Vísir - 30.03.1918, Blaðsíða 3

Vísir - 30.03.1918, Blaðsíða 3
ViSIR Nýkomið með ,Borg‘ Anker og keöjur til opinna skipa og mótorbáta (allar stærðir). Segldúkur (hör) Eclipse nr. 0—4, miklar birgðir. Manilla af öllum gildleika, miklar birgðir. Coeostö (gras) 3^/2, 4, 5 og 6 þuml. Tjörutó (ligtó). Skipmannsgarn. Verk. ^ Seglgarn (saum- og lig-garn). Mótortvistur. Mötorlakk. Botnfarfi á tróskip. XogS á mótorskip og stærri skip. Sigurnaglar á fiskilínnr. Yarmouth viðurkendu sjóföt, buxur, jakkar, ermar, síð- og stuttkápur. Enn fremur nýkomnar miklar birgðir af Bómullarsegldúk. Crlóbus-dælur á stærri og minni skip. Þar með er nú komið það, sem tilfinnanlegast hefir vantað til útgerðar hér. Með þvi að útlit er fyrir, að ekki verði hægt að ná í meira af þessum vörum meðan stríðið stendur yfir, væri hyggilegast fyrir menn að birgja sig upp í tima — eins og nokkur útgerðarfélög hafa þegar gert meðan vörurnar voru teknar upp. Skipaútgerðar- Veiðarfæra og Málningarvöruverslnn mín er nú, með ofantöldum vörum i viðbót við fyrirliggjandi birgðir, ©ins vel birg og framast er unt á þessum tímum. Alt fyrsta flokks vörur. Hentugar til notkunar hér. Verðið sanngjarnt. Pantanir utan ai landi ern afgreiddar nm hæl. *Iinar: O Fllino'con 605 og 697 iUlllllg 5vli( Elhngsen. Hafnarstræti 15. Fró, 1. april verður lágmarkskaup múrara OO aurar á KXuKltustunci Múraraíélag Reyfejavikur. Stúlka, sem skrifar og reíknar vel, vön skrifstofustörfum (eða hefir versl- unarskólapróf) getur fengið atvinnu við gjaldkera- og skrifstofu- störf hér í bæ. Eiginhandar nmsókn, ásamt meðmælum og launa- kröfu, merkt „ábyggileg", sendist afgreiðslu þessa blaðs fyrir 3. apríl. .f. n. a. u. | Bæjarfréttir. ||[ Afmæli í dag. Kristín Arnoddsdóttir, húsfrA Regina Helgadóttir, húsfrú. Þorsteinn GuSlaugsson, sjóm. Brynjólfur Jónsson, úrsmiður. Eduard Milner, slátrari. Jónína Jónsdóttir, húsfrú. Guðjón Jónsson, járnsmiður. Afmæli á morgun. Magnús S. Jónsson, pi-entari. Sigurbjörg Ásbjörnsdóttir, bfr. Ásmundur Jónsson, sjómaður. Helgi Pjeturs, dr. phil. Sigriður Hansdóttir, húsfrú. Steingr. Matthiassön, læknir. „Lagarfoss“ liggur við Hjalteyri og er verið að flytja í hann kjöt og gærur á sleðum eftir isnum á firðinum, frá Akureyri. Eru 200 sleðar í þeim flutningum. Það er nú afráðið, og til þess fengið samþykki Banda- ríkjanna, að Lagarfoss fari til Nor- egs með kjötið. „Gullfoss“ liggur enn i New York, og er talið víst, að sprengingin, sem þar varð á dögunum, hafi ekki gert honum neitt, því að engin fregn hefir enn komið hingað um það. „Borg“ er ófarin enn, en á^að fara héðan í kvöld; tekur póst kl. 6. 5 krónur færði G. U. Vísi, handa Sam- verjanum, á miðvikudaginn. „Rán“ fer ekki til Englands og verður aflinn saltaður. — Er það allmikið tjón fyrir útgerðina, því að fisk- urinn verður ekki eins góð vara og sá fiskur, sem þegar er flattur og saltaður. „Sigurður I.“, vélskip, sem nokkrir Borgfirð- ingar eiga, fór póstferð fyrir „Ing- ólf“ til Borgarness í dag; til að sækja norðan- og vestanpóst. Með- al farþega voru: sira Gísli Einars- son frá Stafholti, sem kom hingað með síðustu ferö Ingólfs, og Arl Arnalds sýslumaður. Eldsneytisskrifstofan er nú flutt í hegningarhúsið. 