Vísir - 04.04.1925, Síða 2
VÍSIR
HSfnm iyrlrllgglandl:
Þakjárn,
Þakpappa,
Girðingavir.
Símskeyti
Khöfn, 3. mars. FB.
Jórsala háslfóli v'tgSur.
Símað er frá London, að Balfour
lávarður hafi á miðvikudaginn vígl
nýja hebreska háskólann í Jerúsal-
em, sem á að verða andleg mið-
stöð Gyðinga, en þó opinn fynr
allar þjóðir.
pýsfyir hermenn drukkna.
Símað er frá Hamborg, að 80
hermenn hafi drukknað við heræf-
ingar.Voru þeir staddir á ferju einni,
er sökk. Hermennirnir voru allir her-
tygjaðir, og sukku óðara.
Ajvopnunarráðsiefnan.
Símað er frá Washington, að
Frakkar kynoki sér enn við að taka
þátt í afvopnunarstefnunni, sem
Coolidge hefir boðað til í Washing-
ton. Bandaríkjamenn eru Frökkum
stórreiðir og þvinga líklega Frakka
til þátttöku með hótunum um, ao
annars verði þeir að greiða Banda-
ríkjunum skuldir sínar.
Frá Alþiugi
i gær.
frá Alþingi; en lög þessi hljóða um
heimild handa ríkisstjórninni til að
veita Áslækjarrjómabúi í Hruna-
mannahrepp undanþágu frá banni
því, sem felst í lögum nr. 38, 1923,
gegn því að reka smjörlíkisiðnað í
sambandi við rjómabú, og hefir áð-
ur verið skýrt frá þessu máli í Vísí,
er málið var til umr. í Ed.
Frv. um breytingu á launalögum
embættismanna var tekið út af dag-
skrá og frestað 2. umr. um J?að þar
eð eigi endist tími til að ræða það
í þetta sinn.
Frá Danmörku
(Tilk. frá sendiherra Dana).
Ejri deild samþykti og afgreiddi
tvö frv., sem lög frá Alþingi:
1. Lög um sektir.
•2. Lög um að veita síra Friðrik
Hallgrímssyni ríkisborgararétt.
Ennfremur var frv. um breytingu
á sóttvarnalögunum samþ. og af-
greitt til Nd.
Frv. um verslunaratvinnu, var
samþ. til 3. umr. eftir all-langar um-
ræður; höfðu komið fram margar
breytingartillögur við frv. og voru
þær flestar samþyktar.
í NeSri deild var haldið áfram
3. umr. um frv. um slysatryggingar
og stóðu þær lengst af fundartím-
ans og lauk með því að frv. var
samþ. með nokkurum breytingum
og afgreitt til Ed.
pá var einnig- frv. um hvalaveið-
ar samþ. og afgr. til Ed., eftir stutt-
ar umr.
í þriðja lagi fór fram framhald
einnar umr. um frv. um breyting á
lögum nr. 38, 20. júní 1923, um
verslun með rmjörlíki og líkar iðn-
aðarvörur, tilbúning þeirra o. fl.,
sem Ed. hafði endursent til Nd. og
var frv. að síðustu samþykt eftir
nokkurt þjark og afgreitt sem lög
Reykjavík, 3.' apríl. FB.
Oll von er talin úti um, að gufu-
skipið „Anine“, eign félagsins
„Heimdal", muni koma fram, þar
eð liðnir eru 18 dagar síðan til þess
hefir spurst. pað var á leiðinni frá
Gibraltar til Civitia Vecchia. Skipið
var 2000 tonn og 18 manna skips-
höfn. Skipstjórinn hét Risöe.
Islensl(unám Alexandrínu
drottningar.
Berl. Tid. birtir viðtal við ung-
frú póru Friðriksson.. Segir hún frá
konungsheimsóknunum þremur til
íslands. pess er getið í lok viðtals-
greinarinnar, að drottning Alexah-
dríria hafi nýlega tilkynt frú Björgu
porláksdóttur, sem sagði henni til
í íslensku, að Hennar Hátign drottn-
ingin hafi í huga að halda áfram
íslenskunámi sínu, er frú Björg kem-
ur aftur heim, en hún hefir nú dokt-
orsritgerð í undirbúningi á frönsku,
sem hún ætlar að verja við Sor-
bonne. Hennar Hátign drottningin
ætlar að leggja stund á íslensku
framvegis, til þess að geta talað mál-
ið, er hún kemu# til íslands í næsta
sinn.
Messur á pálmasunnudag.
í dómkirkjunni kl. 11, síra Bjarni
) Jónsson.
I Landakotskirkju: kl. 9 f. h.
pálmavígsla. Levítmessa, þrír prest-
ar tóna píslarsögu Jesú Krists. Kl.
6 e. h. guðsþjónusta með prédikun.
í kaþólsku kapellunni á Jófríðar-
stcðum í Hafnarfirði:
Messa kl. 10 f. h. og kl. 5 e. h.
guðsþjónusta með prédikun.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Ámi Sig-
urðsson, kl. 5 síðd., síra Haraldur
prófessor Níelsson.
I fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2
e. h. síra Ólafur Ólafsson.
VeSrið í morgun.
