Vísir


Vísir - 01.12.1914, Qupperneq 4

Vísir - 01.12.1914, Qupperneq 4
Gerlarannsóknarstofa Gísla Guðmundssonar Lækjargötu 14 B (uppi á loftO er Venjulega opin 11—3 virkadaga. i. Þjóðsagnir. Svipirnir iveir. (Sögn frú Guðrúnar Þorgrímsdóttur), Fyrirburður þessi gerðist aðfara- nótt 5. jan. 1914 í Vestmanna- ■eyjum. Brynjólfur Sigfússon organleikari lör út kl. 5 um nóttina til að loka gluggum og gæta að huröum og hlerum hússins, því rokhvast var úti. Er hann hafði lokið þessu lagðist hann til svefns og sofnaði samstundis, en kona hans Guörún sem segir sögu þessa, gat ómögu- lega sofnað og var órótt mjög í skapi; henni kom til hugaraðvekja mann sinn, en ekki varð þó úr því. Um kl. 6 heyrist henni gengið um í næsta herbergi, og í sömu svipan Iukust dyrnar upp á her- bergi hjónanna og öldruð kona í dökkum klæðum gengur hægt að fótagaflinum á rúmi Brynjólfs. Frú Guðrún varð ekkert hrædd, því hún hélt, að þetta væri kona þar úr ná- grenninu, en þar sem henni þótti koma hennar einkennileg, fylgdi hún nákvæmlega hverri hreyfingu hennar. A að giska 1—2 mínút- um síðar lukust dyrnar upp aftur og inn kemur kona hjúpuð hvítum kyrtli og staðnæmist einnig við fótagaflinn á rúmi Brynjólfs. Frú Guðrún varð nú hrædd og vakti mann sinn, en í sama bili hurfu sýnirnar. Um morguninn fréltu þau hjón- in, að stúika þar í Eyjununi hafði ■dáið á sama ti'ma og sýnirnar birt- ust. Hún var mjög hneigð fyrir söng og hafði beðið Brynjólf að spila líksönginn yfír sér, og telur frúin, að hvítklæddi svipurinn hafi verið mjög líkur stúlku þessari að því er hæð og vöxt snerti. Nokkru áður hafði einnig dáið gömul kona þar í Eyjunum, og gæti verið, að svartklædda konan hefði verið svipur hennar, en hvor- ugan svipinn þekti frú Guðrún, enda var dimt í herberginu. II. Lausavísur. (Hestavísur). Þegar hann skellur skeiðið á, skarðar velli gróna, klýfur svellin sundur blá, svo að fellin tóna. Norðlensk hestavísa. Heyra brak og bresti má, broddur klakann smýgur, hófa- vakur -haukur þá hrannarþakið flýgur. Jón Ásgeirsson Þingeyrum. Moldin flúði’ úr móunum, möndulsbúðir skulfu, járnið gnúði’ í götunum, grjótið spúði eldingum. Húsgangur. ■ <■ ■ • . •, .-•vÍiAi.'v*.-/* • •• \ v|s"< Sundur springur Sviðrismaer, söðla- kringum -rakkann, undir syngur álfabær, eldglæringum víða slær. Vatnsenda-Rósa. Vísu þessa gerði Rósa um reið- hest Gísla bónda síns. Aðrir hafa vísuna þannig: Sundur springur Sviörismær, söðla- slyngum -rakka nær, undir syngur álfabær, eldglæringum víða slær. Myndir. Mikið úrval, seljast meS 10—20% afslætti til jóla. Pó voru þær ódýrari en annarsstaðar áður. Pappírs- & ritfangaversl. Lvg. 19. Af sérstökum ásíæðum, er lítil þægi- leg íbúð til Ieigu í Austurbænum frá Þeir sem kynnu að vita um höf- unda að vísum þeim, sem engra er getið við, gerðu vel í að gera Vísi aðvart um það. 1. des. Afgr. v. «L BÆJARFRETTIR Háflæði í dag. Árdegis háflæði kl. 4,11 Síðdegis háflæði kl. 4,30. Afmæli á morgun. Benedikt Sveinsson, alþm. Þórhallur Bjarnarson, biskup. John Fenger, stórkaupmaöur. Gísli Magnússon, múrari. Jón Hafliðason, steinsmiður. Rannveig Jónasdóttir, húsfrú. Hóimfríður Jónsdóttir, ungfrú. Niðurjöfnunarnefndarkosningin fór fram í gær eins og tii