Vísir - 28.01.1914, Blaðsíða 1
Kemur út alla daga. Sími 400.
Agr í Hafnarstr. 20. kl. 11 árd.til 8 síðd.
25 blöð (frá 8. jan ) kosta á afgr. 50 au.
Send út um land 60 au.—Einst.blöð 3 au.
Skrifstofa í Hafnarstræti 20. (uppi),
opin kl. 12—3, Sími 400.
Langbestí augl.staður í bænum. AugL
sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyrir birtingu.
Miðvikud. 28. jan. 1914.
Háflóðki. 6,47‘árd.og kl.7,2‘ síðd.
Á morgun
Afmœli:
Frú Johanne Havsteen.
Eggert Brandsson, trjesmiður.
Olafur Jónatansson, verslunar-
maður.
Pjetur þorsteinsson, verkstjóri. '
Bíó
Biografteaterí
Reykjavíkurl
JBíó
Lifartdj frjetiabiað.
Soldán móti vilja sínum.
Vitagraph-gamanleikur.
(John Bunny.)
Kauphallarbraskarinn.
(Aðalhlutverkið leikur
Maurice Costello.)
Breidahl eignast tvíbura.
þýskur Vitascope-gamanleikur,
Síkklstur fásf venjuiega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
gæði undir dómi almennings. —
Sími 93. — Helgi Helgasor.
}CoV\3 send\sve\w
frá
Sendisveinaskrifstofunni.
Simi 444.
Hjer með tilkynnist vin-
um og vandamönnum, að
Annajohnsen andaðist
22. þ. m. Jarðarförin er
ákveðin þann 30. þ. m.
og hefst með húskveðju
frá heimili hinnar látnu,
Bergstaðastræti 37., kl.
H V. f* h.
Aðstandendur hinnar látnu.
Bæarfrjettir á öftustu síðu.
\itaw lawði\.@g)
Eyrabakka-brjef.
Eyrarbakka, 24. jan. 1914.
Tíðarfar hefur nú síðan fyrir
hátíðir'verið gott, einlæg votviðri,
svo mýrar hjer eru grænar nú,
því þær lögðust snemma undir ís
og snjó, sem nú er löngu upp-
leystur, og kemur það sjer vel,
því menn voru hjer afarilla hey-
aðir, en fjenaður allmikill, þó miklu
væri fargað.
Heilsufar hefur hjerverið mikið
gott til þessa, en nú er farið að
brydda á hettusóttinni, vægilega
þó. Læknir sá, Konráð Konráðs-
son, sem við nú höfum í forföll-
um Ásgeirs læknis Blöndals, kem-
ur sjer hið besta, er þó vandfylt
skarð Blöndals sem læknis, ekki
síst gagnvart þeim fátæku, sem
valmennska hans og konu hans
hefur svo oft og óreiknað komið
fram við; og margir munu þeir
I S I
Kappgííma
um
„Reykjavíkurskjöidinn
„Armann'
verður háð föstudaginn 30. þ. m. i 3ðnó.
Keppendur frá Glímufjelagi U. M. F. R.
og
Glímufje'aginu „Armann“
mæta.
Einasta og besta kappglíma vetrarins.
Stjórn glímufjelagsins. Ármanns.
Brjefspjöld og myndir
af fólki tekur við tilbúiö ljós frá kl. 4—7 r. h.
Pjetur Leifsson, Laugaveg 24. (vesturenJnum uppi).
W Lágt verð I
hjer, sem innilega óska þess, að
hann mætti fá svo góða heilsu,að
hann gæti farið að þjóna embætti
sínu aftur.
Fiskirí er hjer aldrei neitt nú
orðið utan vetrarvertíðar, bæði er
sjór utan þess tíma minna stund-
aður en önnur atvinna, enda fisk-
ur ekki á grunnmiðum. Síðast er
róið var fjekkst 1 þorskur og 1
ýsa.
Hússtjórnar-námsskeið stóð
hjer í nóvember, þar kenndi ung-
frú Halldóra Ólafsdóttir prests
í Kálfholti nál. 10 stúlkum, ljetu
þær vel yfir kennslunni, og þótti
maturinn undurgóður.
íþróttakennsla fór hjer fram frá
4.—11. þ. m. þar kenndi Helgi
Ágústsson í Birtingaholti, sóttu þá
kennslu flestir ungir menn hjer.
Helstu íþróttirnar - voru glímur
hlaup, stökk, spjótkast, og kúlu-
varp.
Skemmtanir hafa helstar verið
tvær söngskemmtanir, semmis'jafn-
lega var látíð af, og svo hefur
verið nokkrum sinnum leikið „Æf
intýri á gönguför“, ávalt fyrir fullu
húsi, því að flestir leikendurnir
þykja leysa hlutverk sín af hendi
alveg óvenju vel.
Hátíðabrigði voru hjer nú eng
in í þetta sinn. Að undanförnu
hefur þó ávalt verið eitthvað gert
í því skyni. í fyrra rjettgóð skraut-
eldasýning á gamlárskveld. Áður
var venja hjer, að á nýársnótt kl.
12 var hleypt þrem stórskotum
af gömlum kanónuhólkum, sem
voru til við Lefolis verslun, lík-
lega síðan á konungsverslunar-
tíðinni.
Þorrablót mikið og veglegt á
að hafa hjer í kvöld, verður þar
á borðum hangiket norðan af
Melrakkasljettu, grænar ertur frá
Baunverjalandi og hnausþykkur
rjómi frá Kaldaðarnesi: Sjálfsagt
verður át þetta til hinnar mestu
uppbyggingar fyrir þorpið.
