Vísir


Vísir - 15.06.1919, Qupperneq 5

Vísir - 15.06.1919, Qupperneq 5
VISIR [15. júní 1919.' T Tilkynning. Hór með tilkynnist heiðruðum almenning, að ég í sambandi við innrömmunarvinnustofu mina, lief fastan mann til þess að setja rúður í glugga og skaffa einnig alt, sem til þess þarf. Hringið upp í síma 396 VirðingarfyUst. Skandinavia - Baltica -- National Hlotaíé samtals 43 miljóuir króna. Islands-deildin Trolle & Rothe h. f., Reykjavík Hjálmar Þorsteinsson. Fnrðnlegt atvik. Barn fellur til jaröar ofan af þriöja lofti og sakar ekkert. Þetta bar nýl. við hér i bænum. Það var lítil stúlka, sem heima á í Stýrimannaskólanum. Hún féll út úr glugga á kvistinum á norður- hlið hússins og alla leið niður á jörð. Menn voru þar við, úti, og sáu til hennar. Þeir héldu að þa"o væri stór „dúkka“, sem litla stúlk- an hafði nýlega eignast. En það var hún sjálf. Hún kom niður á hælana, en svo mjúkt, að hana sakaði ekkert annað en að hún beit sig svolítið í tunguna. Þeir, sem þetta sáu, héldu, auð- vitað, að stúlkan hlyti að hafa slasast, og það var sent eftir lækni þegar í stað. Læknirinn kom og skoðaði hana „í krók og kring“ og fann engin meiðsli á henni önnur en á tungunni; ekki einu sinni mar- blett nokkurstaðar á líkamanum. Og engin meiðsli hafa komið i ljós siðan, né nein önnur ill eftirköst. BLartöplur komnar í verzlun Þorgrims Guð- mundssonar Bergstaðastræti 33. Gleymt. Enska blaðið „Star“ segir, að hinir „stóru fjórir“ á friðarfundin- um hafi gleymt þýska smárikinu Lichtenstein, og ísland geti því vottað þvi samhygð sina, þvi að það hafi líka gleymst á Vínarfund- inum forðum. — Það var ákveðið á þeim fundi, að Danii- skyldu láta Noreg af hendi, en íslands var ekki getið, og segir blaðið, að fullfru- arnir á þeim friðarfundi hafi játað það síðar, en um seinan, að þeir hefðu aldrei heyrt þess getið, að nokkurt ísland væri til. — Blaðið bætir því við, að þess vegna sé ís- land, og hafi verið, danskt til þessa dags. —- Verður það helzt ráðið af þessum ummælum, að enn hafi „þeir stðru“ gleymt íslandi. En nógu minnugir hafa Bretar virst vera um tilveru okkar, undanfarin ár; minnið hefir þa sijófgast, þeg- ar á friðarráðstefnuna kom. Allskonar sjó- og striðsvótryggingar á skipnm og vör* um gegn lægstu iðgjöldum. Ofannefnd félög hafa afhent íslan d sbanka 1 fteykja- vik til geymslu: hálfa miljón króna, sem tryggingarfé fyrir skaðabótagreiðslum. Fljót og góð skaða- bótagreiðsla. Öll tjón verða gjörð upp hér á staðnum og félög þessi hafa varnarþing hér. Bankameðmæli: íslandsbanki. Uppboðsauglýsing.1 Samkvæmt ákvörðun skiftaiundar í dánarbúi Árna Árnasonar frá Melbæ verður fasteign dánarbúsins, húseignin „Melbær" í Kapla- skjóli hér í hænum, ásamt erfðafestulandi, boðið upp á opinberu uppboði, sem haldið verður á eigninni sjálfri mánudaginn 30. yfir- standandi júnímánaðar kl. 11 f. h. og selt hæstbjóðanda, ef viðun- arlegt boð fæst. Söluskilmálar og skjöl er söluna snerta, verða til sýnis hér á skrifstofunni 3 dögum fyrir uppboðið. Bæjarfógeti i Reykjavík 14. júní 1919. Jóh. Jöhannesson. 