Vísir - 23.10.1923, Blaðsíða 4

Vísir - 23.10.1923, Blaðsíða 4
(ÞriíSjudagfinn 23. okt. 1923. V í S I R Rafmajnsperur fáið þið bestar og ódýrastar hjá Helga Magnússyni 4 Co. Aldan. vísi, — og hér stoöar ekkert annaS en vald í einhverri mynd. Raunar á Spánn ekki upptökin aö þvingunum vi’ö þær smáþjóöir, er vilja verjast áfenginu meS bann- lögum. Frakkland á hugmyndina. Frakkar settu Norðmönnum þaö skilyröi fyrir viSskiftasamningi nokkru fyr, a'S Norömenn keyptu miljón lítra af sterkum drykkj- um af sér á ári, þeim drykkjum, er bannaöur var innflutningur á í Noregi. NorSmenn gengu aö þessu, þótt þeir heföu ekkert viö áfengiö aö gera, vegna þess, aö annars áttu þeir ekki kost á við- Dnandi samningi viö Frakkland. Þarna eiru upptökin. Spánverjar komu á eftir og heimtuöu, aö Norömenn keyptu hjá sér i mil- jón lítfa sterkra drykkja árlega. En þaö þótti Norömönnum of mik- iö. Stóö lengi í stappi um þetta, og lenti á endanum í tollstríði milli ríkjanna. Hér er rétt aö geta einnar á- SíæðU, sein sjálfsagt á mikinn þátt í, aö mál þetta er fram komið. Hún er bannið í Sandaríkjunum. Áöur eu bannlögin komust á þar, var að sjáífsögðu mikill markaður og öruggur, fyrir vínræktarlöndin í Bandaríkjunum. Þessi markaöur lokáðist snögglega, eins og menn vitá, og má óhsett fullydða, aö hann mun ekki opnast aftur. Þetta er ein ástæðan, meöal annars, svo sem bindindis- og bannhreyfingar víðsvegar um lönd, kaupgetuleysis margra landa eftir striðið o. fl., til þess að vínræktarmenn í suður- hluta Evrópu gerðust kröfuharðir úm vernd stjórna sinna fyrir at- vinnuveginn. Þannig lítur þá málið út, ef at- hugað er frá þeirri hlið, sem talað er um að framan. Skilyrðið, sem vér höfum orðið að ganga að, í samningnum við Spán, ber að skoða sem eina hliðina á afar sterkri stefnu, sem nú er uppi víðs- vegar um heim, og er afleiðing viðskiftakreppunnar, sem af stríð- inu leiddi fyrir allar þjóöir. Eg held, að um þetta verði ekki deilt, þótt að sjálfsögðu megi margt og mikið um málið segja umfram það sem hér er gert. , (Niðurl.) Vélabrögð. Atriði úr ræðu Sigurj. ólafssonar. S.igurjþn Ólafsson, sá sem stóð fyrir hinni alræmdu för Jóns Baclis til Englands, en samt er nú aö bjóða kjósendum hér í ná- grenninu upp á sig til þingmensku, sagði á Bárufundinum sæla, að sá árangur væri þó orðinn af för Jóns Bachs, að nú væri verið að leitast við að koma sjómannafélaginu hé'r í samband sjómannanna, sem mið- stöð hefir í Amsterdam. En það bygðist á þvi, sagði hann, „að hver verndar annan og hver hjálp- ar öðrum,‘. Fagurlega er nú galað ' fráman í fólkið. F.n bak við standa sömu leiðtoga-vélráðin eins og alstaðar hjá þeirn. Hvað þýðir þetta nú, án alls rósamáls'? Það jjýöir þa'ö, að ekki aðeins allir þeir, sem brjóta í bág við samþykki félaganna, hversu óbil- gjarnar kröfur, sem gerðar eru til þeirra, jafnvel um að vera atvinnu- lausir mánuðum saman í verkföll- um, iheldur einnig þeir, sem ekki vilja láta binda sig á klafa félag- anna, en vilja vera frjálsir að því, hvað þeir gera við sinn eigin skrokk, þeir eiga að verða óaTandi og óferjandi hvar sem vera skal í heiminum. Það er verið.að neyða menn inn í hring, eins óbilgjarnan eins og verstu einokunarhringirnir stór- kapítalistanna eru. Það vantar ekki heldur þar, að fagurt sé tal- að, meðan þeir eru að smeygja sér inn með vörur sínar. Þeir tryggja mönnum nóga og góða vöru og selja hana með vægu verði, meðan verið er að brjóta keppinautana á bak aftur. En. svo á að ná sér niðri á eftir, og það er gert svika- laust. \ Meðan verið er að tæla sjómenn inn í samtökin, er galaö fagurt um „aö hver verndi annan og hver hjálpi öðrum.“ En þegar klafinn er kominn á, þá kemur annað hljóð í strokkinn. Þá Jiarf ekki blíðmæl- in. Þá er hnefinn rekinn í boröið og sagt: Brjóttu klafann, ef þú þorir. Viö höfum samtök um allan heim um aö kúga úr þér lífið, ef þú gegnir ekki. .Sigurjón talaði. um það á sama fundi, hve ódýrt væri að vera í Verkamannafélögutium hér. Er- lendis yröu menn að borga ioo krónur. Þegar klafinn er kominn á, þá má alt heimta. Borgaðu ioo kr. Fondar í kvöld kl. 81/, i Bárohúsino nppi. Áriðandi að félagar mætl. fyrir að vera í félaginu; annars ertu búinn að vera! Hlýddu bara, góði minn. Hér verndar hver annan og hver hjálp- ar öörum, meðan þið eruð þægir sauöir við okkur leiðtogana. Um kosningar er gott að geta látið þessar ioo krónur frá hverj- um íélaga draga sig saman, til