Vísir - 09.03.1914, Page 1
m
Vísir
breiddasti og ódýrasta
dagblaðið á Islandi.
Vísir er blaðið þitt.
Hann áttu að kaupa fyrst og fremst.
(3
Ketr.ur út alla daga. Sítm 400.
Afgr í Austurstr. 14. kl. 1 lárd.til 8 síðd.
Kostar 60 au. um mánuðinn. Kr. 1,80
ársfj. Kr. 7,00 árið (380—400 tbl.)
Skrífstofa í Austurstræti
opin kl. 12—3
14. (uppi), Langbesti augl.staður i bænum. Augl.
Sími 400. sje skilað fyrir kl. 6 daginn fyiir birtlngu.
iVIánud. 9. mars 1914.
Háfl. kl. 3,25' árd.og kl. 3,19’ .síðd.
Afmœli:
Sigrún Einarsdóttir.
Á morgun
Afmœli:
Frú Steinunn Briem.
Bjarni Snæbjörnsson, stud. med.
Quðm. Guðmundsson, íshúsvörður.
Póstáœtlun:
Keflavíkurpóstur fer.
Bíó
Biografteaterl O í A
rjOiU
Reykjavíkur
Koimngur merkurinnar.
Amerískur leikur í 2 þátttum.
Ástfangin í lækninum.
Einstaklega skemmtilegur
amerískur sjónleikur.
íkklstur fást venjulega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verö og
gæöi undir dómi almennings. —
wan Sími 93. — Helgi Helgason.
Cigarettuverksmiðjan
A. G. Cousis & Co., Cairo &
Wlalta, býr til heimsins bestu
egyptsku og tyrknesku sígarettur.
Þær eru seldar um víða veröld.
Þýskalandskeisari reykir þær og
Noregskonungur. Engar aðrar sí-
garettur er leyft að selja íTunis
og Japan. Þær fást í
Levis tóbaksverslun.
Trúlofunar-
hringa smíðar
BjörnSímonarson.
Vallarstr.4. Sími 153
set\d\sve\tv
frá
Sendisveinaskrifstofunni.
Sími 444.
GÓÐ HJÓN, sem kynnu að
vilja þiggja að gjöf mjög efni-
legt piltbarn á fyrsta ári, óskast
til viðtals á Lindarg. 43. (kjall-
aranum).
K F. U M
Kl. 6 l/.i. Værjngjaæfing, mœti allir.
Borðeyri í gær.
Þingmálafundir Strandmanna.
Fyrir alllöngu fór Guðjón Guð-
laugsson alþm. norður að Árnesi,
að tala við kjósendur í nyrðri hluta
kjördæmisins og gerðist þar ekki
sögulegt.
Þriðjudaginn var hjeldu þeir
þingmannaefnin Magnús læknir og
Guðjón þingmálafund að Kaldrana-
nesi og varð hann allfjölmennur.
Var þetta um leið leiðarþing Guð-
jóns og sagði hann þingsöguna
síðustu.
Carlsbergs brugghúsin
mæla með
Carlsberg myrkum skattefri
alkóhóllitlum, ekstraktríkum, bragðgóðum og haldgóðum.
Carlsberg skattefri porter,
hinni ekstraktríkustu af öllum portertegundum, og
Carlsberg sódavatn
er áreiðanlega besta sódavatn.
Engir töluðu aðrir en þing-
mannaefnin og engin ályktun var
gerð á fundinum. / fánamálinu
lýsti Magnús yfir því, að hann væri
óánægður með konungsúrskurðinn,
en Guðjón taldi hann betri en frum-
varp þingsins.
Innan skamms verður enn hald-
inn þingmálafundur á Borðeyri.
Björn þórðarson, sýslumaður
Húnvetninga, hjelt þingmálafund í
gær á Hvammstanga. Fáir sóktu
hann sökum ófærðar.
Björn Magnússon símstjóri
fór nýlega yfir í Dalasýslu að tala
við kjósendur. íllviðri og ófærð
var svo mikil, að ekki varð komið á
fundum. Hann fór í Hjarðarholt,
Búðardal og Ásgarð. Þar var hann
3 daga hríðtepptur.
Kong Helgi kom til Húsavíkur
í gær frá Dýrafirði. Þá var Ingólf-
ur kominn til Akureyrar. Hann fór
í nótt aftur til Dýrafjarðar.
lngólfur liggur á Akureyri.
Stykki, sem bilaði í vjelinni, hefur
verið pantað frá útlöndum og bíð-
ur hann þess að það komi.
íshroða lítilsháttar sá Kong
Helgi fyrir Horni og nokkra jaka
undan Dýrafirði.
Harðindi. fllviðri með afarmik-
illi snjókomu hafa gengið lengi um
Norður- og Vestur-land og liggur
allstaðar djúpur snjór yfir landinu.
Sjera Ólafur í Hjarðarholli segir, að
aldrei hafi komið þar um slóðir
eins mikill snjór, síðan hann kom
þar, sem í vetur. f Hrútafirði eru
öll skörð og gil full. Heldur er
snjórinn minni er austar dregur.
í Skagafirði er einnig jarðlaust með
öllu á stórum svæðnm.
Stykkishólmi í gær.
Ótið er hjer stööugt.
Sterling hefur ekki komist inn
að bryggjunni í Stykkishólmi sök-
um íss, Varð að skipa vörum og
pósti í land fyrir utan kaupstaðinn.