Frost um land alt. í Reykjavík
5 st., Vestmannaeyjum 3, ísafirði
7, Akureyri 4, Seyðisfirði 4, Grinda-
vík 5, Stykkishólmi 5, Grímsstöð-
um 8, Raufarhöfn 6, Hólum í
Hornafirði 3, Angmagsalik 14,
pórshöfn í Færeyjum, hiti 6, Kaup-
mannahöfn 2, Utsire 2, Tynemouth
1, Leirvík 6 st. (ekkert skeyti frá
Jan Mayen). — Mest frost í gær
7 stig. — Loftvægislægð á norð-
austurleið fyrir suðaustan land. Veð-
urspá: Allhvöss norðlæg átt. Snjó-
koma á Norðurlandi og Austur-
landi.
Sjómannastojan.
Guðsþjónusta á morgun kl. 6. AI-
j fred Petersen frá Færeyjum, talar.
! _ x
Prestskosningar.
í gær fór fram talning atkvæða
við prestskosningu í Staðarpresta-
kalli í Steingrímsfirði. Kosinn var
síra ]7orsteinn Jóhannesson, með 179
atkv. af 183, sem greidd voru.
í Landeyjarþingum var kosinn
síra Jón J. Skagan, með 107 atkv.,
öllum, sem greidd voru.
Aj veiSum
komu í gær og í nótt: Apríl, Guli-
toppur, Tryggvi gamli, Asa, Njörð-
ur, Draupnir og Jón forseti. Enn
fremur komu mörg línuveiðaskip.
Lagarjoss
kom frá útlöndum í gær. Meðal
farþega voru: Jón Guðbrandsson,
afgrm. Eimskipafélagsins í Hull,
ungfrú Sigríður J. Auðuns, Ebenes-
er Ebenesersson, vélameistari. Mr.
Walker, kaupsýslumaður og stú-
dentar tveir frá Englandi Mr. Neill
og Mr. Johnson.
Leikhúsið.
„Candida" verður leikin annað
kveld kl. 8. — Aðgöngumiðasala
hefst kl. 4 í dag. Sjá augl.
Asgrímur Jónsson,
málari opnar málverkasýningu
sína á morgun kj. 11 í Templara-
húsinu uppí. í sumar, er leið, var
Ásgrímur austur á Fljótsdalshéraði
og málaði þar ýmsar myndir, og
eru þær helstu þeirra af hinum ein-
kennilegu „Dyrfjöllum" og „Beina-
geitarfjalli“ á Othéraði. pá eru og
| J
! nckkrar nýjar myndir úr Fljótshlíð.
af pingvöllum og víðar.
SiúdenlajrœSslan.
Guðbrandur Jónsson flytur á
morgun mjög fróðlegt erindi um
andlát íslendinga á miðöldum, og
skcðanir manna á dauðanum á þeim
tímum. Byggist fyrirlesturinn á sögu-
legum rannsóknum, sem Guðbrand-
ur hefir gert. Hefif hann klætt efn-
íð í mjög skemtilegan og alþýðleg-
an stíl; ekki ólíkt þeim, sem Troels
Lund notar í hinu alþekta riti sfnu
„Dagligt Liv i Norden“. pingmönn-
um og stjórn er bcðið á þennan fyr-
irlestur. Z.
3r»^i
w«* iw;i
Fyrirligii:
Rusínur,
Sveskjur,
Aprikósur.
Sími 701.
ÞÚRBUfi 8VEIN880N & CO.
Dansk-íslenska félagiS.
Athygli skal vakin á auglýsingu
hér í blaðinu í dag, um upplestrar-
samkomur hr. Adams Poulsens,
leikhússtjóra.
Gengi erl. myntar.
Rvík í morgun.
Sterlingspund .........kr. 27.05
100 kr. danskar .... — 103.72
100 — sænskar .... — 152.78
100 — norskar .... — 89.72
Dollar ..................— 5.68
Dansskóli Reykjavíl(ur.
Æfing annað kveld kl. 9 í Thom-
senssal.
Áheit á ElliheimiliS,
frá K. 55 kr., frá G. G. 5 kr.,
frá p. 2 kr., frá Lord 5 kr., afhent
Vísi 7 kr. — 4. mars 1925.
Har. Sigurðsson.
Áheii
til fríkirkjunnar, afhent Sighv.
Brynjólfssyni, frá A. J. 10 kr., frá
S. S. S. 15 kr„ frá J. Á. 5 kr„
frá N.. N. 5 kr.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 10 kr. frá Kr„ 10 kr.
frá G. N„ 10 kr. frá H. H. H.
Fáránlegur reikningur.
í síðasta Lögbirtingablaði er birt-
ur „Reikningur sparisjóðs Vestur-
ísafjarðarsýslu árið 1924.“ — par
er í upphafi eytt geysirúmi undir
hagfræðilegar upplýsingar um starf-
semi sjóðsins, sem kemur reiknings-
útkomunni bókstaflega ekkert við.
Ef sjóðurinn væri vel efnum búinn,
væri að vísu ekki tiltökumál, þótt
þessar upplýsingar væru birtar sem
alhugasemdir neðan við, en það er
fáránlegt að kalla þetta „reikning".
Á einu er þó hægt að græða í
þessum ..reikningi“. par er talið í
útborgunum „kostnaður við rekstur
sparisjóðsins" samt. kr. 1113 05,ená
næstu síðu, í ábata og halla reikn-
ingi er þessi kostnaður orðinn 100
kr. hærri. Reikningurinn er þó end-
urskoðaður, en þetta hefir ekki verið
„tekið með í reikninginn" við þá at-
hugun. , /• K.