Vísir - 28.06.1923, Side 2
VtSIK
m 1ÖLSEINI
Höfam fyrirllggjandl:
Hrísgrjón,
Hrismjöl.
Kartöflumjöl,
Gerhvaiti,
Hvoiti,
Hafiamjöl,
Kaffi,
Export,
Sykur
Khöfn 27. júní.
Bretar auka flugherinn.
SímaS er frá London, að Bretar
suki nú 34 deildum við flugherinn
og eiga þá 1000 flugvélar.
Kommúnistar og breskir
verkamenn.
Á ársþingi breskra verkamanna,
kom fram tillaga um aS taka
kommúnista í samband verkalýSs-
félaganna, en hún var feld meo
L’.800.000 gegn 366.000 atkvæðum.
Þýskaland og Rússland.
Símaö er frá Berlín, a’ð Radek
hvetji til þess í blaöinu Rothe
•Fahne, aö Þýskaland geri banda-
1ag viö Rússland gegn banda-
mön’num.
Gengi marksins.
Talið er, að tilraun sú, sem gerö
var til a‘S halda uppi gengi marks-
ins, hafi mistekist. Dollar er nú
skráður 153.000 mörk og dönsk
króna 29.000 mörk.
Bannið í Bandaríkjunum.
Símaö er frá Washington, aö
skipstjórar þeir, sem komiö hafi
meö áfengi til hafna í Bandaríkj-
unum, hafi veriö settir í varöhald.
Brmxi.
Eldur kviknaöi um kl. 9 í morg-
un á miöhæð hússins nr. xi við
Cirundarstíg. Það er þrílyft stein-
hús á háum kjallara og nokkur
herbergi á fjórðu hæð.
Sjónarvottur sagði Vísi svo frá,
að hann hefði séð eldinn gegnum
glugga og hlaupið til að brjóta
brunaboða, en í sörnu andrá heyrði
hann lxrest og sprakk þá einn
gluggi á miðhæðinni og eldbloss-
ann lagði þar út. Slökkviliðið lcorn
mjög fljótt, en eldurinn komst á'
svipstundu upp á þriðju hæð og
þaðan upp undir rjáfur, 0g einu
sinni læsti hann sig niður á neðstu
hæð, því að gólf öll og loft éru
ur tré. Fólk bjargaðist með naum-
indurn. Ein stúlka stökk út um
glugga, komin að köfnun í reyk,
og var gripin í segli, og sakaði
hana ekki. Fleiri voru hætt
komnir.
Húsið brann mjög innan, en ekki
verður að svo stöddu sagt urn
skaðann, en ugglaust er hann mjög
mikill.
Eldurinn var slöktur fyrir há-
degi. Innanstokksmunum varð
lýargaö úr kjallaranum (versl.
Skálholt), og af neðstu hæð (íbúð
Magnúsar Sigurðssonar, banka-
stjóra), en litlu bjargað af hinum
hæðunum.
Miss Evelyn Heepe
var meðal farþega á Gullfossi
í morgun. Hún ætlar að lesa upp
í Bárubúð þrjú lcveld, mánud. 2.
júfí, miðvikudag 4. og fimtudag 5.
júlí. Aðgöngumiðar fást í bóka-
búðum og kosta kr. 2.50. Einnig
geta menn fengið sérprentanir af
kvæðum þeim og lesköflum, sem
hún fer með, og kosta þeir 50 aura.
— Míss Heepe hefir ferðast víða
um Evrópu, og lesið upp í helstu
borgum Bretlands og á megin-
landinu, alt frá Pétursborg til Am-
sterdam. Hefir Vísir séð ummæli
fjölda blaða, breskra, þýskra, hol-
lenskra, austurrískra, danskra,
sænskra, norskra og rússneskra,
og eru þau öll á eina leið og hin
lofsamlegustu. Þeir, sem ensku
skilja, mega treysta því, að þeir
eiga vísa góða skemtun á þessurn
samkomum.
Gullfoss
kom í morgun. Meðal farþega
voru : Forsætisráðherra Sig. Egg-
erz og frú, Sveinn Björnsson sendi-
herra og sonur, Zirnsen konsúll og
frú. Gunnlaugur Claessen læknir,
Hallgrímur Benediktsson heildsali,
Matthías Einarsson læknir og frú,
Jón Brynjólfsson kaupmaður, frú
Guðrún Björnsdóttir frá Borgar-
nesi, frú Kaaber, Nathan stór-
SYNDETIKON
lím höfum viö fyrirliggjandi-
Jöh. Olafsson & Co,
Boíaíarli •
á járnsklp
tílbáinu af IntematSonal
Compositiou & Farvefabrik
a/s Bergen
er besta íegand’sem hœgt
er að fá.
FyrMlggjanði.
90B9UK S'VBIJiBtSOH & CO.
kaupmaður Cortés prentari, Guðm.
