Vísir - 09.03.1914, Page 4
V I S I R
er jeg seiidi honum hólmgönguboð,
þá vatt hann því af sjer með þeim
skilaboðum, að iiann berðist eigi
viö kaupmannsson — en hann gat
þegið grið af hendi kaupmanns-
sonar!« Frh.
Úr umræðum
bæarstjórnarinnar
5. marts.
Bæarverkfræðingsstaðan.
Borgarstjóri skýrði frá því, aö
frestur sá hefði verið útrunninn 28,
feb., er menn hefðu til að sækja um
bæarverkfræðingsstöðuna, og engin
usnsókn komið. En staöan væri
laus frá 1. apríi, því ekki fyrir-
sjáanlegt annað en þá yrði bæar-
verkfræðingsstarfið laust, ef bæar-
stjórnin geröi nú ekki neinar bráða-
birgðaráðstafanir til þess að fá mann,
til að gegna því embætti fyrst um
sinn, og til þess hreyfði hann þessu
máli, að hún ljeti í ljósi álit sitt
um það. Benti á að vísa mætti
málinu til veganefndar, þar verksvið
bæarverkfræðingsstarfsins Iægi mest
undir hennar umsjá.
K Zitnsen áleit að bæarverkfræð-
ingurinn starfaði eins mikið fyrir
aðrar nefndir, sem veganefnd. Því
ekki ástæða að vísa málinu til henn-
ar. Lagði til að ný 3 manna nefnd
yrði kosin til að íhuga þetta mál
og gera tillögur um hvað gera skyldi.
Jóh. Jóh. áleit nýa nefnd óþarfa,
sagði það væri fyrir smámunasakir
bæarstj. að hún hafi rekið B. Jóns-
son frá starfinu, ekki viljað borga
honum viðunanleg laun, og yrði
nú í vandræðum, þar sem enginn
sækti um stöðuna. Tími væri stutt-
ur til mánaðamóta, og ekki hægt
aö skapa verkfræðing á þeim tíma,
sem ekki væri til. Það eina, sem
hægt væri að gera í þessu máli,
væri að hækka laun hans og fá
hann til að vera kyrran.
T. Gunnarsson sagöi þaö rangt
hjá J, Jóh. að bæarstj. hefði rekið
B. J., hann hefði sagt stöðunni lausri.
En þótt bærinn yrði verkfræðlngs-
laus eitt ár, mundu engin vandræði
af því stafa. Bæarverkfræðingur
hefði lítiö hjer að gjöra næsta ár
og þessi störf, sem hann hefði með
höndum mætti fela öðrum og væri
það útláta minna fyrir bæinn að
launa manni með 2700 kr. til
3000 kr, — Oóður trjesmiður gæti
sjeð um húsabyggingar eins vel og
B. J. Menn gætu borið möl ofan
í göturnar án hans og lagt skolp-
ræsi í þær o. s. frv. Sigurjón
Pjetursson væri ekki óhæfari en B.
J. til að vera slökkviliðsstjóri,mundi
sýna eins mikinn dugnað við elds-
hættu. f vetur hefði bærinn ekki
fallið um koll, þótt verkfræðingslaust
hefði verið, því hann hefur ekkert
haft að gera. Til þess að mæla út
bæarlöndin þarf heldur ekki stóran
» Kunstner«, þ ví Búnaðarf jelagið getur
notaö Oísla Þorbjarnarson til þess,
og er ekki að fundið.
Jóh, Jóh. sagði það skakkt hugs-
að, að bærinn græddi á því að skifta
verkum bæarverkfræðings á marga.
Tr. G. hefði enga vissu fyrir því,
að Sig. P. vildi taka að sjer slökkvi-
liðsstjórastöðuna fyrir litla borgun.
Lj ósmyndatoj e fs pj öld
frá 12. júní 1913.
1. Einar Pjetursson rær úí á „skelinni".
2. Fánabátarnir koma í land.
3. Varðskipsforinginn gengur undir íslenska
fánann.
4. Mótmælasamkoma í Barnaskólagarðinum.
5. Við myndasiyttu Jóns Sigurðssonar.
25 au. hvert.
Öll kr. 1,00.
r
k afgr. Vísis.
(Tr. G.: Jeg heyri ekki til bæarfull-
trúans, hann hefur svo hátt, aðþað
tekur of mikið undir í þilinu fyrir
aftan mig.) Álít það vera hag fyrir
bæinn að gjalda honum hærri Iaun,
ætti að vera 4000 lcr. Tr. G. hef-
ur ekkert hugsað um, hvað bæar-
verkfræðingur hefur að gera, hann
er altaf upptekinn við ýmislegt snatt,
fyrir bæinn og bæarmenn, mig og
aðra, svo hann er ætíð upptekinn
við það frá morgni til kvelds.
Frh.
jpl
Akureyrarbrjef
Akureyri, 23. febr. 1914.
»Langbesta blaðið, sem nú kemur
út hjer á landi, er »Vísir«. Það er
líka eina blaðið, sem nokkuð
líkist útlendum blöðum. Palladóm-
arnir um þingmenn eru andlega
hressandi. »Vísir« ættu allir að
Iesa.
Austanpóstur hefur fengið voða-
færð. Var kominn í Ljósavatn í
morgun. Þegar hann lagði austur,
var hann 6 tíma af Akureyri og
upp á Vaölaheiðarbrún, sem annars
er 2 tíma ferð. — Hafði flutning á
7 hestum.
Snjór er kominn afskaplegur og
illviðrin eru látlaus. Hjer á Akur-
eyrargötum er mokað látlaust, en hefst
ekki undan. Sagt er, að sum hús
sjeu að fara í kaf á Siglufirði. Búist
er við að Sigurjón póstur muni fá
ókleyft yfir Öxnadalsheiði.
