Vísir - 18.01.1914, Qupperneq 4
V I S I R
Eftir
Rider Haggard.
Frh.
Versl. Jóns frá Vaðnesi
i
®Mun jeg freista mega, herra!®
segir hann, í því hann bendi boga
sinn, svartan og mikinn.
>Hver ertu?« segir konungur,
»ertu því líkastur, sem þú hafir
legið í öskustó, en ber þó gullör
mína í húfu þjer? — Hvað? — ^
Nú þykist jeg þekkja manninn. Pú »
ert sá úr Suðurfylki, er barst af l
öllum bogmönnurn í Windsor og •
menn nefndu Gráa-Rikka. Vel er '■
það, Grái-Rikki! Víst skaltu freista, |
ef þú treystist að draga svo langt. ‘i
En í nafni hins helga Gyrgis, misstu í
ekki marks, bogmaður, því að allur |
herinn mun marka vígheill vora á |
því, hversu fer um skeyti þitt.<
Rikki hikaði í svip. Virtist hon- <j
um bregða nokkuð, er konungur
Ijet svo mikið um mælt, þótt hon-
um væri ótítt að kippa sjer upp |
við það, sem að höndum bar.
»Annað eíns hef jeg til þín sjeð,
RíkarðurU mælti Hugi frá Krossi
góðlátlega að baki honum. »Láttu
raun bera vitni.«
Því næst stje Grái-Rikki fast
fram öðrum fæti, hallaðist aftur á
bak um leið og hann dró boga-
streng sinn. Allir stóöu á öndinni
meðan hann dró upp strenginn aft-
ur á móts við vanga sinn. Hann
sleppti, snjerist á hæli og starði
niður fyrir fætur sjer. Sagði hann
svo síðar, að þá hefði hann mest
efast um beinskeyti sína og ekki
haft þor til að horfa á afdrifin.
Örin flaug af strengnum og allir
stóðu sem steini lostnir. Hún sveif
hátt og glitraði gullroðið flaugar-
skaftið í sólskininu. Svo seig hún
niður undir jörð og varð konungi
að orði: »Of skammt!« En í því
hann sleppti orðinu var sem örin
svifi hærra, knúin einhverjum töfra-
krafti. Angurgapinn á hólnum sá
örina stefna að sjer og snaraðist á
flótta. Flaug örin í mjóhrygginn
og knapinn fjell endilangur eins og
naut fyrir öxi og hrærði hvorki
legg nje lið.
Nú laust upp fagnaðarópi í hin-
um hægra fylkingararmi, frá þeim, er
sáu afrek þetta, en er fjelagar þeirra
í vinstra fylkingararmi og hinni efri
fylking heyrðu það, þá hugðu þeir
í fyrstu, að hafin væri orrusta.
Konungur og sonur hans stóðu for-
viða. Hugi lagði hendur um háls
Ríkharðs og kyssti hann. Græni-
Kobbi kallaði hátt:
»Ekki bogmaður, heldur töfra-
maður! Enginn mennskur maður
gæti skotið öru töfralaust svo lang-
an veg!«
*Þá vildi jeg, að hamingjan gæfi,
að jeg ætti marga slíka töframenn,«
mælti konungur. »Guð fylgi þjer,
Grái-Rikki, því að þú hefur blásið
mjer nýu hugrekki í brjóst og öll-
um fjelögum okkrum. Taki hver
yðar mark á því, að knapinn var
skotinn í bakið á flótta! — Hver
laun viltu verka þinna, Ríkharður?«
Frh
Jónas Guðmundsson, löggilt-
ur gaslagningamaður, Laugavegi
33. Sími 342.
selu ' um tíma:
Kandís í 34 pd. kössum
Kaffið góða
Rúgmjöi, sekkinn
Maísmjö!
Rjól B. B.