395 sinni og kvað rödd hans við, eins og þruma í hinni þögulu smakomu. „Guð hefir látið tuttúgu ár líða áður hul- unni væri svift frá,“ mælti hann, „og hann hefir ekki viljað, að rödd hefnandans heyrðist af fáum, heldur hefir hann hagað því svo til, . að hér eru saman koninir hinir helstu og göf- ugustu menn ríkisins — og nú er stundin kom- in! Sjálfa viganóttina stóðum við Nevers hvor við annars hlið skömmu áður en viðureignin hófst, og sáum þegar blika á sverðin uppi hjá sýkisbrúnni. Baðst hann þá fyrir, opnaði -sér æö, og ritaði á skjalið með blóði sínu þrjár línur, er skýrðu frá, hversu glæpurinn var fyrirbúinn og hver morðinginn væri.“ Gonzagua nísti tönnum og greip hendinni ■um skjalaböggulinn. Gekk hann síðan að öðru blysinu, en leit þó ekki til þeirrar hliðar, þar sem Lagardere stóð, og skygði með böglinum þrisvar sinnum fyrir ljósið. Var það merkið, Sem honum og fylgismönnum hans hafði kom- fð sanian um. Fundannenn tóku nú mjög að ókyrrast. „Þarna stendur nafnið,“ hélt Lagardere á- fram, og hóf upp fjötraðar hendurnar og benti á skjölin. „Brjótið innsíglin og mun þá nafn morðingjans koma fyrir dagsins ljós. Brjótið innsiglin — og mun sá tala, sem moldu er hulinn." Gonzagua gaut augunum flóttalega til fund- Þaid Feval: Kronpitihakitr. 396 armanna og spratt honum sviti á enni. Hann sneri baki að blysinu og færði titrandi hend- ina að því. Eldurinn Jæsti sig í skjalaböggul- inn og sá Lagardere þa'ð, en í stað þess að hindra það sagði hann: „Lesið þér! Lesið þér hátt og snjalt og látið oss heyra hvort morðinginn ber mitt nafn eða yðar.“ Nú varð ókyrð mikil x salnum og hi-ópuðu menn: „Hann er að brenna skjölin, sem geyma nafn morðingjans!“ Lagardere benti á skjölin, sem lágu nú kol- brunnin á gólfinu. „Sá dauði hefir nú talað,“ sagði hann. „Hvað stóð aftan á vottorðinu?" spurði ríkisstjórinn æstur. „Ekki neitt,“ svai-ði Lagardere, en fundar- menn stungu saman nefjum og undruðust þetta allmjög. „Ekki neitt, heri-a Gonzagua fui-sti!“ sagði Lagardere enfremur. „Eg hefi notað yðar eig- in vondu samvisku sem vopn á yður. Þér hafið nú brent skjalið, sem eg staðhæfði að mundi koma upp urn yður. Nafn yðar stóð ekki á því, en þér hafið nú sjálfur dregið nafn yðar fram í dagsbirtuna :— sá dauði hefir talað!“ „Hinn selci hefir játað á sig glæpinn," sagði 397 dómstjóri ósjálfrátt, „og nú er hægt að ónýta dóminn.“ Alt að þessu hafði rikisstjórinn stilt sig, en nú var hann orðinn hamslaus af reiði og kallaði upp: „Morðingi! Þú ert þá morðinginn! TakiS Jxennan mann fastan!“ Gonzagua hóf sig á loft, hentist fram hjá ríkisstjóranum eins og kólfi væri skotið og lagði unx leið bylmingshögg fyrir brjóstið á Lagardei-e, svo að hann hrökk undan og lenti í fanginu á furstafrúnni. „Ekki skulu þér standa nein höpp af þess- um sigri þínum,“ hvæsti hann og nísti tönn- um, eins og óður niaður. Að svo nxæltu sneríst hann á hæli og ruddist fram milli varðmann- anna, sem ætlnðu að hefta för hans. Stóðu þá á honum mörg sverð í eiuu, svo að hann hopaöi undan að dyi-atjaldinu, en þá opnuð- ust leynidyrnar skyndilega og hvarf Gonza- gua út um þær, eins og jörðin hefði svelgt hann. Þvi næst heyrðu menn, að slagbrandi var skotið fyrir dyi-nar að utan verðu. Lagardere varð fyrstur til að ráðast á dyrn- ar, enda var honura kunnugt um þær, því að hann hafði einmitt notað þær sjálfur dag- inn áður, meðan á ættarfundinum stóð. La- gardere hafði nú lausar hendur, því að bönd- in höfðu brostið af þeirn um leið og hann fjekk höggiö, en annars var hann ómeiddur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.