Vísir - 06.07.1916, Síða 2
VlSIR
VISIR
Afgreiösla blaösins á Hótel
fsland er opin frn kl. 8—8 á hverj-
um degi.
Inngangur irá Vniiarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng, frá
ASalstr. — Ritstjórfnn til vlötals frá
kl. 3-4.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Best að versla i FATABÚÐINNI!
Þarfást Regnkápur, Rykfrakkar fyrir
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aður á eldri sem yngri.
Hvergi betra að versla en i
FATABÚÐINNI, Hafnarstr. 18. Simi 269
Kanzlarinn talar.
Hann hrœðist hvorki dauðann
né djöfulinn.
Allmikið er farið að bóla á óá-
nægju í Þýzkalandi út af ófriðn-
um og skortinum sem hann leiðir
yfir þjóðina. Upp á síðkastið hafa
verið gefin út feiknin öll af flug-
ritum, flestum nafnlausum, en sum
eru eftir þekta menn. Flugrit þessi
fara mörg hörðum orðum um stjórn-
ina og hermenskuæðið sem hún
hafi leitt yfir þjóöina. Einkum er
eitt ritið harðort um ríkiskanzlar-
ann. — Ritum þessum er stráö út
um alt land og komast þau jafnvel
alla leið niður í skotgrafirnar, en
ekki hafa þau verið gerð að um-
ræðuefni í þinginu fyr en kanzlar-
inn þóttist ekki geta þagað lengur,
en þá var nýútkominn skamma-
bæklingurinn um hann sjálfan og
geröi hann það rit sérstaklega að
umtalsefni og bar af sér sakir þær
sem það bar á hann. — í lok
ræðu sinnar fórust honum þannig
orð:
»Eg veit að engitin flokkur í
þinginu er samþykkur þessum æs-
ingatilraunum. . . . . Eg sé aila
þjóðina berjast sem ofurmenni fyrir
framtíö sinni. Synir vorir og bræð-
ur berjast og falla í bróöerni. Þeir
bera allir sömu ástina til föður-
landsins, bæði hinir ríku og þeir
sem hafa orðið að heyja daglega
baráttu viö örbirgðina. Allra hjörtu
eru hert í hinum heilaga eldi föð-
urlandsástarinnar, svo að þau bjóða
dauöanum birgin í þúsund hætt-
um unz þau hætta aö slá. Féndur
vorir ætla aö berjast til þessítrasta.
Vér hræöumst hvorki dauðann né
djöfulinn, og ekki heldur sultar-
djöfulinn sem þeir ætla að senda
inn í Iandiö. Mennirnir, sem berj-
ast þama suöur hjá Verdun, þeir,
sem berjast með Hindenburg, og
blájakkarnir okkar hugprúðu, sem
sýndu Albion (Englandi) að rott-
urnar bíta, þeir eru afkomeudur
kynslóða, sem hafa lært að þola
skoit. Þessi skortur er hér; egsegi
það rólega og fer ekki í launkofa
með það, ekki heldur fyrir útlend-
ingum; en viö getum staðist hann.
Einnig f þeirri baráttu vinnum viö
á. Hinn miskunnsami guð gefur
landinu góða uppskeru. Það verð-
ur ekki verra ár nú en hið örðuga
ár í fyira, heldur betra. Þettatraust
óvina vorra á fjárhagsöröugleikum
vorum mun bregðast.
Sigur flotans okkar unga þann 1.
júní stígur oss ekki til höfuðs. Vér
vitum að vér höfum ekki kornið
Englandi á knén meö honum, en
hann er fyrirboði framtíðar vorrai’
þegar Þýzkaland vinnur sér jafn-
rélti á sjónum, og um leið veitir
smáþjóðum fult frelsi á siglinga-
Ieiðunum sem Englendingar halda
nú lokuðum. Þaö er þessi skæri
vonarbjarmi, sem stafar af fyrsta
degi þessa mánaðar. (Á eftir þess-
um orðum glumdi við í húsinu af
fagnaöarópum, bæði frá þingmönn-
um og áheyrendum. Flestir þing-
nrenn stóðu upp og hrópuðu og
klöppuöu. Kauzlarinn þakkaöi hvað
eftir anna, og í hvert skifti hófust
fagnaöarlætin á ný).
Eúsneskt Jíveníólk
f stríðinu.
—o— Nl.
I byrjun striösins var þaö mesti
fjöldi ungra kvenna, sem tóku upp
hjúkrunarstörf við herinn; sérstak-
lega voru það ríkismann- og em-
bættismannadætur. En nú á síö-
astliðnu ári og hinu yfirstandandi
ári ganga þær beint í herinn.
Þessi skjaldmeyja hugmynd er
ekki ný hjá íússnesku þjóöinni, því
í meira en heila öld hafa rússnesk-
ar prinsessur verið heiöurs ofurstar
í herdeildum Rússa. Olga prinsessa,
elzta dóttir keisarans, hefir verið
ofursti í riddaraliðinu í mörg ár, og
ríður ætíð í broddi fylkíngar við
hersýningar.
