Vísir - 01.03.1914, Page 2
V I S l R
Týndar fornborgir
fnndnar.
Þrjár borgir frá timum Inkanna
i Perú.
Inkar hjetu fornkonungar Perú-
oúa og stofnaði hinn elsti þeirra,
Mancp Capac, um árið 1000
voldugt klerkstjórnarríki þar með
einkennilegu jafnaðarmennsku-sniði
(jarðeign öll sameiginleg þjóðeign).
Hinn 13. »inka«, Atahualpa, sviftu
Spánverjar lífi og ríki 1533.
Breskur liðsforingi, Besley, er
áöur hefur farið í rannsóknarferðir
um Afríku, Thíbet og Alaska, hefur
nýlega lokið rannsóknarleiðangri
inn í dularríki frumskóganna í Suð-
ur-Ameríku og fundið þar 3
týndar fornborgir frá tímum
Inkanna. Segir hann svo frá ferð
þessari í viðtali við blaðamann í
New-York:
»Jeg hjelt með förunautum mín-
um inn í Perú og kom til Cuzco,
hinnar fornu höfuðborgar Inkanna.
Þar hittum við gamlan Indíána, er
kvaöst geta sýnt oss rústir miklu
eldri, en nokkrar áður þekktar rústir
þar á slóðum.
Hann vísaði oss til þriggja borga,
sem síðustu aldirnar hafa verið
faldar inn í þjettasta myrkviði frum-
skóganna. Það þori jeg að ábyrgj-
ast, að líkar þeirra hafa aldrei fund-
ist í nokkru landi. Við ruddum
oss braut gegnum flækjur og vafn-
ingsviðu myrkviðarins og gátum
sjeð nokkuð af hinum stórkostlegu
húsum og stórbyggingum, er ekk-
ert gefa eftir að byggingarlist og
prýði stórhýsum nútíðarinnar og
þinghöllum hins menntaða heims.
Þar sáum vjer lnka-hallir með
hærri og rýmri sölum, en í hinum
stærstu samkomuhöllum nútímans.
Leiðsögumaður vor, Indíáninn, sagði
að aðalborgin, er hjet Plateryoyoc
hefði einu sinni haft um 50 þús.
búa. Vjer fundum þar aðdáanleg
sýnishorn af »Champi«,sem er blanda
af gulli og silfri, silfurmeitla, marga
sigð-hnífa og allskonar ker, og voru
mörg þeirra gerð af afarmikilli Jist.
Vjer vorum fyrstu hvítu menn-
irnir, er stigum fæti vorum í þessar
borgir.
Það er auðsætt, lnkarnir hljóta á
sínum tíma að hafa þekkt sjerstak-
ar aðferðir, er vjer nú þekkjum ekki,
til þess að flytja afskaplega stór
björg úr ,stað. Vjer fundum eitt
bjarg, er vóg um 300 smálestir,
er auðsjáanlega hafði verið flutt úr
mikilli fjarlægð. Það hafði að nokhru
Ieyti verið skorið eða unnið með
einhverju verkfæri, svipuðu sög, eftir
förunum að dæma.
Borgir þessar eru víggirtar vold-
ugum múrum og há og mikil borg-
arhlið á úr sleini. Bakkar fljóts þess,
er þar rennur fram hjá eru hlaðnir
upp prýðilegum múr á 45 enskra
mílna svæði og svo háir, að þeir
bæði verja flóði yfir bakkana og
óvinaher að komast að fljótinu og
þann veg í borgina.«
Len ta loftför heimsins
hefur þýskur vjelfræðingur, Belliner
að nafni, farið. Hann fór 16. þ. m.
frá Bitterfeld á Þýskalandi til Kir-
I
Skemmtisamkomu með bögglauppboði
ætlar
„H v í t a b a n d i ð«
að halda mánudaginn 2. mars kl. 8l/2 síðd. í K. F. U. M. Ágóðinn
verður varið til að styrkja nauðlíðandi sjúka konu. Fjelagsfólk og
aðrir, sem vilja styrkja fyrirtækið með bögglagjöfum, eru beðnir að
senda þá fyrir kl. 4 á’mánudaginn í K. F. U. M.
NEFNDIN.
Aðalfundur
í H|F„Hótel ísland”
verður haldinn í Templarahúsinu mánudaginn 16. mars kl. 8 síð-
degis.
Auk dagskrár:
Samkvæmt 17. gr. fjelagsins verður á fundinum tekin ákvörðun
um framtíð fjelagsins.
