Vísir - 12.12.1914, Blaðsíða 4
BÆJMFRETTIR
u
Háflæði í dag.
Árdegis háflæði kl. 12,19
Síðdegis háflæði kl. 1.
Afmæli á morgun :
Andrés Björnsson, stud. jur.
Ásta Hermannsson, frú.
Borghildur Björnsson, frú.
Guðjón Guðlaugsson, alþm.
Ingibjörg C. Þorláksson, frú.
Marie Eilingsen, frú.
Soffía Helgadóttir, verslunarmær.
Veðrið í dag:
Vm. loftv. 751 nv .andv. h. 1,0
Rv. ít 753 Jogn “ 0,6
íf. U 752 logn “ -1,5
Ak. u 752 logn “ 0,0
Gr. u 717 s. kaldi “ 1,5
Sf. u 754 s. kul “ 5,3
Þh. u 761 s. sn.v, “ 5,5
Gengi
marka í póstávísunum til Þýska-
lands hækkaði í gær úr 0,87 upp
í 0,89.
Prestar bæjarins
efna til samskota handa fátækum
fyrir jólin og veita þeim móttöku,
sbr. auglýsingu á öðrum stað hér
í blaðinu, og er vonandi, aö menn
styðji þá eftir föngum í þessu þarfa
góðgerðafyrirtæki þeirra.
Messur.
.
1 Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 12
á hád. sr. Jóh. Þorkelsson. Kl. 5
e. m. sr. ÓI. Ólafsson.
»Oreat AdmiraU
lagði á stað frá Fleetwood í gær, '
»Columbus«
er á Hvammsfirði.
Botnvörpuskipin
Skallagrímur, Apríl og Eggert
Ólafsson komu af fiski í nótt, öll
með mikinn afla.
Botnía
kom í morgun kl. 9.
Earl Hereforth
kom inn í gær með lík eins skip-
verja, Þorsteiiis Þorleifssonar frá ísa-
firði. Hafði hann fallið útbyrðis,
og pótt skipverjar næðu honum
bráðlega, urðu lífgunartilraunir á-
rangurslausar.
Skipið fer til Englands í dag.
Skallagrímur
fer til Fleetwood í nótt.
Vestfirðingamót
stendur á Hotel Reykjavík í
kvöld.
sem fékst í ógáti 20 kr. í pen-
ingum og nokkra brauðseðla í
brauðsölubúðinni á Laugaveg 42
í gærkveldi, ert vinsamlega beð-
inn að skila því á sama stað.
FORD-BIFREIÐAR
eru bestar. Finnið
I
Svein Oddsson. j
VISÍK
Danssýning frú Steíanín
Eg er ekki neinn siðferðispost
uli, langt frá því, en mér lét það
einhvernveginn dálítið einkennilega
í eyrum, er eg heyrði, að ein helsfa
leikkona bæjarins ætlaði að sýna
dansa, sem þeir, sem ekki þekkja,
hafa alt annað en glæsilega hug-
mynd um frá siðferðislegu sjónar-
miði séð, svo sern tango og boston.
Svo fór hér sem oftar, að sjón er
sögu ríkari. Eg fann ekkert það í
dönsunum, er sært gæti siðferðis-
og því síðnr fegurðartilfinning
manna, þvert á móti. Sumir dans-
arnir, einkum þó páfadansinn (Fur-
lana), eru mjög snotrir. Dans frú-
arinnar bar vott um það, hve þaui-
æfð hún er í þeim. Dætur henn-
ar dönsuðu menuet og var þeim
klappað taumlaust lof í lófa.
______ X.
Hjálparþurfi.
lltaw a$ lawd\.
Úr Rangárvallasýslu.
(Símfrétt.)
Tiðarfar. Hér hefir verið ein--
munatíð undanfarið, sífelt hægviðri
og stillur. Menn eru óvíða búnir
að taka aðrar skepnur en Iömb og
gjafarhesta. Nú síðustu dagana hef-
ir verið kaldara og nokkur snjó-
koma, en þó eru allgóðir hagar
alstaðar hér eystra. Heilsufar manna
i er með besta móti hér um slóðir.
Draugagangurinn í Helli. Eftir
að bærinn var fluttur hefir aldrei
borið á reimleikum að neinum mun.
Þó heyra hjónin einatt smáhögg í
þiljunum fyrir ofan rúm þeirra.
Segja þau að meira beri á þe&u
undir storm og óveður.
Hljóðum og sýnum hefir aldrei
borið á eftir flutninginn.
Massage-læknir
Guðm. Pétursson'
Garðastrætl 4.
eJUí.
F u n d u r verður haldinn í
verkakvennafélaginu
»Framsókn«
sunnudaginn 13. þ. m. kl. 5^2 e-
h. í húsi K. F. U. M.
Mörg félagsmál á dagskrá.
