Vísir - 05.01.1916, Síða 1
Útgefandí
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Island
SÍMI 400.
6. árg.
• Gamla Bíó •
Á refilstigum
(Junglen).
Lærdómsrík skáldsaga í 5 þátt-
um 200 atriðum eftir hinn mikla
jafnaðarmannaforingja
Upton Sinclair.
Bók Upton Sinclairs «The
Jungle* er eigi á röngu bygð
og engin bók og engin mynd
hefir enn þá talað betur máli
jafnaðarmanna enn þessi gerir.
Myndin er sýnd öll í einu
lagi.
Betri sæti tölusett kosta 60
aura, almenn sæti 35 aura.
Börn fá ekki aðgang.
|pwníaðKBaiaKBM
| _____Leíkfólag Beykjavíkur.
I Hadda Padda.
Sjónleikur í 4 þáttum eftir
1 Guðmund Kamban.
Verður leikín 6. janúar.
(Á Þrettándanum.)
§5 Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað
§ fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er,
annars verða þeir
þegar seldlr öörum.
Islenskt söngvasafn
* — I. bindi —
fæst hjá öllum bóksölum bæjarins
Kostar 4 krónur.
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar.
Freyjuspor
fást hjá
Ársæli Árnasyni,
Guðm. Gamalielssyni,
Bókabúðinni á Laugavegi 22,
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar
og
Isafoldar.
Islenskar
púðurkerlingar
eru tfl sölu
á Bjargarstíg 3.
Miðvikudaginn 5. janúar 1916. 'm&mi
¥
tbl.
SIMSKETTI
frá íréttaritara Vísis.
Kaupmannahöfn 4. janúar 1916.
Simon innanrfkisráðherra Breta hefir sagt af
sér vegna þess hvernig almennu varnarskyldumálið
horfir við.
Grikkir hafa mótmælt aðförum bandamanna og
miðveldanna.
Simon hefir verið því mótfallinn að Bretar kæmu á hjá sér
almennri varnarskyldu, líkur eru því til þess, að nú séu horfur á
þvi meiri að henni verði komið á.
Hún er ansi
feit og falleg
Malakoff - PYLS AN
frá
4
Lofti & Pétri.
Bankabyggingin.
Þess var getið í Vísi á dögun-
um, að samþykt hefði verið á Kaup-
mannafélagsfundi áskorun til hlut-
aðeigenda um að byggja Lands-
bankahúsið í eða sem næst niið-
bænum.
Eg hefi áður skrifað um þetfa
mál í Vísi og hefi fáu þar við að
bæta, öðru en því, að mér þykir
þessi áskorun kaupmanna orð í
tíma töluð.
Af mörgum er því haldið fram,
að bankinn væri ekki síður í mið-
bænum, þótt hann stæði við Hverf-
isgötu upp við Ingólfsstræti, þvíað
þar fyrir austan sé mestur hluti
bæjarins eða bæjarbúa,
Þetta er nú að vísu alveg rétt,
en það er nú samt svo, að ekki
dytti nokkrum kaupmanni, sem búð
hefir haft lengi í miðbænum, í hug
að flytja sig þangað upp eftir þó
hann ætti kost á að fá þar lóð og
jafnvel húsiö líka ókeypis.
Menn munu nú segja, að það
sé alt öðru máli að gegna um
banka en um verslun. — En hver
er þá eiginlega munurinn? — Það
væri æskilegt að fá að vita það.—
Eins og menn telja eftir sér spor-
in upp Hverfisgötu til að leita að
hlut, sem þeir þurfa að kaupa, eins
munu þeir telja þau eftir sér, er
þeir ælla í bankann. En í mið-
bæinn eiga allir erindi daglega, að
heita má, svo að engar líkur eru
til að bankinn yrði að neinu leyti
betur settur til að ná viðskiftum í
austurbænum, þó hann flytti þangað.
Eu hvers vegna á að flytja bank-
ann þangað uppeftir?
Eg skil það vel, að ekki þykir
ráðlegt að byggja hann upp á sama
stað og hann var, húsið var óhent-
ugt og mundi breyting á því verða
kostnaðarsöm. — En er þá ekki
nema um tvent að tefla, annaöhvort
að byggja á sama stað og áður,
eöa þá að flytja inn í Skuggahverfi?
Eru ekki nógar lóöir til í miðbæn-
um núna?
Nýja Bíó
Cleopatra.
Fegursta mynd heimsins
í 6 þáttum
Mynd þessi er tekin og leikin
af hinu sama félagi er lék og
tók »Quo vadis«, en af svo mik-
illi list er allur frágangur þess-
arar myndar ger, að hún er hinni
miklu fremri. — Auk þess sem
sem hún er bæði fögur . og
skemfileg, er hún og fræðandi
og bregður upp Ijósi um háttu
og siðu hinna fornu Rómverja.
BM9T Síðari hluti myndarinnar
sýndur i kveld frá 9—10.
Blómsveiga
fallega og ódýra
selur
Verslunin
„G U LLFO SjS “i
Það er sagt að verið sé að selja
»GodthaabsIóðina, hana hefði bank-
inn getað fengið. Pósthúslóðina
gömlu gæti hann Iíka fengið. Sömu-
leiðis Edinborgarlóðina og Hótel
Reykjavíkur. Þessar lóðir eru auð-
vitað dýrari en Árnarhólslóðin. En
er það ekki næsta hlægilegt að
bankinn skuli setja verðið svo mjög
fyrir sig, þegar tiltölulega eigna-
Iitlir menn eru að kaupa eignir fyr-
ir 50—60 þúsnndir króna til þess
að geta verið í miðbænum og það
verslunarrekendur sem síst eru meira
háðir staðnum en bankinn. Því
að það liggur þó í augum uppi,
að kaupmenn, sem eiga viðskiftl
mestmegnis úti um Iand, eru ekki
nauöbeygðir til að hafa skrifstofur
sfnar í miðbænum.
Hugsanlegt er, að það þyki nú
hlýða að bankinn láti landsjóð sitja
fyrir að selja lóð. En þá vill svo
heppilega til, að landsjóður á líka
lóð f miðbænum — prestaskólalóð-
ina. Þó hún sé of lítil ein, þí
mætti sennilega fá viðbót hjá ná-
grönnum.
Lóðirnar eru nógar, vandinn er
bara að velja þá bestu og lenda
ekki einmitt á þeirri verstu, vegna
þess að ókleift reynist að skera úr
því hver sé best.
En til þess eru dæmin stundum,
að varast þau.
Borgari,