Heyleysi er allmikiö um Snæ-
fellsnes. Nýlega kom Ingólfur til
Búða, hlaðinn fóðurbæti (og salti)
úr Reykjavík.
Ágætur afli er í Ólafsvík og
Sandi, þá sjaldan aö gefur á sjó.
£atvdaY vesUa, ]|
Frá J óhannesi J ósepssyni
glímukappa.
i.
Um alllangt skeið hefur Jóhannes
glímukappi sýnt listir sínar í leik-
húsum víðsvegar í Bandaríkjum
Norður-Ameríku.Ferðast hann þar
með konu sína og börnin tvö, telp-
urnar Heklu og Sögu. Hvarvelna
er honum tekið ágæta vel og, þar
sem fleiri atriði eru á dagskrá, þykir
ætíð mest til hans koma, jafnvel þó
frægir leikarar sjeu annars vegar
með leika sína. Þegar þeir eru klapp-
aðir upp þrisvar er Jóhannes gjarn-
an klappaður upp tíu sinnum. Þó
eru það stundum menn, sem fá
þúsund til 2 þús. dala kaup um
um vikuna.
Blöðin keppast um að hæla Jó-
hannesi og eiga ekki orðgnótt næga
til að róma hann.
Jóhannes gengur ekki í felur með
þjóðerni sitt, eins og oft vill verða
um þá íslendinga, er frægð hljóta.
Hann hefur brennt inn í hugskot
sitt uppáhalds orðtæki sitt »íslandi
allt«.
Á undan hverri sýningu sem hann
hefur, talar hann nokkur orð að
inngangi og er það allt um fsland,
Hann segir frá legu þess, stærð,
þjóðerni landsmanna, stjórnarskipun
o. s. frv. Hann hefur ekki að ráða
yfir nerna um 3 mínútum til þessa,
svo ekki getur þetta orðið ýtarleg
lýsing, en hún er samt góðra gjalda
verð og enginn veit nema hann sái
þar einhvern tíma því frækorni,
sem getur orðið þjóð hans að mikln
Iiði.
Það er auðsjeö á öllu, að hann
vildi gera miklu meira til þess að
kynna mönnum land sitt, en tími
lians er mjög takmarkaður. Þegar
ekki eru sýningar, er oft fullt hjá
honum af blaðamönnum. Hann
gat þess eitt sinn í brjefi til kunn-
ingja síns hjer að sjer væri mjög
kært, ef einhver vel ritfær maður
rítaði fræöandi greinar um ísland
og sendi sjer, því hann ætti hægt
meö að koma þeim á framfæri í
góðum blöðum, sökum kunnugleika
síns við blaðamenn.
Síðast hefur frjettst hingað af Jó-
hannesi 31. jan., hann var þá í
Detroit, Mich. í Bandaríkjum og
leið þeim öllum vel. Hann hafði
von um að fá hækkað kaupgjald
sitt verulega innan skamms, þar
hann hefur nú margsýnt, að hann
hefur vel unnið til þess. Frh.
Enskar verksrniðjur á
fslandi.
»Politiken« segir svo frá 19. f. m.
Umboðsmaður fyrir »The English
and British Colonial Animal Pro-
duce Company« í Liverpool, C.
Friend forstjóri hefur keypt á íslandi
hva!bein,hrossbein og kindabein fyrir
30000 kr„ er hann sendir til Eng-
lands. Eftir því, sem sagt er frá
Reykjavík, hefur hann framvegis 15
íslendinga í sinni þjónustu til þess
að kaupa þessar vörur fyrir sig.
í vor ætlar fjelag hans að setja
upp verksmiðju í nánd við Reykja-
vík, þar sem 75 manns verða í
vinnu auk skrifstofufólks og verk-
stjóra. íslendingar, bæði kcnur og
konur, fá aðallega atvinnu í verk-
smiðjunni. Hún verður í 2 deild-
um; í annari á að smíða greiður
og beinsköft, en í hinni á að sjóða
niður kindakjöt. Næsta ár er í ráði
að reisa aðra verksmiðju áNorður-
andi.
Tíu ára myndasmiður.
Robert Ullmann heitir drengur
einn þýskur í Hilden, nálægt Dússel-
dorf. Þegar hann var hálfs þriðja
árs, fór hann að teikna og bar á
ótrúlega bráðþroska gáfum hjá hon-
um í þá átt; jafnframt geröi hann
þá skuggamyndir af ýmsum dýrum.
Þegar hann var á 5. ári, fór hann
þegar að móta myndir og 8 ára
komst hann í yngstu deild Iistiðn-
aðarskólans í Vínarborg. Myndir
og líkneski, er hann hafði gert af
eigin hugviti sínu, voru sýnd í list-
iðnaðarsýningunni, og dáðu menn
mjög afbrigðagáfu drengsins. Nú
er drengurinn 10 ára og allir undr-
ast hæfileika hans. En drengurinn
er fátækur, foreldrar hans bláfátæk
og því óvíst, hvort gáfur hans geta
notið sín. En sennilega verður ein-
hver, sem efni, vit og mannúð hefur,
til þess aö láta ekki listahæfileika
þessa fara forgörðum og hjálpa
honum.
Hækkaður í tignlnni
er hollenskur brjefberi nokkur (»bæ-
arpóstur« f Amsterdam). Hann er
sem sje orðinn prófessor í þjóðfje-
lags- og ríkis-hagfræði við háskól-
ann þar. Maðurinn hefur ekki veriö
iðjulaus. Þrátt fyrir erfitt brjef-
i