Vísir - 16.07.1918, Síða 3
Kaupirðu góðan lilut
)á mundtt Imu* þú fékst hann.
Nýtt inn í landið!
' Hinar heimsfrægu „DELCO“-LJÓSV.ELA.R, sem brenna sbein-
olíu og búnar eru tilaf verksm. The Domestic Engineering Company
eru nú komnar hingað til landsins og fást aðeins hjá
Signrjóni Péturssyni — Hafnarstræti 18.
Allar stærðir ai mótornm
til ýmiskonar framleiðslu — bæði í hús og skip — o. m. fl. —
Skrifið eftir upplýsingum til umboðsmanns „DELCO“-ljósanna á
íslandi.
Sigurjón Pétursson — Hafnarstræti 18.
Reykjavík.
M.b. Skaftfellingur
fer til Vestmanneyja og 'ViliTir’ á morgun síðdegis.
Flutningi veitt móttaka til kl. 12 á afgreiðslunni hjá
Nic. Bjarnason.
afur Briem, Pétur Ottesen, Sig.
Stefánsson, Sigurjón Friðjónsson,
f*orleifur Jónsson og Þórarinn
Jónsson.
Ráðherrarnir og Magnús Krist-
jánsson greiddu ekki atkvæði.
Jörundur Brynjólfsson og Þorst.
Jónsson voru fjarverandi.
Þingsályktunartill. um bráða-
birgðalaunaviðbót símamanna
var samþykt og afgreiddtil stjórn-
arinnar.
í efri deild var fundur á venju-
legum tíma. Þar var sildar-
kaupafrumvarpið samþyktóbreytt
eins og það kom frá Nd. Frum-
varp um verðlagsnefndir var felt
frá þriðju umræðu með 7 atkv.
gegn 3.
í neðri deild voru launamálin
til annarar umræðu. Frumvarp-
ið um launahækkun lækna '1800
kr.) var felt frá annari umræðu.
En dýrtiðaruppbótarfrumvarpinu
(6O°/0 af fyrstu 1000 kr. af laun-
M' embættis- og sýslunarmanna
30 af öðru og 10 af þriðja þús-
undi) var vísað til þriðju umræðu
með 11 : 9 atkv. og framkomnum
breytingartillögum frestað. Þriðja
umræða var ákveðin á fundi í
dag kl. 10.
Frá Hafnarfirði
vetnrína 1917—18.
Snerama gekk veturinn í garð
með kulda og storma. Margur
«.lþýðumaðurinn kom lítt hlað-
ínn frá sumaratvinnunni. Spar-
semi og hagsýni þurfti að hafa
í h^ívetna til þess að fólki gæti
liðið vel.
tlthlutað var kolaseðlum handa
bæjarbúum, því að hingað hafði
verið flutt talsvert af landssjóðs-
kolum. Skiftingin á kolunum fór
náttúrlega fram eins og vera
átti, þ. e. þannig, að ríkustu
mennirnir fengu mest en þeir
fátækustu minst. T. d. fókk sá
maður, sem talinn er auðugastur
í Hafnarfirði, hátt á níunda
hundrað krónur í kolaafslætti,
en meðaltal daglaunamanna var
8B kr. Af því má sjá hvílík við-
brigði það eru efnamönnunum,
e£ þingið ekki samþykkir dýr-
tíðarhjálp í kolum á þessu þingi
(þessi afsláttur er n\iðaður við,
að landið hafi borgað kolin með
með 300 kr. smál.).
Margir kviðu eldiviðarleysi og
kulda. Atvinna var lítil, en þó
veitti Thor Jensen kaupm. at-
vinnu, sem nam um 40 þús. kr.
og mundi hafa veitt hana meiri,
ef hin háttvirta bæjarstjórn eða
fasteignanefnd hefði ekki að ein-
bverju leyti sett honum stólinn
fyrir dyrnar. Frost voru hér af-
skaplega mikil, svo að flest fraus
í húsum, sem frosið gat, t. d-
útsæðiskartöflur o. m. fl,, sem
skaða olli. Við sjálft lá, að fólk
skemdist af kulda. Nokkrir góðir
borgarar bæjarins höfðu komið
sór saman um það í haust, að
hafa hér dansleikjafólag („Klub“)
til þess að viðhalda líkamshita
fólks. Hve mikið hefir sparast
bænum af eldsneyti á þennan
hátt, er enn órannsakað, en lík-
legast er, að það só allmikið.
Síðan frostin minkuðu er sagt
að hafi losnað um allmörg hjóna-
bönd hér í kaupstaðnum, og má
víst kenna „gaddinum“ um það,
því hann kvað eprengja margt í
sundur, bæði andlegt og líkam-
legt, jafnvel þó að grnndvöllur
hjónabandanna sé bygður á
djúpri þekking, fórnfýsi og sam-
úð.
