Vísir - 23.02.1915, Blaðsíða 4
f l .- \j .j V. !v ;
Aímseli á morgun.
Jón þórarinsson fræbslum.stj.
Einar Arnórsson prófesson
Rakel Ólafsdóttir frú.
Af landssjóðskolunum
verður framvegis ekki selt meira
en 3 skpd. hverjum kaupanda í
einu. Einnig er það ætlun stjórn-
arinnar, að það, sem enn er ó-
selt af kolum þessum, gangi helst
til hinna fátækari bæjarmanna, þar
eð kol eru nú fáanleg á fleiri
stöðum.
Austan yfir fjall
komu í gærkvöld Lára og Stef-
anía Eggersdætur á Laugardælum,
Ólafur Árnason stórkaupmaður á
Stokkseyri. Hann fer með „Flóru“
til útlanda, þeir feðgar Jón og
Magnús Gunnarsson kaupmenn
á Stokkseyri. Ennfremur Sigríð-
ur Siggeirsdóttir og ritstj. „Vísis“.
„Krónprinsessa Victoria"
fór í gær til Seyðisfjarðar og
útlanda.
Bræðurnir Cfausen
ætla að byrja nýja verslun með
vorinu á „Hótel ísland“ við AÖ-
alstræti.
ísa
er seld hér í dag á 8 a. 7» kg.
„Steriing"
fer til Breiðafjarðar í kvöld.
Gestir í bænum.
Bergur Rósinkranzson kaupm.
frá Flateyri og Jóhann þorsteins-
son kaupm. frá ísafirði.
Föstuguðsþjónustu
heldur séra Ólafur Ólafsson á
morgun í Fríkirkjunni kl. 6 síð-
degis.
Brunamálið á
Eyrarbakka.
Er Ingólfshúsa-bruninn
að komast upp?
Það, sem aðallega er rætt um
austanfjalls um þessar mundir, er
atburður sá, er hér fer á eftir:
Fyrra mánudag kallaði Guðm.
ísleifsson á Háeyri 5 menn saman.
Var það hreppsíjóri Eyrbekkinga
(Jón í Mundakoti), Einar Jónsson
járnsmiður, Árni Helgason járnsm.
og tveir menn, sem Guðm. hafði
beðið að vera votta. Síðan ber
Guöm. umsvifalaust brunann upp á
þá Einar og Árna og einmg Krist-
inn Þóraiinsson, er ekki var við-
staddur, að þeir væru valdir að
brunanum. Ennfremur taldi Guðm.^
aö 4. maðurinn hefði lagt ráð á,
hvernig kveyKja skyldi í, en vildi
ekki gefa upp nafn hans að svo
stöddu. Krefst hann nú þess af
hreppstjóra, að hann taki málið
sam.tundis fyrir og tilkynni það
sýslumanni.
Þeim Emati og Áina þótti
tl átá
brennuvargaáburðurinn harður og
stefndu samstundis, en Guöm. situi
við sinn keip, og ekki hefir oröið
áf s*ttum ennþá og bíða menn nú
með óþreyju eftir úrslitum í þessu
máli.
Jóhann V. Danielsson verslunar-
stjóri heíir jafnan borið, áð stolið
muni hafa verið úr búðinni og
kveykt í á ettir. Hann byggir grun
sinn aðallega á því, að tveggja
kalfisekk'a var saknað aF vöriun
þeim, sem bjargað var úr vöru-
geymsluhúsi búðarmnar.
Þjóðverjar lána
Búlgurum.
Síðastliðið ár tók Búlgaría aö
láni hjá nokkrum Berlínarbönkuni
20 miljónir sterlingspunda, og fram
að áramótunum hafði hún ekki
fengið útborgað nemá 4.800.000
sterlingspund. En um mánaða-
mótin janúar—febrúar fékk hún iit-
borgaðar 3 miljónir steriingspunda
og aðrar 3 miljónir verða henni út-
borgaðar næsta 2l/t mánuð, þannig
að nún fær 400.000 sterlingspund
hálfsmánaðarlega. Renturnar af lán-
inu eru 6% og 17»% 1 ómakslaun.
