Vísir - 18.01.1914, Blaðsíða 3
V 1 S I R
SMFBJETTIR
Stórfelld eídgos.
Kaupmannahöfn í gær.
I dag sannfrjett, að eldfjallið Sakura í Japan
hefur gosið þessa dagana.
Afskaplega er tjónið orðið stórkostlegt og menn
hafa farist þúsundum saman.
Eldfjallið Sakura (Sakura-sen), 1140 stikur að hæð, stendur á sam-
nefndri ey í Kagoschima-flóa, en hann skerst sunnan í Kiruschiu, sem er
syðsta japanska stóreyan. Báðu megin við flóa þennan ganga fram fjall-
garðar miklir með mörgum og stórum eldfjöllum, sem oft hafa valdið
miklu tjóni. Byggð er allmikil rneð flóanum, en stærsta borgin stendur
rjett vestan við Sakúra-eyarsundið, sem er örmjótt (tæpar 2 rastir); hún
heitir Kagoschima og hefur nær 70 þúsundir íbúa. Má búast við að sú
borg, svo nálægt eldgosinu, leggist í eyði.
Tíðindamaöur Vísis hefur ekki viljað síma frjettina fyr en full vissa
væri fyrir að sönn væri, og kemur hún degi síðar en ella. Það er heldur
ekkert varið í símfrjettir, sem reynast hugarburður einn á eftir.
ísafirði í gær. Afli hinn besti hvar sem til
Botnvörpuskipin eru nú að spyrst um Vestfirði.
koma inn hingað smámsaman með Hafísjakar á stangli um sjóinn
góðan afla. og geta tafið siglingu í myrkri.
y
„Astarguðinn & Co.
Ltd.“
Flestir gerast nú kaupsýslumenn
á þessari verslunar- og framfaraöld
mannkynsins. í hinni alþekktu götu
Berlínarborgar »Unter den Linden*
(Lindigöngunum) er nýsett á stofn
verslun í stórhýsi miklu, þar sem
petta firmanafn stendur með stóru
gullnu letri. Blindi ástarguðinn er
Iíka farinn að versla. Og hvað
hefur hann á boðstólum? Auðvitað
stúlkur. Fallegar stúlkur, ljóshærð-
ar, dökkhærðar, hávaxnar, lágvaxn-
ar, siðlátar, skrautgjarnar, fátækar,
ríkar, — öllum tegundum úr að
velja, en ekki til stundargamans,
heldur til æfilegrar eignar og sam-
búðar í heilögu hjónabandi. í glugg-
unum er raðað ljósmyndum, ótölu-
legum grúa, þangað senda allar
myndir, er langar til að giftast. Og
aðsóknin er mikil og margar ganga
út. Hverri mynd fylgja upplýsing-
ar um ætterni og efni og annað
— flest —, cr piltarnir vilja vita,
og það sem mest er um vert, heirn-
anmundur hverrar stúlku er þar í
tölum talinn. Engin þeirra, er þar
eru á boðstólum er eldri en þrí-
tug, — telur jafnvel ástargúðinn
sjálfur sjer ómögulegt aö koma út
þeim sem þar eru yfir, live rýmileg
kjör, sem eru í boði. Ótölulegur
manngrúi er alla tíma dags fyrir I
utan búðargluggana og fjöldi lög-
reglumanna á verði til þess að varna
því, að umferð teppist um götuna
og er hún þó æði breið. — í ráði
er og að sýna þar síðar hreyfingar
limaburð og svipbrigði meyanna í
lifandi myndum.
Töfrajárnbrauíin,
Járnbrautin milli Kairo og
Kapborgar.
Einu furðuverki 20. aldarinnar
er nú að verða lokið. það er
járnbrautin, sem verið er að leggja
eftir Afríku endilangri frá Kairð
norður við Miðjarðarhaf til Kap-
borgar (Höfðahverfis) á suðurodda
Afríku. Saga járnbrautar þessarar
verður eflaust einhver skemmtí-
legasti og fegursti kafli veraldar-
sögunnar.
Járnbrautin byrjar í Kairó, ný-
tískuborginni með ótal fornum
minningum liðinna alda. Hún
liggur um Egyptaland, forna veldið
Faraóanna, suður til Khartum,
sem nú er breskur háskólabær,
en fyrir ekki meira en 15 árum
var höfuðborg falsspámannsins
vitlausa. Hún liggur fram hjá víg-
völlum, þar sem Kitchener lá-
varðurog’kappar hans drápujskutu
og hjuggu niður sem hráviði
þrjátíu þúsund innborna menn.
