Vísir - 25.03.1914, Side 3

Vísir - 25.03.1914, Side 3
Palladómar. ---- Frh. G. G. hefur jafnan notið mikils trausts í þinginu. Til hans hefuroft venð vikið sumum mestu og bestu málunum, og hefur þeim oftast þótt vel niður komið hjá honum. Mætti allmargt ' nefna, er vottar þingtraust hans. Honum var um nokkura vetur falið af þinginu það trúnaðarstarf.að yfirskoða landsreikn- ingana. Þótti honum fara það sem annað röggsamlega úr hendi. En oflangt yrði að telja hjer allt það, er undir hann hefur komið þing- málanna. Svo hefur það margt verið. Nefna mætti eitt, er sýnir traust það, sem til G. G. hefur ver- ð borið á hærri stöðum. Hann var einn þeirra manua, seni skipaðir voru í milliþinganefnd í fátækra- málum, þá er vinna skyldi að bót- um á fátækraiöggjöfinni, og til var stofnað með þingsályktun J 90 . Það fór saman, að nefnd þessi var ágætlega mönnuð, og hitt, að hún skilaði að mörgu leyti vel unnu verki. , Sveitarstjórnarlögin og fá- tækralögin, þau er nú lifum vjer undir, eru frá henni sprottin í upp- hafi. En ekki er því að gleynia, að það mun að mörgu leyti mega [ þakka málfylgi og þrautseigju G. G., að lagasetning þessi (sveitarstjórnar- lögin og fátækralögin) fór hömlu- lítið Út úr þinginu 1905. G. G. er franifaramaður, og hef- ur mörgum nýmælum hreyft í þing- inu. Hafa ,sum þeirra komist fram með góðum, skilum, en aftur önn- ur Öðlast óbrotinn kerlingardauða, eins, og, gengur og gerist. Mest hefúr hann látið til sín taka bún- aðarmálalöggjöfina. En ekki hefur hann heldur sneitt sig hjá atvinnu- málunum, öðrum en búnaðarmál- um, skattamálunum, fjármálunum, kirkjumálum og klerka og öðru fleira. Hefur hans alloftast verið til góðs getið um mörg þeirra. En rjett er að Iáta það sagt, að kunnað hefur hann að veita viðnám málunum,svo merkjanlegt væri, hafi honUm boð- ið svo við að horfa. Og bannlaga- vin er hann ekki, þó margt $je honum til lista lagt. Geta má þess Strandamönnum til þóknanlegrar ihugunar, að þá er af allur skriður, ef G. G. þok- ar ekki hauðsynjamálum þeirra um hænufet á þingi. Það mun sannleikanum sam- kvæmt, að Sambandsmönnum sje um það hugarhaldið, að G. G. komist enn á þing. Jafnsatt mun hitt, áð Sjálfstæðismönnum er böl- vanlega við, að láta hann sitja íleiri þingin. Og um þetta mun brók- eltingin standa út næstu dymbil- vikuna. Gefur því nú að vita hver betur má, Brúnn eöa Rauður. EtJ' hvað sem brókelting þeirri líður, þá er það mál sumra viturra manna, að G. G. eigi fremur þing að sitja en margur annar. Og þó er ekki það að dyija, að nokkurir þeirra töldu hann anda fremur kalt 1 drykk sinn eða fú|t yfir stjórnar- skránni á síða$ta þingi. Frh. V 1 8 1 R heitir ný verslun, sem opnuð var í gær á Laugavegi 19. (hornbúðin.) þar fást: Allskonar matvörur, Krydd, Dósamatur, Sælgæti, Sápur, Tóbak, Vindlar og margt fleira. \)\S\ 11 Stærsta-besta oa ódýrasta i t>táS á íjtenjka Juv-au. Nýir áskrifendur að blaðinu aprílmánuð, fá það gefins, sem eftir er í mars, er þeir gerast kaupendur. Um mánuðinn kostar blaðið aðeins 60 aura. Verslunin HLiF (Grettisgötu 26) er vel byrg af flestöllum nauðynjavörum í Verðið óvenju lágt. Vörurnar einkar góðar. { Brenní og malað kaffi hvergl ódýrara. Fasteignaskrifstofan. á Njálsgötu 22 veitir upplýsingar um verð og annað, er snertir kaup og sölu fasteigna o. þ. h. — Hefur nú til sölu verslun hjer í Rvík, og nokkur hús með góðum kjörum. — Þeir, er vilja kaupa eða seija fasteign o. þ. u. I., tilkynni það á skrifstofunni, það kostar lítið. í Vísi tímanieea. Góðar danskar IVIatarkariöflur ern seldar ódýrt hjá Petersen frá Viðey, Hafnarstræti 22. Sömuleið's er ágætt fyrír fólk, sem hefur skepnur, að kaupa kartöflur til fóðurs.þar sem 2 pd. af kartöflum eru betri en 1 pd. af heyi eða kraft- fóðri, en qr þó álíka dýrt m. p. ÚR .á-T n'ÁGRLEFJÁLL Eftir Albert Engström. ---- Frh. Hjer sitja menn að samræðum og gæða sjer á góðum drykkj- um, eins og annarsstaðar. Kampa- vínið flóir, whisky er ekki ó- þekktur drykkur og mun varla verða, þó að aðflutningsbannið sje komið á fyrir fullt og allt.*) Menn drekka frönsk og þýsk vín, danskt öl og ákavíti, og af innlendum mat er framleiddur svo góður verður, að koma myndi vatni í munninn á sæl- kerum í París. Á Hótel Reykjavík er meira að segja hægt að fá „drinks from the bar“. En aftur á móti er Hótel ísland, þar sem við gist- um, áfengislaust. þangað safnast á kveldin hinir fremri bæarbúar og hlýða á hljóðfærasveit Johansens við glas af limonaði, flösku af sódavatni eða þá kaffi, sem íslendingar virðast vera sjerlega lægnir á að búa til. þó get jeg ekki verið að þegja yfir því, að í það límonaði, sem jeg neytti nokkr- um sinnum í þessum viðfeldna sal, tókst hjálpsömum höndum að láta drjúpa nokkra dropa af öðru en þar átti heima, — einnig afleiðingar af banninu. Við Kirkjustræti, undan suð- vesturhorni Austurvallar, er sænska konsúlatið, sem við auð- vitað flýttum okkur að heim- sækja. það er mjer sjerstök ánægja, að votta hjer þakklæti okkar til sænska vísikonsúlsins, herra Kristjáns þorgrímssonar og hinnar ástúðlegu frúar hans, sem ekkert spöruðu til þess að vera okkur sem hjálplegust. Auk þess dvöldum við mörgum stundum á heimili þeirra og kynntumst þar ýmsum af fremstu mönnum Reykjavíkur, þar á með- al aldurhnigna skáldinu Stein- grími Thorsteinson. Konsúllinn hefur lofað að sjá um allt, er þarf til undirbúnings ferð okkar til Heklu, útvega áreiðanlegan fylgdarmann, sjá um að við fáum góða hesta o. s. frv. Hann er hjálpfýsin sjálf. Jeg vildi kalla hann hreinustu fyrirmynd að konsúl til. Hann fylgir okkur í pósthúsið og bankann, hann vökvar kverkar okkar, þegar hraunrykið er orðið of þykkt á raddböndum okkar, og þegar sólin skín skært. Okkur er vel borgið. Frh. *) Vonandi hneykslast lesandinn ekki á ummælum liöf. um áfengis- bannið og finnst mjer rjett að láta þau koma óbreytt. Þ” ð. s

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.