Þarft kver.
Fjórir hijöðstaf-
i r. Orðasafn handa
bömum og unglingum.
Hullgr. /ónsson safnaði.
Rvík. Bókav. Sigf. Ey-
mundssonar 1915.
Kver þetta er að eins 40 bls. í
litlu broti, — fjóidálkuð hver blaö-
siða, — handhægt og þægilegt iil
notkunar. Safnandinn og útgefand-
inn eiga góða þökk allra góð;a
manna skilið, er unna tungu vorri,
fyrir útgáfuna. Hér eru til tínd
flest algeng íslensk orö, þar sem
| hætta er á, að byrjendur í móðui-
málsnáminu og viðvaningar villisl
á, hvort rita skuli e eða / (y) og
ö eða u. Það er lækningakver, leiö-
arvisir til að bæta úr málhelti og
ritskekkju suðurnesja hljóðruglsiir-,
sem óðum breiðist úl og sýkir
tungu vora viðsvegar um land, —
þennan vágest, er kennaramir eru í
vandræðum með að út ý na úr skól-
unum. Kver þetta hlýtur í þes. u
efni að léita stórum starf kennar-
anna og börnunum námið. U n
það má alt af deila, hvort sum ís-
lenskuðu orðin í því ættu að sjast
þar, en mestmegnis eru þar tekin
þau ein slíkra orða, er kalla má að
hefð hafi náð í málinu. Og f rit-
hætti er frekar fylgt daglega mæltu,
réttu máli, en fornum rithætti, Kver
þetta hlýtur að seljast vel, »kom-
ast inn á hverí heimili«, og er þá
auðvelt að bæta úr í næstu úfgáfu
því, er ábótavant kynni að þykja,
felia úr og bæla við algengumórð-
um, er gleymst hafa f þessari út.
gáfu og mun þar samt ekki mörgu
þurfa að bæta við, — svo er sam-
viskusamlega til tínt. Verðið erað
eins 35 aurar í bandi.
Ouðm. Guðmundsson.
Símskeyti frá V.narborg hermir
mjög mikla óánægju yfir þessu láni
innan stjórnmálaflokkauna í Sofffu.
Stjórnarandstæðingar segja, að stjórn-
in tefli landinu í hendur Þjóöverja,
áu þess jafnvel að minnast á það
við fulltrúa þjóðarinnar.
Parísarblað eitt hermir, að Búlg-
aría muni einungis fá 800,000 sterl-
ingspund útborguð í fjárhirslu rík-
isms, en hin 5.200.000 sterlirigs-
pund gangi til þess að borga vopri
og skotfæri, sem hafi verið keypt í
Þýskalandi og Auslurríki.
Parisarblöðin krefja Búlgaríu um
skýringu á láni þessu,
Blaðið »Herald« segir, að Bulg-
aría muni, með þessari óheppilegu
lántöku, koma af stað nýjum Balk-
anófriði,
»Figaro« bendir á, hvaða óram-
kvæmni það sé af Búlgaríu, að
taka höndum saman við óvini sína
Tyrki, gegn Frökkum og Rússum,
Blaðið »Matin« segir; »Ef
Búigaría með þessu frumhlaupi sinu
er búin að gleyma þeim velgerð-
um, sem Frakkar, Rússar og Eng-
lehdingar hafa sýnt henni, þá haía
övinir vorir raunar einum banda-
rnanninum fleira, en Rúmenía og
Grikkland munu verða með okkur
og ef til vill er þá stundin komin
fyrir Ítalíu. Hún getur þá ekki
lengur frestað valinu: hvort hún
skoðar sig sjálfstarða eða sem skuldu-
naut Þýskalands. Okkur þykir gam-
au að vita, hvort heldur er«.
• Petit Parisien* álítur, að þetta
\erði rothöggið fyrir Búlgaríu.