Hún heldur áfram lengra og
lengra um landsvæði, þar $em
enginn hvítur maður hefur nokkru
sinni stígið fæti sínum, — um
frumskóga, þar sem ljón og lje-
barðar liggja í launsátri, og um
sljettur, þar sem gíraftar og ze-
bradýr hlaupa enn sem fyr á
morgni aldanna.
þarna syðra í miðju heimkynni
villimennskunnar • á eimreiðin að
þjóta áfram á fagurgljáum brautar-
teinum, framhjá svertingjaþorpun-
um og hörgum, þar sem enn
rýkur af volgu mannablóði. Hún
þýtur inn á land gullsins og gim-
steinanna — innTranswaal, þarsem
þrekvaxnir Búar og þjettir á velli
róta umjörðinni ogstunda kvikfiár-
43
í| Nægar birgðir af
Netakúlum
tr i
| í veiðarfæraversI.’Verðandi’.
&
l
FISKVERKUN
Duglegar stúlkur geta fengið atvinnu við fiskverkun á
Ttri Kirkjusandi
frá byrjun marsmánaðar.
Lysthafendur snúi sjer til
Ingimundar Jónssonar, Holtsgötu 5.
frá 20 aurum pundið.
Uamenostav
frá 45—60 aura pundið.
f
Verslunin ,Asbyrgi‘, Hverfisgötu 33,
^CAA AAAA AA
AA
Si/S/
rækt, — þar sem verksmiðjureyk-
háfar Breta benda til himins.
Eimreiðin þýtur blásandi og
hvæsandi eldi og eimyrju um
aragrúa sviðbreytinga þangað til
hún kemst í Kaplandið, hið
pálmum prýdda, í Kapborgina,
heimsmenningar stórborg Suður-
Afríku.
Járnbraut þessi verður alls
5 600 enskar mílur á lengd, sem
er lítið eitt lengraen fimmtungur
afummáli jarðarinnar. Nú þegar
eru lagðar 4 800 mílur áf járnbraut-
inni og að 2 árum liðnum vonast
menn til þess/að síðasti teinspott-
inn verði lagður.
þegar farið var nú að halda
brautinni enn lengra áfram, var
henni stefnt á hið volduga
Zambesi-fljót og Viktoríu-
fossinn mikla. það var óhjá-
kvæmt, — yfir fljótið varð að
fara. þar var staður valinn, sem
fljótið er mjóst, rjett við fossinn.
þar rennur fljótið svo að segja
í djúpri jarðsprungu. Svo eru
bakkar þess þar brattir og háir,
að í hyldýpisgjá er að horfa nið-
ur á fljótið af þeim. Fyrst var
ekki annað sýnilegt, en brúar-
smíð yfir gjá þessa yrði meðöllu ó-
vinnandi verk. En 25 breskir
verkfræðingar tóku verkið að sjer
sem væn það barnaleikur. Fyrst
var reist rafmagnstöð við Vik-
toríu-fossinn — aflgjarfinn kostaði
þar ekkert. Svo vaf stálstrengur
dreginn yfir fljótið og festur.
þessi strengur var bvrjun brúar-
Bestu
meðmælin.
Hver, sem ein.u sinni hefur keypt
vindla, sígareiturog tóbak
á Laugavegi 5.
kaupir það þar áfram, því þar er
það bæði best og ódýrast.
smíðisins. Eftir þessum streng
var nú dregið efnið í þann helm-
ing brúarinnar, er átti að gera þar
fyrir handan, í 10 smálesta þung-
um hlutum. T. d. var heil gufu-
vjel dregin yfir á þennan hátt.
þegar aðdráttum þessum var
lokið, var tekið til óspilltra mál-
anna við smíðina. Breskir vjel-
fræðingar og verkfræðingar með
svartan vinnulýð til aðstoðar fóru
að smíða brúna frá báðum brúar-
sporðum samtímis. Svo nákvæm-
lega var hvert stálmilti fellt við
annað, að báðir brúarhelmingarn-
ir fjellu svo vel saman, er þeir
mættust yfir miðju hyldýpinu, að
ekki varð rekinn örmjór fleygur
milli þeirra. Brúin var fullger að
19 vikum liðnum, og er hraðast
lokið stórbrúarsmíð í heimi, sem
um er kunnugt enn. Brú þessi
er hæðsta brú í heimi, 420
fetum yfir freyðandi flugstraum
Zambesi-fljótsins niðri í djúpinu.
Frh.