Vísir - 02.12.1915, Page 2
VÍSÍR
Nær allar útlendar matvörutegundir, ásamt
ýmsu fleiru, eru seldar með lægsta verði í
Nýju versluninni
á Bergstaðastr. 33.
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
ld. 1-3.
Sími 400.— P. O. Box 367.
‘JÆuv 0$ 5)ÚUXV, j
gufuhreinsað, lykiariaust. cj:
| Tilbúinn Sængurfatnaður.
Viðureignin
á Balkan.
—o —
Eins og kunnugt er, urðu banda-
menn all-seinir til að fara með her
til hjálpar Serbum. Svo er að sjá,
sem um miðjan nóvember hafi að-
eins 120 þúsundir manns verið
komnar tii Saloniki. Og 20. nóv.
voru það Frakkar einir, sem komn-
ir voru á vígvöllinn í Macedoníu.
Sarrail, hershöfðingi landgöngu-
hersins, ætlaði að reyna að ná
höndum saman við Serbaher, og
hafa borist hingað símfregnir um,
að honum hafi tekist það; þær
fregnir virðast þó ekki vera á rök-
um bygðar. Sagt er að hann hafi
komist það næst Serbum, að 10
mílur enskar voru á milli. Serbar
höfðu þá um hríð getað veitt við-
nám í svokölluðum Babuna-skörð-
um á veginum til Prilep og Mo-
nastir, en urðu að halda undan
áður en Frakkar gætu komið þeim
tii hjálpar.
Vegurinn frá Saloniki, norður
Macedonfu er mjög erfiður og
seinfarinn. Einföld járnbraut sem
þræðir allar bugður Vardar-árinnar.
Járnbraut þessi liggur víða í þröng-
um gljúfrum og eru niargir staðir
sem auðvelt er að verja með litlu
liði. Ef Búlgarar hefðu orðið fyrri
til að ná einhverjum sJíkum stað,
þá hefði gilt einu hve mikið lið
bandamenn hefðu haft í Grikklandi,
járnbrautarvegurinn hefði verið þeim
ónýtur. Jafnóðum og Frakkar fóru
norður eftir brautinni urðu þeir
því að senda hersveitir austur frá
henni, til að verjast árásum Búlgara
á brautina. — En þar við bættist,
að Serbar höfðu oröið að hörfa
undan suður fyrir járnbrautina frá
Veles til Babuna-skarðsins. Frakkar
urðu þyí að fara vestur af járnbraut-
inni við Krivolak (um 100 mílur
frá Saloniki) og átlu þá fyrir hönd-
u m 50 míina veg til Babuna-skarös-
ins, brattan fjallveg og illan yfir-
ferðar.
12. október kom Sarrail til Salo-
niki, en 19. okt. náðu fyrstu her-
sveitir Frakka til Krivolak. Hafa
Frakkar síðan átt þar margar or-
ustur við Búlgara. Og 16. nóv.
áttu þeir enn 10—20 mílur ófarnar
til stöðva Serba í Babuna-skajðinu.
Urðu Búlgarar þar enn fyrir þeim
og voru margir um hvern Frakka.
Þó réðust Frakkar á þá og börð-
ust af mikilli grimd, en unnu Iítt
á, og er því um kent, hve seint
hersveitunum frá Krivolak sóttist
Ieiðin.
En talið er víst, að þeir hefðu
haldið áfram áhlaupunum gegn
Búlgurum, ef Serbar hefðu ekki orð-
ið að hörfa úr Babuna-skarðinu og
halda undan eftir veginum til Mo-
nastir.
Svo virðist þá sem för þessi hafi
orðið árangurstaus, og halda Frakk-
ar nú kyrru fyrir á þessuni slóðum 1
og láta það nægja, að verja stöðv-
ar þær, sem þeir hafa náð. Enda
hafa engar símfregnir borist hingað
urn viðureignina á þessuni slóðum
nú um hríð. En Serbar hafa orðið
að halda undan og hafa nú að
sögn leyst her sinn upp í flokka,
sem hafast við í fjöllunum og heyja
fyrirsátaorustur við hersveitir óvina
sinna.
Lítilfa frétta er því að vænta úr
þessari átt, þar til bandamenn hafa
komið meira her á land á Baikan.
Fyrsti landinn,
sem heim kemur af
vígvöllunum.
Niðurlag,
Brátt sáu Canadamennirnir, að
þeir voru orðnir svo fáir, að ekk-
ert vit var í öðru en að hörfa undan
aftur til skofgrafanna, þeir gerðu það
og fóru að búa um sig f gröfunum
og grafa nýjar grafir sumir, því aö
nú þurftu þeir að teygja úr sér og
faka svæði það, sem Frakkar höfðu
flúið af, eða fylla upp í það skarið.
