Vísir - 13.08.1916, Qupperneq 4
V 1 S I R
H e r 1 e i ð i n g
F I ó r u.
Af Englandsför Flóru eru nú
komnar allnákvæmar fregnir í
Austra frá 3. þ. m. Er svo sagt
þar að farþegarnir hafi borið skips-
höfninni á Flóru mjög vel söguna
og einkum Hansen skipstjóra. —
En það sem merkilegra er, er það
að „einnig virtist farþegunum öll-
um vera mjög hlýtt til Englend-
inga þrátt fyrir að þeir höfðu vald-
ið allmiklum hlykk á leið Flóru,
en sökum hins hlýja viðmóts og
samúðar er þeir mættu hjá Eng-
lendingum, er þeir höfðu mök
við, og eftir að hafa fengið betri
þekkingu á ástæðum þeim sem
fyrir hendi eru hjá ensku þjóð-
inni nú á þessum heljartímum,
komust þeir til betri skilnings á
kringumstæðunum, sem óhjá-
kvæmilega færði þá nær hinni
ensku þjóð“, að því er Austri
segir. — Landgöngu voru Bretar
búnir að leyfa öllum farþegunum
í Leith og 9 farþegar, sem ætluðu
til Danmerkur og Noregs, fengu
að fara þar i land og með járn-
braut til Newcastle til að ná þar
í skip. Er þetta eftirtektarvert
vegna þess að annars er mjög
erfitt að fá landgönguleyfi í Leith,
svo að það jafnvel hefir verið talið
ófáanlegt.
Afskifti Dana,
Austri flytur útdrátt úr fyrir-
lestri landlæknis og er þar skýrt
frá afskiftum Dana af máli þessu
á þessa leið:
„Til Lerwick kom Flóra 13. júlí
á hádegi. — Símaði landlæknir þá
bæði til íslenzku stjórnarinnar og
sendiherra hennar í London,Björns
Sigurðssonar, og lét vita hvernig
komið var. Einnig var símað til
sendiherra Dana í London og hann
beðinn að gera gangskör að því
að farþegarnir herteknu kæmust
sem fyrst heim aftur, 3: til Siglu-
fjarðar. Sendiherrann gerði þá
fyrirspurn um hvort fólkið vildi
komast til Siglufjarðar á íslandi
eða Siglufjarðar í Noregjl! Var
honum skýrt frá að fólkið vildi
heldur komast til Siglufjarðar á
íslandi! Tveim dögum eftir að í
sendiherrann hafði fengið þessar !
nauðsynlegu upplýsingar, gerði ■
hann fyrirspurn um það hvort
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 12. ágúst
Asigkomuiag Austurríkismanna er orðið ískyggi-
legt. Þeir hafa yfirgefið Lemberg og Stanislau.
Italir hafa tekið borgirnar Rubia og Doberdo,
Portúgalar hafa sent hersveiiir til Frakklands.
farþegarnir á Flóru hefðu fengið
eitthvað að borða!
Jú, honum var svarað að ekki
skorti mat — og síðan hafa Flóru-
farþegarnir ekki heyrt neitt frá
sendiherra Dana í London.“
„Til Leith kom Flóra 21. júlí um
liádegi. Sneri landlæknir sér þá
þcgar bréflega til danska konsúls-
ins þar; skýrði honum frá öllum
málavöxtum í þeirri von að hann
tækist á hendur að greiða úr vand-
ræöum farþeganna. Meö bréfinu
lét hann fylgja símskeyti til konu
sinnar er hann bað konsúlinn að
annast um sending á.
Að tveim dögum liðnum kom
konsúllinn til skips og tjáði land-
lækni að hann hefði þá fyrst feng-
• ið bréf hans. Konsúllinn taldi
mál Flórufarþeganna mjög erfitt
viðureignar og lét á sér heyra að
hann treysti sér ekki að ráða fram
úr vandræðunum. Afhenti hann
landlækni símskeytið og taldi vafa-
samt að það fengi að fara gegnum
símann, eftirlitið væri svo strangt.
í skeytinu stóð ekkert annað en
„Vellíðan — kveðjur", tók land-
læknir við því og sendi sjálfur.
Kvaddi hann síðan konsúlinn og
þakkaði honum umhyggjuna. Eru
hér með talin afrek Dana í þessu
vandamáli.
Meðan á þessu stóð hafði sendi-
herra íslendinga í London, Bj.
Sig., útvegað landlækni landgöngu-
ieyfi í Leith. Hafði enska stjórn-
in fúslega gefið landlækni vega-
bréf (eftir að henni var kunnugt
hvaða „manneskja" hann var) er
heimilaði honum að vera í landi í
Leith (og Edinburgh) frá kl. 9—9
daglega."
