Vísir - 29.03.1916, Blaðsíða 4
Vf SiR
túlka,
sem er vei að sér í skrift og reikningi,
getur nú þegar fengið atvinnu við eina af stœrstu
verslunum bæjarins.
Afgreiðslan vísar á.
Drengur
sem er hneygður fyrir verslunarstörf og skrifarogreikn-
ar vel, getur fengið atvinnu við eina af stærstu versl-
unum þessa bæjar. Afgr. v. á.
Skákþingfð.
Þeir sem ætla aö taka þátt'í kapp-
skákunum veröa að gefa sig fram
í síöasta iagi í dag. Handhaii skák-
borðsins, sem um er kept, er Egg-
ert Guömundsson skákkonungur
íslands.
Kaffi
gaf Vilh. Bernhöft slökkviliðs-
mönnunum um nóttina sem brann,
kallaði á þá inn til sín einn eða
fleiri í einu. Var þetta vel hugsað
af Bernhöfí og gott til eftirbreytni
undir líkum kringumstæðum, er
menn verða að standa úti í hörku-
frosti, í gaddfreönum fötum, meiri
hluta nætur.
Verðlaun.
Sagt er að Jensen Bjerg hafi
sent slökkviliösstjóranum 50 krónur
til verðlauna handa slökkviliðinu
fyrir dugnað þess á mánudagsnótt-
ina.
Manntjón
varð minna en viö varð búist af
storminum sem skall svo skyndilega
á á föstudaginn. Alsstaöar, þar sem
til hefir spurzt höfðu allir bátar
róið um morguninn og mátti búast
við hinu versta, En farist hafa 9
menn.
Hermann,
vélbáturinn frá Vatnsleysu, sem
vantaö hefir og ráðgert var að leií-
aö yrði aö þegar veðrinu slotaði,
fórst með 7 mönnum. Sást til hans
frá vélbátnum Vindy er sjór skall
yfir hann, svo hann fylti og sökk.
Vindy var að draga lóð en fór
þegar á vettvang, en enginn maður
var þá ofan sjáfar.
Sæborg,
hinn Vatnsleysubáturinn misti
einn mann. Lenti hún í miklum
hrakningum og náði ekki landi
undir Hafnabjargi fyr en á laugar-
dag. — Níunda manninn tók út
af »17. júní« — eins og áður
hefir verið frá skýrt.
Úr Grlndavík
réru allir bátar og urðu allir
hafnreka og brotnuðu meira og
minna í Iendingu, en til fjögra
spurðist ekkert fyr en fiskiskipið
Esther kom til Grindavíkur f fyrra-
kvöld með skipshafnirnar af þeim
öllum fjórum, og hafði enginn týnt
lífi.
Sokkfð
haföi einn bátur sem lá undir
Krísuvíkurbjargi á sunnudaginn. Það
var vélbáturinn Guðrún frá ísafiröi.
En skipshöfninni var bjargað af
vélskipinu »Freyja«, sem lá þar
rétt hjá.
Sólveig
heitir Hafnarfjarðarbáturinn, sem
lenti í hrakningnum á fösfudaginn,
en ekki Sæborg, eins og sagt var
f blaðinu í gær og hafði skips-
höfninni vegnað vel eftir vonum
og getað miðlað öðrum af matvæla-
birgðum sínum meðan bátarnir lágu
undir Hafnabjargi.
Skemtanir
eru miklar um þessar mundir:
Sjónleikar, hljómleikar, dansleikir,
Bíó og Kvenfélagaskemtikvöld. —
Nú síðast hefir heyrst að Kvenrétt-
indafélagið sé að undirbúa sitt
skemtikvöld, og að þar sé eitthvað
nýtt á ferðum. Og við, sem héld-
um að Kvenréttindakonurnar kynnu
ekki að hlæja eða hefðu ekki augu
og eyru fyrir skemtanir hefir skjátl-
ast illiiega, því það mega þær eiga
að skemtanir þeirra hafa venjulega
verið fjölbreyttustu skemtikvöldin
hér í bænum, enda hafa þær alíaf
fengið íroðfult hús. Vel má því
vera að þær hafi eitthvað grjtt í
pokahorninu, sem menn geti skemt
sér verulega við. Við fáum að sjá.
Hitt og þetta.
Snjólaust.
Snjór fellur aldrei á tvo þriðju
hluta af þurlendi jarðatinnar.
