Vísir - 09.08.1914, Page 2
V i S I R.
Stœrsta blad á islenska tungu.
Argangurinn (400—500 blöð) kostar
erlendis kr. 9,00 eða 21/, dollars, innan-
lands kr.7 00. Ársfj.kr. 1,75, mán.kr. 0,60.
Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur-
s'raeti 14 opin kl. 8 árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Ritstjóri Einar Gunnarsson
veniuiega til viðtals kl. 5—7.
GrEELA-
EAOTSÓOA-
STOFA
Gísla Guðmundssonar
Lækjargötu 14B (uppi á lofti) er
venjulega opin 11-3 virka daga.
^addu atmeYVYiuigs.
Tollmál og póstmál í
Efri deild.
Jeg kom á efrideildrpalla í gær
og hlustaöi á u'mræður um það at-
riði tolllagabreytingar, hvort rjett
væri að heimila póstmönnum að
rannsaka innihald böggla, ef grun-
samlegir þætti.
Þessu mótmælti þingm. Vest-
manneyinga og kvað það alger-
lega óhafandi að alls konar póst-
mönnum og þeirra Jjjónum væri
heimilað að vaða í póstböggla
annara. T. d. fengist alt að 50
manns við pósstörf í Vestmanna-
eyjum og svipað ástand gæti ver-
ið víða. Það sæi hver maður, að
takmarka yrði þessa heimild svo,
að póstafgreiðslumaður einn fengi
að fara í bögglana. Framsögumað-
ur virtist þessum rökum heldur
andvígur og svo var um fleiri. Þó
fjekkst málið tekið út af dagskrá
til betri íhugunar.
í dag kom svo þingmaður Vest-
manneyinga með breytingartillögu
sína, sem fór í þá átt, er áður segir,
að póstafgreiðslumenn einir mætti
skoða i bögglana og því að eins að
viðtakandi væri viðstaddur. Nú
mælti framsögumaður með breyt-
ingartillögunni, enda var hún sam-
þykt.
Nefndin hafði sent póstmeistara
frumvarpið til umsagnar og er álit
hans prentað sem fylgiskjal við
nefndarálitið. Hann mælir með
heimildinni og telur hana nauðsyn-
lega þegar ræði um böggla, sem
afhentir eru í fjarveru við-
takanda, því að sá sem sendur sje
eftir bögglum í pósthús viti oft
eigi um innihaldið og J)á sje mest
J)örf á að rannsaka það, en síður
ef viðtakandi vitjar bögglanna
sjálfur og geti fullyrt hvað í þeim
sje.
Þessar tillögur metur deildin
einskis, heldur snýr þeim alveg
við og fer þveröfugt við þær.
Með þeirri breytingu sem efri-
deild gerði í gær, eru það að eins
póstafgreiðslumenn, sem
gæta eiga tolllaganna, en brjef-
hirðingarmönnum er fyrirmunað
að gera það. Nú eru um 35 póst-
hús á landinu sem eiga því láni að
fagna, að þar sje póstafgreiðslu-
maður, en samkvæmt síðustu land-
l agsskýrslum eru nákvæmlega 200
póstafgreiðslumannsvana pósthús
hjer á landi (þ. e. brjefhirðingar)
sem eftir lagasmíð efrideildar í
gær eiga alls ekki að hafa nejtt
eftirlit með því, að tollskyldar vör-
ur gangi eigi tolllausar í pósti,
ef svo vill verkast.
Sem betur fer fær nú neðrideild
málið til athugunar af nýju, og er
J>á vonandi að úr frumvarpinu
verði annaðhvort fugl eða fiskur,
Jj. e. þetta ákvæði numið burt úr
lögunum, eða komið einhverju viti
í það. Athafnir efrideildar eru fálm
og fjarstæða.
Kaupmaður.
BAKARARNIR.
Það var hjer á dögunum verið
að þakka hlutafjelaginu „Kveld-
úlfi“ fyrir að láta bæjarbúa fá kol
með lítilfjörlegri verðhækkun, og
fyrir Jjað á það Jjakkir skilið. En
það er önnur stjett hjer í bæ, sem
ekki á minna þakklæti skilið af
bæjarbúum. Það eru b a k a r-
a r n i r. Þeir hafa ekki hækkað
verð á brauðunum um einn eyri.