Landherinn breski.
Hann er nú orðinn nálægt
|>rem miljónum, að því er Bret-
ar segja.
Eftirfarandi tölur eru teknar úr
herskýrslunum, sem þegar hafa
verið teknar upp í »Hvítu bók-
ina«.
Fasta herliðið á árinu 1914
var alls 711 þúsund. 6. ágúst
samþykkti neðri málstofan, að
boðið væri út hálfri miljón og
10 seftember var á ný boðið út
hálfri miljón. 16. nóv. fór for-
sætisráðherrann fram á það, að
boðið væri út einni miljón til
viðbótar.
Að öllu samantöldu verður því
landherinn sem þingið hefir sain-
þykkt að boðið væri út á árinu
1914, sem hér segir:
Fasta liðið í byrjun
ólriðarins............. 711000
Útboðið 6. ágúst .. 500 000
— 10. seft. ... 500 000
— 16. nóv. . . . 1 000 000
Alls 2 711 000
Auk þess er ófalið fasta liðið
indverska og hðsveitir frá ný-
lendunum.
FÆÐI
F æ ð ' fæst á Laugveg 17.
V I N NA
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum. Opinn kl. 8—11.
Sími 444.
Skósmíðavinnustofan
Öröttugotu 5. AJIar sköviðgerð
ir fljótt og vel af hendi leystar.
S t ú 1 k a óskast í vist nú þeg*
ar. Uppl. á Skólavörðust. 15 B.
U n g stúlka, vön afgreiðslu,
óskar eftir búðarstörfum 14. maí.
Afgr. v. á.
V ö ri d u ð stúlka, ekki mjög
ónýt, óskast strax til 14. maí
á Vesturg. 48.
S t ú 1 k a, vön öllum húsverk-
um, óskar eftir góðri vist, helst
sem ráðskona. Afgr. v. á.
R e i ð h j ó I eru hreinsuð og
lakkeruð á Vitastíg 14,
L í k k 1 æ ð i fást saumuð og
höggvin fyrir sanngjarnt verð á
Bræðraborgarstíg 35, niðri.
Stúlka óskast í vist frá 1.
mars til 14. tnaí. Upplýsingar
á Njálsgötu 15.
TAPAÐ.-FUNDIÐ
Svartur búi tapaðist í
Gamla Bíó í fyrrakveld. Skilist á
Laugaveg 60, uppi.
Drengjafrakki tapaðist í
laugunum, 11. þ. m. Skilist á
Nýlendugötu 19 B.
Steinolíubrúsi hirtur úr
óskilum af götum bœjarins. Vitj-
ist til Ólafs lögregluþjóns.
KAUPSKAPUR
B a 11 k j ó 11 til sölu með góðu
verði. Afgr. v. á.
Notaður barnavagn, af
vönduðustu gerð, til s ö 1 u á
Hverfisgötu 87, niðri. Verð 30
krónur.
Vefjarskeið, 140 tanna,
óskast til kaups eða leigu. Uppl.
á Laugav. 50. Guöm. Kristinss.
L u x 1 a m p i, í góðu standi,
óskast keyptur strax. Pingholts-
stræti 1.
m
H Ú SNÆÐI
Prentsmiðja Sveins Qddssonar.
Þriggja herberga íbúð ásanít
eldhúsi og geymsluplássi er til leigu
frá 14. maí. — Guðmundur Matt-
híasson, Lindargötu 7.
Einstök herbergiti! ieigu.
Afgr. v. á.
L í t i I kjallaraíbúð, s ó I r í k,
með öllum þægindum, er t'l leigu
fyrir fámenna fjölskyidu. Afgr.v á.
H e r b e r g i með forstofuinn-
gangi til leigu nú þegar, meö
eða án húsgagna. Afgr. v. á
T v ö samliggjandi herbergi,
fyrir einhleyp t, til' leigu frá 14.
maí. Afgr. v. á.
G ó ð, sólbjört stofa, er tii
leigu nú þegar. Afgr. v. á.