Vísir - 28.02.1915, Side 4
V I S I p
Hagsýni stjórnarinnar
í gær frétti eg aö stjórnarráöið
hefði samiö um kaup á 1000 tonn-
um af kolum, viö þá herra O. Jóhn-
son & Kaaber. Mér þótti þetta
dáiítið einkennilegt, aí því að við
erum hér þrjú firmu í bænum, sem
útvegum kol frá útlöndum, að ekki
skyldi vera leitað tilboða lil okkar
allra, og §amið svo við þann, er
best kjör bauð.
Auk þeirra O. Joknson & Kaaber,
sel eg einnig kol í stórkaupum, og
sama er um Biöndal & Sivertsen.
Auövitað er Johnsen & Kaaber elst
af þessum firmum, en eg t. d. hefi
viðskifti mín við stærra verslunar-
hús í kolum en þeir O. Johnseu &
Kaaber.
£n hversu sem þaö er, þá virð-
ist mega telja það sjálfsagða skyldu
stjórnarinnar, að leita tilboða í fleir-
um en einum stað, til þess að fá
svo góð kjör landssjóði til handa,
sem auðið er.
' Eg skal ekkert segja um það,
hvort eg eða B. & S. hefðum gert
lægri tilboð en stjórnin hefir feng-
ið, en ekki væri það alls ólíklegt
eftir atvíkum.
Það kostaði stjórnarráðið ekki
annað ómak, en að hringja til mín
og til B, & S., og skýra oss frá,
að stjórnarráðið vildi kaupa svo og
svo mikið af kolum, af þeirri eða
þeirri tegund, og biðja oss að senda
tilboð vor. Þau hefði það getað
fengið að minsta kosti jafnsnemma
frá mér, eins og O. J. & K. — ef
til vill fyrri.
Eg fæ ekki betur séð, og hygg
að fleirum sýnist svo, en að stjórn-
arráðið hafi hér vanrækt sjálfsagða
skyldu sína við landssjóð.
Þessi aðferð er svo vaxin, að
stjórnarráðið mun eiga örðugt með
að gera hér hreint fyrir sínum dyr-
um.
Þessa grein hefir »Morgunblaðiðc
neitað mér um að birta, en eg vona
að »Visir« verði þeim mun frjáls-
lyndari, aö hann varni mér ekki
máls.
Reykjavík, 28. febr. 1915.
O. J. Havsteen.
Víðayangslilaup.
Öllum, sem ælla sér að taka þátt
í kapphlaupum, er best að byrja á
víðavangshlaupi, einkum þeim, sem
iðka 800 metra hlaup og lengri.
Það, sem menn sérstaklega afla
sér með víðavangshlaupi, er þol,
en undir því er ákaflega mikiö
komið á svo að segja öllum vega-
lengdum.
Það hefir sýnt sig, að menn geta
verið þolnir og fljótir á hringbraut,
en þegar þeir koma á víðavang,
dragast þeir oft aítur úr þeim, sem
standa þeim að baki á hringbraut.
Getur það legið í því, að hring-
brautarhlaup og víöavangshlaup, sem
eru jafnlöng, verður að hlaupa sitt
á hvorn hátt, sem á ekki ætíð við
sama manninn. Þar sem sjaldan er
slétt undir fæti í viðavangshlaupi,
kemur það oft fyrir, að fæturnir
stíga skakt niður, og vel æföum
víðavangshlaupara veldur slíkt eng-
un} óþægindum, slíkt myndi áreið-
anlega koma hringbrantarhlaupar- j
anum af rásinni, af þvf að hann er t
óvanur ósléttri braut, og af því fót
vöðvar hans eru vandir viö það, að
stíga beint á fótinn.
