Vísir - 16.10.1914, Page 4
VISIR
II.
Heimaey byggja nú 1700 heim-
ilisfastir íbúar. En auk þeirra sækja
hingað um 4—5 hundruð manns
á haustin og fram undir vertíð og
stunda hér sjómensku til vors. Þetta
fólk býr nú í 226 íbúðarhúsum,
eða til jafnaðar á vertíð utn 10
uianns í hverjuhúsi; með því húsin
eru flest lítil, er húspláss víða af
skornum skamti, þegar fjölmennast
er, enda bygð ný hús nú á hverju
ári.
Húsin eru flest úr timbri og járn-
varin og flest þokkalega máluð;
mjög víða eru steyptar breiðar og
góðar stéttar kringum þau, og veg-
irnir furðu þurrir og góðir, þrátt
fyrir alla úrkomuna. Stöku stein-
hús eru hér og fáein hús með »stíl«
eða »sniði«, svo sem hús þeirra
Ágústs útgerðarmanns Gíslasonar og
Guðna verslunarmanns Johnsens.
Sömuleiðis er kirkjan vandað og
þokkalegt hús, utan og innan.
— Á hverju lifir nú alt þetta
fólk á þessari litlu eyju? Aðallega
af sjávarútvegi, en líka af landbún-
aði, verslun, handiðn og fuglatekju.
Landbúnaður er stundaður hér,
en eðlilega í smáum stíl. Bændur,
sem grasnyt hafa, eru um 50 að
tölu; stunda þeir flestir sjómensku
aðallega, en hafa þó margir góðan
stuðning af landbúnaði. Nautgripir
eru um 100, hross hálfu færri, sauð-
fé rúmt 1000; iifir það mikið á
útigangi, en er þó feitt og vænt,
Kálgarðar rúmar 24 dagsláttur
(1913), sem gáfu af sér 900 jarð-
eplatunnur. Túnin eru 175 dag-
sláttur, heyfengur rúmir 3000 hest-
ar, þar með falinn útheyskapur.
Töluvert er hér flutt af heyi og
fóðurbæti. Túnin eru í sæmilegri
rækt og að mestu slétt; ekki sjást
hér plógar né sláttuvélar.
Hagagangan er léleg í Heimaey,
jarðvegur víðast þunnur og gróður
rýr. Skóg og kjarrlaust með öllu.
Yfirleitt má segja, að landbúnað-
urinn sé ófullkominn og á að lík-
indum naumast mikla framtíð, með-
al annars vegna þess, að landsvæðið
er mjög svo takmarkað; nokkuð
mætti samt auka hið ræktaða land
og bæta það, sem þegar er ræktað.
Ennfremur mætti sennilega fá meiri
arð aí nautpeningi en nú er og
sömuleiðis af sauðfénu, þótt ekki
væri nema með böðunum, sem hér
mun lítið eða ekkert um.
Af fuglaveiðum hafa bændur hér
töluverðan tekjuauka; árleg veiði
skiftir fugum þúsunda (lundi og
fíll). Fuglaveiði þessi er í raun og
veru íþrótt, erfið og oft hættuleg,
en eyjarskeggjar eru eins og kunn-
ugt er framúrskarandi »fjallamenn«
eða fuglaveiðarar.
Sjávarúivegur er og verður að
líkindum aðalbjargræðisvegur Eyja-
manna, sem hagur þeirra byggist
á. Hann er nú aðallega stundaður
á mótorbátum, 60 að tölu (1913).
Árið 1911, sem var eitt hið fiski-
sælasta ár hér, voru flutt út tíu þús-
und skippund af fiski, töluvert af
lýsi og fleiri sjávarafurðum. Auk
þess selt þá sem endranær töluvert
af fiskiföngum til sveitamanna og
þar að auki fíuttist mikið á land
af .fiski, sem eyjarskeggjar hagnýttu
Þeir sem enn eigi hafa greitt áfallin safnaðargjöld til hennar
eru vinsamlega beðnir að greiða þau hið fyrsta ti! undirritaðs.
H Hafliðason
sér til heimilis; var og er það afar-
mikið, en af mörgum alls ekki taiið
né reiknað meö
Árið 1913 nam útflutningur á
saltfiski um 3 miljónir punda og
auk þess útflutt tcluvi.rt af heilag-
fiski. Útflutt lýsi var þá um 2500
tunnur. Þeíta ár þótti lélegt fiskiár.
