Vísir - 08.06.1914, Page 1
Mánud. 8. júní 1914.
Fullt tungl.
Háflóð kl. 5,14’ árd. og kl. 5,39‘ síðd,
>
A morgun;
Afmœli:
Grímólfur Ólafsson, skrifari,
Póstáœtlun:
Ingólfur kemur frá Borgarnesi.
Norðan- og Veslan-póstar koma.
Veðrátta í dag.
Loftvog I 42 X •< »6 cí l- Æ T3 c > Veðurlag
Vm.e. 766,7 6,6 SSA 3 Alsk.
R.vík 763,5 6,9 S 6 Regn
ísaf. 761,6 7,2 SV 5 Alsk.
Akure. 765,7 7,3 S 3 Skýað
Gr.st. 728,5 6,0 S 3 Regn
Seyðisf. 767,5 5,2 0 Skýað
þórsh. 767,7 8,0 NNA 2 Alsk.
N—norð- eða norðan,A —aust-eða
auslan.S—suð- eða sunnan, V— vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin ístigumþann-
ig: 0—logn.I—andvari,2—kul, 3—
goia, 4—kaldi, 5—stinningsgola, 6—
slinmngskaldi,7—snarpur vindur,8—
hvassviðri,9 stormur, 10—rok, 11 —
ofsaveður, 12—fárviðri.
Allir mæti stundvíslega kl. 81/,
e. m. í einkennisbúningi,
í Menntaskólanum.
Stjórnin.
Skrlfstofa
Eirrssklpafjelags íslands, J
Austurstræti 7.
Opin kl. 5—7. Talsími 409.
Vö r u h ú s i ð
M
“3
X
3
K
tO
>
<
Oi
“I
c
3-
C>
»
| ~
* O*
K ikKlstur tást venjulega tilbúna
K á Hverfisg. 6. Fegmð, verð o|
g»' gæði undir dómi ahnennings. -
HgBigj Sími 93. — Helfli Helgasot
Quo vadis er sýnd í Gamla
Bíó í síðasta sinni í kveld, og
með mun lægra inngangseyri en
áður.
Vel tilfallið er það og, að Gamla
Bíó gefur börnum tækifæri til að
sjá þessa stórfrægu mynd, sem
einmitt hlýtur að hafa veruleg
menntandi áhrif á börn, einkan-
börn á skólaskyldualdri.
verður synd t kvold kl. 9 t Gamla Bio f síðasta sinni.
Niðursett: Betri sæti 50 au., almenn sæti 30 au.
Aðgöngumiðar fást fyrirfram keyptir í leikhúsinu frá kl. 6.
Barnasýning kl._6 í kveld.
Það mun gleðja tnarga, bæði bórn og foreldri, að
>QUO VADIS?« verður sýnd í kvöld kl. 6 fyrir börn.
Aðgöngumiðar kosta aðeins 25 ».u.
Fullorðnir, sem heldur vilja sjá myndina kl. 6,
borga eins og áður er sagt 50 au. eða 30 au.
Hún er í jafngildi við þó nokkra
tíma í söguíestri, og kennir bet-
ur um líf og siði í Róm á forn-
öldinni en margur kennarinn get-
ur gjört. Barnasýningin er kl. 6.
Hljóðfærasveit Bernburgs spil-
aði í gær á Austurvelli, var þar
til nýbreitni að spilað var úti á
orgel. Allvel var mennt kring
um völlinn meðan leikið var.
„íslendingurinn" kom affiski-
veiðum í gær, hafði fiskað dá-
vel.
„Eggert Ólafsson* kom inn í
nótt vestan frá ísafjarðardjúpi,
fiskaði 30—40 þúsund. Sagði
ís þar útifyrir og veðráttu illa.
U. M. F. Iðunn hafði fimleika 1
á íþróttavellinum í gær undir
stjórn Björns Jakobssonar. Tók-
ust þeir ágætlega og var unun á
að sjá í góðviðrinu, enda var
vel sótt.
Knattspyrnukeppni var á
íþróttavellinum í gær milli Fót-
boltafjelags Reykjavíkur og Frakka
af herskipinu. Unnu íslendingar
5 leiki, en hinir engan.
Grænlandsfyrirlestur Vigfúsar,
hinn síðari,var í gærkveldi. Áhorf-
endur voru hrifnir af myndunum,
enda voru þær mjög skýrar og
| einkennilegar margar svo sem
vetrarvinna út í niðamyrkri um
hádag (tekin við leiftur). Ekki
er með öllu vonlaust að fyrir-
lestrarnir verði endurteknir.
Háskólaprófin standa nú yfir.
Taka embættíspróf 4 í lækna-
deild, 1 í guðfræðisdeild og 5 í
lagadeild. Skriflega prófinu lok-
ið J dag.
^anwsoWu:
duiarfullra fyrirbrigða.
Bók Schrenck-Notzings.
---- Frh.
