Vísir - 02.04.1925, Qupperneq 3
VÍSIR
Jarðarför mannsins míns, ]7órSar pórðarsonar, semandlaSistá
Landakotsspítala 27. f. m., fer fram frá dómkirkjunni, laugar-
daginn 4. þ. m., og hefst kl. 1 e. h.
Veróníka Einarsdóttir, BergstaSastreeti 62.
Nýkomnir:
Fermingarskór,
strigaskór, með gummí- og chromleðursólura, Barna* cg Unglinga
stigvél t miklu úrvali o. m. fl.
Reynið EB-BU skðábnrðinn.
STEFÁN 6DNNARSS0N.
Simi 351.
Skóverslun.
Austurstræti 3.
1. S. L
Glímniél. Ármann
heldur fund í dag (fimtudag) kl. 8x/2 eftir
hádegi ( ISnó uppú
9 áríðandi mál á dagskrá.
Mætið stundvíslega og fjölraenniðí
Stjórnin.
Nýlegur 6-7 smálesta
vélarbátur með 10 hesta vél til sölu, með
tækifærisverði, ef samið er fyrir 10.
apríl. Uppl. i sima 381.
Rúsinnr
Af veiðum
komu í gærkveldi: Belgaum,
Snorri goSi, Grímur Kamban og Eg-
ill Skallagrímsson í nótt, allir með
góðan afla. í morgun kom franskur
faotnvörpungur til að fá sér kol og
vistir.
jBœjarstjórnarfundur
verður haldinn í dag kl. 5. —
Níu mál á dagskrá, þar á meðal
umsókn frá Kjartani Sveinssyni um
leyfi til þess, að reisa og starfrækja
kvikmyndahús hér í bænum. — Síð-
asta mál á dagskránni er „um sam-
skotin vegna manntjónsins 7.—8.
febrúar."
S k ip ctf r e g n ir.
ESJA fór frá Vestmannaeyjum
kl. 1Ó í morgun.
GULLFÓSS fór frá Stykkis-
hólmi um hádegi í dag, kemuv hing-
að í fyrramálið.
LAGARFOSS kemur til Vest-
ínanrtaeyja kl. 8 í kveld.
GOÐAFOSS kemur til Kaup-
ínannahafnar á morgun og fer J?að-
an 8. þ. m.
20 þúsuridir króna
hefir útgerðarfélag Hellyers I
Hafnarfirði gefið í samskotasjóðinn.
Árnesihgamót
verður haldið í Iðnó, laugardag-
inn 18. apríl. Sjá augl. í blaðinu
á morgun.
Mjólkurbúð
ætlar Mjólkurfélag Reykjavíkur
að setja á stofn í Hafnarfirði og
tekur hún til starfa á morgun. Sjá
auglýsingu.
Es. Douro,
aukaskip Sameinaðafélagsins, fer
frá Khöfn um 7. apríl og kemui við
í Leith.
V msólfnarfrestur
um J>rjú læknishéruð er nýlega út-
runninn, og hafa þessir sótt: Um
Vestmannaeyjar: Jónas Kristjáns-
Son, Ólafur Ó. Lárusson, Eiríkur
Kjerúlf, Guðm. Ásmundsson (í
Noregi), Sigurður Magnússon á
Seyðisfirði, Páll Kolka. Um Rang-
árvallahérað: Helgi Jónasson,
Ólafur Ó. Lárusson og Ludvig Nor-
dal. Um Grímsneshérað: Sigurmund-
úr Sigurðsson, héraðslæknir í Reyk-
dælahéraði, Halldór Stefánsson,
íæknir á ísafirði, Guðni Hjörleifs-
son, héraðslæknir í Hróarstunguhér-
aði, Lúðvík Nordal, læknir á Eyr-
arbakka og Páll Sigurðsson, læknir
á Flateyri.
Gengi erl. myntar.
Rvík í morgun.
Sterlingspund ......... kr. 27.05
100 kr. danskar .... — 103.64
i 00 — sænskar .... — 152.77
100 — norskar .... — 89.23
ÍDollar ................. — 5.67
Glímufél. Armann
heldur fund í kveld kl. 8V2. Sjá
augl.
U.M.F.R.
Fundur í kveld.
Elín Ingimundardótiir,
Grjótagötu 9, á áttræðisafmæli í
dag.