Til vandræða horfði um tíma
með vatnsveitu bæjarins, vatns-
pípur sprungu mjög víða og
vatnið fraus, svo að við sjálft
lá að fólk yrði að fara óþvegið
til dansleika, ogvarlafekst vatns-
dropi til að kæla tungu þeirra,
er þyrstir voru.
Frost voru svo mikil, að „ger“
fraus í brauðgerðarhúsum, og
„hefaðist“ því illa hjá bökurun-
um.
í janúarmánuði var kosið í
bæjarstjórn, og voru kosningar
sóttar af miklu kappi. Verka-
mönnum tókst að koma að 2
mönnum af sínum flokki; auk
þeirra voru kosnir kaupmaður
og læknir. — Svo mikið kapps-
mál var gömlum konum að geta
kosið í þetta sinn, að sagt er,
að þær hafi verið leiddar af
mestu afl- og fimieika-mönnum
bæjarins til þess að komast að
kjörborði.
Óhætt mun að fullyrða, að
kosningin hafi reynst fátækum
(í öllum skilningi) þau bestu
bjargráð, sem fáanleg voru í at-
vinnuleysinu og kuldanum, því
það var sem rúgmjöl og rúgkök-
ur væðu þar uppi, sem menn
vissu eigi til að nokkur björg
væri fyrir kosningarnar. Enn-
fremur leit út sem flestar skuld-
ir væru framlengdar rentulaust
til óákveðins tíma og grundvöll-
ur hinnar kristilegu starfrækslu
endurbættur að einhverju leyti.
En í hverju vita menn eigi, því
a8 ekkert fekst eementið.
Kvenfólkið var kallað til fisk-
vinnu, (og þótti það annálsvert
í janúarfrostunum) og ýms at-
vinnuframboð gengu um bæinn.
Meðöl, recept og læknishjálp voru
ei dýrari en áður, að ógleymdri
mannblendni og „handleiðslu"
mentamálafrömuðarins. Nú, en
enginn leit við aumingja smá-
fuglunum, sem féllu hér í vetr-
arhörkunum.
Annars mætti segja um Hafn-
firðinga, að þótt stríðið stæði um
ómunatíð og allar nauðsynjar
hækkuðu í verði sem að undan-
förnu, og þótt verkmannakaup
ekki hækkaði upp í það sem það
er annarstaðar, sem það má als
ekki, ef að eins þing og stjórn
hlutuðust til um að hér færu
fram til dæmis alþingismanns-
kosning og bæjarstjórnarkoaning
hörðnstu vetrarmánuðina, þá yrði
hér ærin sauðsnöp, bara að
frostin stígi ekki of hátt. Þvi
segi eg það, að aukinn kosninga
VfBlK.
Afgrsiisla biíðsi** i Aðai&tm!
14, opm M k). 8—8 á imrjftm
SkriMofsi & sama stal.
Sími 400, P. O. Bos 387.
Eitetjórinis til viitalí frá kl. 2—8.
Prentamiðj&u & Langaveg é.
sími 133.
AuglýfiiKgnB vsitt æötttóa f Ltaáá
stjömuEsii Ni'tir kl. 8 á kvöldin.
Anglýsingaverð: 50 anr. hvsa c®
d&lka 1 fitsðrri angl, 5 anra orö. t
BBtáfcuglýsinguai saeí öltrsyttu letri.
Hentug
Barnaleikfðng
eru
Hjólbörur
er seljast nú fyrir
3.65 og 3.65.
iEgillJacobsenl
réttur og fjölgun embætta, sem
fjöldinn má kjósa til, eru þau.
bestu þjóðarbjargráð.
Landar á vígvellinum.
Magnús Magnússon frá Bol-
ungarvík á íslandi, sem til Am-
erfku fluttist haustið 1913 og er
nú í Canadahernum, hefir ný-
lega verið sæmdur D.C.M. med-
alíu fyrir hugprýði og hreysti-
lega framgöngu. Fylgja medaliu
þessari £100 verðlaun og er heið-
ursmerki þetta næst Victorlu-
krossinum. Magnús barðist lengi
á orustuvöllum Frakklands uns
hann særðist 3. des. 1917. Var
hann þá fluttur til Englands og
hefir dvalið þar síðan. En nú
kv&ð hann alheill heilsu og tek-
inn til æfinga á ný. Hann er
mesta hraustmenni og svo list-
fengur á allar íþróttir, að vinir
hans margir líkja honum einna
mest við Gunnar á Hlíðarenda
og Kára Sölmundarson, segir
Ileimskringla.
Að hausti.
Það er sagt, að Bandaríkja**
menn séu fulltrúa um að ófriðn-
num verði lokið að hausti (1919).
segja þeir pá verði komnar
2 miljÓDÍr Bandaríkjamanna til
vígvallarins í Frakklandi og úr
því muni Þjóðverjar ekki lengi
fá staðist fyrir bandamönnum.