Vísir - 20.10.1915, Side 2
V I 5 Í R
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrífstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 5—6.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Um
knatfspyrnu-
félagsskapinn.
Eg hafbi hugsað mér að minn-
ast á knattspyrnukappleikinn er
háður var 26. júli í sumar, þegar
að mestu leyti væri séð fyrir
endan á því hverjar yrðu afleið-
ingar hans.
það mun bæjarbúum kunnugt,
og enda fleirum er lesa dagblöð
bæjarins, að einn maðurinn úr
liði „Vals“ varð fyrir meiðslum,
en það var Stefán sonur minn.
í fyrstu var ekki vel hægt að sjá
hve mikið tjón hann myndi líða
við þetta, en nú er hægt að gera
sér glögga hugmynd um það, því
það var ekki fyr en um 20. sept-
ember sem hann gat farið að
ganga til vinnu, þó aðeins í
hægðum sínum ; en ekki efast eg
um að margir mánuðir h'ða þangað
til hann verður jafngóður; það er
einróma álit lækna að beinhimnu-
bólga og sinaskeiðabóga séu lengi
að læknast.
Eg tala ekki um þetta af því,
að eg sé svo mjög gramur yfir
tjóninu, sem St. hefir orðið fyrir
(og eg náttúrlega líka) í þessum
flónslega leik, heldur get eg þess
engu síðar öðrum til viðvörunar,
svo þeir gæti sín betur, og hagi
sér hyggilegar ef illa kynni að
fara. Tjónið er þó allmikið á
öðrum eins dýrtíðartímum og nú
eru.
Barnaskapurinn og fyrirhyggju-
leysið, að hafa enga tryggingu
eða ábyrgð fyrir skaðabótum við
slíka leiki ef illa kynni að fara,
er óafsakanlegt.
Hér er ekki að ræða um neina
auðkýfinga er vél þoli atvinnu-
tjón í margar vikur eða mánuði.
Hagur alþýðunnar er ekki betri
en svo, að flestir verða að vinna
daglega, mega engu sleppa, tjónið
er hið sama hvort heldur það
reiknast sjálfrátt eða ósjálfrátt.
Fyrst eg fór að minnast á þenna
knattspyrnuleik, þá er réttast að
tala um hann sem íþrótt (ef íþrótt
skyldi kalla). Nafnið íþróttamaður
vilja þeir víst hvort sem er gefa
sér sem fást við knattspyrnu.
26. júlí, á knattleiknum, hafði
Valur sína menn, þ. e. hina vana-
legu félaga, og er ekkert við það
að athuga, að mér finnst. „Fram“
leikur á móti og hefir líka sína
félagsmenn, en auk þess etur það
félag fram útlendum manni, sem
auðvitað erekki í félaginu. Ætli
það sé samkvæmt lögum þess
félags (ef þau annars eru nokkur)?
w
£atvds\ns sta&Ysta,
ód^rasta og %os^a úvoaU
Sturla fónsson.
NATHAN k OLSEN
• hafa á lager:
Exportkaffi — Kaffikannan. —
Kaffi, brent.
Do. óbrent, ný teg. nd — polerað Rio nr. 1 og 2.
Chokoiade — nijv;• góð tegund — BENSDORF.
Melís — höggvinn og steyttur.
Púðui i ykur.
Mjóik — niðursoðin — „IDEAL“ —
Vindiar og Vmtilingar — margar tegundir.
Spil — margar tegundir.
Segigarn — fínt og gróft. —
SMJÖRSALT — ekta Luneburger salt. —
Fiskilínur.
Grænsápa
Með „Sterling“ kemur:
Rúgmjöl — gott og ódýrt.
Bankabygg.
Kjöttunnur.
■■ »—• Að eins fyrir kaupmenn og kaupfélög. 1 —
32 kr. tunnan en ió'|2 eyrir iítirinn
í smásölu selst í nokkra daga þéssi ágæía
Stei nol ía í Liverpool.
Kaupið nú til vetrarins, ekki er seinna vænna.
Alfatnaður
seldur afar ódýrt
Sturla jónsson
T I L MINNIS:
Baðhúsið opið v, d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skriLit. í brunastöð ojoin v. d
11-3 '
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3
Landssíminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið V/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vífilsstaðahælið. Hcimsókriart'mi 12-1
i Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
i Ókeypis lækning háskólans :
t á þriðjud. og föstud. kl. 12—1 i
Kirkjustræti 12.
Augnlækningar hjá A. Fjeldsted, lækni,
á miðvikud. kl. 2—3.
Eyrna-, nef- og hálslækningar hjá Ólafi
Þorsteinssyni, lækni, á föstud. kl. 2—3.
Tannlækningar hjá Vilh. Bernhöft, lækni,
á þriðjud. Id, 2—3.
Hvar er sönnun fyrir því að þessi
útlendingur kunni nokkuð í knatt-
spyrnu ? Félagið „Fram“ hefir
líklega lög um það að etja megi
fram blámönnum og berserkjum
hverrar þjóðar sem þeir eru, ef
þeir að eins vilja vera með ? —
Líklegt tel eg að tilgangurinn^með
þessum leikjum sé annar en sá,
að hafa helst þá menn t þeim er
mest og skörpust asnaspörkin
geta gert, og sem tlesta geta gert
óvíga með því að sparka í mann-
inn í staðin fyrir knöttinn; en sé
þetta löglegt, þá fer .að verða
ofur auðvelt að vera fótbolta-
íþrótta-maður!
þessi Norðmaður, er „Fram“
hafði með sér, tel eg víst að hafi
verið óþektur og lítt reyndur hér,
enda hefir hann að líkindum verið
fræknastur í þeirri list að sparka
í mótstöðumann sinn enn ekki í
knöttinn, því þann depilinn er
minni vandi að hitta; og víst er
það að hér hefir aldrei tekist
svona klaufalega knattspyrna þó
stundum hafi orðið nokkur meiðsl
í knattleikjum, það finnst mér
sönnun þess að maður þessi hafi
verið óæfður klaufi, sem lítið eða
ekkert hafi kunnað. „Fram“-
mönnum þykir víst gott að hafa
nofað svona mann til þess að
gera óvígan af meiðslum bóta-
laust — einn hinna hættulegustu
mótstöðumanna sinna, fer eg þar
eftir dómi þeirra er um þetta hafa
ritað, en ekki því að mér sé
málið skylt. Hvort að þannig
fenginn sigur sé löglegur eða
heiðarlegur læt eg öðrum eftir að
dæma um, sem hafa betur vit á
þessu en eg.
______ Frh.
Kolaverðið í London.
Kolaverðiö í London hefir ný-
lega hækkaö utt> 1 sh» smálestin.
Ein smálest af kolum kostar nú 30
sh., eöa skippundið urn kr. 4,50.
Á íriðartímum kostar smálestin venju-
lega 20 sh.