Sorgar-merki.
pegar sorgarathöfnin var hald-
in út af hinu sviplega fráfalli þeirra
mörgu manna, sem drukknuðu af
togurunum hér í vetur, var tekinn upp
sá fallegi, útlendi siður, að hætta
allri vinnu í 5 mínútur, til þess að
allir gætu látið í ljós hluttekningu
Ut af þessum mikla sorgaratburði,
fékk málarinn Tryggvi Magnússon
þá hugmynd, að rétt væri að búa
til sorgarmerki til styrktar aðstand-
endum sjódrukknaðra manna hér
á landi. Gerði hann svo teikningu af
merkinu, og hugmyndin, sem þar er
sýnd er auðskilin.
Eftir teikningu Tryggva, hefir
Ólafur Hvanndal gert þrjú mynda-
mót, hvert fyrir sinn lit, og hafa báð-
ir þessir menn af miklum góðvilja
lagt þetta fram ókeypis, en prent-.
smiðjan Gutenberg hefir sýnt \á
miklu rausn, að gefa alt efnið í sjálf
merkin, cg svo prentunina.
Af þessum merkjum verða íyrst
gefin út 50 þús. eintök, sem ætlast
er til að seld verði undir eins.
Bandalag kvenna hefir svo, með
sinni vanalegu fórnfýsi. sem ætíð
kemur í ljós, þegar þeir eiga í hlut,
sem bágstaddir eru tekið á arma
sína, endurgjaldslaust, sölu þessara
50 þús. merkja.
Ætlast er til, að hvert merki verði
selt á 10 aura.
Með fé því, sem safnast við sölu
merkjanna, er áformað að stofna
sjóð, til styrktar aðstandendum sjó-
drukknaðra manna, sem hægt sé að
grípa til, þegar slys ber að höndum. i
Og því miður er hætt við, að þau
muni koma fyrir hér eftir eins og
hingað til.
pað, sem fæst fyri.r þetta fyrsta
upplag af merkjunum, sem áætlað
er 5000 kr., á þá að verða stofn-
fé þessa sjóðs, cg hrekkur það að
vísu ekki langt, ef íslendingar taka
ckki hugmynd þessari vel, og láta sé.r
skiljast, hversu nýt hún er, og sjóð-
urinn líklegur til mikillar hjálpar
þeim, sem alt í einu eru sviftir hinni
fjárhagslegu stöðu í lífinu. En að
hugga tregann og söknuðinn er ekki
á mannanna valdi.
pað er og tilætlunin, að gefa
roerkin út á ný í hvert skifti, sem
upplagið þrý'tur.
Kartöflur
ágætar nýkomnar í
versl. Vísi.
Appelsínur
og Epli
nýkomið í
versl. Vísi.
pað er von mín og vissa, að allir
góðir menn og konur, sem þess eru
megnugir, vilji ætíð styrkja þenn-
an sjóð, með fjárframlögum, svo að
ekki verði of langt þess að bíða, að
hann verði svo stór, að hann geti orð-
ið verulega til hjálpar, þegar önn-
ur eins voða slys ber að höndum,
sem nú í vetur.
Bandalag kvenna hér, mun ef-
laust senda þessi merki til kvenfélag-
anna, út um land, og allir þekkja
þau svo, að þeir vita, að þau muni
ekki láta sitt eftir liggja, að sjá um
sölu merkjanna, og koma þeim á
framfæri, og eins vist er hitt, að alt
gctt fólk mun fúslega vinna að fram-
gangi þessa góða málefnis.
Gamall sjómaSur,
pr. 90 aura l/x kg. Sveskjur 80
aura */» kg. Kartöflumjöl 45 aura
1 kg, Sagó 60 aura % kg.
Hrísgrjón 35 aura x/t kg. Hafra-
mjöl 35 aura l/x kg. Hveiti nr. 1
á 40 aura lj% kg. Danskar kart-
ðflur á 12.25 pokinn.
Verslunin
Nöanugötu 5,
1 Sími 951.
Kaupið ekki það ódýrasta,
heldur það vandaðasta,
KLiuls.is.ur
og
trr
af ö’ilum gerðum, gull-, silfur- og
nikkel úrfestar allskonar, silfurborð-
búnaður, trúlofunarhringar margar
gerðir, saumavélar frá Bergmann &
Hiittemeier. Hamlet og Remington
reiðhjól og allir varahlutir til reið-
hjóla. — Vöramar sendar hvert á
land sem er, gegn eftirkröfu.
Sígurþór Jónsson
Aðalstraeti 9.
Gonsum- súkknlaði
og
Husholdnings
hvergi ódýrara en í
verslnninni Visi.