Verkakonur sækjð fundinn.
Stjórnin.
Til sölu
Húsið Bakkakot á Seltjarnarnesi
fæst til kaups nú þegar og ábúðar
frá fardögum 1915. Ágætt verð
og góðir borgunarskilmálar. Hús-
ið er portbygt úr steini 10x12
álnir að stærð, með kjallara. Því
fylgir 400 ferfaðma ræktuð lóð og
ýms hlunnindi, ef um semur. 'Frek-
ari upplýsingar gefur Oddur Jóns-
son, Ráðagerði.
vammaUsVum
Það er víst margur hér í bæ um
þessar mundir, sem þarfnast hjálp-
ar, og hefir það sýnt sig í verk-
inu, að mörgum er hjálpað. Hér
er einn Norðmaður, Olsen skip-
stjóri, Lindargötu 23, sem á við
mjög bág kjör að búa, þar sem
hann er heilsulítill, kominn af fótum
fram, yfir 80 ára, og alveg atvinnu-
laus. Eg sný mér því sérstaklega
til landa hans, Norðmanna, sem
búa hér í bænum, og bið þá að
láta nú sjá og rétta þessum bág-
stadda landa sínum hjálparhönd, og
muna það, að allir gætum við kom-
ist í sömu bágíndin.
Þeir landar mínir, sem kynnu að
hafa liaft kynni at Olsen, veit eg
muni hjálpa honum eftir megni.
Verum samtaka.
Jón Jónsson
beykir.
Samskot
til
ekkju Rúts sál.
Áður auglýst 540,50
G. S. 1,00
H, Kr. Þorsteinsson 10.00
St. G. 2,00
V. G. 5,00
Ónefndur 4,00
B.n. 5,00
Ónefndur . 1,00
Samtals 568,50
Tennur
eru tilbúnar og settar inn, bæði
heilir tanngarðar og einstakar
tennur,
á Laugaveg 31, uppí.
Tennur dregnar út af lækni dag-
lega kl. 11 — 12með eða án deyf-
ingar.
Viðtalstími 10—5.
Heimakl. 6—7e. h. Sími 394.
hjá Eyv. Arnasyni, Laufásveg 2
Við gefum 20°|o afslátt af
Ölluin ullar-kjólatauum
nú um tíma.
Austurstræti 1.
Asg. G, Gunnlaugsson
VINNA
H á 1 s 1 í n fæst stífað á Fram-
nesveg 15.
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum. Opinn frá 8—11.
Sími 444,
Á Grettisgötu 55 er sóln-
ing 25 au. ódýrari en annarsstað-
ar í bænum.
>♦« HUSNÆÐI
1—2 het;bergi með eða án
húsgagna óskar ungur reglusamur
maður að fá leigð nú þegar, helst
í miðbænum (í góðu húsi). Leiga
borguð fyriríram, ef óskað er. Til-
boð merkt 99 sendist á skrifstofu
Vísis.
G ó ð stofa til leigu nálægt mið-
bænum. Afgr. v. á.
• G o 11 herbergi með húsgögnum
og forstofuinngangi í eða við mið-
bæinn óskast til leigu. Afgr. v. á.
4 m e n n geta fengið fæði og
húsnæði á góðum stað í bænum.
Afgr. v. á.
5 t ó r stofa, ágæt fyrir allskonar
samkomur t. d. dansleika o. s. frv.,
fæst leigð fyrir sanngjarna borgun.
Afgr. v. á.
| KAUPSKAPUR
Mjólkurhúsið á Grettisg.
38 getur tekið á móti nokkrum
fastakaupendum að hinni alþektu
Garðamjólk, þar fæst einnig kvöld-
mjólk,
G o 11 orgel-harmonium til sölu
með tæk'færisverði. Afgr. v. á.
Brúkaður yfirfrakki úr góðu
efni er til sölu með tækifæiisveröi
í Doktorshúsinu við Vesturgötu.
Á Hverfisgötu67erseld-
ur allskonar fatnaður nýr og gam-
all með afarlágu verði. Tekið á
móti fatnaði til útsölu eins og að
undanförnu.
T i 1 s ö I u lítið brúkuð barns-
vagga með tækifærisverði á Frakka-
stíg 6 a niðri.
S a 11 a ð a n þorsk, steinbít og
bútung selur nú ódýrast Guðmund-
ur Grímsson.
Á H v e r f i s g ö t u 67 er til
sölu 1 karlmannsfatnaður og 4—
500 pd. af heyi. %
Fallegur kirtill til sölu með
góðu verði. Afgr. v. á.
S t ó r t og vandað buffet til sölu
með tækifærisverði, Afgr. v. á.
>♦< FÆÐI >**
Sophy Bjarnason.
Fæði fæst á Laugaveg 17.
Prentsmiðja Sveins OddssoHar