Sjómenskan er hér að vonum
stunduð af miklu kappi og dugn-
aði, enda hafa ýmsir hinna hepnari
og duglegri formanna og bátaeig-
enda orðið vel stæðir menn á stutt-
um tíma. Stormar og botnvörp-
ungar eru útgerðinni til mestu erf-
iðleika, miklu fremur en fiskiskort-
ur í sjónum.
í sambandi við þennan mikla
og á seinni árum svo mjög aukna
sjávarútveg sfanda hinar ýmsu og
mikilsverðu framfarir Eyjanna, sem
hér skal að Jokum lítið eitt skýrt frá.
Er þá fyrst að telja hafnargerð,
sem þegar er byrjað á og mun, ef
alt fer að óskum, Iokið að tveim
áruni liðnum. Áætlaður stofnkostn-
aðúr er 260 þús. krónur, Þótt höfn
þessi uppfylli ekki, að rninsta kosti
ekki fyrst um sinn, fylstu óskir
manna, þá er enginn efi á því, að
hún mun koma að miklu gagni og
tryggja bátaeign Eyjamanna, sem er
nú mjög nukils virði.
Þá er ennfremur byrjað á raf-
veitu, en hætt við, að Evrópustyrj-
öldin verði þess valdandi, að leng-
ur dragist að koma henni upp, en
til stóð.
Að þessi tvö stóru framfarafyrir-
tæki eru þegar komin í framkvæmd
mun mikið að þakka áhuga sýslu-
nefndarinnar og ekki síst oddvita
hennar, Karli sýslumanni Einarssyni.
Þá má enn telja til nýrri þarf-
legra framkvæmda hér í plássinu
verksmiðju, sem Gísli kaupmaður
Johnsen hefir stofnað í fé'agi við
Englendinga. Verksmiðja þessi vinn-
ur fóðurmjöl úr fiskiúrgangi. Auk
þess sem fyrirtæki þetta veitir tals-
verða atvinnu er verksmiðjurekstur
þessi til mikils þrifnaðar og þar af
leiðandi til heilbrigðis fyrir plássið.
Væri óskandi að fyrirtæki þetta yrði
latiglífara og arðvænlegra en svipað
fyrirtæki, sem Frakkar höfðu liér
nýlega með höndum með Brillouin
í broddi fylkingar. Fór það alt í
handaskolum og standa nú stór-
hýsin ein eftir, auð og mannlaus.
Þá má telja hér stórt og mikið
íshús; verkefni þess er einkum að
tryggja það, að hér sé nægileg síld
til fiskiveiða, en auk þess geymir
það nokkuð af matvælum.
Enn eru hér tvær smiðjur, sem
ætlaðar erii til aðgerða á mótorum
og annarar stórsmiði. Aðra á dansk-
ur maður, Thomsen að nafni, en
hin er félagseign ýmsra útgerðar-
manna hér.
j
Skrifstofa
Elmskipafjelags íslantís, ||
í Lamlsbankanum, uppi
Opin ki. 5—7. Talsimi 409.
£ef\e-§kemei&a\}eT\
byggir sérstaldega botnvörpunga og
breytir vanalegum gufuvélum skipa
í yfirhitunarvélar.
Umboðsmaður okkar hr. Sigfús
Blöndahl Reykjavík—Hamburg 11
gefur allar frekari upplýsingar.
KAUPSKAPUR
WÝJA VERSLUNIiSJ
— Hvcrfisgötu 34, áður 4 D —
Flestalt (utast og inst) til kven-
fatnaðar og barna og margt flewa.
GÓÐAR VÖRUR.
• ÓDÝRAR VÖRUR.
Kjólasaumastofa.
Á b u r ð kaupir Laugarnesspíiali.
M o r g u n k j ó I a r og svuntur
fást ódýrastar í Grjótagötu 14 niðri.
M o r g u n k j ó I a r fallegir og
ódýrir fást í Doktorshúsi við Vest-
urgötu.
B a r n a s t ó I I til að breyta í
borð til sölu, einnig silfurskúfhólk-
ur a Laugaveg 52.
