Vísir - 04.03.1916, Blaðsíða 4
VISÍR
i®r Enginn ~m
Sjálfstæðisflokksfundur,
Blað sem kemur út hér í bænum og nefnir sig »L a n d i ð«,
flytur þá auglýsingu í gær, að aðalfundur Sjálfstæðisflokksins verði
haldinn laugardagskveldið 4. þ. m.,
en þetta er tilhæfulaust og rangt.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur engan fund þá.
Páll ísólfsson,
organleikari, ætlar að halda kirkju-
hljómleik í Dómkirkjunni á morg-
un með aðstoö Péturs Halldórs-
sonar bóksala,
Sveitarþyngslin í beenum.
Það var sagt í Vísi nýlega, að
sveitarþyngslin færu vaxandi ár frá
ári, Nú hefir blaðið fengið þá
frétt, frá skrifstofu borgarstjóra, aö
svo sé ekki. Er sagt að fátækra-
framfæri hafi numið 4 þús. krón-
um tninna í janúar síöastl. en í
jan. 1915 og að þaö hafi verið
mun lægra 1915 en 1914. Eru
þetta mikil gleðitíðindi, þó undar-
leg séu, og er þá einnig undarlegt,
að ekki skuli tekið tillit til þess í
fjárhagsáætlun fyrir bæinn 1916.
Ný fjárveiting
til herkostnaðar.
—:o:—
Asquith, forsætisráðherra Breta,
bað enn um nýja fjárveiting til
herkostnaðar, 120 milj. sterlings-
punda fyrir þann tíma sem eftir er
af yfirstandandi fjáthagstímabili, eða
til marsmánaðarloka, og ennfremur
um 300 milj. sterl. pd. fyrir apríl
og maí. Var samþ. við 1. umr. að
veita féð. Þegar þessi fjárveiting er
samþykt til fullnaðar hafa Bretar
veitt til herkostnaðar 2,082 milj.
sterl. pd. eða urn 38,276 miljónir
króna.
Campbell vígður
—:o:—
Séra R. J. Campbell, höfundur
»Nyju guðfræðinnar«, sem sagði
af sér prestskap hjá fríkirkjusöfnuði
sínum í sumar, hefir nú tekið vígslu
í þjóðkirkjunni ensku.
Verkfallið
í Hafnarfirði.
fNI.J —:o:—
Að eg nokkurntíma hafi unnið á
nokkurn hátt í eigin hagsmunaskyrti
innan vébanda Hlífar, er fjarstæða
og ósannindi eins og allur greinar-
kaflinn sem um er að ræða. Og
eg get varla hugsað mér að
nokkur annar en Dagsbrún-
arritstjórinn hefði getaö fengið sig
til að birta í opinberu blaði álíka
ummæli, um sér óþektan mann, og
hann hefir sett þar í minn garð.
Að vísu er líklegt að hann einn
eigi ekki sök á þessu, heldur mun
hann hafa fariö eftir sögusögnum
óhlutvandra manna, sem látið hafa
fljúga í eyru hans illa athuguð orð
í augnabliksæsingu, og ætti hann
ekki að Iáta sér verða slíkt á aftur,
ef hann vill að vel fari fyrir þeirri
hugsjón, sem hann þykist berjast
fyrir.
í 8. tbl. Dagsbrúnar er alllöng
grein eftir hr. Ketil Greipsson, sem
er einn af stjórnendum Hlífar nú
sem stendur, og hefir hann í því
skrifi sínu reynt að breiða yfir mestu
vitleysurnar í stóru greininni í 6.
tbl. sama blaðs.
En bústólp'inn frá Haukadal hefir
látið sér verða það á að segja ekki
nema hálfan sannleikann, þar sem
hann skýrir ekki frá nema því, að
menn hafi ekki orðið varir við annað
en að eg væri með kröfum verka-
manna, þar til á fundi í vetur að
eg hafi snúist þveröfugur á móti
því er hann segir að eg hafi inælt
meö áður. Sannleikurinn a 11 u r
er sá.að eg var og er með því að
verkafólk þurfi að fá kauphækkun
frá því sem áður var, en það var
mín sannfæring, sem eg ekki fór
dult með, að oflangt væri gengið í
sumum kaupgjaldstillögum þeim er
þá voru til umræðu, og hafði eg
þar eingöngu fyrir augum, að kröf-
ur þær, sem eg ekki gat fallist á
rnundu ef fram væri haldið, hafa
þau áhrif að atvinnumagn hér í
bænum mundi rýrna við það. —
Áður en eg gat skýrt skoöun nn'na
til hlýtar á máli þessu, var ráðist á
mig með skömmum og brígslyrðum
og margt af því kom máli þessu
ekkert við. — Árásir þessar virtust
svo strákslegar og komu frá þeim
mönnum;" sem sjálfsagt hafa séð of-
sjónir yfir því hve mikið fylgi og
traust eg hafði í félaginu, að eg á-
Ieit réttast að svara þeim ekki frekar
eða útskýra það nánar hvað eg haföi
minni skoðun til stuðnings, enda
þóttist eg vita það fyrirfram að ein-
stakir menn í félaginu hefðu þegar
ákveðið að vera mótstöðumenn mín-
ir, hvað* sem öðru liði, af því að
eg er verkstjóri. Sagði eg mig þess
vegna samstundis úr Hlif.
