Vísir - 25.11.1914, Side 1
1241
V l' S I R
Stærsta, besta og ódýrasta
blað á íslenska tungu.
Um 500 tölublöð um árið.
Verð innanlands: Einstök
blöð 3 au. Mánuður 6Cau
Ársf).kr.t,75. Arg.kr.7.oo.
Erl. kr. 9,oo eða 2J/2 doll.
VÍSIR
Miðvikudaginn 25. nóvember 1914;
V I S I R
kemur út kl. 12 á hádegi
hvern virkan dag. Skril-
stofa og afgreiðsla Austur-
str.14. Öpín kl. 7 árd. til 8
síðd. Sími 400.—Ritstjóri:
GunnarSigurðsson(fráSela-
læk). Til viðt venjul. kl.2-3 siðd.
Kaupmannahöfn
á tima heimsstyrjaldarinnar.
Aaukamynd.
Bræðurnir.
Spæjarasaga í 2 þáttum. 5
Aðalhlutverkin leika: CLARA
WIETH, CARLO WIETH og GUNN-
AR TOLNÆS frá þjóðleikhúsinu
i Kristjaníu, sem menn muna frá
hinni fögru mynd »ÁstareIdur«,
sem nýlega var sýnd í Gamia
Bíó. Carlo og Clara Wieth þekkja
allir, sem í Bíó koma, og þessi
mynd er sérstaklega góð, eins og
allar þær myndir eru, sem þau
leika í.
BÆJARFRETTIR
Háflæði í dag.
Árdegis háflæði kl. 11,38
Síðdegis háflæði kl. 11,56.
Veðrið f dag:
Vm. loftv. 744 sv .andv.h. 1,8
Rv. U 743 a. kaldi “ -2,5
íf. u 743 Iogn “ -5,1
Ak. u 743 ssa.andv." —8,0
Gr. u 707 ssv.andv." -9,5
Sf. u 744 logn “ -1,6
Þh. u 746 vnv. gola“ 2,3
Afmæli á morgun.
Jósef Björnsson, alþm,
Sigurbjarni Guðnason, sjómaður.
Helgi Árnason, dyravörður.
Ingveldur Guömundsdóttir, frú.
Valgerður Þórðardóttir, ungfrú.
Pollux
fór í gærdag til útlanda.
»120 milj. franka*.
Morgunblaðið segir í gær, að bæj-
arstjórnin hafi »fengið léyfi stjórnar-
innar frönsku til þess að gefa út
skuldabréf fyrir 120 milj. franka.«
Til hvers á að verja öllu þessu
fé ?
Eöa kannske það sé ekki bæjar-
stórn Reykjavíkur, heldur bæjarstjórn
einhvers annars stórbæjar í Evrópu,
sem hefir fengið þetta leyfi ?!
Gestir f bænum :
Eggert Benediktsson í Laugar-
dælum og Ingimundur Benedikts-
son í Kaldárholti.
Til sölu
birkihrís í 40 punda böggum á
1 kr. Hverfisgötu 71.
Skógræktarstjórinn.
2
YFIRFRAKKAR til sölu fyr-
ir V4 verðs. Sýndir í
Söluturnlnum.
SÍMSKETTI
London 24. nóv. kl. 10S7 f. h.
*£)
Breskt herskip rendi á þýskan neðansjávarbát
við norðurströnd Skotlands og sökkti honum. 26
mönnum af skipshöfninni var bjargað, og voru þeir
taknir til fanga.
kað er skýrt frá þvf, að breskir flugmenn hafi
orsakað alvarlegt tjón á Zeppelinsverksmiðjunni í
Friedrichshafen.
Bretar hafa tekið Basra við Sahtelnabá (norðan
við) Persaflóann með orustu.
Þýski tundurspiilirinn S 124 rakst á danskt
eimskip fram undan Falsterbo og sökk.
Parfs: Mikii stórskotahríð hefír staðið yfir
kringum Ypres, Soissons og Reims. Ölium áhlaup-
um Þjóðverja hrundið.
Petrograd : Eftir tíu daga orusfu eru Þjóðverjar
teknir að hörfa undan suður á bóginn frá Vistula
-Warta.
Central News.
1. O. G. T.
St. Einingin M 14.
~~ Fundur í kvöld á venjulegum stað og tíma. ZZZ^^ZI
Kosnir fulltrúar til Umdæmisstúkunnar.
ytffT Ojtfö' Góð skemtun. Tfcg 'HðHI
Fjölmennið 1
Léttið byrðina.
