Vísir - 21.03.1918, Qupperneq 2
ViSiR
Til minnis.
Baðhúsið: Mvd. og ld. kl. 8—8
Bsrnalesstofan: Md., mvd., ÍOd. kL 4—8.
Borgarstjóraskrifsfc.: kl. 10—12 og 1—3.
Bæjarfógetaekrifstofan: kl. 10—12 og 1—6
Bæjargjaldkeraskrifit. kl 10—12 og 1—6
Húsaleigunefnd: þriðjud., fóstnd. kl 8 sd.
Islandsbanki kl. 10—4.
K. P. U. M. Alm. lamk. mnnud. 8 sd.
L. F. K. R. Útl. md„ mvd., fstd. 61. 6—8.
Landakotsspit. Heimsóknart. kí. 11—1.
Landsbankinn kl. 10—3.
Landsbókasafn Útl. 1—3.
Lúndsajóður, 10—2 og 4—5.
Landssíminn, v. d. 8—9, helgid. 10—8.
N&ttúrngripasafn snnnnd. l*/»—21/,.
Pósthúsið 10—6, helgid. 10—11.
Samábyrgðin 1—5.
Stjórnarráð8skrifstofnrnar 10—4.
Vífilsstaðahælið: Heimsóknir 12—1.
Þjóðmenjasafnið, snnnnd. 121/,—l1/,.
Löngum „seinheppilegÍS
Tækifærisverð
á erfðafestulandi.
Erfðafestuland að stærð rúmar 33 dagsláttur fæst til kaups
nú þegar.
Landið er girt með 5—8 þættri gaddavírsgirðingu. Alt að
kelmingi þess er al- eða hálfræktað og fylgir áburður á það í vor
með í kaupinu. Steinhlaða er tekur um 500 hesta fylgir einnig.
Lán á landinu eru sérlega hagstæð.
Landið liggur fyrir ofan sundlaugina beggja megin við láuga-
lækinn og er einkar vel fallið til ræktunar, mest valllendi, þó er
nokkuð mýri með ágætu mótaki.
Landið verður selt undir virðingarverði eiðsvarinna virðingar-
manna árið 1914 ef strax er samið við
Ounnar Sigurðsson (frá Selalæk)
yfirdómslögmann. Símar 12 og 151.
„Frónið vill láta líta svo út,
sem það sé ósamkvæmni hjá
Vísi, að telja það nú óþarft, að
kalla þing saman um miðjan
april, í stað þess að láta það
bíða venjulegs þingtíma, úr því
að það var þá ekki gert fyr.
Vísi er nú sjálfsagt ofætlun að
koma „flóninu11 í skilning um
þetta. En ef stjórninni hefði
verið það alvara frá upphafi. að
fylgja nú fánamálinu fast fram,
eins og látið er í veðri vaka i
blaðinu, þá skilst henni þó vænt-
anlega, að það hefði gefið af-
stöða hennar og landsmanna
allra til málsins talsvert ann-
an svip, ef þing hefði verið kvatt
saman þegar eftir heimkomu for-
sætisráðherrans og krafan um
fánann endurnýjuð tafarlaust.
Aftur á móti skiftir það ekki
máli, hvort þingið er kallað sam-
an tveim mánuðum fyr eða
seinna, þegar stjórn, þing og
þjóð hefir sofið yfir málinu í
þrjá mánuði.
Til þess að sýna mönnum, að
þetta mál sé ekki eina málið,
sem Vísir sé sjálfum sér sundur-
þykkur í, þá fræðir sama blað
lesendur sína um það, að þegar
það hafi frést í vetur, að stjórn-
in hefði veitt einhver dýrtíðar-
lán, þá hafi Vísir risið öndverð-
ur á móti því og sagt að stjórn-
in væri að setja landið á höf-
uðið. En sá galli er á þessari
frásögn blaðsins, að hún er al-
gerlega tilhæfulaus. Stjómin
hefir ekkert dýrtíðarlán veitt og
engin frétt af því verið sögð, og
hefir því Vísir ekkert tækifæri
fengið til þess að lofa eða lasta
þær lánveitingar.
Hitt er rétt, að Vísir vítti það,
er stjórnin, þvert ofan í fyrir-
mæli þingsins, ákvað að veita
engin dýrtíðarlán, hvernig sem
alt veltist og það einmitt þegar
harðindin voru mest um alt land
og útlitiö iskyggilegast. Þá þótti
Vísi líka ástæða til að kalla sam-
an aukaþing, vegna þess að ber-
sýnilegt var, að stjórnin ætlaði
að láta það afskiftalaust með öllu
hvernig landsmönnum reiddi af
í harðindunum. En svo er nú
„forsjóninni" fyrir að þakka, að
sú ástæða til að kalla saman þing
á allra óhentugasta tíma ársins,
er heldur ekki lengur fyrir hendi.
Tíðarfarið hefir mjög breytst til
batnaðar, og þó að stjórnin hafi
ekkert til þess gert, þá eru þó
nú allar likur til þess að mikið
rætist úr atvinnuleysinu. Þó að
stjómin hafi ekki einu sinni get-
að komið því í verk, að fá fisk-
verðið ákveðið af Bretum, og því
síður gert neitt annað til þess að
styrkja sjávarútveginn, þá eru nú
fiestir útgerðarmenn ráðnir í því
að gera út skip sín yfir vorver-
tíðina. Og þó að þing kæmi
saman í apríl, þá getur það eng-
in áhrif haft á það, hvort mörg
eða fá skip verða gerð út í vor.