Að lokinni ferðasögunni segir
Austri, að stjórnmálablæ hafi
brugðið á ræðu landlæknis. Hafði
hann þá vikið að því, hve óeðli-
legt væri, að utanríkismál vor
væru í höndum Dana. Reynslan
hefði sýnt það síðan stríðiö hófst,
að þá skorti bæði þekkingu og
vilja til að verða oss að gagni í
þeim málum. Allur vandinn væri
látinn hvíla á herðum íslenzku
stjórnarinnar, og væri það gott,
því á því sjáist að íslendingar
séu færir um að bjarga sér sjálfir
einnig í utanríkismálum, enda
ættu þeir að keppa að því
marki aö fá fullveldi yfir öllum
sínummálum og sinn eiginn sigl-
ingafána.
Gerði landlæknir hálft um
hálft ráð fyrir því, að hann hefði
svift sig atkvæðum til landskosn-
inganna með ræðu sinni, en ekki
finst Austra „að tilgangur hans
hafi beinlínis verið sá, að „spila
af sér“ atkvæðum með henni!“
SprengiJí úlna~sprenging
í ííew-York.
—o—
2000000 sterlingspunda tjón.
Sunnudagsmorguninn 30. júlí
höfðu orðið ægilegar sprengikúlna-
sprengingar í New-York. Sagt er
að eldur muni hafa komið upp í
skotfærageymsluhúsi og borist í
flutningabát, semhlaðinn varsprengi-
kúium. — Sptengingarnar voru svo
stórfeldar að mikill hluti borgarinnar
lék á reiðiskjálfi og var eins og
skothríö væri hafin á borgina, því
kúlnabrotunum rigndi á húsþökin f
New-Jersay og Ellis-Island. í
Brooklyn hentust menn úr rúm-
unum. Bryrnar yfir East-River riö-
uöu til og skýjaskafarnir gnötruðu.
Broadway var þakinn af gierbrot-
um, því þar var ekki ein rúða heil
í nokkrum glugga. — Á Black
Tom, tanga, sem gengur út í fjörð-
inn nálægt frelsisstytlunni hrundu
vöruhús National Storage Comp.
tíl grunna óg eru þær skemdir taldar
1500000 sterlingspunda virði, en
alt tjón sem af sprengingunum varð
í borginni lágt reiknaö 2 miljónir
punda. Um manntjón er ekkert
fallyrt í þeim fregnum, sem Vísir
hefir séð. — Spreningamar urðu
þrjátíu.
Ekki er þess getið til, að Þjóð-
verjar séu valdir að þessu, og er
fregnin þó tekin úr ensku blaði.
— En varla munu þeir þó gráta
það. aö Bandaríkjamenn fái slíkan
smjörþef af verkunum sprengikúln-
anna, sem þeir selja fjandtjiönnum
þeirra.
\
— v 1 N N A — 'I
Kaupakona óskast á á g æ 11
heimili. Uppl. á Suðurg. 6. [67
TAPAÐ — FUNDH0
Manchetta með gullhnapp hef-
ir glatast. (Pvottahúsnúmer 997).
Skilist á'afgr. Fundarlaun. ]60
Herbergi til leigu fyrir feröafólk
í Lækjargötu 12 B. [305
Herbergi með húsgögnum til
leigu í Bánmni. [14
Kona með son sinn 8 ára gaml-
an óskar eftir 2 herbergjum með
eldhúsi í kyrlátu og góðu húsi,
frá 1. næsta mánaðar. — í stað
eldhúss gæti smáherbergi með
vatni og gassuðuvél komið
til niála. Uppl. gefur Helgi Bergs.
Sfmi 249. [47
2—3 herbergi og eldhús óskast
til leigu frá 1. okt.
C. Nielsen, afgreiðsla Gufu-
skipafél. sameinaða. [262
1—2 herbergi og eldhús eða
aðgangur að eldhúsi óskast til
leigu sem fyrsteðal. okt. Uppi.
á Hverfisg. 41, bakaríinu. [64
KAUPSKAPUR
Saitfiskur til sölu'. A.v.á. [65
Langsjöl og þríhyrnur
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið
upp frá Mjóstræti 4). [43
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum). [217
Morgunkjólar fást beztir'í Garða-
str. 4. [299
Bókabúðin á Laugavegi 4 selur
brúkaðar bækur. Lágt verð. [3
Morgunkjólar fást og verða saum-
að|r í Lækjargötu 12 A. [30
Barnakerra óskast til kaups eða
leigu. A. v. á. [63
Veiðistöng óskast til *1eigu um
hálfsmánaðartími. Menn snúi sér
til Árna Ólafssonar Árnasonar,
Suðurg. 14. Sími 401. [66
Prentsmiöja Þ. í>. Clementz, i 916.