Steinsteypuhús hafa hjer verið
byggð í ár eitthvað um 10 stór og
smá, þeirra veglegast og best gert
er Barnaskólinn, en fyrir óhag-
sýni og ráðfrekju einstakra manna
stendur hann á svo óheppilegum
stað, að þorpinu er minna gagn
og prýði að honum en verða
mátti, ef betur hefði verið ráðið.
Mesta furða er það, hvað menn
leggja mikið kapp á þessa stein-
steypuhúsagerð, þegar þess er
gætt, hvað litla framtíð Eyrarbakki
lítur út fyrir að eiga, hvað lóðar
gjöld eru afarhá; að naumast er
hægt að fá fulltrygga byggingu
á lóð fyrir sig og sína. og að ó-
mögulegt er að fá nokkra lóð
keypta.
Húsflutningur var hjerlaglega
framkvæmdur fyrir stuttu af Gunn-
ari trjesmið Jónssyni. Hann hafði
keypt hús, sem þurfti að færast
til um 100 feta langan veg, og
tókst það svo greiðlega, að ekki
ein rúða sprakk í því. Var hús-
ið þó 16 x ll1/-, al- að stærð
einlypt, og þurfti að færast á 7
fóta háan steinsteypugrunn, og
uppá hann var húsið sett óskekkt
með öllu.
Atvinna er nú engin hjá flest-
um nema að hirða skepnur, og
útbúa það er að sjávarútveg lítur
fyrir vertíðina.’ Framan af vetri
höfðu nokkrir menn atvinnu við
að gera við sjóvarnargarðinn, sem
skemmdist í flóðinu mikla í fyrra-
vetur, en garður þessi er eitt hið
mesta mannvirki, sumstaðar allt
að 16 feta hár og 20 feta þykk-
ur, allur úr stórgrýti, og nær ó-
slitinn frá Óseyrarnessferjustað og
austur fyrir Stokkseyri, er það
allt að 10 km. lengd, (eða líkt
og frá Lækjartorgi og upp að
Rauðavatni.) Óhætt er að fullyrða,
að væri garður sá ekki, mundi öll
byggð eydd á Eyrabakka að minsta
kosti.
Pratigaramentii hafa hjer ver-
ið'á ferð eða—flakki,— við og við
eru þeir*að leitast við að hafa
góðar eignir útúr einföldum mönn-
um, og gefa í móti fánýt skulda-
brjef, öreiga víxla og þesskonar
„pappíra" eða þá húsaskrokka í
Reykjavík, með tilheyrandi stór-
skuldum. Ekki hafa þessir snáð-
ar komið hjer við .metum sínum
ennþá svo teljandi sje, en ílla eru
þeir sjeðir og allsárt hafa þeir
leikið suma hjer nærlendis. Og
ekki er gott til þess að vita, sem
þó er ekki ótítt, að bestu jarðlr
annaðhvort leggjast í eyði eða
gjörspillast afórækt fyrir aðgerðir
þessara manna; væri það afvegi
að löggjöfin vildi setja dálítinn
hemil á þessa snáða ?
Búleiði eða eitthvað þessháttar
virðist vera kominn í allt of marga
bændur, hjer í Árnessýslu að
minnsta kosti, því eitthvað nálægt
30 bestu jarðir eru nú á boðstól-
um í sýslunni til kaups og ábúð-
ar. Er það dálítið ískyggilegt og
athugavert, eins og þó er og hsf-
ur verið hlynt að landbúnaðinum
á kostnað hinna atvinnuveganna
í landinu og eins og afurðir hans
eru nú komnar í laglegt einokun-
arverð.
Alþingismenn væntanlegir eru
ekki aðrir hjer tilnefndir en þeir
gömlu, og ef til vill þoríeifur
Guðmundsson frá Háeyri sem að
líkindum liefur allmikið fylgi. Ein-
hverjir aðrir ganga kannske með
eitthvað þessháttar í. maganum,
svo serh þorfinnur á Spóasiöðum,
sem hvað hafa eitthvert þing-
mennsku garnagaul, en talið er
að hann mundi ekki fá marga
áhangendur.
Efra-Hvoli í gær.
C óð tíð hefur verið hjer lindan-
farið og útbeit, en í gær' skall á
stórliríð og er enn í dag. Menn
enn vel settir með hey sökum góðs
vetrar, það sem af er.
ÍiM
UTLOMDUM
-t.Sl
Frá Mexikó
er sama þófið að frjetta. — Þó fara
stjórnariiðar víðast halluka, fólk
flýr úr landi og óstjórnin er afskap-
leg. — Wilson Bandamannafor-
seti hefur sætt liörðum ákúrum á
þingi Bandamanna 'fyrir aðgerða-
leysi siit og vill þingið að engu
liafa vilja hans: að sitja hjá og
hefjast ekki handa; — telur fjöldi
þingmauna skyldu forsetans að sker-
ast í leikinn og sýna Mexíkó mönn-
um vopnin. Kurr er og víða með-
al þjóðarinnar út af hinu sama, en
svo bera menn almennt mikið traust
til Wilsons, að þeir segja, að liann
leysi sjálfsagt vandkvæði þessi á
einhvern hátt, er best henti, sem
fólkið komi ekki auga á; hami viti
sjálfsagt betur en hinir, og aðgerða-
leysi hans sje undanfari einhvers,
er leysi hnútinn, og djúphyggju
hans sje óhætt að treysta.