Vísir - 24.04.1925, Blaðsíða 3

Vísir - 24.04.1925, Blaðsíða 3
VÍSIR 24. apfíl 1926 ’ Tóbaksemkasalan Ræða eftir Jakob Möller. Þó aS allmikiö hafi þegar veriö rætt og ritaö um þetta mál, þá þykir rétt að láta nokkur orð fylgja þessu frv., þegar það nú kemur hér til annarar umr. Eg ætla þó ekki að þessu sinni að fara langt út i það, að bera saman' frjálsa verslun og einlca- sölu yfirleitt. Þvi aö fyrst og fremst má segja, að það sé þraut- rætt mál, og lítil von þess, að íylgismönnum annarar stefnunnar takist að sannfæra hina i þingræð- um. En eg veit heldur ekki til þess, að hér sé innan veggja nema einn maður, sem heldur því fram, að allsherjar einkasala sé heillavæn- leg eða hagfeld þjóðinni. Að minsta kosti hefir enginn flokkur i þinginu, nema jafnaðarmanna- flokkurinn, tekið á stefnuskrá sína allsherjar einkasölu. Það er þvi ástæðulaust, að ræða málið á þeim grundvelli. — Hins vegar virðist liggja hér allnærri, að álykta frá því almenna til hins sérstaka. Ef allsherjareinkasala er ill, þá hlýt- ur líka einkasala á einstökum vörutegundum að vera ill, nema þá að sýnt sé fram á, að alveg sér- staklega sé ástatt. Það verður ekki séð, að þannig sé á nokkurn hátt sérstaklega ástatt um tóbakið, að hentugra muni ahnenningi, að á því sé einkasalá, fremur en á öðrum vör- um. Þvi er haldið fram, að einka- sala á steinolíu sé hentug, eða jafnvel nauðsynleg, til þess að vernda notendur fyrir okri einok- unarhringa. Því er haldið fram, að cinkasala á áfengi sé sjálfsögð, af því að hafa beri liönd í bagga með þeirri verslun, og helst ætti með öllu að aftra því, að menn ætti uokkurn kost á því að ná í þá vöru. Hvorugu þessu er til að dreifa um tóba’kið. Það er enga tóbakshringi að óttast. Og sú stefna er heldur ekki uppi, að út- rýma tóbaki úr landinu. Og eg hefi yfirleitt enga ástæðu heyrt færða fyrir því, að ei nkasala ætti betur við um tóbak, en aðrar vörur, hverju nafni sem nefnast, nema þá eina, að hún væri: hentugri til að ná tekjum í ríkissjóð af tóbakssölu í landinu, en frjáls verslun. — Eg verð þvi að telja það viðurkent, að einkasala á tóbaki hafi til að bera alla þá ókosti, sem viðurkendir eru á einkasölu yfirleitt, og sem gera það að verkum, að menn vilja ekki koma á einkasölu á öllum vörum, jafnt nauðsynlegum sem ónauðsynlegum. En þeir ókostir eru aðallega fólgnir í því, að vör- urnar verða dýrari og verri. En þó nú að tóbak sé það, sem kall- að er óþarfi, þá gegnir i rauninni alveg sama um það og aðrar vör- ur, sem mjög alment eru notaðar af landsmönnum, að það verður almenningi til skaða, ef varan er gerð dýrari eða verri en hún þyrfti að vera, og eru allar ráðstafanir af hálfu löggjafarvaldsins, sem fara í þá átt, í sjálfu sér öldungis óverjandi. Eg sé það, að í skýrslu, sem hér liggur fyrir, frá Landsverslun, er þvi haldið fram, að einkasalan á tóbaki sé hentugri og ódýrari fyr- ir almenning en frjáls verslun. En sú skýrsla er vitanlega samin af mönnum, sem trúa á ágæti einka- sölufyrirkomulagsins, ekki að eins á tóbaksversluninni, heldur á allri verslun. — En það er að öðru leyti í fáum orðum að segja, um þá skýrslu, að á henni er ekkert að græða um þetta atriði, ekkert ann- að en órökstuddar staðhæfingar um það, að svona og svona miklu dýrari myndu vörurnar verða í frjálsri verslun. Alveg samskonar skýrslur mætti búa til um hvaða vörutegundir, sem vera skyldi, en eg geri ráð fyrir þvi, að hið háa Alþingi mundi verða nokkuð tregt i taumi á allsherjar einkasölu- brautinni, livað mörgum skýrslum af þessu tagi, sem yfir það rigndi. Eg fyrir mitt leyti held því fast íram, að einkasölufyrirkomulagið sé ilt, um hvaða vörutegundir sem er að ræða, og yfirleitt, ef ekki eru alveg sérstakar, knýjandi á- stæður fyrir hendi, en skal, sem sagt, ekki fara lengra út í að rök- ræða það að svo stöddu. En þá er að athuga þá hlið þessa máls, sem sérstaklega veit að ríkissjóðnum og tekjuþörf hans. Það er yfirlýst, að til einkasölu á tóbaki hafi verið stofnað ein- göngu með það fyrir augum, að ná sem mestum tekjum í rikissjóð. Það var heildsala tóbaksins, sem fyrst og fremst átti að gera að fé- þúfu fyrir rikissjóðinn. En í fram- kvæmdinni hefir það gengið miklu lengra, enda hefði eðlilegur heild- söluágóði ekki hossað