Vísir - 30.07.1916, Page 2
VlSIR
VISIR
Afgreiðsla blaðsfns á Hótel
fsland er opin frá kl. 8—7 á hyerj-
um degf,
Inngangur frá Vallarstrætf.
Skrifstofa á sama stað, Inng. frá
AOalstr. — Ritstjórlnn tfl vlðtals frá
kl. 3—4.
Síntl 400.— P. O. Box 367.
Best að versla i FATABÚÐINNI!
Þar fást Regnkápur, Rykfrakkar fyrir
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aður á eldri sem yngri.
Hvergi betra að versla en i
FATABUÐINNI, Hafnarstr. 18. Síml 269
sem kirkjumálaráðherrann danski
flutti til að koma Arboe Rasnius-
sen til Vaalse, var fyrst samþykt í
fólksþinginu, en breytt í landsþing-
inu í þá átt sem I C. Christensen
óskaði, aö það yrðu undantekning-
arlög fyrir A. Rasmussen einan.
Fólksþingið hafnaði því með 41
atkvæði gegn 26 og samþykti aflur
frumvarp stjórnarinnar. En þegar
það kom í landsþingið annað sinn
féll miðlunartillaga Christensens
með 26 atkv. gegn 24, en frumv.
stjórnarinnar féll þegar á eftir, voru
43 atkv. gegn frumvarpinu, en ein
6 með því.
Kristilegt Dagblad skritar daginn
eftir, 28. júní, um þessi málalok
meðal annars:
Ráðherra og flokkur hans urðu
alveg forviða yfir þessum úrslitum,
sem oss virðast alveg eðiileg.
En svona fer þegar menn vilja
ekki sinn.a staöreyndum, af því
að menn vilja fyrir hvern mun
veröa ofan á í baráttunni,
I
Þeir hafa ekki viljað lúta hæsta-
réttardóminum í máli Arboe Ras-
mussens, en reynt að skýra hanti
svo sem í honum feldist sá úr-
skurður, sem ekki er þar.
Hæstiréttur hefir ekki útkljáð neitt
um, hvort A. R. geti verið þjóð-
kirkjuprestur. Það atriði er jafnt
og áður í höndum kirkjustjórnar —
biskups og ráðherra.
Úrskuröur Poulsens biskups er í
yfirdómnum, en ráöherra vildi ekki
styðjast við hann. Ráöherra vill fá
A. R. viðurkendan þjóðkirkjuprest
með nýrri embættisveitingu, og hann
vill vinna aö svæsinni kirkjupóli-
tík. Að því stefndi »litla* frum-
varpið hans, er hann fekk biskup-
ana tilað mæla með, sem oss er
óskiljanlegt.
Á hinn bóginn lánaðist honum
eigi að fá samþykki ríkisdagsins.
Atkvæðagreiðslan í gær var ósigur
f báðum aðalatriðum málsins.
Fulltrúar leikmanna vilja hvorki
vinna að því aö þjóðkirkjan verði
■ almenn tiúarbragðastofnun, né flytja
eftirlit trúmála frá biskupunum í
hendur stjórnmálaráðherra, sem ef
til vill aðhyllist enga trúarjátningu«.
Þegar svona fór, setti kirkjuráð-
herra A. R. í Vaalse, og lét jafn-
framt viökomandí biskup, Wegener,
vita, að ráðuneytið teldi ekki þörf
neins biskupsbréfs við slíka bráða-
1
I byrgðarsetningu. En biskup var á
öðru máli, Hann laldi það ein-
mitt réttindi biskupa einna, sam-
kvæmt aliri venju að setja presta
til bráöabyrgðarþjónustu, og sam-
kvæmt símskeytunum hafa biskup-
arnir (allir?) orðið samiaka um að
andmæla þessari ráðstöfun ráöa-
neytisins. — Eg set spurningu við
»allir«, þótt skeytið gæfi ekki til-
efni til þess, en það er ótrúlegt að
yngsti biskupinn, Ludvigs í Ála-
borg, hafi fylgt þar hinum að mál-
um, því að hann fylgir ráðaneytinu
í sljórnmálum, og varði stundum
gjörðir þess frekar en klerkum al-
ment þótti ástæða til, enda töldu
margir að biskupsembættið hefði
verið launin fyrir þær varnir. —
En hafi Lúðvígs biskup, sem er
ötull áhugamaður nm öll trúmál,
orðið hinum samferða í andmæl-
unum, þá mun ráðanaytið hafa
orðiö »forviða« að nýju, og þótt
það koma úr hörðustu átt.
S. G.
Gu!a dýrið.
Leynilögreglusaga.
---- Frh.
Svona er sagan eins og skrif-
arinn sagði mér hana. Eg veit
þér sjáið, Bleik, hvílíka óheill þetta
hvarf ráðherrans hefir í för með
sér.
í kveld átti hann að vera á
fundi með stjórninni. Á morgun
verður annar mikilsverður fund-
ur og á fimtudag ætlaði hann
að halda ræðu í Biomingham um
hergagnaframleiðsluna.
Forsœtisráðherranum hafa þeg-
ar verið sagðir allir málavextir.
