Vísir - 03.01.1916, Side 4

Vísir - 03.01.1916, Side 4
R Fáfræði. Maður nokkur í Noregi var ný- lega l<ærður fyrir tvíkvæni. Hann hafði hlaupið frá fyrri konu sinni árið 1910, en kvongaðist aftur nú fyrir skömmu síðan. Lögreglunni sagði hann, að hann hefði ekki vitað að þetta væri óleyfilegt. taka nærri sér að ganga. María haföi fyrir nokkrum stundi um tekið eftir þessum óeðlilegu umbreytingum, en hún vildi ekk* geta um það, svo að það skyldi ekki valda manni sínum áhyggjum á leiðinni. L. hafði mestu mætur á drengnum og lék við hann í tómstundum sínum og útbjó hon- um alls konar leikföng, sem hann hafði mjög gaman af. Þegar þau votu komin heim, varð móöir drengsins mjög óróleg, er hún sá, að hann var orðinn enn fölleitari. Hann kvartaði um þreytu og vildi fara að hátta, jatnvel þótt það væri nokkrum stundum fyr en vant var. Móðir hans var æð- áhyggjufull og lét þetta fúslega eft- ir honum, en tók svo að velta fyr- ir sér, hvað til bragðs skildi taka. Á milli Vossowska og Tarno- wifz er talsverð vegalengd. Lestin, sem L. stýrði, var 3 stundir á leið- inni. Nú var þykkfengið orðið úti og í næturbyrjun var komið á ofsa- rok með dimmum skýjabólstrum. Þegar lestin sfaðnæmdist á stöðinni, gullu við hringingar, þrisvar í röð, er var merki þess, að nú mættu brautarveröirnir taka á sig náðir, þ. e. nú máttu allir hvílast, þar eð engin lest átti að fara um fyr en morguninn eftir. Þá var ekki þekt á þeim stöðvum næturvinnar. Frh. Glæfraförin. Saga frá Slesíu. Það var eitt haustKveld árið 1865, að járnbrautalestin 26 var að leggja af stað frá stöðinni Vossowska í Efri-Slesíu til Tarnowitz. Vossowska er ein af aðalstöðvunum við braut- ina Tarnowitz-Breslau, en var þá örlítið þorp langt inni í stórum skógaflákum. Húsunum var hróflað í flýti og voru að eins ætluð til starfsrækslu brautarinnar og til íbúð- ar starfsfólkinu. Brautarstúfurinn Oppeln-Tarnowitz, er Vossowska stendur við, var ofboð óverulegur, með því að það voru að eins al- menningslestir, er þar fóru um. — Brautin lá um eyðiskóga og var nokkur hluti þeirra eign Hohenlohe fursta, en hitt áttu vellauðugir óð~ alsbændur. Á stöku stað gægðust smáþorp fram úr skógarbreiðunni. Þenna haustdag var rigning og og stóð að með ofviðri. Lederer J, tav STURLA JÖNSSON. FREYJUSPOR (2 valsar eftir Loft Guðmundsson) fást í Bókaverslununum Sigfúsar|Eymundssonar og Isafoldar. eimreiðarstjóri, er átti að stýra lest- inni til Tarnowitz, hnepti að sér úlp- unni og kvaddi stöðvarstjórann því að burtfarartíminn nálgaðist óðum. Áöur en hann færi kvaddi hann þó konu sína og son, 6 ára dreng- hnokka, er komin voru þar til þess að vera við brottförina. Þú kemur þá ekki fyr en í fyrra- málið aftur? spurði frú L. Nei, svaraði hann, eg verð að annast allan undirbúning Tarno- wifz-lestarinnar og fefst við það til morguns, en kem svo með leslinni kl. 5. í staðinn verð eg svo laus allan daginn. Verlu nú sæl, María og guð veri með þér, og þú, Brúnó minn, átt