Þeim hefði Jjó ekki verið það lá-
andi, því þeir höfðu Jjar góða fyr- |
irmynd, þar sem kaupmennirnir jí
eru. Kaupmennirnir hafa hækkað S
verð á allri nauðsynjavöru, þó jj
ekki hafi þeir fengið eitt pund af
nýrri vöru. J e g þakka að minsta
kosti bökurunum fyrir Jjeirra á-
gætu framkomu.
Húsmóðir.
Gott
Isl smjör
á 90 aur. pd. (í 10 pd.)
fæst í
Bogi Brynjölfsson
yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Hótel ísland.
Annari hæð. Herbergi M 26.
Venjulega heima kl. 12—1
og 4—6
Talsfml 250
Kaupangi.
'tj&rjjvjujwvjvjw
kÍÓ-CAFÉ ER BEST.
SÍMI 349.
HARTVIG NIELSEN.;
Jxí
Efri deild.
Fundur í gær.
1. m á 1.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um vegi nr. 57, 22. nóv. 1907;
ein umr.
Afgreitt til ráðherra sem lög frá
alþingi.
2. m á 1.
Frv. til laga um sandgræðslu; 3.
umr.
Afgreitt til ráðh. sem lög frá
alþingi.
3. mál.
Frv. til laga um breyting á lög-
um nr. 11, 20. okt. 1905 um lands-
dóm; 2. umr.
Frv. vísað til 3. umr. með öllum
atkv.
4. m á 1.
Frv. til laga um notkun bifreiða;
ein umr.
Afgreitt til ráðherra sem lög frn
alþingi.
5. mál.
Frv. til laga um breyting á toll-
lögum nr. 54, 11. júlí 1911 og lög-
um um vörutoll nr. 30, 22. okt.
1912; framh. einnar umr.
Endursent neðri deild.
Neðri deild.
Fundur í gær.
1 m á 1.
Frv. til laga um breytingu á 6.
gr. í lögurn nr. 86, 22. nóv. 1907
um breytingu á tilsk. 20. apríl 1872
um bæjarstjórn í Reykjavík; ein
umr.
Frv. samþ. með 17 atkv. samhlj.
og afgreitt til ráðherra sem lög frá
alþingi.
2. m á 1.
Frv. til laga um að landstjórn-
inni veitist heimild til að láta gera
járnbenda steinsteypubrú á Langá
i Mýrasýslu; 3. umr.
Frv. samþ. með 13 atkv. samhlj.
qg afgreitt til ráðherra sem lög frá
alþingi.
3. m á 1.
Frv. til laga um kosningar til
alþingis; 2. umr.
Nefdin hafði klofnað. Varð á-
greiningurinn um 7. gr. frumv.,
kjördæmaskiftingu landsins. Meiri
hlutinn vill halda sömu kjördæma-
skipun sem nú er. Minni hlutinn
(Magnús Kristjánsson) var þar á
móti samþykkur 7. gr. frumv. —
Urðu nú um þetta allmiklar um-
ræður, svipaðar þeim, sem voru
við 1. um. og fluttar voru í Vísi þá.
Sv. Björnsson, H. Haf-
stein ogMagn. Kfistjáns-
s o n töluðu fyrir 7. gr. röggsam-
lega og færðu til rangsleitni þá, er
Reykvikingar eru beittir með nú-
verandi kjördæmaskipun, sem svo
er afskapleg, að sjö Reykvíking-
ar hafa sama rjett sem einn maður
í öðrum kjördæmum sumum.
Einar Arnórsson, ráð-
herra og Einar Jónsson
andmæltu 7. gr. og töldu ekki
höfðatölu eina mega vera grund-
völl kjördæmaskipunar hjer. —
Sögðu og Reykvíkinga mundu eiga
jafnan tak í þingmönnum annarra
kjördæma.
Þær urðu lyktir á, að 7. gr. frv.
var feld með 18 atkv. gegn 6 að
viðhöfðu nafnakalli.
Gegn 7. gr. greiddu atkvæði:
Guðmundur Hannesson.
Benedikt Sveinsson.
Bjarni Jónsson.
Björn Hallsson.
Björn Kristjánsson.
Einar Arnórsson.
Einar Jónsson.