Three Casíels-sígarefíur, pakkinn
kr. 0>25
— 0,80
— 16,50
— 9,50
— 2,30
— 0,28
og margi fleira er nú gott að kaupa hjá
Jóni frá Vaðnesi.
i n n b r otsþj óf a r n i r
dæma,
þegar innbrotsþjófarnir rjeðust inn í Konfektbúðina í Austurstræti,
stálu þeir „Konfektinu" en ekki peningunum.
þeir eru þá á sama máli og allir bæarbúar, að Konfektið hjá
Irma & Carla Olsen
mm’ er betra en peningar.
t\$tt \sC Sm\ov, §)\l&a&a&5a
o^ Sa^sV\ww Jæst &a$fc$a K)í
Jóni frá Vaðnesi.
Andarnefjulysi
fæst í V, fl. og smáglösum í
Veiðarfæraversiuninni
,Verðandi’.
íbúðarhús
til sölu á framtíðarstað bæarins, rjett við höfnina.
(Til afnota 14. maí.)
Afgr. v. á.
Reglusamur maður
óskareftiratvinnu við skriftir
eða verslunarstörf
nú þegar.
Afgr. v. á.
Gramalt gert nýtt
Allskonar viðgerðir á orgelum og
öðrum hljóðfærum hjá
Markási þorsteinssyni
Frakkastíg 9.
Útgefandi
Elnar Gunnarsson, cand.phil.
Prentsm. Östlunds,
Sukkulaði
70 og 90 au. pd.
Kakaó
kr. 0,80 og 1,10 pd.
á Laugavegi 5.
KAUPSKAPUR
Kýr
ung og góð óskast til kaups
nú þegar. Afgr. v. á.
Karlmanns úrfesti sterk og
falleg til sölu. Sýnd á afgr. Vísis.
Tækifæriskaup fæst á nýu
tveggjamannafari með öllu tilheyr-
andi. Uppl. á Lauganesspítala.
TAPAЗFUNDIÐ.
Barnaskóhlífar týndar frá
Laugav. 8 að Bókhlöðust. 9. Skil-
ist á Bókhlöðust. 9 niðri.
Gullnæla týnd. Skilist á afgr.
Vísis gegn fundarl.
Brjóstnál með kapseli niðurúr
hefur tapast frá Verslunarskólanum
að Laugavegi 20. Skilist gegn fund-
arlaunum á Laugaveg 20.
VINNA
Trú og þrifín stúlka getur
fengið góða vist á komandi hjúa-
skildögum hjá eldri hjónum án barna
á heimilinu. Góð laun og hjálp
við þvott. Afgr. vísar á.
Stúlka, sem hefur Iítið barn,
óskar eftir vist nú þegar, eða stað
handa barninu. Afgr. v. á.
Vinnumaður óskast á gott
sveitaheimili í Borgarfirði. Um kaup
er að semja við A. Fjeldsteð augn-
lækni.
Stúlka óskast í vist á gott heimili
nú þegar. Sími 392.
Atvinnu getur stúlka fengið nú
þegar. Afgr. v. á.
Dugleg stúlka óskast á „Skjald-
breið" til 14. maí n. k. Tilboð
merkt: “Skjaldbreið" sendist á
afgr. Vísis.
Stúlka oskast í vistfrá þessum
tíma til 14 maí. þýðír ekki fyrir
stúlkur að bjóða sig, sem ekki
geta verið allan daginn. Afgr. v. á.
5 duglegir sjómenn geta fengið
skiprúm á mótorbát nú þegar. Semja
má við Sigurjón Guðmundsson,
Hverfisgötu 27 B.
KENNSLA
Elín Andrjesdóttir,
Laugaveg 11 uppi, tekur
stúlkur til kennslu í
hannyrðum.
HÚSNÆÐI
2 »möbleruð« herbergi óskast til
leigu frá 14. maí. Tilboð, merkt
1914, sendist afgr. Vísis.
Stofa fæst til leigu. Afgr. v. á.