Vísir - 19.08.1916, Page 2
VISIR
VISIR
A f g r e 1 ö s 1 a blaðslns á Hótel
Island er opin frá kl. 8—7 á hverj-
um degf,
Inngangur frá Vallarstrætl.
Skrifstofa á sama stað, inng. trá
Aðalstr. — Rltstjórlnn tll vlðtals trs
kl. 3-4.
Síml 400.— P. O. Box 367.
Best að versla í FATABÚÐINNI!
Þar fástRegnkápur, Rykfrakkar fyrlr
herra, dömur og börn, og allur fatn-
aðurá eldri sem yngrl.
Hvergi betra að versla en i
FATABUÐINNI, Hafnarstr. 18. Simi 269
Til Gunnars.
—O---- '
Með því að hr. Ounnar Sigurðs-
son frá Selalæk hefir viðurkent flest
af því sem eg vítti í fyrstu grein
minni um Gullfosshestana, svo sem
eins og það:
að heyið frá Lögbergi heföi verið
slæmt,
a ð fiey hefði vantað,
a ð útskipun væri ekki í eins góðu
Iagi og æskilegt væri, og með
fögnuði viðurkent:
a ð sumir útflutningshestarnir hefðu
verið magrir,
a ö sumir útflutningshestarnir væru
hálfhungraðii,
a ð þeir væru á slæmum högum
síðusfu dagana áður en þeir
færu á skipsfjöl og að járnin hefðu
verið tekin undan þeim meö lítilli
varúð, þá sé eg ekki beinlínis á-
stæðu til að fara í lengri riideilur
við manninn, enda býst eg við að
sauðþráinn sé svo mikill í honum
Qunnari mínum, að hann vilji æfin-
lega hafa síðasta orðið.
Samt skal eg geta þess að sagan
um hryssuna er ekki rétt sögð hjá
honum, því rekstrarmaður hans sagði
mér að þeir (hestakaupendumir)
hefðu ómögulega getað séð það að
hryssan væri fylfull, enda tók eg
þaö líka fram í fyrra svari mínu
að það mundi ekki hafa verið meö
ásetningi gert hjá G. S. að kaupa
hryssuna þannig á sig komna, held-
ur af fljótfærnis-eftirtökuleysi. Þessi
umrædda hryssa fór ekki fram að
Stóra-Hrauni, eins og greinarhöf.
heldur fram, heldur var hún rekin
méð stóðinu og nýfædda folaldinu
út aö Bakkarholtsparti í Ölfusi. —
Óþarfi að snúa þarna við sann-
leikanum, og þýðingarlítið hjá Gunn-
ari að reka hana út í Ölfus, ef hún
heföi átt að fara austur á bú hans
í Landeyjunum. Ekki et það mín
sök, þótt Gunnar hafi ekki betra
vit á skepnum en þetta, hann verð-
ur að bítast um það við sjálfan
sig.
Að vísu er það ekki nenia eðli-
Iegt að hann ruglist í því, livar
hross hans eru öll niður komin,
þar sem úrgangur hans er svo
margur og þar sem það er vitan-
legt ^ð hann kaupir alt sem býðst,
ef það stendur á fjórum fótum,
enda sannar hann þaö sjálfur með
umsögn sinni, þar sem hann verð-
ur að láta fara þriðjungi fleiri hross
niður á bryggju en hann hugsar til
að láta þó sigla, til þess að geta
verið viss að uppfylla þá tölu, sem
talað hefir verið um í byrjun.
Þriðja hvert tryppi rekið til baka
Þetta er maðurinn, sem ætlar að
bæta hrossaverzlun Iandsins. Ekki
vantar sjálfsálitið.
G. S. stendur í þeirri trú að
hann gæti aflað sér vitna um það,
að hann sé einhver sérstakur meist-
ari i meöferö hestanna sinna. Það
kann að vera að hann gæti fengið
einhverja til að votta slíkt, En
mótvitni mætti máske finna ef mað-
ur vildi sérstaklega fara að Ieggja
sig í það að ata G. S. út, en í
byrjun skrifaði eg þessar hógværu
athugasemdir mínar um Gullfoss
hestana, án titlits til þess hver átti
það, en um þaö ber öllum mönn-
um saman, sem á mál þetia hafa
minst, að það hefði setið á G. S.
allra manna sízt að mótmæla þeim
hógværu bendingum minum, þvi
margir væru rámir af útflytj. en
hann þó ekki hvað sízt.