Lág vinnulaun.
í Kína eru vinnulaun kvenna
ákaflega lág.^Konur sem vinna í
silkiverksmiðjunum í Shanghaj fá
að eins 20 aura í kaup á dag.
Unglingar fá að eins 11 aura.
Hinrik Ibsen,
norska skáldið fræga, festi að
sögn altaf sjálfur hnappana í föt
sín, er þeir slitnuðu úr, sagði
hann að ómögulegt væri að fá
það almennilega gert með öðru
móti. Helst kaus hann að festa
hnappana f að einhverjum ókunn-
ugum viðstöddum og horfði þá
kona hans hlægjandi á og trúði
gestunum fyrir því í hljóði að
hún yrði altaf að festa þá betur
í á eftir, því Ibsan gleymdi að
binda hnút á endann.
í&cik aB au^sa
\ *A5\s\
Lítinn bát
óska eg að fá
keyptan.
kaupmaður.
Blómsveiga
úr Tuja og Blodbögh
selur
*)3c\siuu\t\ Sul^oss,
Kaupið Yísir
Herbergi til leigu fyrir einhleyp-
an frá 1. apríl. Fæði fæst á sama
stað. Ingólfsstr. 4. [273
3—4 herbergi og eldhús óskast
til leigu frá 14. maí. Leigan greidd
fyrirfram ef óskað er. J, J. Lam-
bertsen. [285
Sólríkt herbergi með forstofuinn-
gangi og með húsgögnum fæst leigt
frá 14. maí. Uppl. í Miðstræli 10
niðri. Sími 583. [289
Rúmgott herbergi fæst til leigu
frá' 14. niaí. Uppl. í Miðstræti 10
niðri. Sími 583. [290
Vinnukona óskast á gott beim-
ili í Borgarfiröi frá 14. maí í vor.
Afgr. v. á. [248
Stúlku vantar í bakarí frá 14.
maí eða 1. júlí. A. v. á. [275
Stúlka óskast í vist frá 14. maí
Laugaveg 42, niðri. [276
Mann vantar í vinnu yfir lengri
tfma. Uppl. á Frakkast. 25 [277
Röskan og áreiðanlegan dreng
vantar til stiúninga nú þegar í Sæt-
indaverksmiðjuna Víkingur Lauf-
ásvegi 20 (kjallaranum). [291
Stúlka óskast fyrrihluta dags á
barnlaust heimili frá 1. apríl til 14.
rnaí. Uppl. á Hverfisg. 84. [292
Lousie Jensson Aðalstræti 12 vant-
ar vandaða og þrifna stúlku, eða
ungling 14. maí. [293
Stúlka tekur að sér að saurna út
unr bæinn. A. v. á. [294
Dugleg og þrifin stúlka, sem kann
matartilbúning óskast 14. maí. Afar-
hátt kaup í boði. Frú E. Hall-
grímsson Vesturg. 19. [295
Dreng vantar til að keyra brauð.
Laugav. 42. [296
Morgunkjólar smekklegastir, værrst-
ir og ódýrastir, sömuleiðisiangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til sölu í Garöa-
stræti 4 uppi. (Gengið upp frá
Mjóstræti 4). [1
Morgunkjólar góðir og ódýrir fást
og veröa saumaðir á Vesturgöfu 38
niðri. [2
Morgunkjólar hvergi betri né ó~
dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.)
[3
Brúkaöar sögu og fræöibækur fást
altaf með niðursettu verði í Bóka-
búðinni á Laugavegi 22. [40
Lítiö og gott orgel til sölu. A.
v, á. [281
Fermingarkjóll til sölu á Klapp-
arstíg 19. [282
Baðker óskast til, kaups. — Uppl.
hjá Jóni Hjartarsyni & Co. [287
Silki »Frunsur« hnýttar og vana-
legar, einnig leggingar úr silki, perl-
um etc., töluvert »Parti«, til sölu,
helzt í einu lagi. Carl Lárusson,
Þingholtsstræti 7. [288
Tapast hafa rósóttir belgvetlingar
með einum þumli á hægri hendi,
töpuðust frá Laugav. 17 niður að
Morgunbl.afgreiðslu. Skilist á afgr.
Vísis. [297
Svartur flókahattur tap. í Kirkju-
stræti á föstudagskvöldið. Skilist í
Leðurverzlunina í Ausfurstræti 3.
[298