Afli Enginn. Svarfdælir voru
orðnir rauðmagavarir, en ekkert hægt
að stunda þá veiði fyrir illviðrum.
Pólitískur fundur á að verða á
Grund næstkomandi föstudag. Skor-
að er á frambjóðendur til þings að
spreyta sig þar, og er búist við
þeir tjaldi öllum sínum fjöðrum.
E/s »Ask« erhjerað afferma kol til
R. Ólafssonar. Heppilegt að fá
þau nú, ef ís og óáran skyldi nú steðja
að með vorinu.
Enginn hefur hugmynd um það
hjer enn, hver skal sitja uppi með
Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarbæjar-
fógeta-hnossið.
Friðbjöm Bjarnason.
Hundur bjargar.
Nú nýlega voru tveir hundar,
sem þeir Jön Grímsson bókhald-
ari og O. G. Syre eiga, að leikj-
um úti á ís og féll annar hundur-
inn fram af skörinni. Seppi reyndi
hvað eftir annað að komast upp
á skörina, en rann alt af niður
aftur, þar til hinn hundurinn, stór
hunduraf St. Bernhardshundakyni,
sem O. G. Syre á, seildist fram
af skörinni og tók með kjaftinum
í hinn og dró híinn upp á skör-
ina. Á þetta horfðu margir menn.
(Vestri.)
þessi er send Vísi að norðan til
birtingar. Er hún um einhvern
»góðkunningja« okkar suður í Höfn.
íslands saga er söm og jöfn,
síst mun gjörast undur,
þó að óður út’ i Höfn
urri danskur hundur.
Á. + B.
Gróðafyrirtæki.
Duglegur maður, með góðri reynslu,
vill fá sjer mann í fjelag við sig,
er lagt gæti fram í peningum 1000
krónur á móti öðrum þúsund krón-
um í mjög arðsamt og með öllu
áhættulaust fyrirtæki. Viðkomandi
maður hefur svo mikla trú á fyrir-
tæki þessu, að hann vill vinna til,
að veðsetja væntanlegum fjelaga sín-
um sinn hluta í fyrirtækinu.
Fyrirtæki þetta er þannig lagað,
að ekki þarf seinna að auka stofn-
fjeð (2000 kr.) neitt. Það gengur
af sjálfu sjer, og ætti nú þegar í
ár, að gefa í arð 100°/o minnst,
eða 1000 kr. hvorum stofnandanum.
Tilboð sendist í lokuðu umslagi
til ritstjóra »Vísis« innan 5 daga,
merkt:
»Gróðafyrirtæki.«
LÆKNAR
Guðm.Björnsson
landlæknir.
Amtmannsstíg 1. Sími 18.
Viðtalstími: kl 10—11 og 7—8.
Massage-læknir
Guðm. Pjetursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spííalastíg 9. (niðri).
Sími 3 49
M. Magmís
læknir og sjerfræðingur
f húðsjúkdómum.
Heima kl. 11 — 1 og 6X2—8.
Sími 410. Kirkjustræti 12.
íbúð, góð og ódýr, 2—3 her-
bergi og eldhús, er til leigu nú
þegar og til 14. maí. Uppl. hjá
Ól. Oddsyni, Pósthústræti 14 B.
3 stofur og eldhús (neðri hæð)
ásamt geymslu í kjallara er til
leigu frá 14. maí. Uppl. á Njálsg.
40 uppi.
1 stofa eða 2 lítii herbergi og
eldhús óskast frá 14. maí, helst
í uppbænum. Afgr. v. á.
Til leigu er frá 14. maí stór
kviststofa og svefnherbergi, eld-
hús og geymsla með öðrum.
Aðgangur að þvottahúsi og þurk-
lofti. Afgr. v. á.
4 herbergi ásamt eldhúsi og
geymslu óskast frá 14. maí n. k.
Helst sem næst miðbænum. Afgr.
v. á.
KAUPSKAPUR
Bær lítill, laglegur, er til sölu
í Hafnarfirði. Semja ber við Ein-
ar þorgilsson í Hafnarfirði.
Sófi, vandaður og fásjeður mjög
og fínn, til sölu á Vesturg. 17.
Knattborð (Billiard)
með öllu tilheyrandi er til
sölu af sjerstökum ástæð-
um á Laugaveg 23,
íslensk dýraiækningabók til
sölu með góðu verði. Sýnd á
afgr. Vísis.
Barnavagn til sölu Þing-
holtsstræti 33.
Jeg bið þann, er eiga kynni þýð-
ingu V. Rydbergs af GoethesFaust,
að gera svo vel að selja mjer
hana eða lána.
Sömuleiðis bið jeg þann, er
keypt hefur úr dánarbúi mínu
„Diintzer: Erkliirungen zu
Goethes Faust,“ að gera svo vel
að lána mjer bókina.
Bjarni Jónsson frá Vogí.
SI leiga
2 drátiarhestar
duglegir eru til leigu frá 1.
maí. Á sama stað fæst til
kaupseða leigu skemmtivagn
með aktýgjum. Afgr. v. á.
Peningar tapaðirá veginum milli
Hafiiarfjarðar og Reykjavíkur. Skilist
á afgr. Vísis.
Þú sem tókst skófluna mína
við Kárastaðahúsið 2. þ. m. Skil-
aðu henni á Hverfisgötu 56 B,
ellegar jeg læt annan sækja hana
heirn til þín.
Silfurnál fundin. Vitja má á
Hótel Reykjavík.
Útgefandi
Einar Gunnarsson cand. phil.
Östlunds-prentsmiðja.