Hjá konu Rúts sál.
Jósepssonar.
Hún kom til dyra, döpur og
veikluleg. Litla herbergið hennar
geymdi 2 ung börn, og sjálf er
hún með barni.
Geta menn nú hugsaö sér sorg-
Iegra ástand ?
Maðurinn hennar nýdáinn og á
svona óvenjulega sorglegan hátl,
og hún ein eftir með börnin þeirra
2, og meö þessum efnum í tilbót.
Hér er höggvinn í sundur sá
strengur, sem tilfinningalíf manns-
ins á sterkastan, hér er að ræða
um það sár, sem seinast grær.
Maðurinn hennar var eignalaus.
Hann hafði ávalt efnalítill verið, en
á siðasta ári varð hann fyrir því !
óhappi, að liggja rúmfastur í 17
vikur samfleytt, en samt sem áður
gat hann séð fyrir henni og börn-
unum þeirra, af því hann var dugn-
aðar- og reglumaður.
Nú er hann dáinn. Hún stend-
ur ein uppi nieð börnin, yfirkomin
af sorg, veikbygð og beilsutæp.
Hlaupið nú undir bagga. Léttið
henni byröina, Hjálpið henni til
að hlúa að smælingjunum þeirra.
Það eru margir hjálparþurfar, satt
er það, en hér stendur sérstaklega
sorglega á, og slíkar ástæöur koma
— sem betur fer — sjaldan fyrir.
Verum nú samtaka. Leggið sem
flestir lítið eitt af mörkum, sendið
henni nokkra aura. Kornið fyllir
mælirinn. Enginn ætlast til stórgjafa,
en sýnið að eins lit, vilja á að taka
þátt í kjörum hennar.
Konur! Setjið ykkur í hennar
spor.
Og við karlmennirnir, við ættum
að meta að maklegleikum þennan
fegursta og sterkasta eiginleika kon-
unnar, trygð hennar við okkur og
þó einkum við sameiginlegt af-
kvæmi. Við æítum að minnast þess,
—- gitó —
1. FLÖKKUKOMIT
FAGRA
I Sorgarleilcur í 2 þáttum, leikinn
I af »Vitagraph« í New-York.
2. YILT UM
HJÓMSÆUGIM
Ágætur gamanleikur.
J Meðal leikendanna er Buch og
; Psilander.
að það er þessum eiginleika að
þakka, að mannkynið er ekki fyrir
löngu liðið undir lok.
Þess skal getið, að góðir menn
hafa þegar sent ekkjunni nokkrar
krónur.
Afgreíðsla Vísis tekur á móti sam-
skotum og gerir skilagrein fyrir.
G. S.
Siglingabanni um
Uorðursjóinn andmælt.
Sfmað er frá Stokkhólmitil »Hamb.
Fremdenbf.* 6. þ. m., að sænska
stjórnin hafi andmælt yfirlýsingu
breska sjómálaráðaneytisins um lok-
un Norðursævarins og áskilji sér full-
komið frelsi að því er sænskar kaup-
ferðir snertir. — Sænska stjórnin hafi
gripið til þeirra einu ráðstafana, sem
hugsanlegar voru, — hún hafi lýst
yfir því, að Svíþjóð geti ekki álitið
yfirlýsingu breska sjómálaráðaneytis-
ins skuldbindandi fyrir sænsku þjóð-
ina, þar eð hún komi í bága við
ákvæöi alþjóðaréttar, að því leyti, að
hún miði að því að tálma sigling-
um hlutlausra þjóða á rúmsævi,
Ennfremur segir fregnin, að Nor-
egur og Danmörk andmæli þessari
yfirlýsingu breska sjómálaráðaneytis-
ins.
Fundur
í verkmannafél. »DAGSBRÚN«,
fimtud. 26. nóv. kl. 7 e. m. í
GOOD-TEMPLARAH ÚSINU.
Á dagskrá eru stór mál og fyrir-
lestur.
S t j ó rn i n.
K.F.U.M.
Kl. 8V2. Fundur í U.-D.
Sýndar skuggamyndir.
Allir 14-17ára piltar velkomnir.
'TÓRT ÚRVAL AF ÍSLENSK-
} UM JÓLA- OG AFMÆLIS-
KORTUM í Söluturninum.