Á víðavangshlaupi er því annan
veg faiið. Þar er mest undir því
koniið, að geta haldið jöfnum, föst-
um skrefum, hvernig sem fæturnir
koma niður. Ef menn geta það
ekki, verður hlaupið óreglulegt, með
löngum og skömmum skrefum á
víxl, líkaminn nær aldrei jafnvægi,
og er slíkt mjög þreytandi. Þcgar
svo stendur á, verður að hlaupa
án þess, að hert sé nokkuð á fóta-
vöðvunum, svo að fæturnir geti
altaf gefið eftir þegar á óslétt er
stígið, og að geta spent þá fljótt
til þess að ná jafnvæginu. Þetta
þroskar vöðvana jafnara, einkum
hina smáu vöðva.
Fyrir hringbrautarhlaupara ermjög
ráðlegt að æfa sig á víðavangi, því
með því samæfast og þroskast allir
vöðvarnir betur og jafnar, og verð-
ur því hægara fyrir þá að skifta um
aðferð t miðju hlaupi.
Armhreyfingin á að vera að
nokkru leyti eins og í hringbrant-
arhlaupi, liðleg og náttúrleg, en úti í
á víðavangi verður þó altaf aö halda
örmunum búnum ti), að halda jatn-
vægi á líkamanum.
Þegar farið er upp brattar brekk-
ur, á að halla sér vel áfram, og ef
vel hefir æft verið, þarf ekki að
óttast að leggja töluvert á sig, t>il
þess að geta haldið upp með eigi
all-litlum hraða. Þegar hallar und-
an fæti, eykst hraðinn eðlilega af
sjálfu sér, en þess verður þá að
gæta, að hafa vald yfir öllum hreyf-
ingum sínum og taka ekki of löng
skref. Þá skal hlaupa með bogin
kné og halla sér aftur á bak.
Menn eiga að klæða sig vel.
Bestur búningur er þetta:
Vanalegur ullarbolur og peysa
þar utan yfir, stuttbuxur, uliarsokk-
ar og gaddskór. Þegar kuldi er og
vindur, er gott að leggja blað á
milli peysunnar og bolsins og vera
í nærbuxum.
Hafi menn 10—12 vikur til und-
irbúnings, er nóg að æfa sig einu
sinni eða tvisvar í viku, fyrstu vik-
urnar. í annaö skiftið úti á víðavangi,
með jöfnum hraða, en hitt á hring-
braut eða þjóðvegi.
Eftir fjórar vikur eiga menn að
æfa sig tvisvar í miðri viku á hring-
braut, þjóðvegi eða úti á víöavangi,
ætti það að vera hér um bil helm-
ingslengd hins ákveðna hlaups, með
sama hraða eða lítið eitt hraðara uS
meðal víðavangshlaup.
Ef æft er á sunnudögum skal
hafa dálitla tilbreyting. Annan sunnu-
daginn hleypur maður helming vega-
lengdarinnar með fullum hraða, en
hinn sunnudaginn síðari helming-
inn með fullum hraða (hinn helm-
inginn skal hlaupa í hægðum sín-
um).
Nú ætlar »íþróttafélag Reykjavík-
ur« að stofna til víðavangshláups
fyrsta sumardag n. k. (sjá augl. hér
í blaðinu).» Og vonar að menn
byrji nú undir eins að æfa sig.
Mönnum er engi vorkunn aö æfa
sig á vetrum, þótt frost sé og snjór
á jörðu, ef þeir eru vel búnir. Séu
menn á gaddskóm þarf ekki að ótt-
ast þótt hált sé. Er þvf slíkt ó-
menska ein, að iðka ekki hlaup jafnt
vetur og sumar.
»/. R.«
Dómur almennmgs.
Að reikna' út bræðra bresti
og bæta dál’tið við,
það virðist orðið vera
að vana’ og þjóðarsið:
og bágt er svo að breyla
að brögnum virðist rétt,
því bæði’í orð ogatvik
er öfug meining sett.
Því ef eg eitthvað segi,
þá er eg misskilinn.
En ef eg alveg þegi,
þá æpir heimurinn:
»Nei! Sjá hvar Stebbi situr,
og syrgir uns hann deyr,
hann var nú aldrei vitur,
en visnar meir og meir«.