Guðmundur Eggerz.
Hjörtur Snorrason.
Jóhann Eyjólfsson.
Jón Jónsson.
Matthías ólafsson.
Sigurður Eggerz.
Sigurður Gunnarsson.
Sigurður Sigurðsson.
Skúli Thoroddsen.
Þórarinn Benediktsson.
Þorleifur Jónsson.
Með 7. gr. greiddu atkvæði:
Hannes Hafstein.
Jón Magnússon.
Magnús Kristjánsson.
Pjetur Jónsson.
Stefán Stefánsson.
Sveinn Björnsson.
4. mál.
Frv. til laga um stofnun kenn-
arastóls í klassiskum fræðum við
Háskóla íslands; 2. umr.
SigurðurSigurðssonog
Matth. ólafsson voru and-
stæðir frumvarpinn og töldu jafn-
vel rjettast að taka upp aftur
grískunám í latínuskólanum og
auka latínukenslu þar.
Jóhann Eyjólfsson var
samþykkur frv. Þegar um væri að
ræða veg og sóma landsin3, væri
öllum skylt, bændum sem öðrum,
að styðja þar að. Það væru ekki
stjórnmálamennirnir nje fjármála-
mennirnir, sem haldið hefðu uppi
nafni íslands, heldur væru það
bókmentir landsins og bókmenta-
inenn.
Einar Jónsson talaði á
móti frv. Þótti honum margt Jxirf-
ara kalla að en þetta. Hefði og
háskólinn reynst dýrari miklu en
ráð var fyrir gert, þegar hann var
stofnaður.
Frv. samþ. og vísaö til 3. umr.
___________ Frh.
Fyrirspurn til ráðherra um fána-
nef ndarko stnað inn.
Flutningsmaður: Einar Arnórsson.
Hversu mikilli fjárhæð hefur
veriö varið úr landsjóði til
greiðslu kostnaðar (kaupgjalds og
annars) við nefnd þá, er skipuð
var 30. des. f. á., til þess að taka
gerð íslenska fánans (sbr. kon-
ungsúrskurð 22. nóv. 19^3) fH 1_
hugunar, eða hversu mikilli fjár-
hæð verður varið til þess, ef eigi
hefur þegar veriðgreiddur kostn-
aðurinn að einhverju leyti eða
öllu?
Lög
um varadómara í hinum konung-
lega íslenska landsyfirrjetti.
1. gr. Prófessorarnir í lagadeild
Háskóla Islands eru sjálfkjörnir
varadómarar í landsyfirrjettinum,
hvort sem heldur losnar þar sæti,
dómari forfallast uin stundarsak-
ir eða víkur úr dómarasæti.
2. gr. Nú losnar sæti í landsyfir-
rjettinum, dómari víkur úr sæti
eða forfallast, og tekur þá dóm-
stjóri eða sá, er veitir dómi for-
stöðu í hans stað, einn prófessor-
anna með hlutkesti í rjettinn. Ef
enginn hinna reglulegu yfirdómara
skipar sæti sitt, þá ganga 3 pró-
fessorar lagadeildarinnar i rjett-
inn.
3. gr. Sá af prófessorunum, sem
hverju sinni verður kjörinn í dóm-
inn, tekur hið auða sæti. Nú eru
fleiri sæti auð en eitt, og fleiri
prófessorar kjörnir í einu en einn,
og taka þeir sæti í dóminum eftir
embættisaldri.
4. gr. Nú losnar sæti í landsyfir-
rjettinum, og tekur þá varadómari
helming launa þeirra, er því sæti
fylgja, þar til skipað er í embættið.
Þá er yfirdómari forfallast eða
víkur sæti fær varadómari 40 kr.
fyrir hvert mál, er hann tekur þátt
í dómsuppkvaðningu þess.
Þá er varadómari gegnir störf-
um yfirdómara, án þess að hann
sje forfallaður eða hafi orðið að
víkja úr dómi, greiðir yfirdómari
þóknunina.
5. gr. Ef eigi er unt að taka
varadómara úr lagadeild Háskól-
ans, setur landstjórnin dómara í
hið auða sæti.
6. gr. 2. málsgr. 6. gr. í tilsk-
11. júlí 1800 er úr gildi numin
lögum þessum.