326 tóku hann og báru á öxlum sér í sigur- för, hrópandi og húrrandi, alla leið til fundarhússins, þar sem hann hafði hald- ið þingmálafundi sína. Ungfrú Edith og Chesterleigh lávarður fylgdu á eftir i vagni, en það var ekki fyr en þau hittust öll hjá frú Wynthow, að Edith gat óskað Clive til hamingju og hvíslað um leið að honnm ástarorðum. „Eg er svo glöð, elsku vinur minn,“ sagði hún. „En eg vissi altaf, að þú mund- ir vinna. pér mishepnast aldrei neitt.“ Með sárri sjálfsákvörðun og hryggur lagði hann höndina á höfuð hennar, en sem betur fór gat hún ekki séð í andlit honum. „Eg á heppni mína mjög mikið þér að þakka, Edith,“ sagði hann. XXVI. KAPITULI. Uppgötvunin. Af ýmsum ástæðum áleit Clive það nauðsyn legt, að fara til Lundúna strax daginn eftir kosningarnar. Meðal annars hafði hann lofað einum kunningja sinum, sem enn var að berjast fyrir þingmensku i einu Lunúna kjördæminu, að tala fyrir 327 máli hans. Cliesterleigh lávarður og Editli ætliiðu að koma einum eða tveimur dög- um síðar. Á fundinum, þar sem vinur hans var að lieyja úrslitabaráttu sina, voru miþlar æs- ingar, en Clive sótti málstað vinar síns fast, og talaði lengi og sköruglega. Að fundinum loknum bauð þessi vinur hans - honum til kveldyerðar, en Glive baðst undan því og hélt heimleiðis, þreyttur og dapur hugsaði hann um samband sitt við ungfrú Edith. í raun og veru var það samband nú úti, hefði það nokkurn tíma verið, og hann sá að eins eina leið út úr vandræðunum: hann varð að segja ungfrú Edith allan sannleikann. Fundurinn hafði verið haldinn í einu bakstrætinu í Chelsea og Clive tók eftir því, að hann var á leiðini heim í Bensons- sund. það var eðlilegt, að hann drægist að þeim stað, þar sem hann hafði lifað sælustu stundir lífs síns. Og hann gekk í áttina að húsinu, sem Mína hafði átt lieima í. þá héýrði liann fótatak að baki sér og leit við, því reynslan hafði kent honum að vera vörurii um sig i afkymum Lun- dúnaborgar. Hann sá, að þetta var Quil- ton. 328 i „Hvað, ert það þú Quilton?“ Quilton kinkaði kolli. „Hamingjuóskir ---------“, byrjaði hann, en Clive greip fx*am i. „Hvað ert þú að gera hér?“ spux-ði hann; svo mundi hann alt í einu eftir konunni, seixx Quilton hafði tekið að sér að sjá um. Quiltoxx kinkaði aftur kolli; svo sagði hann, eins og hann hefði lesið í huga Clives: „Já, henni líður mjög illa og hefir sent eftir mér.“ „Eg ætla að fara með þér.“ Quilton staðnæmdist og horfði fram fyrir sig. „Eg held að best sé, að þú farir ekki með mér,“ sagði hann. „því ekki. Ekki skal eg gera henni mein. pó slcömm sé frá að segja, var eg nærri búinn að gleyma henni. Já, eg ætla að fara með þér.“ Andlitið á Qxxilton varð eins og grima. — „Jæja, eg er orðinn þreyttur á að elta ólar við forlögin, því að það er heimska og þýðingai’laust.“ „Eg veit ekki, við hvað þú átt,“ sagði Clive. „Ef til vill ekki, en bi’áðum. Komdu.“ peir gengu inn í næsta hús við hiísið,

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.