Einarsson frá Miðdal, frú Eggerz
og dóttir (kona G. Eggerz), greifi
Ahlenfeldt Laurvigen, Lára Theó-
dórs, frá Borðeyri, frú Sigurbjörg
Sæmundsson, Finnur Einarsson
stúdent, Jochum Eggertsson, El-
ín Jónsdóttir, símamær o. m. fl.
Síðasti dagurinn
til að fá aðgöngumiða að aðal-
íundi Eimskipafélagsins, er í dag.
óskað er eftir,
að þau börn, sem seldu merki
og happdrættismiða fyrir „19.
júni“, komi og skili því óselda á
Hverfisgötu 47.
Leiðrétting.
í greininni Frá Indlandi, eftir
síra E. Hoff, hafði orðið „Karma“
(þ. e. endurgjaldslögmálið) mis-
prentast.
Knattspyrnumót íslands
hefst á morgun kl. 8ýá með
kappleik milli K. R. og Víkings.
Sigurlaunin eru knattspyrnubikar-
inn fagri, sem kept hefir verið um
árlega síðan 1912. Hefir K. R.
unnið bikarinn tvisvar, Víkingur
einu sinni, en Fram í öll hin skift-
in. Að þessu sinni keppa 4 félög,
bin sömu sem tóku þátt í Reykja-
víkurmótinu í byrjun þessa mán-
aðar. Eftir úrslitunum þá, verður
engu um það spáð, hver sigra
muni á þessu móti, svo jöfn reynd-
ust félögin eins og menn muna,
en eklci mun það koma mörgum
j á óvart, þó að nú yrði annað uppi
á teningnum en þá. Margir munu
jafnvel búast við, að hér muni
sannast hið fornkveðna, að hinir
síðustu munu verða liinir fyrstu
0. s. frv, — Það er aldrei of vand-
lega brýnt fyrir mönnum, hve
gagnlegar iþróttirnar eru æsku-
Jýðnum. En á þann hátt styrkir
almenningur best íþróttastefnuna,
að hann fylgist með iþróttamönn-
unum og láti þá sjálfa verða vara
við það. Menn ættu því að fjöl-
menna á íþróttavellinum næstu
viku, bæði sjálfra sín vegna, aö
fá góða og holla skemtun, og
íþróttamannanna, að styrkja þá
og auka áhuga þeirra. V.
Fyrirlestur
sá um „Samtök sjómanna“, seni
haldinn var í Bárubúð á sunnu-
daginn var, verður næsta föstudag
endurtekinn á sama stað kl. 8ý£ að
kvöldi. Of mikill og margbreytt-
ur gleðskapur var um helgina í
bænum, til þess að menn sirttu
sem skyldi alvörumálum. En með
því að nú er færra um gamanið, er
vonaridi, að fleiri hlýði erindinu í
þetta sinn. •
BorgfirÖingar
halda íþróttamót við Iivítá r.
júlí. E.s. „Suðurland“ fer auka-
ferð til Borgarness á laugardag-
inn, til þess að flytja menn á mótið.
Sláttur
er nú um það leyti að byrja hér
í nágrenninu; var byrjað að slá á
Kleppi í siðustu viku, og í Braut-
arholti á Kjalarnesi upp úr helg-
inni. Grasspretta er ágæt.
Forvextir hækka
í bönkunum frá 1. júlí, upp í
7°/o p. a.
Gleymið ekki S
að panta í sima mínar ágætu
bifreiðar, á Þjórsármótið, laugar-
daginn 30., og til Þingvalla á
sunnudag. Símar: 581 og 973.
Steindór Einarssori.
Sanna kirkjan
Eftir H. E. Ryle, biskup í Winchester.
Ert þú í hinni sönnu kirkju, þeirri, ei
ein hefir hjálpræði að bjóða? Eg spyi
ckki um það, hvert þú leitir á sunnu-
dögum, aðeins um þetta: „Tilheyrir þi
hinni sönnu kirkju?“
Hvar er þessi eina samia kirkjai
Hverníg er hún? Á hverju má þekkjb
hana, þessa einu sönnu kirkju — Þat
er eðlilegt, að þú spyrjir þannig. Er
ljá mér athygii þína, og eg skal reyru
að leiðbeina þér með nokkrum and-
svörum.
Eina sanna kirkjan er samsafn allrt
þcirra, er trúa a Drottinn Jesúm. Húr
er samsafn allra Guðs útvaldra — alln
endurfæddra, karla og kvenna, allrs
sannkristinna manna. Hver sá, er hefn
útvalning Guðs Föður, ádreifing blóði
Guðs Sonar og helgun Heilags Anda
hann er meðlimur hinnar sönnu kirkjt
Krists.
Það er kirkja, sem hefir alla meSlim
fneS sameigmlcgum einkennum. Þeir err
aliir fæddir af andanum; þeir hafí