Vísir - 12.12.1915, Blaðsíða 4
VÍSIR
Framh. frá 1. síðu.
eindregni eins og England, Rússland
og Frakkland gerðu nú.
Þessu skeyti svaraði Ferdinand
engu. En síðan kveðst Reinach
hafa fengið fulla vissu fyrir því, að
einmitt um þetta leyti hafi staðið
sem hæst leynisamningarnir á milli
Búlgaríu og miðveldanna annars
vegar, og bandamanna hins vegar,
en i byrjun marsmánaðar hafi kon-
ungurinn tekið ákvörðun um að
gera bandalag við mðveldin. —
Þannig hafi óbreytanlegu tilfinning*
arnar hans þó breyst.
Segir Reinach að bandamenn hafi
gert sig seka í þeim drengilega
misskilningi, að halda að hægt væri
að sætia Balkanríkin og trúað á
það, sem Bújgarinn Denef sagði:
»Ný föðurlandsást er fædd, Balkan-
föðurlandsástin® — en þetta sé því
miður haugalýgi.
Um ástfóstur þaö, sem Rússar
hafi íekið við Búlgaríu vegna þess
að þeir frelsuðu hana undan ánauð-
aroki Tyrkja, hafa Serbar að orð-
taki: »Ef kona fóðrar kálf, þá elskar
hún kálfinn eins og barnið sitt«.
Hvað á eg að gefa í
JÓLAGJÖF?
Lesið eftirfarandi ”dálk”. Má vera
að hann svari spurningu yðar.
Handa kvenþjóðinni:
Silki í kjól.
— í blúsu.
— í svuntu.
— í slifsi.
Klæði í peysuföt.
— í peysu.
Tau í kjól, blúsu eða svuntu.
Léreft og bróderingar í nærfatnað.
Nokkra metra af Flóneli eða Tvistdúk.
Hvíta borðdúka. '
Gluggatjöld.
BÆJARFRÉTTIR
Afmæli í dag:
Pétur Bjarnason, verslunarm.
Frú Sigþrúður Vídalín.
Afmæli á morgun:
Ásta Hermannsson, húsfrú.
Borg'nildur Björnsson. hfr.
Loðskinnavöru :
Kraga — Múffu — Húfu — Sjal.
Slör eða Slæðu úr silki í fallegum
silkipoka.
Skinnglófa.
Silkisokka.
Kassa með bróderuðum vasaklútum.
Silkikiúia.
Vasaklúta hvíta eða með bekk.
»Kol og Salt«
nýstofnað hlutafélag hér í bæn-
um, hefir keypt kolaverslun Björns
Guðmundssonar. Framkvæmdastjóri
félagsins er ráðinn Ólafur Briem,
áður frkvstj. í Viðey. í stjórn Geo
Copland, Jes Zimsen, Hjalti Jóns-
son. Hlutafé um 180 þús. krónur.
Alt innborgað.
Ceres
fór héðan í gær á Ieið til útl.
Meðal farþegavoru: Karl Einarsson
sýslum., Siggeir Torfason kaupm.
og kona hans, til Vestmannaeyja;
austur á fjörðu fóru ýmsir ferða-
menn þaðan að austan. Jón Sívert-
sen, skólastjóri fór til Seyðisfjarðar.
Sápu j
Ilmvötn „Grossmiths".
Ilmbréf J
Fyrir karlménn
Hálslín
Manchettskyrtu.
Hvítar miiliskyrtur.
Hálsknýti.
Hálsbindi.
Manchetthnappar.
Axlabönd.
Háls- og vasaklútar úr silki
Vasaklútar hvítir, hör eða
baðmullar.
„Exelda“-klúta með bekk.
Endurskoðendur
bæjarreikninganna voru kosnir í
gær, þeir Þorst. Þorsteinsson, hag-
stofustj. af B-Iista með 104 atkv.
og Pétur Lárusson, prentari aF A list-
anum með 91 atkv. AIIs hafa þá
tekið þátt í kosningunni 195karlar
og konur.
Símskeyti
frá fréiiaritara Vísis.
K.höfn Jl. des. ’15.
—o—
Allar vonir um friðar=
samninga að engu orðn-
ar. Ensku blöðin svara
storkunarræðu þýska
kanslarans í sama tón
KAUPSKAPUR
L a m p a r í vasaljós (perur) eru
komnar í versl. Kolbrún.
G o 11 tveggjamannafar óskast til
kaups. Upplýsingar á Vesturg. 30.
F a 11 e g t hnetutréboið (pólerað),
stólpi með standmynd (Ekko) til
sölu með íækisverði. Afgr. v. á.
H á k a r 1 til sölu hjá Guðm.
Grímssyni.
Á g æ t fiðla til sölu. Afgr, v. á.
Ný karlmannsföt til sölu
(á lítinn mann) á Skólavörðustíg
17, B.
L E I G A
H e s t u r og skemtivagn til leigu.
Sími 341.
D í v a n óskast til leigu. A v. á.
H ÚS N Æ D I
G ó ð og vönduð stúlka óskast
í herbergi með annari. A. v. á.
V I N W A
S t ú I k a óskar eftir formiðdags-
vist. Vitastíg 9.
Sigurbjörg Jónsdóttir
prjónakona cr flutt á Laufásveg 35.
Prjón fljótt og vel af hendi Ieyst.
TAPAÐ — FUNDIÐ
B. H. B.
biður þess getið, að þó að hon-
um þyki greinin eftir »Merc.« um
verðlag útlendrar myntar all-barna-
leg, þá muni hann þó gera nokkr-
ar athugasemdir við hana innan
akams.
Bjarni frá Vogi
heldur fyrirlestur í dag í Iðnó,
kl. 5, um íslenska tungu.
Prentvilla
var í trúlofunínni í gær, nafn
stúlkunnar er María.
Trúlofun.
Jungfrú Ragnheiður Jónasdóttir frá
Brennu og Árni Jónsson, cand, frá
Múla.
Leikhúsið.
«Skipið sekkur« verður leikið í
kvöld í síðasta sinn.
Trefil.
Hatt, harðan eða linan.
Enska húfu.
SKINN GLÓFA
Jafnt fyrir konur og karla:
PÚÐA á legubekk eða stól.
DÚNSVÆFIL.
DÚNSÆNG.
DÚNTEPPI.
Gylt kúlunál merkt: »R. T.«
hefir tapast frá Vitastfg 7 nið-
ur í barnaskóla. Skilist á Vita-
stíg 7.
T a p a s t hefir peninga-seðill.
Skilist að Lindargötu 30.
B u d d a hefir tapast meö pen-
ingum o. fl. Finnandi beðinu að
skila henni gegn fundarlaunum á
afgr. Vísis.
KARFI
||í| Sími 219.-Austurstræti 22,- Sími 219. fæst 1
..... - ## Zimsensporti