Vísir - 24.06.1916, Page 2
V 1 S 1 R
ViSIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degl,
Inngangur frá Vallarstræti,
Skrífstofa á sama stað, inng. frá
Aöalstr. — Ritstjórínn til viðtals frá
kl. 3-4.
Símf 400.- P. O. Box 367.
V erslunarstaða.
Stúlka sem þekkir vel til vefnaðarvöru, og sem hefur áhuga
fyrir verslun, getur fengið a t v i n n u við eina af stærstu verslun-
um bæjarins.
Hátt kaup.
Eiginhandar unisókn merkt 119 sendist afgreiðslu þessa blaðs.
Best að versla í FATABÚÐINNI!
Þarfást Regnkápur, Rykffakkar fyrir
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aður á eldri sem yngri.
Hvergi betra að versla en í
FATABÚÐINNI, Hafnarstr. 18. Sími 269
Nýir menn.
Gestur á Hæli ætlar að fara að
búa til nýja menn. Hann hefir
komist að raun um, að »gömlu
mennirnir«, sem stjórnað hafa land-
inu, séu óhæfir til þeirra hluta, og
jafnframt óhæfir til alls. — Allir
sem við stjórnmál landsins hafa
fengist nú á síðari árum eru óhæfir.
— Þess vegna verður að fá nýja
menn.
Hvað þessir nýju menn eiga að
gera, er alt á huldu hjá Gesti. Þó
má ráöa í það, að þeir eigi að
kaupa Þorlákshöfn af honum fyrir
150 þús. kr., eða eitthvað af henni
aö minsta kosti, Og svo má gera
ráð fyrir að Gestur hafi ef til vill
einhverja fossa á boðstólum, eða
ef hann hefir þá ekki, þá einhver
af nýju mönnunum hans.
Það einkennilegasta við nýju
mennina hans Gests er það, að þeir
eru allir gamlir — þrír þeirra að
minsta kosti, og það einmitt þeir,
sem efstir eru á listanum hans, hafa
aliir áður verið flokksmenn »gömlu
mannannac. Þeir hefðu áreiðan-
lega getað komist að hjá sínum
gömlu flokkum, ef þeir heföu viljað
Nú, en það vildi Gestur ekki.
Hann treystir þeim þá ekki betur
en svo, aö hann heldur að þeir
myndu ekki njóta sín, þeir myndu
verða taglhnýtingar gömlu mann-
anna, ef þeir yrðu kosnir á þing
í skjóli gömlu flokkanna. — Hann
heldur sýnilega að andrúmsloftið
híbýlum gömlu flokkanna sé svo
eitrað, að þessir nýju menn hans
þyldu það ekki, og allur framfara-
vorgróðurinn í þeim mundi veslast
upp og deyja, - En í skjóli »ó-
háöra bænda* eiga þeir aö veröa
miklir menn.
En mér finst Gestur gera úr
þeim of litla menn. — En þar er
ait í einum graut, vantrú og oftrú
soöið í glamri og gaspri.
Þessir nýju menn hafa kosiö og
stutt gomlu mennina ár eftir ár,
þeir eru hvorki verri né betri en
gömlu mennirnir. Valinkunnir
sómamenn einsog þeir, og vafa-
laust steinhissa og undrandi yfir
orðaskvaldri Gests.
Nýir menn. — Það er ofboð
hægt að tala um nýja menn, en það
er hægra sagt en gert að búa þá til.
Eg undirritaður, sem er gamall
ffokksmaður Sjálfstæðisflokksins, hef
oft skammað bæði þing og stjórn,
en eg hef ekkert beti i trú á þessum
nýju og ekki verri heldur. Ef eg
mætti ráða skyldu aöeins þeir verða
kosnir á þing, sem óháðir bændur
vilja — bara til þess að sannfæra
þá um það strax, að þeir eru af
sama bergi brotnir og hinir.
Eg hefi hérna fyrir mér Suður-
land. í því stendur aö gömlu
leiðtogarnir hafi flæktsig og vafið í
fornfræðilegar kenningar og glæpt
»ómentaöa« alþýðu á þeim. Froðu-
snakkurinn, sem segir þetta, gerir
sér sjálfsagt ekki grein fyrir því,
að hann er sjálfur að flækja sig og
vefja í gaspri um framfarir og
nýjan grundvöll undir framfarir,
sem hann, þó hann ætti aö drepa,
gæti ekki gert sér grein fyrir hvern-
ig ætti að vera.