Það væri þá orðið um seinan, og
þeir yrðu að vera atvinnulausir
eins fyrir því, sem atvinnulausir
hefðu orðið, ef útgerðin hefði al-
veg stöðvast.
Þá er enn ótalin ein ástæðan,
sem Vísir hefir talið að gerði
það nauðsynlegt, að kalla þing
saman sem fyrst, en það er vand-
ræðaástand það, sem alt stjóm-
arfar landsins er komið í í hönd-
um núverandi stjórnar, og þörfin
á því að hæfari menn taki við.
Sú ástæða er að visu enn fyrir
hendi. Og ef það er sú ástæða
sem knúið hefir stjórnina til að
kalla saman aukaþing á allra
óhentugasta tíma ársins, þá hefir
Vísir ekkert þar við að athuga.
V.ísir er elsta og besta
dagblaö iandsics.
Bannmálið
erlendis
t
I dönskum blöðum frá 4. þ.m.
er sagt frá þvi, að neðri deild
sænska þingsins hafi samþykt
frumvarp til laga um að banna
algerlega tilbúning og sölu á
„spiritus“ (þ. e. líkl. alla svo
kallaða „sterka drykki“ enekki
alt áfengi); 113 þingmenn greiddu
atkv. með frv. en 63 á móti.
í Danmörku hefir verið safn-
að undirskriftum undir áskoranir
til stjórnarinnar, um að láta
þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram
um bannmálið o. fl. í blöðum
frá síðari hluta janúarmánaðar
er sagt frá því, að úndirskrift-
unum sé lokið og að áskoran-
irnar hafi verið sendar stjórn-
inni í mörgum kössum. Alls
höfðu 720 þús. manns skrifað
undir áskoranirnar, en af þeim
voru um 100 þús. á aldrinum
frá 18—25 ára, en hinir eldri.
Hafa þannig 620 þús. kjósendur
(í sveitarstjórnarmálum) skrifað
undir þessar áskoranirj' -og er
það vafalaust töluvert meira en
helmingur allra kjósenda í land-
inu.
Kosningar í Danniörku
Þingkosningar eiga að fara
'fram í Danmörku í vor og er
kosningabaráttan byrjuð.
Síðan fyrir ófrið hefir flokkur
róttækra frjálslyndra manna halt
þar völdin, eins og kunnugt er
og muu það alment álitið, að
fáar hlutlausar þjóðir hafi átt
betur skipaða eða röggsamari
V 1S1R.
Afgraiðala blaðeias i Áðalstraíi
14, opin íiá kl. 8—8 1 hvarjum degi,
Skrifstofa & sama stað.
Sími 400. P. O. Box 867.
Ritstjörinu tíl Tiðtais frá kl. 2—ð.
Prentamiðjan & Laagaveg
slmi 133.
Anglýwngtua veitt mðttaka í Lanín-
stjðrnaaai aftir kl. 8 í, kvöldin.
Augiýaingaverð: 50 nur. hver ta
dálk* i stærri angl. 5 anra orðit í
smfeuglýsingaBi rneí óbrayttu letri.
nýkomnar
Egill Jacobsen
stjórn nú á ófriðartímunum en
Danir. Enda er það alment við-
urkent, að Zahle-ráðuneytið sé
skipað úrvalsmönnum þjóðarinn-
ar.
Sjálfur er stjórnarflokkurinn
á þingi Dana aðeins tæpur þriðji
hluti þingsins, en jafnaðarmenn
hafa stutt stjórnina dyggilega og
þeir flokkar tveir ganga til kosn-
inga saman. En á» móti þeim
verða allir aðrir flokkar þingsins,
alt frá „vinstri11 og lengst til
„hægri“. Forkófar „vinstri“-
flokksins, t. d. I. O. Christenssen,
þykjast vilja koma á samsteypu-
stjóru úr öllum flokkum. En
stjórnarflokkuriun telur litlar lík-
ur til þess, að það muni takast,
enda muni ásetningur hinna öllu
fremur vera að bola frjálslyndu
flokkunum algerlega frá völdum
og gera samsteypu úr íhalds-
samari flokkunum. Þó eru ýms-
ir „vinstri“-menn sem ekki mega
heyra það nefnt, að taka hönd-
um saman við „hægri“-menn.
I ræðu sem Zahle forsætisráð-
herra hélt nýlega í Eingsted-
kjördæmi, sem hann er þingmað-
ur fyrir, sagði bann að andsjæð-
ingar stjórnarinnar væru stefnu-
lausir. Þeir þættust ætla að
fylgja sömu stefnu og stjórnin
hefði fylgt og velja í ráðuneytið
suma sömn mennina, t. d. Staun-
ing, sem mestu hneykslinu olli
meðal þeirra í sumar með þátt-
töku sinni í Stokkkólmsfundin-
um. Þeir ætli sér þannig að
steypa saman í stjórn mönnum
með hinum gerólíkústu skoðun-
um, en af því mundi leiða festu-
leysi í stjóm landsins. Á þess-
um tímurn sé það mest um vert,
að stjórnin sé skipuð vel sam"
hentum mönnum, eem geti verið
fljótir að taka ákvarðanir og
.haldi fast við þær.
Kvenna
Karla-
Barna-
Regn-
hlífar