Vísir - 09.03.1914, Side 2
VÍSIK
buröarstarf tókst honum með frá-
bærri ástundun og afbragðsgáfum að
ná þeirri þekkingu í þessum fræði-
greinum í tómstundum sínum, að
honum hefur verið veitt þetta em-
baetti.
Loftskeytasamband
milli Berlín og New-York er nú kom-
ið í iag að fullu. Nóttina milli 11.
og 12. f. m. sendust blöð beggja
borgakveðjuskeytumá í loftsíma. Leið
sú, errafmagnsgneistinn fer þráðlaust,
er 6460 rastir. Loftsímaturnarnir í
Berlín eru frá 120—180 stikur að
hæð og eru þeir allmargir á loft-
skeytastöðinni, er nær yfir allmikið
svæði; eru turnar þessir bæði ofan
og neðan jarðar sameínaðir með
þráðum. __________
I
BAbyggilegasta
úm m
. vitnið.
Málafærslumaður nokkur í H a m-
borg þóttist oft hafa ^komist [að
raun um þaö í málum “þeini, er
hann hefði með höndum, hve mjög
og hve oft vitnum hætti til að
skeyta skökku við um tímaákvarð
anir. Hann hugsaöi sjer í máli einu
merkilegu að ganga úr skugga um,
hve óhætt væri að treysta á trú-
verðuleik eins aðalvitnisins í þessu
tilliti. Máiið reis út af sjósiysi, er
varð viö árekstur tveggja skipa.
Vitni þetta meiddist við áreks ur-
inn og lá enn í sjúkrahúsi.
Málafærslumaðurinn fór á fund
sjúklingsins, gekk að rúmi hans og
spuröi hann: »Getið þjer sagtmjer,
hve langur tími leið milli þess, er
skipið fór frá bryggjunni, ogaugna-
bliks þess, er áreksturinn varð?«
sNú, það munu hafa verið 10
mínútur!« var svarið,
»Hvað haldið þjer að tíu mínút-
ur sjeu lengi að líða?«
»Nú — auðvitað t:u mínútna
tímal* svaraði sjúklingurinn eins
og beint lá viö.
»Já, það veit jeg, en nú ætia jeg
að fá vissu um, hve langur tími
yður finnst það. Það er sem sje
aðalatriðið. Nú stend jeg við
fótagaflinn á rúminu yðar, held
úrinu mínu, og svo eigið þjer að
gera mjer aðvart, þegar þjer hald-
iö, að tíu mínúfur sjeu liðnar.«
Sjúklingurinn fjellst á þetta, Iagð-
ist rólegur út af og horfði á mála-
færslumanninn, sem stóð andspænis
honum við fótagaflinn og horfði á
úriö.
Aö nokkrum mínútum liönum
sagði málfærslumaðurinn: »Nú, —
hvernig gengur þaö, — hvað ætlið
þjer að nú að biða lengi ?«
Sjúklingurinn brosti kampinn og
gaut augunum í laumi á veggjar-
klukku miklu, er hjekk andspænis
rúmi hans, en málafærslumaður
snjeri baki að og sá því ekki.
Þegar vísirinn var loks kominn á
rjetta depilinn, hrópaði sjúklingur-
ínn: »Tíu mínúturl«
Málafæslumaður varð svo for-
viða, að augun ætluðu út úr hon-
um, og mælti: »Hugsið þjer, vin-
ur minn góður! Þjer eruð það
nákvæmasta vitni um tímaákvörð-
un, er jeg hef nokkru sinni fyrir
hitt alla mfna málfærslutíð!«
Söngvarnir úr Ljenharði fógeta
eftir ÁRNA THORSTEINSSON
eru komnir út og fást hjú öllum bóksölum bæarins.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
Fyrir sjómenn
allskonar rúmteppi með stórum afslætti. Einnig sjómannadýnur,| vandaöar
og ódýrar hjá
Jónatan Þorsteinssyni,
Laugaveg 31.
A Laugavegi 5.
Vindlar,
Vindljngar, $&£***’
Munnióbak (Nobeis).
Reyktóbak (fjöldi tegunda.)
Neftóbak (skorið),
allt þekkt fyrír að vera besta og
ódýrasta í bænum.
*\DeYsl\XTY\u y,exmes,
Njálsgötu 26.,
selur fyrst um sinn:
Kaffi ágætt 0,78 pd.
Export 0,48 —
Cacao gott 1,10 —
Heilbaunir 0,14 —
Haframjöl 0,15 —
Hrísgrjón 0,15 —
Rúsínur 0,28 —
Hveiti gott 0,12 —
Ótal tegundir af Kexi.