Hvað undirskrift minni viðvíkur
undir það bréf, er vinnuveit. sendu
Hlíf, þá er því að svara að eg skrif-
aði undir það eftir skipun og í um-
boði húsbónda míns, sem þá var
ekki viðstaddur og eg geri ráð fyrir
að hann hafi ekki þurft að spyrja
Ketil Greipsson eða neinn annan
um það »hver stæði næstur til þess
starfa®.
Þar sem Ketill er að tala um mis-
jafna hæð manna í mannfélagsstig-
anum og hvernig menn hagi sér í
hinum ýmsu tröppum hans, þá leiði
eg þau orð hjá mér, því mér koma
þau ekkert við, en hvað hann myndi
gera ef hann einhverntíma kæmist
upp úr kjallaranum er mér alveg
ókunnugt.
Þar sem því er dróttað að mér
og eftir því sem virðist fleirum, að
eg vinni af alefli á móti verkalýðn-
um, þá lýsi eg það bein ósannindi
hvað mig snertir, sem auðsjáanlega
eru framsett til að sverta mig í aug-
um annara, en eg þykist þess full-
öruggur að ummæli þessi hafi eng-
in áhrif hjá því fólki, sem kynst
hefir mér til þessa dags og eg vona
að framkoma mín við verkafólk yfir-
leitt bæði í fortíð og framtíð sanni
hiö gagnstæöa.
Verkafólk í þessum bæ álít eg
yfirleitt gott verkafólk og ann eg
því sannarlega alls góðs og vona
eg eftirleiðis eins og að undanförnu
að fá að njóta góðrar samvinnu með
því fólki sem kynni að verða undir
minni stjórn, enda þótt einstakir
menn virðist vilja starfa að því að
eitra samfélagsstarf þessa bæjar með
því að ráðast á einstaka menn f
ræðum og riti með vísvitandi ósann-
indum, en eitt er þó gott við þetta
framferði þeirra, að með því reisa
þeir sér sjálfir þann minnisvarða,
»sem komandi kynslóðir geta þekt
þá af«.
Hafnarfirði 1. mars 1916.
Magnús Jóhannesson.
Stúlka óskast í gott hús hér í
miöbærium 14. maí. A. v. á. [6
Ráðskona óskast á gott sveita-
heimili. A. v. á. [24
Stúlka óskast í vist frá 14. maí
Uppl. á Lindargötu 1 D. [35
Dugleg og þrifin stúlka vön mat-
artilbúningi og öllum húsverkum
óskast í vist 14 maí. Hátt kaup í
boði. Frú Hallgrímsson Vestur-
götu 19. [52
Stúlka óskast í vist 14. maí, getur
átt kost á að fara í síld eða sveit
fyrir sjálfa sig. A. v. á. [53
Karimannsgrímubúningar til leigu
hjá Andrési Andréssyni klæðskera.
[44
Maðurinn sem tók hatt í mis-
gripum á Café Skjaldbreið í gær
(föstudag) er beðinn að skila honum
og sækja sinn eiginn á sama stað
í dag (laugardag). [45
2—3 herb., með eldhúsi, óskast
14. maí í Austurbænum. Uppl. í
síma 151. [9
Sólríkt herbergi nálægt miðbæn-
um er til leigu fyrir einhleypan mann
frá 14. maí. A. v. á. [26
íbúð' vantar mig 14. maí í vor,
2—3 eða 4 herbergi og eldhús.
Sigurjón Jónsson [28
Pappírsversl. Lvg 19. Sími 504.
2 herbergi og eldhús óskast 14.
maí. Fyrirframborgun ef óskað er.
A. v. á. [46
Til Ieigu 2 herbergi með aðgangi
að eldhúsi. Fyrir barnlaust fólk.
A. v. á. [47
1 herbergi, ekki mjög litlu, ásamt
húsgögnum, í eða skamt frá mið-
bænum, óskar eftir til leígu nú fjegar,
reglusamur, ungur maður; áreiðan-
leg borgun. A. v. á. [48
Morgunkjólar smekklegastir, vænst-
ir og ódýrastir, sömuleiöislangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til sölu í Garöa-
stræti 4 uppi. (Gengið upp frá
Mjóstræti 4). [1
Morgunkjólar góðir og ódýrir fást
og verða saumaðir á Vesturgöíu 38
niðri. [2
Morgunkjólar hvergi betri né ó-
dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.)
_____________________________[3_
Vönduð Ijósmyndavél 9x
12 cm. er til sölu. A.v.á. [30
Bækur til sölu.
Opfindelsernes Bog og fleiri bæk-
ur, innl. og útlendar, eru til sölu
með mjög vægu verði. A. v. á,
____________________ [38
Brúkaðar sögu og fræðibækur fást
altaf með niðursettu verði í Bóka-
búðinni á Laugavegi 22. [40
Nýlegur barnavagn óskast til kaups
Upplýsingar á Hverfisgötu 71 uppi.
___________________ [49
Fermingarkjóll til sölu. A. v. á.
[50
Karlmannsregnkápa til sölu með
tækifærisverði á Laugavegi 27 niðri.
[51