Og þarna stóð skothríðin á þá
frá þremur hliðum, því þeir voru
í þessu hættulega horni, bæði að
framan og til beggja handa. Þeir
voru því neyddir til að komast í
grafirnar.
Mr. Goodman var einn í áhlaupi
þessu og kom ósærður úr því aft-
ur. Voru þeir þar í gröfunum það
sem eftir var nætur. Um morgun-
inn harðnaði hríðin á þá, og þá
var það sem Mr. Goodman særð-
ist. Byssukúla kom í vinstri hand-
legginn á honum og rann upp
handlegginn og tók í sundur afi-
sinina og lífæðina. Enginn var þar
Iæknir hjá þeim, og varð hann að
binda um sáiið sjálfur. Reyrði
hann utan um kápuermina til að
stöðva blóðrásina, því ella hefði
honum óðara blætt út, og þó misti
hann mikið blóð áður en hann
gat gjört þetla. Þarna var ekki hægt
að komast eitt fet í burtu meðan Ijóst
var, því að undir eins og nokkur
hefði sést upp úr gröfunum, hefðu
staðið á honum 100 kúlur. —
Nafnakall var haft um morguninn,
og voru þá einir 200 manns, sem
gátu svarað til nafns síns af þess-
um 11 hundruðum, hinir 900 falln-
ir; og alveg eins hafði fallið af
Skotunum. Þessum stöðvum urðu
þeir að halda í eina 4 daga, hér um
bil matarlausir. Var þetta kent
klaufaskap hershöíðingja eins. Enda
var hann rekinn og var þó að
mörgu góður foringi.
Þarna varð nú Goodman að sitja
í gröfunum til kvelds. Um kl. 9
reyndi hann að komast burtu í
myrkrinu, Hann þurfti að komast
eitthvað 2 eða 3 hundruð yards. —
Þar var kofi einhver á bak við þá,
og þar gat hann fengið hjálp til að
komast burtu. Hann leggur á stað
í myrkrinu og kemst á hálfa leið;
þá líður yfir hann og veit hann
ekki, hvað lengi hann hefir legið
þar; en svo kom maður til hans
og kom honum á fætur; en þá leið
yfir hann aftur. Loks komu þó ein-
hverjir og hjálpuðu honum burtu
og komu honum til Popperinghe,
eitthvað 10 mílðr í burtú, og þar
vissi hann fyrst af sér. Þá var far-
ið með hann til Boulogne við sjó-
inn. Þar var hann 3 daga og var
svo fluttur yfir sundið til South-
hampton. Þá til Hampstead í
Lundúnum; þar var hann 3 mán-
uði. Efir tvær vikur þar, tók sár-
ið sig upp og fór að blæða aftur.
Var hann þá nærri dauður og var
handleggurinn skorinn upp og
T I L M I N N i S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. ' til 11
Borgarst.skrifjt. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-73
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssíminn opinn v. d, daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið P/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknartimi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustrætí 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
. kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
þumalfingurinn fekinn af vinstri
hendi. Þaðan fór hann til Brom-
ley, Canadian Convales-
cent Hospital, 8 mílur frá
London og var þar 3 vikur.
Þaðan fór hann til Shorncliffe
við sjó út nálægt Folkestone; þar
var hann mánuð og fór svo hingað
á skipinu »Scandinavian« hinn 16.
sept. og kom 2. október hingað til
Winnipeg og er nú kominn heim til
forekira sinna í Pine Valley.
Hkr.
Hindenburg og
keisarinn.
Fyrir nokkrum dögum barst
sú fréit hingað í símskeytum að
Hindenburg og keisarinn væru
ósáttir. — í enskum blöðum er
svo frá þessu sagt, að keisarinn
hafi boðið Hindenburg að gera
enn tilraun til þess að taka Riga
og Dvinsk, hvað sem það kost-
aði, en Hindenburg hafi þá kraf-
ist liðsauka. Þegar svo keisarinn
á ný krafðist þessa, þá hafi
Hindenburg boðist til þess að
láta af herstjórninni. — Eru þess-
ar fregnir hafðar eftir þýskum
föngum í Rússlandi.
OL-
tegundirnar,
góðu, eru aftur komnar.
Krónöl og Pilsner, einnig
Carlsberg
i verslun isgríms Eyþórssonar
Sími 316. Austurstr. 18-