá hefur verið haldin yfir
alla hluthafa, og eru þeir á sjöunda
pásund.
í júlí skrifaði bráðabirgðastj. al-
þingi brjef og spurðist fyrir, hvort
það sæi sjer ekki fært að kaupa
hluti í fjelaginu eða ákveða fjelaginu
tillag fyrir árið 1915, sem myndi
verða fyrsta starfsár þess. — Síðar
hjelt bráðabirgðarstj. fundi með
formönnum samgöngumálanefnd-
anna á þingi. Sá árangur varð, að
þingið heimilaði hlutakaup fyrir
400 þús. kr. með þeim skilyrðum,
að fjelagið tæki að sjer strandferð-
irnar, og veitti því 40 þús. króna
styrk árið 1915.
í vor snjeri bráðabirgðastj. sjer
til umboðsmanns »Bureau Veritas«
í Kaupmannahöfn og bað hann um
upplýsingar um skip og skipa-
byggingu. Utvegaði hann nefndinni
teikningar af tveim skipum og fylgdu
upplýsingar á 48 blaðsíðum með
þjettri maskínuskrift. Sendi nefndin
síðan 28 skipasmíðafjelögum Iýs-
ingu á skipunum og bauð þeim
að senda sjer tilboð um að smíóa
þau og áttu tilboðin aö vera kom-
in til Kaupmannahafnar viku af jan-
úar. Nokkur voru komin þá og
önnur síðar, en hingað ættu þau
að koma með Sterling 26. þ. m.
Bráðabirgðastj. hefur haldið með
sjer 49 bókfærða fundi auk þess,
sem einstakir menn úr henni hafa
komið saman og átt fundi með
mönnum út í frá,
Ræðumaður endaði mál sitt með
þeirri ósk, að máli þessu mætti
fylgja áhugi, ást, eindrægni og sam-
heldni, svo hjer eftir sem hingað
til.
Var ræðunni tekið með Iófa-
klappi.
Brynjólfur H. Bjarnason kaup-
maður spurðist fyrir um,Jhvað nefnd-
in hefði áætlað um kostnað skip-
anna og um ferðir þeirra.
Sv. Bj. sagði enga vissu fengna
um kostnaðinn fyr en tilboðin
kæmu, en bráðabirgðastj. hefði sent
til útboðs uppdrætti að fullkomnari
skipum, en gert hefði verið ráð fyr-
ir í upphafi. Mætti þar heldur slá
af, ef of dýr yrðu, en að bæta við
ófullkomnari skip. — Ferðaáætlun
kæmi bráðab.stj. ekkert við.
Fundarstjóri gat þess nú, að ekki
yrðu tiltök, að halda hjer langa
fundi, þar sem fjöldi manna yrði
að standa, hafði heyrt að Fríkirkjan
kynni að fást til þess, að hafa þar
framhald fundarins.
Sr. Ól. Ólafsson fríkirkjuprestur
sagði, að fyrir sitt leyti væri ekkert
því til fyrirstöðu, að Ijá Fríkirkjuna
1 til fundarhaldsins, gat hann þess, að
það væri síður en svo um þetta
mál, að kirkjan saurgaðist af því
(ljetu margir í ljósi ánægju sínayf-
ir frjállslyndi prestsins). Kallaði sr.
Ólafur svo fram viðstadda safnaðar
fulltrúa og fjekk Ieyfi þeirra allra
og taldi sjálfsagt, að söfnuðurinu
myndi þá ekki vera andstæður. —
Var nú ákveðið, að eftir fundar-
hlje yrði fundur aftur settur í Frí-
kirkjunni kl. 4.
Bened. Sveinsson alþm., óskaði að
heyra skýrslu frá sendimanni Vestur-
ístendinga.
Jón Bíldfell gekk þá fram og
talaði eitthvað á þessa leið:
Bræður góðir! Jeg vildi mega
færa yður öllum bróðurkveðju vest-
an yfir haf. Fylgja því hugheilar
árnaðaróskir um, að þetta fyrirtæki,
sem hjer á að stofna í dag, megi
verða landi oglýð til uppbyggingar
og blessunar.
Þegar Vestur-íslendingar fengu
brjefin um, að reyna ætti að koma
á stofró'íslensku eimskipafjelagi, þá
þótti þeim öllum vænt um. Það
duldist þeim ekki, að íslendingum
væri það happadrjúgast, svo sem
öðrum þjóðurn, að ráða siglingum
sínum sjálfir.
En málið drógst vestra af ástæð-
um, sem þegar eru teknar fram. Menn
biðu eftir, að sendinefndin hingað
kæmi aftur, en er hún kom, var
tekið til óspilltra málanna.
Vjer breyttum dálítið reglunni
um innborganir hjá okkur. Atti
x/i að borgast strax, en hitt á 18
mánuðum.
Síðan farið var að hreyfa þessu
máli vestra hefur komið í Ijós, að
ekkert mál hefur átt eins miklum
vinsældum að fagna meðal Vestur-
íslendinga og þetta.
Síðasta skeyti, sem [mjer hefur
borist umjjhlutafjársöfnunina segir að
þá hafi veriö fengnar 160 þús. kr.