Nýleg föt til sölu. Sýnd á
afgr. Vísis.
S t ó r og góð undirsæng fæst
keypt. Uppl. Hv.g. 88.
HÚSNÆÐI ***
B ú ð til leigu nálægt miðbæn-
um. Afgr. v. á.
Tvær stúlkur geta fengið
húsnæði ásamt fæði hjá Kristjönu
E.íasdóttur Laugaveg 27.
Stór og góð stofa til leigu.
Uppl. á Vesturg. 23 kjallara.
Herbergi til leigu fyrir karl
eða konu á Barónsstíg 18. Fæði
og þjónusta fæst ef öskað er.
L í t i ð herbergi eða án húsgögn-
um til leígu á Njálsgötu 9.
Á g æ t stofa með forstofuinn-
gangi í Doktorshúsinu.
1 h e r b e r g i til leigu. Uppl. á
afgr. Vísis.
I fg L E i G A 0|
Frítt-standandi maskína óskast
STRAX (il leigu. Uppl. á Vesturg.
17.
L í t i ð brúkaður ofn óskast til
leigu eða aups. Styrimannast. 8.
Prentsmiðja Sveins Oddssonar.
FÆÐI »♦**
F æ ð i fæst keypt á Hverfis-
götu 37 (niðri).
F æ ð i og húsnæði fæst á
Laugaveg 17.
F æ ð i og húsnæði fæst á Lauga-
veg 23. Kristín Johnsen.
F æ ð i og húsnæði fæst í Berg-
slaðastræti 27.—Valgerður Briem.
F æ ð i og húsnæði fæst í Mið-
stræti 5.
F æ ð i og húsnæði fæst í Lækj-
argötu. Afgr. v. á.
| TAPAÐ —FUNDIt)
B ó k og bréf með nafni Guðm.
Felixson hefir tapast. Skilist á afgr.
Vísis.
Þ ú sem tókst yfirfrakkann í for-
stofunni á Njálsgötu 15 í fyrra dag,
skilaðu honum aftur í kvöld, ann-
ars fer ver. Það sást til þín gegn-
utn gluggann.
>♦« VINNA ***
S t ú 1 k a húsvön getur fengið
vetrarvist fyrri hluta dags eða all-
an daginn í Aðalsíræti 9. Reinh.
Andersen.
E f y k k u r vantar vanan mat;n
til að höggva og salfa niður kjöt
þá er hann að hitta á Bergstaða-
stræti 20.
T e k i ð saum á undirtaui og
peisufötum, einnig fæst þjónusta,
Smiðjustíg 7 3. loft.
S t ú I k a óskast í vist. Uppl, á
Vesturg. 42.
U n g 1 i n g u r vanur öllum al-
gengum störfnm óskar eftir atvinnu.
Uppl. á Laugaveg 70.
S t ú I k a óskast fyrri hluta dags.
Afgr. v. á.
S t ú I k a , sem vön er öllum
matartilbúningi óskar eftir vist hálf-
an eða allan daginn. Afgr. v. á.
*+* KENSLA
Ó d ý r a kenslu í e n s k u og
d ö n s k u fyrir byr}er,dur veitir
Margrét Jónsdóttir, Grettisgötu
46 uppi.
U n d i r r i t u ð tekur stúlkur í
hannyröatíma sunnudaga og aðra
daga. Sömuleiðis teikna á. Guðrún
Ásmundsdóttir Laugaveg 33A.
M a r g r é t J ó-n s d ó 11 i r,
Grettisgötu 46 uppi tekur að sér
að kenna börnum innan skóla-
skyldualdurs.
Mentaskólanemendur,
sem lesa utan skóia, geta hjá und-
irrituðum fengið tilsögn í stærð-
fræði og eðlisfræði. — Einnig kenni
eg byrjendum ensku og dönsku.
Bjarni Jósefsson
Tjarnargötu 24.
M e ð góðum kjörum geta stúlk-
ur fengið að læra strauningu. Þing-
holtsstræti 25 uppi. Guðrún Jóns-
dóttir.
Þorsteinn Finnboga-
s o n Bókhlöðustíg 6B kennir börn-
um og unglingum dönsku, og
ensku byrjeudum o. fl.