Samkomulag, samvinna og sam-
hygö rússneskra karla og kvenna,
hefir ælíð verið öðruvísi en það er
hjá öðrum þjóðum, og það er ó-
hætt aö segja á hærra stigi, því á
milli rússneskra karla og kvenna er
þetta indæla vinskapar- og jafnréttis-
samband, sem ekki finst hjá öðrum
þjóðum, siðuðum .eða ósiðuðum.
Eftir aö Tartarnir fóru úr landinu,
voru rússneskar konur mjög ófrjáls-
ar; þeim ver haldiö í einskonar
kvennabúrum og höfðu lítið meiri
rétt á sér en gripir.
En kona ein, María Passadnitza
að nafni, prédikaði þangað lil fyrir
samlöndum sínum í Novgorod, og
þar í kring, að eins konar kven-
frelsi komst á, og gömlu kvenna-
búrssiðirnir voru aflagöir. Marfa
Passadnilza var sett í æfilangt fang-
elsi í klaustri einu, en hún haföi
brotiö þrældómsokið af systrum
| síuum og það var henni nóg.
; Já, það er þessi jafnréttis, vin-
skapar og samúðurtilfinning, sem
Marfa gróönrsetti í hug og hjarta
þjóöarinnar og sérstaklega kven-
j þjóðarinuar sem gefur rússneskum
' konurn þetta göfuga hugrekki, þessa
I óttalausu stillingu og þessa móður-
I Iegu biíðu og viðkvæmni og um-
önnun.
Það er þetta ofanskráða sem gef-
ur henni hugrekkiö til að berjast
við hliö föður, sonar, bónda og
bróöur. Eg vildi óska, að kven-
fólk okkar siðuðu þjóðar stæði eins
ofarlega i mannúðar og mannkær-
leikastiganum«.
t>ýsk biöð
um Kitchener lávarð.
Pað vill oft fara svo, að liæfi-
leikar manna eru ekki viðurkendir
fyr en að þeinr látnum. í þýsk-
um blöðuni var aldrei gert mikið
úr herstjórnarhæfileikum Kitchen-
ers meðan hann lifði, en eftir
fráfall hans er svo að sjá, sem
þau álfti þó að E n g 1 a n d hafi
mist mikið og ekki fara þau dult
T ttieð hug Pjóðverja til hans.
| BerlinerTageblatt segir:
i Kitchener lávarður liggur nú á
'c
; sjávarbotni. Hann var fjandmað-
ur vor, illvígasti og grimmasti
f jandmaður vor, upphafsmaður að
þeirri aðferð, sem Bretar beita
nú til að koma óvinum sínum á
kné og fylgismaður allra misk-
unarlausustu hernaðaraðferða. En
vér viljum ekki kyrja yfir honum
bölbænir hatursins þar sem hann
liggur dáinn hermannadauða í
gröf sinni í bylgjunum.......
!; Þar sem Kitchener lávarður er
fallinn frá, eiga Bretar ekki að
eins miklum manni á bak að sjá.
Hann var eini maðurinn sem
Bretar trúðu á í öllu sem snerti
hernað á landi.
V o r w e r t s segir: Menn
s'kyldu forðast að gera ofmikið
úr þeim hnekki, sem breski her-
inn hafi orðið fyrir við fráfail
Kitcheners lávarðar. Pví, þó að
lengi megi þrátta um þá staðhæf-
ingu, að ætíð sé unt að fá mann
manns í stað — reynsla manna
í þessum ófriði og einkum stjórn-
málaviðburðirnir, sanna nánast
það gagnstæða — þá veföur að
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv, til 51
Borgarst.skrif jt. i brunastðð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. llverfisg. op, v, d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspíf. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankínn 10-3, Bankastjórn til við
tais 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
. Landssindnn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúiugrlpasafnið opið P/,-21/, siðd.
Pósthúsið opið v, d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartúni 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Ktrkjustrætf 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og fðstud
kl. 12-1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á fðstud,
kl. 2-3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar i Lækjargötu 2 á rcið-
vikud. kl. 2—3.
landsféhirðir ki. 10—2 og 5—6.
1--2 stúlkur
vanar saumaskap — geta fengið
vinnu nú þegar á
§aum&sto$tt
*\)öxtt^\ttss\tv5.
gæta þess, að skipulag það,
sem Kitchener ætlaði að koma á
herinn, er í öllum aðalatriðum
komið á og enginn efi á því að
því verður haldið undir nýrri
stjórn. Engilsaxneski þjóðflokk-
urinn hefir áreiðanlega til að bera
þá seiglu og það viljaþrek, sem
jafnvel hin þyngstu óhöpp fá ekki
unnið bug á.
Loks segir Hamburger
Fremdenblatt: Dauði Kitc-
heners lávarðar spáir óförum fyrir
Bretum. Með honum er fallin
sterkasta stoð þeirra sigurvona,
sem enska þjóðin hefir alið þrátt
fyrir allar hrakfarirnar. Á hans
herðum hvíldi það Grettistak, að
búa til her úr mannfjöldanum,
sem smalað vai* saman á ófrið-
arárunum og stjórna hernaðinum
í aðaldráttum. Vald hans í hermála
ráðuneytinu var svo ótakmarkað
og stjórn hans svo sjálfstæð,
að við liggur að fráfall hans
lami allar hernaðarframkvæmdir
Breta.