Vísir - 22.11.1914, Side 4
.y.is.iR.
mím
K*« l»IÍ1i
-K<| jiMMll
Frá bæjarstjórnarfundi
19. nóvember.
Frh.
Borgarstj. gat þess, að samkvæmt
meðfylgjandi bréfi frá C. France
vawi (852 kr. 42 aur, tap á rekst-
ursreikningi gasstöövarinnar, er hann
teldi stafa af hækkun á kolaverði,
og að lítiö hefði verið lagt af nýj-
um gasleiðslum; samt sem áður
liti C. F. björtum augum á fram-
tíð gasstöðvarinnar. Bækur og fylgi-
skjöl haföi honum ekki verið hægt
að láta fylgja reikningunum að þessu
sinni, sökum ófriðarins, en mundi
senda þau svo fljótt sem færi gæfist.
Reikningnum var vísað til gas-
nefndar til yfirlits og athugunar.
8. Umsókn um afnol leikfimis-
húss barnaskólans. Vísað til skóla-
nefndar til úrshta.
9. Samþ. aö kaupa lóðarræmu
er verður utan girðingar við Grund-
arstíg, eftir mati byggingarnefndar
(30—40 ferm.).
10. Nefndarályktun um kvik-
myndasýningar. Sig Jónsson skýrði
frá starfi nefndarinnar, og hafði hún
komist að þeirri niðurstööu, að
ekkert væri hægt að gera, að svo
stöddu. En þar breytingar ætti að
gera á lögreglusamþykt bæjarins um
næstu áramót, teldi nefndin heppi-
legt að koma inn í hana ákvæði
um kvikmyndasýningar, annaðhvort
að takmarka aldur bama er sýn-
ingarnar mættu sækja, eður hafa
eftirlit með hverjar myndir sýna
mætti.
Engin ákvörðun tekin um þetta
mál.
11. Áætlun um tekjur og gjöld
hafnarsjóðs (2. umr.). Samþ. án
breytingar.
12. Áætlun um tekjur og gjöld
bæjarsjóðs (2. umr.) frestað, þar
sem enn voru ókomnar athuga-
semdir fjárhagsnefndar við hana, er
stafaði af því, að reikningur bæj-
argjaldkera fyrir 1913 var ei til-
búinn. S. Björnsson spuiði hverju
það sætti, að reikningur bæjargjald-
kera væru svo síðla tilbúinn. Borg-
arstj. kvaðst ekki geta gefið full-
nægjandi skýringu á því, kvaðst þó
hyggja að nokkru mundi valda, að
gjaldkeri var lengur en til stóð er-
lendis f sumarleyfi sínu, sökum
hindrana skipaferöar í byrjun óftið-
arins, og að sum gjöld, er inn-
heimta bar, hefðu komið seint inn,
og ennfremur að bókfærsla hjá
gjaldkera væri þannig, að Iangan
tfma tæki að gera reikninga eftir
bókum hans.
Þetta síðasta hefði fjárhagsnefnd-
in tekið til athugunar, og legði til,
að skrifstofufé gjaldkera væri auk-
ið næsta ár, til þess að gera breyt-
ingu á fyrirkomulagi við bókfærsl-
una, svo að hún yrði gleggri og
auðveldara að gera reikninga upp
eftir ,henni. Einnig befir nefndin
ákveðiö að loka ætti reikningi fyrir
yfirstandandi ár 31. jan., þar hún
áliti óhafandi að gera reikning
gjaldkera svo sveintsem nú ogáð-
ur hafi átt sér stað. En þar af leið-
andi yrði aö gera nokkuð hærri lið
fyrir ófengnum gjöldum en áöur,
þar talsvert fé kæmi oft inn eftir
1 þann tíma, tilheyrandi f. á. reikn-
ingi.
Frá Tr. G. voru lagðar frr.nt
breytingatillögur við fr.v. hjárh.n.
þ. á. m., tillögu um að kaupa Dús-
kot og Ciróubæjarlóð. En Tr. G.
sagöist þess viss að breytingatillög-
ur sínar yrðu allar drepnar.
13. Brunabótarvirðingar sam-
þyktar á:
Nr. 32 við Vesturg. kr. 16147,oo
— 9 — Bankastr. — 11334,oo
— 47 — Laugav. — 6416,oo
— 46 — Klapparst.— 6187,oo
Að því- loknu var ákveðiö að
halda skylJi aukafund í bæjarst. í
næstu viku til framhalds á 2. umr.
fjárhagsáætlunar. Fundi slitið,
Hrafukell.
BÆJARFRETTIR
m
í’!
Háflœði í dag.
Árdegis háflæði kl. 8,46
Síðdegis háflæði kl. 9,11.
Afmæli á morgun.
Jón Jensson, yfirdómari.
Magnús Hjaltesteð, úrsmiöur.