Annað fyrirbrigði skal hjer greint
sem var alleinkennilegt: — Mið-
illinn er saumaður inn f þessi
venjulegu prjónaföt sín og allþjett
en gegnsæ blæja saumuð fast ut-
an um höfuð hans og sín blæj-
an utan um hvora hönd. — Nú
sjest hvítt efni hanga eins og stór
tunga út úr munni miðilsins og
fara í gegn um blæjuna. Höfund-
ur opnar myndavjelarnar. — Við-
staddir eru Dr. Bourbon, de
Vesme og frú Bisson auk höf.
þau sjá að á enda þessarar hvítu
flyksu hangir fingur eins og af-
skorinn. Höfundur lætur hvíta
ljósið blossa upp og tekur mynd-
ir af þessu. Dr. Bourbon og frú
Bisson taka eftir því að fingur-
inn hreyfist, kreppir sig og rjettir.
þessi fingurstúfur sígur niður í
kjöltu miðilsins og höfundur skoð-
ar hann og sjer aö hann er með
rjettu sköpulagi og fer aftur að
vjelunum til þess að skifta um
plötur. þá kemur fingurinn og
leggst í lófa Dr. Bourbons og
snýr sjer þar á alla vegu eins og
til að sýna sig. Er hann kaldur
og rakur viðkomu og fastur í sjer.
þvínæst var eins og allt hyrfi
inn í miðilinn. — í bókinni eru
brjef frá Dr. B, og d. Vesme
sem votta þetta og ljósmyndir1 af
flyksunni með fingrinum þarsem
hún hangir út um blæjuna, og
einnig er til mynd af blæjunni
einHÍ saman sem er stráheil eins
og ekkert hefði ískorist! — Líkt
kom fyrir við tilraunirnar með
miðilinn Stanis Cdwa P. þar
komu hvað eftir annað flyksur
út úr munni hennar sem fóru
eins og ekkert væri í gegn um
höfuðblæjuna. Voru þær oft einna
líkastar hekluðum hvítum slæð-
um samanbögluðum. Stundum
tóku þær á sig mynd af hand-
’ legg með hönd á, sem þó var
J allt fremur ólögulegt í laginu.
Af sumu af þessu tókst að qá
kvikmyndund einum tvisvar sinn-
um og eru sýnishorn af þeim í
bókinni ásamt stærri og ogskýr-
ari myndum sem teknar voru á
hinar vjelarnar. þetta hvarf allt
inn í miðilinn aftur, en blæjan
var óskert eftir sem áður.
Nú kemur að því að segja frá
þeim mannamyndun sem komu
fram í sambandi við miðilinn Evu
C. —: Af þeim birtast ekki allfá-
ar og eru ljósmyndir af þeim í
bókinni. — þessar myndir eru
það sem hafa einna grunsamleg-
ast útlit af því sem er í bókinni
af myndum. Við fyrsta tillit
dettur manni strax í hug að þær
sjeu bara teiknaðar upp á blað
eða einhvern sljettan flöt og brugð-
ið upp við hliðina á miðlinum
á móti vjelinni. En nú eru vjel-
arnar fleiri en ein og sín í hverri
áttinni. Og það kemur þá líka
í ljós þegar maður ber saman
Ijósmyndir sem hafa verið tekn-
ar frá ýmsum hliðum, að þessar
dularfullu manna myndir eru ekki
líkamir heldur oftast eins og
teiknaðar á flöt.
— En hvernig fer miðillinn að
ná í þessar myndir? Að hann
hafi flutt þær með sjer er alveg
óhugsanlegt og að frú Bisson
hjálpi miðlinum til að leika á höf.
og aðra viðstadda, er þeim ölL
um jafn óskiljanlegt. Enda var
farið að hafa við frúna sömu
rannsóknir og varúðarreglur eins
og miðilinn sjálfan og ekkert grun-
samlegt fanst nokkru sinni. —
Áður en frekar er sagt frá þess-
um myndum mætti drepa á það
að ransóknir v. Schrenck-Notzings
urðu brátt hljóðbærar í París og
voru margir þegar sannfærðir um
að hann ljeti þessa tvo kvenn-
menn hafa sig að fífli. Gengust
þá einhverir fyrir því á laun að
reyna að koma upp um þær og
leígðu uppgötvara frá uppgötvara-
stofnun (Detektivbureu) í París
til þess að ná í svikagögn þeirra
gegn hárri borgun. Voru upp-
götvarar þessir að sögn á hælum
þessara kvenna í 8 mánuði en
náðu engu sönnunargágni gegn
þeim, þrátt fyrir öll möguleg brögð.
— þetta mun þó hafa haft þann
gagnlega árangur .þegar allt komst
upp, að höf. færði sjer í nyt
ýmsar rjettmætar aðfinningar. er
í sambandi við þetta kom fram
opinberlega, til þess að skerpa
eftirlitið og athyglina. Sjer mað-
ur það á því að hann er einlægt
í bókinni að rökræða ýmsa svika-
möguleika sem stungið hafði verið
upp á bæði í blöðum og meðal
vantrúaðra vísindamanna, sem
fjandsköpuðust gegn þessum til-
raunum. Frh.
11 Er í Vísis sýniskassa.