Stjórnin.
Pyrir sjómenn
allskonar rúmteppi með stórum afslætti. Einnig sjómannadýrmr, vandaðar
og ódýrar hjá
Jónatan Þorsteinssyni,
Laugaveg 31.
Húsið
Vatnsstíg m 10
er laust til íbúðar frá 14. maí næstkomandi.
Menn snúi sjer til
H. TH. A. THOMSEN.
Aðeins í örfáa daga verða seldar góðar
Kartöflur á kr. 7,50 tunnan (200 pundin).
Gulrófurnar góðu
eru komnar aftur.
K1 appastíg 1 B. Sími 422
Litíð fyrst inn,
þegar á fatnaði eða vefnaðarvörujþurfið
að halda,
til Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettarmálaflutningsmaður.
Kirkjastr. 8. Venjul.heima kl. 10-11
tímanlega.
Nokkrir tómir
d ú n k a r
fást á
Landstjörnunni
i
Hótel ísland.
?
giskan í úralfjöllum á 47 klukku-
stundum, en vegalengdin er 1875
enskar mílur.
Hryðjuverk
atkvæðakvenna
á Englandi fara vaxandi. 12. þ. m.
gerðu þær tilraun til að sprengja í
Ioft upp höll Arthurs sál. Chamber-
lains. Öngstigi mjóit er milli þess
og aðseturs Josefs Chamberlains,
Höll þessi heitir Moor Green Hall
í Highbury íBirmingham. Til allrar
hamingju náðist í sprengikúluna, er
þær höfðu komið fyrir í húsinu,
áður en hún sprakk. Var í henni
afarmikið sprengiefni. Dagblað og
póstkort fannst hjá húsinu og var
þar á ritað: »Gerið svo vel og
sendið þetta í pósti til M’Kenna,
Home Office, London: Hernaður
er ekki útdauður, en ef þú ert ekki
dauður, skalt þú verða það innan
skamms.«
Sama dag brann Carnegie-bók-
hlaðan í Northfield í Birmingham.
Voru þar og skjöl atkvæðakvenna í
nánd, með hótunum og atkvæða-
kröfum. Enn hafa þær reynt að
kveikja í húsi konu nokkurrar og
gert tilraun til að eyðileggja járn-
brautarstöðina við Wigau með
íkveikju. Voru þar tundurefni og
íkveikjufæri afarmikil og kviknað í
herbergi er enginn bjó í þá um
tíma. Margar atkvæðakonur hafa
verið teknar höndum.
Hálshöggvinn 1793.
í fyrra var erfðamál fyrir dóm-
stólunum í París. Karli nokkrum
var stefnt sem vitni.
Þegar hann kom fyrir rjettinn,
spurði dómarinn hann að nafni.
— »Luis Octave Etienne!«
»Hvenær eruð þjer fæddur?«
»1834.«
»Eigiö þjer nokkra ættingja?«
»Nei, ekki nú á Iífi,« svaraði
gamli maðurinn. »En jegátti bróður,
sem var hálshöggvinn 1793ístjórn-
arbyltingunni.«
Allir viðstaddir gláptu á manninn
eins og þrumu Iostnir, forviða á því,
að hann skyldi hafa átt bróður, er
hefði verið hálshöggvinn fyrir 120
árum.
»Jú, það er alveg satt,« sagöi
karlinn. «Faöir minn fæddisl árið
1756. Hann kvæntist 18 ára og
eignaðist son, sem árið 1789 varð
matreiðslusveinn við hirð Lúðvíks
XVI. En árið 1793 var matsveinn-
inn, sem var bróðir minn, tekinn
höndum og hálshöggvinn með fall-
öxinni og var faðir minn þá 37 ára
gamall. Þegar hann var á 78. árinu
kvæntist hann öðru sinni 1834 og
eignaðist þá sama árið son, og það
er jeg!«
Lúðvík XIV.
Eugenie,' keisaraekkjan frakkneska,
sem enn er á lífi, hafði í æsku hirð-
snót eina, er hafði verið gift manni, er
hafði verið hirðsveinn Lúðvíks kon-
ungs fjórtánda (d. 1715); Hirðsnót
þessi var fædd 1772. Þegar hún
var 16 ára, giftist hún Richelieu
hertoga, er þá var 92 ára gamall
(f. 1696) og hann hafði í æsku verið
hirðsvelnn konungsins Lúðvíks fjórt-
ánda.
J V