Eða hafa þessar framfarahugsjón-
ir, sem gömlu mennirnir nýju eru
svo þrungnir af, en engin þekkir,
sprottið upp í þeim á einu augna-
bliki, án þess að þá hafi órað fyrir
því áöur? Eða hvers vegna hafa
þeir aldrei gert vart við þær áður?
Bull og vaðall og ekkert annað,
og áreiðanlega meiri óheilindi á
bak við en á bak víð gömlu, forn-
fræðilegu kenningarnar, sem Suður-
Iand talar um með svo mikilli
fyrirlitningu. Hvers vegna hafa
ekki orðið meiri framfarir sttnnan-
lands en raun ber vitni ? Hvers
vegna er ekki búið að byggja höfn
í Þorlákshöfn ? Vitanlega vegna
þess aö bændurnir noröan
lands, vestan og austan þykir þá
of miklu kostað til suðurlandsins!
Og þannig verður þaö hvort sem
bændur á þingi eru kallaðir »óháð-
ir« eða ekki. — Það er ómögulegt
að fá nýja menn svona í einni
svipan, og hugsunarhátturinn breyt-
ist ekki heldur af hugmyndasnauð-
um glamuiyröum Gests í Suður-
landU
En hvað liggur á bak við þessa
gandreið Gests á þeim óháöu um
landið þvert og endilangt ?
Hvorki meira né minna en þess-
ar 50 þúsundir, sem teknar voru
af bændum í aukaskatt með verð-
hækkuuartollinum. Þær voru það
sem luku upp 'augum Gests og
þess vegna eru þiiigbændurrúr líka
óalandi og óferjandi.
Þess vegna þarf aö setja »merki
bænda á sijórn Iandsins*, eins og
Gestur segir í Suðurlandi. — Rétt
eins og brennimark bænda sé ekki
auðþekt á tollunum, sem lagðir
eru á allar aðfluttar nauðsynjavör-
ur og verölaunum sem bændur fá
fyrir að fiytja út afurðir sínar.
Reykvíkingur.
Grikkir og Búlgarar.
í þýzkúm blöðum er þaö stað-
hæft, að innrás Búlgara í Grikk-
land hafi verið gerð með samþykki
grísku stjórnarinnar. Er sagt að
Búlgarar hafi þótst til neyddir að
ná á sitt vald Rupel-víginu Demir-
Hissar-skaröinu og þeim stöðum
öðrum, sem þeir hafa tekið meö
fram Struma og hafi gríska stjórnin
gefið fyrirskipanir um að gríski
herinn skyldi láta undan sfga. Þessi
krafa Búlgara á að byggjast á þvf
að þessir staðir séu þeim nauðsyn-
legir vegna fyrirhugaðrar sóknar af
hendi bandamanna í Saloniki og
hefir gríska stjórnin ekki þótst geta
neitað Búlgurum, er hún kaföi
veitt Bandamönnum mörg og rnikil
hlunnindi. — Sennilegt er, að þetta
sé rélt og ekki hefir enn heyrst aö
Búlgarar hafi tekið Kavalla, svo að
ekki virðist það hafa verið erindi
þeirra inn í Grikkland.
Sevfeafov.
Eins og frá hefir verið skýrt
í símskeytum til Vísis hafa banda-
T I l. MINNIS;
Baðhúsið opið " d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skrit.st. i bninastöð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islaudsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Ahn. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssimlnn opinti v. d. daglangt (8-0)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið ll/,-2'/, síðd.
Pósthúsið opiö v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráösskrífstofitrnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðnienjasafnið opiö sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 121
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl. 12-1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2-3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3,
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
landsféhirðir ki. 10—2 og 5—6.
K
a
m
i
m
X
m
§aumasVo$a |
Vöruhússins.
Karlm.fatnaðir best saumaðir!
Best efni!
Fljótust afgreiðsla! sssss
Reyktur lax
ódyr og góður fæst á Skólavöröu-
stíg 45.
menn nú flutt Serbaher frá Corfu
til Saloniki, Var hann fluttur á
frönskum herskipum undir stjórn
Guegdons admiráls. — I fyrstu
ætluðu bandamenn að flytjaher-
inn landveg en Grikkir lögðu
blátt bann fyrir.
MUan aj latvdV.
Símfrétt
ísaf. í fyrrad.
I gær var krapahríð hér og
urðu fjöll alhvít niður að sjó.—
Hafís segja botnvörpungar og
vélbátar talsverðan úti fyrir Rit.
Barnadauði mikill af afleiðing-
um mislinga, einkum barna á 1.
ári. Voru 3 börn jörðuð hér í
fyrradag.