Þó voru þá ekki komnar frjettir frá
nærri öllum íslendinga-byggðum
vestra og mikið var enn eftir að
safna í Winnipeg, en verið getur
að þetta sje búið nú. Víst er að
þátttakan verður allmiklu meiri en
þessar 160 þús.
Jeg skoða ekki Vestur-íslendinga
meðlimi Eimskipafjelagsins ennþá.
Ýms atriði í frumvarpinu til laga
fyrir fjelagið þótti þeim ekki að-
gengileg. Jeg kom til að semja um
þau við þennan fund, jeg er því
í niðursuðuverksmiðjuimi.
Sími 447.
I dag fæst FISKIFARS.
® ®
Verslunin ’HERMES’, Njálsg. 26.
selur:
Kex frá 0,20 pd.
Mysuost 0,20 —
Kaffi ágætt 0,80 —
Haframjöl 0,15 —
Kakaó, besta tegund 1,10 —
Rúsínur 0,32 —
Ennfremur margar tegungir af Fínu brauði, Vindla og Vindl-
inga, Stúfasirs 1,40 pd., Leirtau, Steinolíu ódýra o. fl.
o. fl.
ekki hjer með fullum rjettindum, er
aðeins sem samningsaðili með neit-
unarvaldi. Jeg geri grein fyrir þess-
um atriðum frumvarpsins þegar þau
koma til umræðu.
Ef samuingar takast, lít jeg svo
á, og það er óhætt að líta svo á,
að Vestur-íslendingar sjeu þáorðn-
ir meðlimir, en fyr ekki, og þá Iíka
lít jeg svo á, að þeim beri þau
rjettindi, sem ákveðin eru þeim til
handa í lögunum, og mjer full rjett-
indi að fara á þessum fundi með
umboð þeirra, eins og aðrir fund-
armenn.
Þegar Jón Bíldfell kom fram til
að faka til máls, var honum fagnað
með dynjandi lófaklappi, og svo
var eins er hann hafði lokið máli
sínu.
Fundarstjðri óskaðiað menn þökk-
uðu bráðab.stj. fyrir starf sitt og
var það gert með lófaklappi. Þá
bar fundarstjóri upp 4. lið á dag-
skrá, tillöguna um að stofna fjelagið,
og var hún samþykkt í einu hljóði.
Funclinum hafði boristhamingjuóska-
símskeyli frá Einari Metúsalemssyni
á Seyðisfirði og var það lesið upp
og svo gengið til 5. Iiðs á dag-
skránni, frv. til Iaga fyrir fjelagið.
Ákveðið var að tvær umræður
yrðu um lögin. Væri hver kafli
ræddur fyrir sig (nema 5. og 6 sam-
an). Við fyrstu atkvæðagreiðslu var
reynt að nota atkvæðamiða, en eftir
þeim er atkvæði fyrir hverjar 25
kr.; lók fyrsta atkvæðagreiðslan 40
mínutur og voru þó 8 menn við
talninguna. Þá var reynd handaupp-
rjetting og reyndist ófær, var því
aftur tekið til seðlanna og gekk dá-
litlu betur. Við fyrstu atkvæða-
greiðslu kom fram að 184 atkv. voru
greidd á seðli fyrir 1 atkv., 314
atkv. á 2 atkv. seðlum, 86 atkv. á 5
atkv.seðlum,53 atkv.á 10 atkv.seðlum
, 90 atkv. á 20 atkv. seðlum, 17 atkv.
á 50 atkv. seðlum, 4 atkv. á 100 atkv.
seðlum og 3 atkv á 200 atkv. seðluni.
— Fundarhlje varð eftir að búið
var að greiða atkvæði um 1 flokk-
inn og var þá ld. 2Y2 en kl. 4 var
aftur byrjað í Fríkirkjunni og fengu
flestir þar sæti, voru þar ræddir 2.
og 3. kafli og atkvæði greidd með
handaupprjettingu. Fundarhlje var
kl. 8—9, en síðan stóð fundur til
kl. um 3 í nótt.
Aðgöngumiðar höfðu verið gefnir
út að fundinum 750 talsins.
(í skýrsluupph. bráðab.stj. í gr.
þessari hefur misprentast 1812 í stað
1912.)
ÚR BÆNUM
Samverjinn úthlutaði í gær 365
máltíðum. 231 barn kom, 16 kari-
menn og"18 kvennmenn. Heimsent
til 100 manna (71 barni og 29
fullorðnum.)
Alýðuskemmtun heldur Bjarni
Björnsson skopleikari í Iðnó á
fimmtudagskveldið með 50 aura
inngangseyri. Segir !hann þetta
gert fyrir margítrekaðar áskoran-
ir fjölda manns. Hefur hann nú
einnig fengið allmikið af nýu.
Helgi þ. Steinberg, Hverfisgötu
2 B., slasaðist í þjónustu
Helga Jónssonar í Tungu hjer,og
er birgur út afþví slysi vetrarlangt.
Telja menn, sem þekkja Helga
Jónsson í Tungu, víst, að hann
hjálpi Helga þ. Steinberg um
læknishjálp eða annað. Helgi
Jónsson er talinn drengur góður.
Skal minnst síðar. S.
Hús til sölu í Veslurbænum,
slærð 10 10, skúr 3 4, stórt
og gott stakkstæði fylgir. Sann-
gjarnt verð. Afgr. v. á.