Eg hefi hvergi sagt að G. S.
færi vísvitandi illa með skepnur, en
hitt hefi eg sagt og skal endurtaka
það, að útflutningshrossin hans eru
ekki eins vel útlítandi og æskilegt
væri, þegar þau fara á skipsfjöl,
Gullfosstryppin hans aö líkindura
ekki verri en sumt annað, sem hann
hefir látið sigla áður, þótt það vildi
svona til aö á því óþrifakýli væri
stungið um þær mundir, sem þau
fóru. Gunnar Sigurðsson er í báð-
um greinum sínum til mín sárlas-
inn af lærdómshroka og sjálfsáliti,
sem ‘ skín í gegn um aðra hverja
línu, vonandi fær hann bót á þess-
»
um kvillum áður en hann líkursér
af, en bágborinn er sá andlegi
þroski hjá mönnum er þeir hafa
það fyrir skotvopn á andstæöing
sínn aö bregöa honum um vits-
munaskort. Sáttfúsir menn verða
að fyrirgefa Gunnari þetta, þótt
hann hafi drukkið það í sig á sinni
löngu leið, frekara en annað, sem
honum var þarfara að læra.
Rvík, 14. ágúst 1916.
Jóh, Ögm, Oddsson.
Forsetaefni
Bandaríkjanna,
Forselaefni republikana í Banda-
ríkjunum, Hughes dómari, gaf ný-
lega út ávarp, þar sem haun lýsti
því yfir, að hann myndi fylgja fast
fram rétfi þjóöarinnar. Hann segir
að mörg djarfmannleg orð hafi ver-
ið skrifuö í mörgum »nótum«. En
það séu ekki oröin, heldur ein-
beittur vilji, sem tillit verði tekið
til. í stað tvíveðrungs samninga þurfi
að gera skýrar og skoriiiorðar kröf-
ur. Um æsingar Þjóðverjasinna þar
í landi segir hann, að það sé óhæfi-
legt að láta útlendinga nota landiö
til að gera þar spellvirki.
írska deilan.
Horfur eru nú sagðar betri á því
aftur, að samkomulag fáist um írsku
málin í enska þinginu. Lýsti Asquith
því nýlega yfir á þingi að hann
heföi góðar vonir um þaö. Fyrst
l
um sinn yrði þó að hafa enskan
her þar í landi, til þess aö verja
þjóðina fyrir ábyrgðarlausum æs-
ingamönnum. Nýr ráðherra er skip-
aður fyrir írland til bráðabirgða.
Hann er sambandsmaður, Duke aö
nafni, og Iætur sér-um það hugað
að samkomulag náist.
Redmond andmælti því, að sam-
bandsmaöur yröi geröur að ráð-
herra fyrir írland. En hann lýsti
því yfir að borgarastyrjöld yrði
aldrei hafin á írlandi og áleit að
samkomulag myndi fást.
Hegnt fyrir hirðuleysi
Allmikili kurr hefir verið í brezka
þinginu undanfarið út af hernað-
inum í Mesopotamiu. Hafa borizt
til Englands, til einstakra manna
bæði utan þings og innan miklar
kvartanir yfir því, að sú herför hafi
verið hafin í flaustri og illa undir-
búin. Hergögn öll af skornum
skamti og illa séð fyrir aðflutn-
ingum og nærri því glæpsamlegt
hirðuleysi í meðferð særðra her-
manna.
Mál þessi koma mest til kasfa
Indlandsstjórnarinnar; umsjón öll með
herferðinni i hennar höndum. Lengi
vel leit svo út sem enska stjórntn
ætlaði að breiða yfir ólagið þar
eystra, en svo fór þó að hún sá
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. ti) 11
Borgar8t.skrífat. i brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrlfst. Hverflsg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbankl opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.timi kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn tll við-
tals 10-12
Landsbókasain 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d. dagiangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugrlpasafnið opið F/,-21/, siðd,
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd, 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið oplð sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjuetræti 12:
Alm. læknlngar á þrlðjud. og föstud,
kl, 12-1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud,
kl. 2-3.
Tanniækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar i Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
andsféhirðlr kl. 10—2 og 5—6.
Saumur
allar venjulegar lengdir
frá V.-8’
er ódýrastur
á Laugavegi 73
Sími 251.
SLÆGJA
— alt aö 300 hesta —
fæst nú þegar. Semja má við
Samúel Ólafsson.
sér það ekki færi og var skipuð
rannsókn í því. —
En aiveg nýlega hefir annað
mjög leiöinlegt mál komiö fyrir
Indlandsstjórnina. — í júnímánuði
síöastl. veiktust 136 hermenn af
sólstungu í járnbratarlest á leiðinni
frá Karachi til Peshawar. — Járn-
brautin liggur um heitasta hluta
Indlands og ferð þessi farin áallra
heitasta tíma ársins, en mennirnir
allir nýkomnir frá Englandi og al-
gerlega óvanir slíkum hitum. Þeir
voru látnlr ferðast f þriðja flokks
vögnum og engar varúöarráðstaf-
anir gerðar.
Af þessum 136 mönnum sem
veiktust er frétt komin um að 19
hafi dáið.
Fyrir hirðuleysi i meðferð á
þessum hermönnum hefir þremur
háttstandandi liðsforingjum á Ind-
landi verið vikið úr embættum.