stóð og hófst kl. 12 á hádegi. Veður var !hið versta, norðanatspyrnurok, og kusu því miklu færri enellamundi. • AIIs munu hafa kosið úm 370 I manns og lýsir það ekki miklum áhuga, er vér lítum til þess, að kjós- endur bæjarins eru full fimm þús- und. Reyndar höfum vér fyrir satt, að- allmargir kjósendur hafi komið til kjörstaðar eflir kl. 4, en þá var kosningarathöfninni þegar slifið sök- um þes.:, hve dræm aðsóknin hafði verið. — Kosnir votu 5 af A-lista og 3 af B-lista og eru það þessir menn: A-listi: Samúel Ólafsson, söðlasmiður. Jón Ólafsson, skipstjóri. j Páll H. Gísiason, kaupmaður. I Axel V. Tulinius, yfirdómsl.m. Árni Jónsson, kaupm, B-listi: Eggert Briem, skrifstofustjóri. Jóhannes Hjarfarson, verslunarm. i Jóhannes Magússon, verslunarm. Columbus liggur nú á Dýrafirði, Kom hann inn þangað fyrir helgi — hafði farið fram hjá ísafirði. Fékk hann af- spyrnuveður og stórsjó, misti báða bátana og reykháfurinn laskaðist I mikið. Botnvörpuskipin Snorri goði, Baldur og Bragi eru nú að búa sig til fiskjar, og ætia að leggja út um næstu helgi. Figa þau öll að afla í ís handa Bretanum. Mótorbátur, eign Gunnars kaupmanns Gunn- arssonar slitnaði upp hér á höfninni í nótt og rak upp í klappirnar fyrir vestan verslunarhús Geirs Zoega kaupmanns, og brotnaði báturinn mikið. ■ ..... fc- .11* iíííl ■'■■4 Símaslit eru nú um land alt. Sím- skeyti koma þvf engi. Leiðrétting. Herra ritstjóri! í grein minni í Vísii í gær var ein prentvilla, er eg bið yður að gera svo vel og leiðrétta : »Árferðið er ekki svo hér nú, að það sé vansalaust að svíkja* á að vera sníkja. Virðingarfylst. Harun ben Ali. Poesibækiir margar tegundir, mjög ódýrar, Pappírs & ritfangaversl. Laugaveg 19. Gasíampanet af öllum stærðum eru seld í verslun Guðmundar Olsen. Hvítt og mislítt Vefjargarn og einlitir stumpar nýkomnir í verslun. Kr. Sigurðardóttir Laugaveg 20 A. Grlansmyndir mikið og ódýrt úrval í Pappírs & ritfangaversluninni Laugaveg 19 Det kgl. octr. Brandassurance Comp. Vátryggir: Hús, húsgögn, vörur alskonar o. fl. Skrifstofutími 12-1 og4-5. Austurstr.l N. B. Nielsen Guðm. Þorsteinsson prentari óskar viðtals við Júlíus Ingvarsson, snikkara. (ö® V 1 N N A ^ Sendisveinar fást ávalt í Söluturninum, opinn frá 8—11 sími 444. S t r a u n i n g fæst í Grjótag. 11 H á I s 1 í n fæst stífað á Fram- nesveg 15. | K A U P S KjA P U R NÝJA VERSLUNIN — Hverfisgötu 34, áður 4D — Flestalt (utast og inst) til kven- fatnaðar og barna og margt fleira. GÓÐAR VÖRUR. ÓDÝRAR VÖRUR, Kjólasaumastofa. Á Bergstaðastræti 20 eru tekin til sölu gömul föt og gamlir tnunir. Lítil ómakslaun. Sögubækur danskar fást fyrir lítið verð á Bergstaðastræti 9 B. Á N j á 1 s g ö t u 1 3 B er til sölu ein tunna af góðri matar- síld. Einnig fœst þar keypt síld f smákaupum. N ý m j ó 1 k til sölu kvölds og morgna á Vesturgötu 2ö. | T A P AÐ — FU N D IÐ I R a k h n í f u r hefir tapast frá Austurstræti að Vesturgötu. Skil- ist til Pórðar Gunnlaugssonar, Austurstræti 1. >♦« HUSNÆÐI >♦* 2 h e r g i með húsgögnum óskast nú þegar. Kostur ef hægt er. Afgr. v. á. T i 1 leigu ágæt stór stofa með forstofuinngangí. Afgr. v. á. Prentsmiðja Sveins Oddssonar

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.