Vísir - 25.03.1918, Page 2
VxSiR
Vélamaður
vanur, óskast á stóran mótor-
bát nú þegar. Hátt kaup í boði.
Manchettsky rtu r
Tauflibbar
og ýmsar tegundir af karlmannahöttum
Sökn Þjóðverja.
Menn hafa ekki viljað trúa
þvi hér, að Hindenburg hafi sagt
að hann ætlaði að vera kominn
til Parisar um miðjan apríl. —
Margir héldu, þegar þau um-
mæli hans bárust í símskeyti
hingað, að þau væru skáldskap-
ur, til þess ætlaður að gera Hind-
enburg hlægilegan. Enginn vafi
er þó á því, að sá skáldskapur,
ef skáldskapur er, er til orðinn
i Þýskalandi, því að i dönsk
blöð er hann þaðan kominn.
Hvað sem því líður, þá er
enginn vafi á því, að sú hríð er
nú byrjuð, sem Þjóðverjar ætlast
til að færi þeim sigurinn.. Þeir
vita, að nú verða þeir að sigra,
eða þeir gera það aldrei, því að
nú standa bandamenn helst höll-
um fæti fyrir þeim. Enn er þó
litið séð af árangri af sókn Þjóð-
verja á hinum frægu Somme-
vígstöðvum til þess að nokkuð
verði um það sagt, hvernig henni
lýkur.
Á þeim stöðvum, þar sem aðal-
sókn Þjóðverja virðist nú vera
háð, hefir leikurinn boxist fram
og aftur um langan tíma. Þar
tóku bandamenn t. d. allmikið
land af Þjóðverjum i fyrra. Þá
héldu Þjóðverjar þar undan, að
þvi er þeir sjálfir sögðu, af ásettu
ráði. Skotgrafir þeirra voru all-
ar sundurtættar af langvarandi
stórskotahríð, og eftir ótölulegar
útrásir voru óvinirnir orðnir þar
gagnkunnugir hverjum krók og
kima. Þjóðverjar hörfuðu því
þegar úr þessum gömlu stöðvum
sínum til nýrra er þeir áttu til-
búnar að baki sér. — Ekkert er
líklegra, en að eitthvað líkt hafi
átt sér stað nú og vanséð hvor
meira hefir unnið eða tapað i
viðureigninni enn. En eitt er
víst, að mannfallið er alt af
meira þeirra megin, sem áhlaup-
kom með s.s. BOBG.
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
Vanur bryti
getur fengið atvinnu á gufuskipinu BORG
nú þegar.
Nánari upplýsingar hjá
f.f. limskipafél. islands.
Þeir sem óska eftir skógarviði í sumar, eru beðnir að senda
mér skriflega pöntun. Verðið er kr. 2.65 á bagga = 30 kg.
Túngötu 20. Skógræktarstjóriim.
Prjónagarn
koiTi með e.s. BORG
Vissara að koma sem fyrst,
þótt töluveröar birgdir hafi komiö.
Asg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
m gera.
Þessi ægilegi hildarleikur hefir
nú staðið svo lengi, og hvorug-
ur unnið neitt á svo að gagni
sé, að menn eru vantrúaðir á
það, að nú muni skera úr frem-
ur en í fyrra eða hitteðfyrra, er
Þjóðverjar hófu sóknina hjá
Verdun. Varlegra er þó að spá
engu um úrslitin. En það er
hvorttveggja, að nokkuð er enn
til miðs apríls og á hinn bóginn
vafalaust enn allmiklar torfærur
á veginum tilParísar, þráttfyrir
sigur Þjóðverja hjá St. Quentin.
Tekjuaukaskatturinn
í Danmörku.
í Danmörku er lagður hár
aukaskattur á þá menn, sem
hafa auknar tekjur af ófriðar-
ástandinu. Skattur þessi nemur
fyrir árið 1916 (greiddur á fjár-
lagaárininu 1917—’18) kr. 161.-
600.000,00 og er það þriðjungi
meira en allar árstekjur ríkisins
árin fyrir ófriðinn. Af þessum
skatti greiða Kaupmannahafnar-
búar fullar 123 miljónir.
Eins og áður hefir verið sagt
frá hér í blaðinu, þá verja Dan-
ir afarmiklu fje til dýrtíðarráð-
stafana, og t. d. fær nú hver at-
vinnulaus maður alt að 19 kr.
á viku aí opinberu fé í pening-
um (auk verðlækkunar á nauð-
synjavörum og annarar dýrtíðar-
hjálpar).
VÍSIR.
Aígrsiéela blaðeí&s I Aðalítia•.
14, ofin frá k!. 8—8 & hverjtun degi.
Skrifstofa & eama stftl.
Simi 400. P. O. Box 387.
Ritstjöriua til riðtali írá kl. 8—3.
Prentsmiöjan á Langava* 4
simi 133.
AoglýiiagiMi viitt möttaka i Landi
Btjörmuiai aftir kl. 8 á kvðidin.
AnglýBingaverö: 50 anr. hver o»
d&Iki i itærri angl. 5 anra orðii i
Bmáenglýsingiua meö öbreyttn letri.
Regn-
hllfar
nýkomnar
Egill Jacobsen
Kvenna-
Karla-
Barna-
Gardínutau
hvítt og mislitt.
Dyratjaldaefni.
Johs.HansensEnke
Gónloka-vísnr.
Þú hefir, verið gamla góa,
gestur fleirum kær en mér,
þó muntu’ ekki þeim sem róa
þóknast hafa’ nm fiskiver.
Samt hefir ríki svella og snjóa
sundrast fyrir kraft frá þér,
þú hefir gert um fjörð og ílóa
færa leið, sem þarfast er.
Þegar kveður þessi vetur,
það mun enginn væta brá.
Rann hefir markað minnis letur,
máske dýpst þeim stöðvum á,
þar 'sem höfðu helst aðsetur
heljar klaka tröllin grá,
engin mannleg mund sem getur
rainsta skrefi þokað frá.
Nú skal ekki neinu kviða,
nú fer blessað vor í hönd.
Veldi gadds og grimdar hriða
gugnar fyrir sólar-rönd.
Nú á lika fleyið friða
frjálsa leið að auðri strönd
þar sem vonglöð börnin bíða
brauðs úr mildri líkuarhönd.
Senn fer hlíð og grund að gróa
grösum skrýðast jörðin ber
blómgvast lauf á limum skóga,
ljóða’ á greinum fuglaher,
hýrt að kvaka heiðarlóa,
hópast æður kringum sker,
lömbin hlaupa létt ummóa,
lifna’ og gleðjast skepna hvér.
Jón Þórðarson