að vera gott barn, þá skal eg færa þér eitthvað. En heyrðu annars, María, ætli drengurinn hafi ekki verið eitthvað lasinn í dag ? Líttu bara hvað hann er fölur og veiklulegnr. Já, eg hefi tekið eftir því, mælti hún; hann hefir víst orðið kvefað- ur í vætunni, Eg Iæt hann hátta undir eins. Nú var klukkunni hringt í þriðja sinn. L. vafði að sér konu sína og barnið og stökk svo upp í eim- reiðina. Langt blísturhljóð þaut gegn um loftið og lestin mjakaðist af stað. Áður en lestin hyrfi sjón- um á brautarbugðunni, Ieit L. enn um öxl, til þess að senda ástvinum sínum kveðjumerki. Kona hans veifaði vasaklút sínum í mót, en hvarf svo heim að húsinu, er þau höfðu til íbúðar. Á leiðinni gaf hún drengnum sínum nánar gætur, þar sem hann gekk steinþegjandi við hlið henni, Hann var ekki eins og hann áiti að sér, ekki jafn fjör- legur: hann gekk álútur og virtist Egta Wlnar Velure-Hattar eru nú komnir aftur með »Flóru«. Vöruhúsið. H.f. Eimskipafélag íslands. Að gefnu tilefni leyfum vér oss hérmeð nð niælast til þess að þeir sem hafa með höndum hlutafjársöfnun til Eimskipafélagsins haldi hemii áfram einnig eftir nýár. Söfnuninni verður haldið áfram, þótt ákveðið hafi verið, vegna ákvæða félagslaganna, að eftir nýár geti einnig aðrir en menn búsettir á íslandi skrifað sig fyrir hlutum. Rvík, 20. desember 1915. Stjórn H.f. Eimskipafélag Islands. * TAPAÐ — FUNDIÐ Týndir lyklar á hring: 1 flatur, 2 Yale-Iyklar, 1 venjulegur Iykill, brotið af . skeggi. Tapaðist milli Laugavegs og Garðshorns. Góð fundarlaun. Jón i Garðshorni, Bald- ursgötu. Kvennmannsúr með gylt- um uppdrætti á iokinu og stöfunum »ERO«, hefir í gær tapast í þjóð- kirkjunni eða í miðbænum. Ráðvandur finnandi geri svo vel að skila því í Bankasfræti 11. Jón Hallgrímsson. Gylt hálsfesti tapaðist á Nýársdag. Finnandi vinsamlega beðinn að skila henni í Ingólfsstræti 10 (niðri). T a p a s t hefir handtaska með gleraugum. Skilist á Vitastíg 7. Sfk ó h I í f tapaðist í gæikvöldi Skilist á afgr. Unglings piltur getur fengið atvinnu við keyrslu vetrarlangt. Björn Jónsson. Frakkastíg 14. S t ú I k a óskast í vist strax. Afgr. v. á. S t ú ! k a óskasf í vist nú þegar. A. v. á. M a ð u r, sem er líklegur til að vilja læra járnsmiði, getur fengið stöðu nú þegar. A. v. á. S t ú 1 k a óskast í vist nú þegar. Upplýsingar á Laugavegi 32 uppi. er til sölu fyrir hálfvirði, með 3 járnum og sigti. Afgr. v. á. Til sölu: 10 fallegir mess- ing-kökukassar með hálfvirði. Hurð með karmi og skrá aðeins 10 kr. Afgr. v. á. Morgunkjólar smekkleg- astir, vænstir og ódýrastir, sömul. langsjöl og þríhyrnur eru ávalt til sölu í Garðastræti 4 uppi. (Gengið upp frá Mjóstræti). Morgunkjólar frá 5,50— 7,00 fást hvergi ódýrari né betri en í Doktorshúsinu við Vesturgötu. Nýjar og gamlar bækur fást með 10%—75% afslætti í bóka- búðinni á Laugaveg 22. Agætur vagnhestur til sölu. Bílti á hryssu möguleg. A. v. á.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.