Stúfasirts 1,40 -
í Sykur ódýrarí enn ann-
Í arsstaðar.
rortepiano.
Vöruhúsið hefur einkasölu á
fortepíanóum frá
Sören Jensen,
píanóverksmiðju í Kaupm.höfn.
Til sýnis í
Vöruh úsinu.
[Efni til að varna
!\di ðU« steinmyndun í
—jjj - gufukötlum. Er
uppl. í vatninu
í hæfilegu hlut-
falli.j
Ætíð til í
Vöruhúsinu.
HT Nauðsynlegt hverju gufu-
skipi.
Lítíð fyrst inn,
þegar á fatnaðí eða vefnaðarvöru §|þurfið
að halda,
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austur8træti 1.
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði
heilir tanngarðar og einstykar
tennur,
á Laugavegi 31, uppi.
Tennur dregnar út af lækni
daglega kl. 11 —12 með eða án
deyfmgar.
Viðtalstími kl. 10—5 síðdegis.
Sophie Bjarnason.
nýkomin í verslun
Amunda Arnasonar.
Palladómar.
---- Frh.
28. Steingrímur Jónsson,
3. konungkjörinn þingmaður.
(Fæddur 27. des. 1867).
Hann hefur fimm þingin setið
(1907—1913), og er einn þeirra
fimm sýslumanna, er skipuðu síð-
asta þing1). Mun hann óhikað tal-
inn þeirra snarpasturog fyrirferðar-
mestur þingmaður.
Stgr. J. er nokkuð ofar meðal-
manni að hæð, grannur, beinvax-
inn, limaður vel, og vel á sig kom-
inn um allt, snarlegur og snotur-
lega á fót kominn. Hann er bjart-
leitur, ekki höfuð stór, nokkuð
dökkur á hár, en hæruskotinn mjög,
enni mikill, og er ennið hafið og
vikótt og ekki breitt, gagnaugna-
ber, brúnamikill nokkuð og brúna-
hár mikil og jörp að lit, gráeygur
og ekki úteygur, augun stór skír
og föst, nefið beint og ekki þykkt,
hafið og fer vel. Hann er ekki
þykkleitur og þó sljettleitur, og
svarar sjer vel í andliti. Skegglaus
er hann á vöngum, en granarskegg
hefur hann jarpt og mikið. Þykir
hann hvatlegur á svip, sviphreinn
og djarflegur.
Þá er Stgr. J. kom fyrst á þing
(1907) þótti mönnum sem hann
væri svo ólatur að tala, að hann
notaöi flest tækifæri til þess. En á
öðru þingi hans (1909) þótti þetta
eiga sjer meiri takmörk, og varð
hann þó ekki kallaður mállatur.
Nú þykir ræðufjölda hans við hóf
stilt.
Stgr. J. geröist strax hvatur og
óseinn til allra þingstarfa, og svo
er það jafnan. Hann er elju- og
starfs-maður, sækir störfin af kappi,
og er alloftast því líkast, sem hann
sje ekki í rónni fyr en hann hef-
ur komið af höndum sjer þeim
málum, er undir hann koma í nefnd-
um. Og langoftast leggst hann á
málin nieð skerpu og nákvæmni
Enda mundi það sjaldnast, að hann
skili málum af höndum sjer slundu-
samlega íhuguðum, og ekki mundu
dæmi til þess, að hann skilaði þeim
seint og illa köruðum. Þessa síst
munu þess dæmi, að málin verði
óhreyfð innlyksa í þeim nefndum,
er hann skipar, eins og reyndar
kemur stundum fyrir, en þó vitan-
lega langhelst hjá einhverjum lítt
skiprúms gengum starfleysingjum,
er ekki ættu að stássa upp f þingið
með hangsi sínu og hugsunarleysi.
Stgr. J. er f fæstum jorðum sagt
hraðvirkur afkastamaður á þingi. En
vant er að koma saman flýti og
afkastasemi annars vegar og svo
hins vegar góöum ytra frágangi.
Það er heldnr ekki mál í það bor-
ið, að ytri frágangur hans á mál-
unum beri af slíku hjá öðrum
mönnum.
Mörg stærstu og merkustu mál
hafa undir Stgr. J. komið, og hef-
ur ávallt gætt þess sama um starf-
semina. Hann hefurskipað fjárlaga-
!) Jón Magnússon bæarfógeti er
vitanlega talinn hjer með sýslmönn-
unum. En auk hans og Steingríms
voru þessir sýslumenn á síðasta
þingi: Guðm. Eggerz, Sig, Eggerz
og Jóh. Jóhannesson.