Hann kom til mín og sagði að
nauðsyn krefði að ráðherran yrði
fundinn hið allra fyrsta. Þetta
er alt sem eg get sagt yður. Þér
getið athugað málið frá yðar
eigin sjónarmiði en finnið að eins
ráðherrann hið allra fyrsta. Viljið
þér taka málið að yður nú
þegar?«
»Auðvitað mun eg gera alt sem
eg get til þess að greiða úr þessu«
sagði Bleik og stóð upp. »Eg
skal taka til starfa strax. Haldið
þér að skrifarinn geti gefið frek-
ari upplýsingar?«
»Ekki býst eg við því«, svar-
aði Sir John. — »Eg hefi spurt
hann í þaula og sagt yður alt
sem hann sagði mér«.
»Það er gott«, svaraði Bleik.
»Þá byrja eg athuganir mínar á
staðnum sem þeir hurfu frá.«.—
Hann tók hatt sinn og staf, kvaddi
lögreglustjórann með handabandi
og gekk út. Úti á götunni beið
hans stór bifreið og sat lærisvenn
hans, sem Tinker hét, við stýr-
ið. -
»Upp Bakarastræti, fljóttl*
Þegar þeir voru komnir heim
fleygði Bleik frá sér stafnum og
hattinum.
»Sestu niður drengur minn, eg
þarf að ræða nokkuð við þig«,
sagði hann.
Tinker kastaði húfunni sinni á
borðið og settist niður.
»Það hefir komið fyrir mjög
alvarlegt mál, Tinker. Hergagna-
ráðherrann og Sir Hector Arm-
strong hafa báðir horfið er þeir
léku »goif« í Westward Ho! —
Síðan sagði hann Tinker alla sög-
una og er hann hafði lokið henni
hélt hann áfram:
»Það væri að eins til þess að
eyða tímanum að koma með
nokkrar ágiskanir. Við verðum
að komast strax á staðinn sem
atburðurinn gerðist. Eg verð að
játa að flugvélin, sem drengurinn
gat um, þykir mér grunsamleg,
én auðvitað getur sá grunur að
engu orðið þegar maður hef-
ir rannsakað staðinn. Þess vegna
er skjótfæri aðalatriðið. Fáðu
þér bifreið og aktu til Hendon.
Símaðu til mannanna sem geyma
fyrir mig »Gráa Örninn«: og
beiddu þá að hafa hann til taks
þegar þú kemur. Þegar þangað
er komið skaltu strax stíga í flug-
vélina og halda til Devon. Reyndu
að lenda eins nálægt leikvellin-
um í Westward Ho! og þú get-
ur. Eg mun koma á eftir þérog
hitta þig þar. Taktu matarbita
með þér og eyddu ekki tímanum
til ónýtis*.
Áður en Bleik hafði lokið við
síðustu setninguna var Tinker
kominn að símanum og hafði
hringt upp mennina sem flugvél-
ina geymdu í Hendon. Hann
bað þá um að hafa »Gráa Örn-
inn« búinn til flugs er hann kæmi
Síðan þreif hann húfuna sína og
kvaddi Bleik og þaut út. Bleik
gekk inn í fataherbergið, lét smá-
muni nokkra ofan í handtösku
sína og kallaði á hundinn sinn,
er Pétur var kallaður. Eftir nokk-
ur augnablik var hann kominn
T I L M I N N I S:
Baðhúslfi opifi v. d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skrifjt. i brunastóð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3og5-7v.d
Islandsbankl opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk, sunnd. 8* 1/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3, Bankastjórn ti! við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssimfnn oplnn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnlð oplð Þ/,-21/, síðd.
Pósthúslð oplð v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartínii 12-1
Þjóðmenjasalnið opið sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypis iækning háskólans
Klrkjustræti 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og fóstud
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á fðstud.
kl. 2-3.
Tannlæknlngar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á miö-
vikud, kl. 2—3.
andsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
Skemtivagnar
með ágælishestum til leigu í lengri
og skemri ferðir. Sími 341.
út á götu og upp í bifreiðina,
sem þaut af stað með feikna
hraða áleiðis út úr borginni.
Hann stansaði einu sinni á
leiðinni til þess að síma til Morri-
sons og láta hann vita að hann
væri á leiðinni til hans.
Frh.
Kjötverð lækkar
í Danmörku um
60 au. kgr.
Danska stjórnin hefir undanfarið
verið að leita ráöa til að lækka
kjötverðið þar í landi. Nefnd hefir
verið skipuð í málið og hún lagt
fram tillögur, sem alment er vel
tekið og búist við að nái fram að
ganga. Vill hún leggja útflutnings-
toll á kjötið, 7 aura á kgr. í lif-
andi þunga, og viö það hlýtur verðið
innanlands að lækka jafn mikið,
En auk þess er lagt til, að af op-
inberu fé verði lagt fram sem svar-
ar 25 aurum fyrir hvert kgr., sem
selt er innanlands, og lækkar verð-
ið þá fyrir neytendur um samtals
32 aura hvert kgr. í lifandi þunga,
en það svarar til 60 aura lækkunar
á kjötverðinu frá því sem nú er.