þess að styðja leiðtoga, sem langar á þing. Hann veröur að borga, því að annars er hann utan „verndar- innar“. Sigurjón liefði ekki átt að geta unr þetta ioo króna gjald, hjá þeim, sem í samtökuntim eru. Ef hrafuinn kynni að þegja, misti hann ekki bráðina oft og einatt. íslenskir sjómenn skilja þetta kannske dálítið betur en alþýðu- leiötogunum þykir gott. Einn af mörgum. ENGINN VEIT SÍNA ÆFINA — Travers fylgja sér eftir. Hann geröi svo, og' var honum vísað inn í setustofu Rafe s. Hann stóð út við gluggann, með hendur i vösum og íeykti í ákafa úr gömlu pípunni sinni. Þeg- ar hann kom auga á gestinn, kom gleðisvipur á andlit hans og hann gekk með útrétta hönd- ina á móti honum. „Nei! Eruð það þér! Þetta er svei mér bæri- legt. Á eg að segja yður nokkuð, unginn minn? Eg ætlaði að fara að leita yður uppi, ef þér hefðuð ekki komið. Það hefði raunar orðið öröugt í þessu borgarbákni, en eg er nú sein- þreyttur, þegar eg byrja á einhverju. En nú hafið þér létt því oki af mér, með því að hegða yður eins og hvítur maður. Hérna, fáið yður sæti! Hver er yðar uppáhalds drykkur? Má bjóða yður viský? Ja hérna! Eg er feginn áð sjá yður." Travers neitaði hressingunni og mátti hafa sig allan við, að halda rödd sinni í jafnvægi. „Viljið þér það ekki?" sagði Rafe. „Jæja, eg bragöa það aldrei sjálfur á morgnana, og ef satt skal segja, þá er aldrei lið í mér yið drykk. Þetta legst ekki altaf í ættir,“ sagði hann alvarlega. „En fáið þér yður að reykja, hvað sem öðru líður.“ Hann tók vindlakassa úr skápnum og rétti Travers, og þá hann vindilinn. Rafe kveikti á eldspýtu á reiðbuxum sínum — hánn hafði Verið að temja hryssuna um morguninn —, og jiegar hann rétti Travers hana, sá hann, að hönd hans skalf, og varð hann þá mýkrí í máli og vingjarnlegri. . „Mér þykir mjög vænt um, að jiér heim- sóttuö mig svona skjótt. Eg býst við, að yð- ur hafi fundist þér óþarflega strangur við okkur, þegar þér fóruð að hugleiöa jiað eftir á. Okkur, mér og hefðarmeynni, sem með mér var, var áhugamáí að vita, hvort þér hefðuð meiðst mikið. Yður hefir flugið jiað í hug og eruð nú hingað komnif. Er víst, að jiér viljið ekki bragða vín? Gott og vel. Við skulum þá ræöast við. Þér vitið hver eg er og hvert er stárf mitt. Eg er i þessu lávarða-starfi — og, okkar í milli, og er nú kominn í hálfgerða klípu og líklegra, að verr fari. Þetta er lík- ast trúðleik, þar sem eg á að leika hlutverk fíflsins. Þér vitið, aö eg er nýkominn til þess- arar tignar, mér hefir verið varpað út í þetfa fyrir rás viöburöanna. — En hvað er eg altaf að tala! Segiö jiér m'ér nú eitthvað af yðar högum. ,Hvaða atvinnu stundið jrér?“ Travers vætti varirnar og lét brýnnar síga. Ráfe bjó svo íTiaginn fyrir hann, aö honunr varð auðvelt að tala máli sínu. Þó að hatur og öfund logaði undir niðri í hugskoti hans, þá var hann rólegur og ánægður á yfirborð- inu. „Eg kom einmitt til þess að segja yður það, Stranfyre lávarður.“ Málrómur hans var mjúkur og viðfeldinn og stakk mjög í stúf við orðfæri Rafes, sem var óþjált og hávært. „Ef eg á að segja yður allan sannleik í sem fæstum oröum, þá verð eg að játa, aö metnað- ur mittn varð þess valdandi, að eg vildi ekki segja ykkur heimilisfang mitt og kaus held- ur að snúa baki viö ykkur. Eg er mjög fá- tækur, Stranfyre lávarður, og óttaðist —“ „Þetta flaug mér í hug,“ sagöi Rafe og kinkaði kolli. „Eg. gat þess til, og eins mundi mér hafa farið. En yður skjátlaðist! Hefðar- mærin hefði aldrei fariö að bjóða yður fé, og af mér er það að segja, að drengirnir, sem eg ólst upp með, eru svo skapi farnir, aö þeir efu vanir aö reka þeim ærlega utanundir, sem býður þeim fé fyrir barsmiðar. Eg sagði, að þér væruö eins og menn eiga að vera, og mér hefir ekki skjátlast.“ „Eg er yður þakklátur, Stranfyre lávarður, fyrir þessa skoðun, sem þér hafið á mér,“ svaraði Travörs í sama málrómi sem áður og var sem hatin vekti yfir hverju orði og setn- ingu, sem hann sagði. „Eg sá, að mér hafði skjátlast og gert mér rangar hugmyndir um yður og cg kom til þess að biðja afsökunar á því." „Þess gerist engin þoff, hér er ekkert að afsaka,“ svaraði hann glaðlega. „Við skiljum hvor annan, eins og maður mann eða bróðir bróður.“ Travers hrökk ofurlítið við. „En sjá- ið þér til, félagi. Þér hafið viðurkent, að þér eigið örðugt uppdráttar. Og þegar svo ber undir, þá er cnginin skömm að bjóða að rétta-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.