Vísir - 25.02.1915, Blaðsíða 1
1340
-o- -o- Gamla Bíó. tO--o-
Baráttan um
peningana.
Franskur lögreglu-sjónleikur í
2 þáttum.
■■■■'" 1 •••':—r-H-T — ----
Nýjar lifandi myndir
frá byrjun
Norðurálfu-ófriðarins.
Aðalfundur
H.f; Félagsbókbandið
verður haldinn fimtudaginn 4.
mars n.k. kl. 8 sd.> í Bárubúð, uppi.
Fundarefni samkvæmt 19. gr.
félagslaganna.
Hlutafélagið Félagsbókbandið -Rvik.
h - . ..
Ingvar ■ þorsteinss. ‘
þorl. Gmtnarss. Björn Bogasöh..
^L. ■ V'
• • i V • “s * ► ■ '••*' ’*■' ■
LÖgreglubúningur
; Islands.
\>.v
V. V ' L’
Hvérs vegna er ekki notaður
sérstakur lögreglubúningur
fyrir ísland?
íslendingar hafa á síðustu tímum
eytt miklum tíma og fé í það, að
berjast fýrir þjóðerni sínu og sjálf-
etæði, og er það ekki nema eðlilegt
og sjálfsagt. En það er svo oft,
sem framkvæmdirnar í þessari þjóð-
ernisbaráttu hafa kafnað í hjómrit-
um og glamri aestra og uppblás-
inna' þjóömálaskúma.
Yms ytri merki aldanskrar inn-
limunar standa hér enn traustum
fótum landi voru óg þjóð til van-
virðu. Þetta er hálfu merkilegra
fyrir það, að þjóðin danska á enga
sök á mörgu af þessu. Nei, orsak-
anna er oftast að eins að leita í
deyfð og framkvæmdarleysi íslend-
inga sjálfra og skilningsleysi þeirra
á því, að meira er um vert að vera
frjáls, sérstök þjóð á borði en í
orði.
Eitt af þeim atriðum, sem einna
ljósast benda á framtaksleysi íslend-
inga í þessa átt, er lögreglubúning-
ur vor. Öllum hugsandi mönnum
hefir blætt það í augum, að sjá al-
ísienska, einkennisklædda embættis-
menn, starfsmenn íslensku þjóðar-
innar, í dönskum einkennisbúningi.
Furðu fáar raddir hafa heyrst um
þetta. Þó má geta þess, að þessa
Druknanir.
Enn þá blæs nátregnum inn yfir fjörð
frá orrustusvæðinu kalda,
og Svalur fer yfir freðna jörð
og flytur ekkjunum boðin börð —
en klökkur við klettarið akia,
og kveðst ekki ein saman valda.
Er berjast skal óvægum ándstæðing mót
og öllum synjað er friði °
þá dugir ei vaskleikinn hetjunum hót
ef hjörinn deigan þarf rétta við fót
og brynjan er brunnin afjyði,
er best þurfti að koma að liði
Og hvorki fær vopn eða vaskleiki tjáð,
ef vígfimi liðsmenn brestur,
og stýri ei vígfimi viturlegt ráð,
ér vahdséð-þó, hver sigri fær náð.
Sá annmarkinn er ekki bestur,
er æ þykist hver og einn mestur.
Eg veit það, hrynjandi bára blá,
og byrsterka loftgeimsins alda,
á ykkur ei skuldinni skelJa má,
þó skaðvænt reynist á íslands sjá,
og oft falli æskan-valda,
á orrustusvæðinu kalda.
.. * <=
VERSLUNIN KOLBRÚN
y, a J \ ? u a $ a s
að sælgæti, vindla, vindlinga, sigarettur, reyktóbak, munntóbak
og neftóbak (handskorið og í bitum) fá menn óvíða ódýrara né
betra en í
\let5luti\tvtv\ ,yo\^túti’ £a\x$a\)e§ S.
LAUGAVEG 5 SIMI 496
H|ð íslenska kvenfélag
heldur ársfund föstudaginn 26. þ. m.
á venjulegum stað og tíma.
Stjórnin.
hefir verið minst, að því er lög-
regluþjónana snertir, en það er í
rauninni misskilningur, að taka þá
eina út úr, því þeir eru að eins
einn liöur úr stórri heild manna,
einkennisklæddum embættismönnum
þessa lands.
Virtist mönnum nú ekki, að a|-
þingi gerði þarfaverk til eflingar
sjálfstæði og sérstöðu íslands með
því að taka upp íslenskan einkenn-
isbúning í stað þess danska ? Mér
virðist, að á síðustu tímum hafi
mörg ómerkari mál verið tekin til
meöferðar af alþingi. Bæjarstjórnir
í kaupstöðunum ættu einnig að taka
— Nýja Bíó —
Ástleitna greifafrúin
Spennandi og áhrifamikill
kvikmyndasjónleikur úr stór-
borgarlífi nútímans, í þ r e m
þáttum og 60 atr.
Aðalhlutverkin leika
bestu og jafnframt einhverjir
fegurstu leikendur Parísarborg-
ar, hr. ALEXANDRE og frú
ROBINNE frá Comedie fran-
caise.
Leikfélag Eeykjavíkur
Syndir annara
verða leiknar O Q febr.
sunnudaginn
28.
kl. 8■/,
Aðgöngumiða má panta í
bókaverslun ísafoldar.
PANTAÐRA aðgöngumiða
sé vitjað fyrir kl. 3,
leikdaginn.
K. F, U. M.
Fundur í A.-D. kl. 8l/t.
Síra Bjarni talar.
Inntaka nýrra meðlima.
Allir karlmenn velkomnir.
málið til meðferðar, að þvf er ein-
kennisbúning lögregluþjóna snertir.
Að eins einn kaupstaður, Hafnar-
fjörður, hefir tekið upp sérstakan
íslenskan lögregluþjónabúning, ann-
ars nota aðrir kaupstaðir Kaupm.-
hafnareinkennisbúninginn. Allir heil-
vita menn sjá, hve fráleitt slíkt er.
Til tals hefir komist hjá bæjarstjórn
Reykjavíkur, að breyta um búning
hér í höfuöstaðnum. Það hefir
fengið góðan byr, og vona eg, að
hún komi því sem allra fyrst í verk.
Þá er stígið fyrsta sporið í áttina
til þess, að hér verði notaður sér-
stakur íslenskur lögreglubúningur,
sem eg vona að verði sem fyrst.
Það mundi hljóta vinsældir hjá allri
þjóðinni. Vitanlega verður að leggja
stund á það, að hafa búningana
sem smekklegasta, þar sem þeir að
sjálfsögðu verða hinir sömu um alt
land og eiga auk þess að gilda um
óákveðinn tíma.
Þetta mál verður bráðlega tekið
til nánari athugunar hér í blaðinu.
- O. S.