Kr. Lovísa ísleifsdóttir.
Vigfús Sigurðsson
Grænlandsfari kom að austan með
Pollux. Lætur henn vel yfir árferði
þar í sumar og haust. Verð á kjöti
og gærum mjög hátt, 1 kíló af
gærum á 97 aura og kjöttunnan á
72—75 kr. þar á staönum. Annars
er fé mest selt þar á fæti, og voru
minnst gefnir 16 aurar fyrir pund-
ið í því. — Féð hefir og verið mi’ð
vænna móti i haust þar eystra, með
alvigt á dilkum sumstaðar um 80
pund.
Vigfús verður hér eitthvað fram-
vegis og býst ef til vill við að sýna
myndir frá Grænlandsför sinni.
Lofthitunartæki
er nú verið að setja niður í dóni-
kirkjuna; komu þau með »Ceres«.
Viðgerð á kirkjunni er þegar lokið,
eu veriö að mála hana.
>GerminaI«
allir 5 þættirnir verða sýndir á
Nýja Bíó í kvöld. Þeir, sem hafa
haft tækifæri til að sjá þessa mynd,
gleyma henni ekki aftur — svo
snildarlega er hún leikin. Líf náma
manna, kúgun v<nnuveitandans og
hætturnar, sem stöðugt bíða þeirrs
í námunum hlýtur, að vekja samúö
hvers manns. Jafnvel bæjarfulltrú-
arnir, sem mest eru á móti hvik-
myndasýningum hafa haft sýnilega
ánægju af að horfa á þessa mynd.
Slys.
Bát með 8 mönnum seni verið
höfðu aö uppskipun úr Sterl-
ing, hvolfdi hér við bæjarbryggjuna
f gærkveldi, rendi upp á bryggj-
una. Náðust menn allir lifandi, en
einn þeirra var mjög að fram kom-
inn og lést hann í nótt. Hann hét.
Rútur Jósepsson, og átti heima á
Laugavegi 57. Lætur hann eftir
sig ekkju og tvö börn.
Verslunarmannafélagið
hélt skemtifund í gærkveldi á
»Hótel Reykjavík*. Fór hann hið
besta fram, og var skemtun ágæt.
Göðir
stórir
fallegir
hestar
óskast til kaups.
J. BJERG.
Vöruhúsinu.
Grænmeti
margar teg.
nýkomið f
NÝHÖFN.
utm
• * 0 0 •
7f9f9f9f9Rf9f
tra-geftirspurða
er nú komin aftur 1
Liverpool.
Isvarinn fiskur
fæst daglega f
Zimsens-porti.
með
’STERLING*.
. ..... Borðlampar,
hengilampar og allsk.
lampaáhöld og eldhúsgögn.
LAURA NIELSEN.
(JOHS. HANSENS ENKE).
VI N N A
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum, opinn frá 8—11 simi
444.
S t r a u n i n g fæst í Grjótag. 11.
G ó ð s t ú I k a óskast um lengri
eða skemri tíma. Afgr. v. á.
Á skólavörðustíg 45 geta
menn fengið föt sfn pressuð og
stykkjuð, ef óskað er.
Guörún Gísladóttir.
E f yður vantar mann til að fóðra
herbergisveggi yðar fyrir jólin, þá
er hann að hitta á Skólavöröustíg
45, uppi.
TAPAЗFUNDIÐ
R a u ð kvenbudda með pening-
um tapaðist á götum bæjarins. Finn-
andi beðinn aö skila henni á Klappar-
stíg 13.
Karlmannsúr fundið vitjist
á Hverfisötu 4 F. Kjailaranum,
!KAUPSKAPUR
NÝJA VERSLUNIN
— Hverfisgötu 34, áöur 4D —
Flestalt (utast og inst) til kven-
fatnaöar og barna og margt fleira.
GÓÐAR VÖRUR.
ÓDÝRAR VÖRUR.
Kjólasaumastofa.
2ja m a n n a rúmstæði til sölu með
tækifærisverði. Hverfisgðtu 40.
Helgi Helgason.
Á Bergsstaðastræti20eru
tekin til sölu gömul föt og gamlir
munir. Lítil ómakslaun.
N ý j a r kvðldvökur frá byrjun
til sölu með tækifærisverði. Afgr, v.á.
N ý trollarastigvél til sölu Ný-
lendugötu 21.
Vandaður fermingarkjóll til
sölu með lágu verði á Grettisg. 32.
FÆÐI )M«
F æ ð i og húsnæði fæst íBerg-
staðastræti 27,—Valgerður Briem.
F æ ö i og húsnæði fæst I Lækj-
argötu 5. Afgr. v. á.
HUSNÆÐI
T i 1 I e i g u stofa fyrir einhleypa
á Skólavðrðustfg 15 B.
Prentsmiðja Sveins Oddssoaar