Og ef eg úti’ á stræti
með ungri stúlku sést,
þeir segja: »Sjá hann Stebba,
já, sá er til í flestU
En ef eg aleinn ráfa,
og engri sinni snót,
þeir segja’ eg viiji veiða,
en veiðist ekki hót.
Ef ber það tii á »bauki«
eg bið um glas með vín,
þeir segja: »Djöfuls dóninn!
hann drekkur eins og svínU
En ef eg öllu hafna
og aldrei sést með staup,
þeir halda’ eg sé að hræsna,
og hæða mig i kaup.
En þvað sem hver einn segir
í hverjum svo sem róm,
eg hættur er að hirða
um heimsins sleggjudóm,
og læt mér aöeins lynda
að lifa fyrir mig.
Eg held að hinir ættu
að hugsa mest um sig.
S. J. Sckeving.
Svatittv
Laugav. 37. Sími 104.
Langbesta og fjölbreyttasta
matar- nýlenduvöruverslun í
Austurbænum.
Að eins góðar og óskemdar vörur.
Árni Jónsaon.
FÆÐI
F æ ö i fæst á Laugveg 17.
F æ ð i fæst á góðum stað í
bænum, á sama stað eru til
leigu sólrík herbergi. Afgr. v. á.
TAPAÐ —FUNDIÐ
Peningabudda fundin.
Vitjist á Grettisg. 43.
Steinhringur f unjdinn. Af-
gr. v. á.
Prentsmiðja Sveins Oddssonar.
= KAUPSKAPUR
Ný prjónavél (sokka) til söiu,
afar ódýr, í Austurstræti 18.
N o k k u r pd. af kúmeni til
sölu hjá Sveini Jónssyni á Vest-
urgötu 35, uppi.
Skíði óskast keypt. Uppl. á
Grettisgötu 6.
P a r t u r í húsi til sölu með
með góðum borgunarskilmálum,
nálægt miðbænum. Afgr. v. á.
Barnavagn, lítið brúkaður,
til s ö 1 u á Hverfisgötu 34.
H ÚSNÆÐI
S ó I r í k íbúð, 3 stofur , eða
fleiri, ásamt eldhúsi, þvottahúsi
og geymslu, eru til leigu frá 14.
maí; einnig 2 herbergi fyrir ein-
hleypa nú þegar. Uppl. hjá
S. Jóhannessyni,
Laugav. 11.
1 stofa til leigu frá 15. maí
til 1. okt. Uppl. hjá. Friðrik P.
Welding, Vesturg. 24.
Kjallaraíbúð, mót sól,
óskast til leigu 14. maf. Afgr.v.á.
Til leigu er lítið herbergi,
strax. Uppl. í Bergstaðastræti
44.
T v ö herbergi samliggjandi og
mót sólu, til leigu á Laufásv. 42.
2 herbergi með forstofu-
inngangi til leigu fyrir einhleypa,
annað mót sól. Einnig lofther-
bergi, á Laugaveg 30 A.
S t of a og herbergi er til leigu
nú þegar, fæði á sama stað, ef
óskað er. Afgr. v. á.
1 herbergi með eða án
húsgagna til leigu á Klapparstíg
1 B.
H e r b e r g i, fyrir einhleypa,
fást til leigu frá 14. maí á Stýri-
mannastíg 9.
Jón Eyvindsson.
Góð stofa með forstofuinn-
gangi, með eða án húsgagna, er
til leigu 14. maí n. k. Afgr.vá.
VI N N A
ATVINNA.
Vinnumaður, áreiðanlegur og
reglusamur, óskast í góða og
hœga vist hér í bænum frá 14.
maí. Afgr. v. á.
Unglingsstúlka óskast
í vist frá 14. maí til kaupm. Árna
Eiríkssonar, Vesturg. 18.
Sendisveinar fást ávalt í
Söluturninum. Opinn kl. 8—11.
Sími 444.
Skósmíðavinnustofan
Bröttugötu 5. Allar skóviðgerð-
ir fljótt og vel af hendi leystar.
B a r n g ó ð stúlka getur feng-
ið vist nú þegar eða frá 14. maf.
Afgr. v. á.