hátt. En menn gerðu sér þá alveg rangar hugmyndir um heildsöluágóðann, af því að menn höfðu alvegóvenju- legt ástand fyrir augum, og héldu jafnvel að það væri algild regla, sem þá ef til vill hefir að einsþekst dæmi til hjá einhverjum ófyrir- leitnum okrara,að álagning í heild- sölu væri alt að ioo%. Ef svo hefði verið, þá gat vitanlega verið þarna ieikur á borði fyrir ríkissjóðinn. En reynslan hefir sannað, að hér var að eins um ofsjónir að ræða. Venjuleg heildsöluáhtgning mun vart nema meira en reksturskostn- aður landsverslunarinnar og ágóði verslunarinnar verður því í raun og veru bein viðbót við tollinn, auk þess sem klipið er af eðlileg- um sölulaunum smásala, með því að ákveða þau svo lág, að það þykir yfirleitt ekki borga sig að versla með þessar vörur i smásölu utan Reykjavikur. —- Hins vegar er það auðsætt, að gera má þessa verslun að féþúfu fyrir rikissjóð- inn, með því að selja vöruna svo og svo háu verði. Það er kostur- inn, sem þetta fyrirkomulag hefir til að bera fram yfir tollálögurnar. En meiri hluti nefndarinnar lit- ur svo á, að þegar um það er að ræða, hvort halda skuli áfram einkasölu á tóbaki, eða í þess stað að hækka toll á tóbaksvörum, þá megi ekki líta á það eitt, á hvern hátt tekjur rikissjóðs af þessum vörum geti orðið mestar í einstaka ári, en jafnframt verði að gæta þess, að íþyngja ekki neytendum a.ð óþörfu með aðferðinni til að ná tekjunum, með þvi að gera vör- una dýrari en hún þyrfti að vera, án þess þó að tekjur ríkissjóðs verði sem þvi svarar meiri til jafn- aðar. En eins og hér hagar til, þá getur ekki hjá þvi farið, að tóbaks- vörur allar verði dýrari með einka- sölufyrirkomúlaginu, lieldur en í frjálsri verslun. Einkasalan verður altaf aukaþáttur i versluninni. Iíún Iiefir i raun og veru ekkert annað hlutverk, en að innheimta tekjur ríkissjóðs af þeim vörum, sem hún selur. Ef hún væri ekki, myndu allar meiri háttar smásöluverslan- ir kaupa tóbaksvörur milliliða- laust af sömu heildsöluverslunum og verksmiðjum erlendis, sem einkasalan skiftir við. Smásalar, sem kynnu að verða að sæta því, að kaupa vörur með óhagkvæmari kjörum, verða þá að keppa við hina, og bera sjálfir hallann. Reksturskostnaður einkasölunnar hlýtur þannig að langmestu leyti að verða aukakostnaður, sem á vörur þessar legst, og verður cinkasalan því óumflýjanlega all- þungur baggi á þeim landsmönn- um, sem tóbak nota. En sá auka- skattur, sem þannig er lagður á landsmenn, og ekki kemur þó rík- issjóði til góða, nemur, samkvæmt rekstursreikningi einkasölunnar fyrir siðastliðið ár, fullum 92 þús. kr., eða nálega 25% af þeirri upp- hæð, sem tekjur ríkissjóðsaf einka- sölunni nema það ár. Virðist það óhæfilega mikill innheimtukostn- aður á tekjum ríkissjóðs, og þó læfir sá kostnaður orðið hlutfalls- lega miklu meiri árið 1923. Iiins vegar liggur í augum uppi, að ná má með tollhækkun því sem næst sömu tekjum af tóbakinu, án þess að innheimta þess tollauka kosti ríkissjóð nokkuð, Það skal þó játað, að einstaka ár kunna að nást meiri tekjur í ríkissjóð af tóbaki með einkasölu- fyrirkomulagi, en með tolli, eink- anlega meðan verðlag er reikult og peningagengi óstöðugt. En af sömu ástæðum leiðir þá einnig, að annað árið má búast við minni tekjum, auk þess sem talsverð áhætta fylgir þá einkasölunni fyr- ir ríkissjóð, ekki síst ef hún er rekin að mestu með lánsfé. Það er viðurkent, að tekjurnar af einkasölunni árið 1924 hafa orð- ið meiri, en tolltekjurnar hefðu orðið samkvæmt frv. því, sem hér liggur fyrir, ef um sama innflutn- ingsmagn væri að ræða. En þess ber að gæta, að einkasalan hélt verðlagi sínu óbreyttu alt árið, eins og það varð hæst vegna geng- islækkunar ísl. krónu í ársbyrjun, Visiskaffíð garir alla glaða. þó að gengið færi siðan sihækk- andi til ársloka. Hefir álagning einkasölunnar þvi verið orðin tals- vert hærri síðari hluta ársins, held- ur en hægt er að gera ráð fyrir til jafnaðar, enda hefir verðlagið nú verið lækkað nokkuð aftur. En af þeirri verðlækkun, sem nú er orðin, leiðir og væntanlega það, að ágóðinn af versluninni getur ekki orðið eins mikill þetta árið, nema að enn verði svipuð breyting á genginu og síðastliðið ár, og væri þá þó eun um tækifærisgróða að ræða, sem ekkj mætti gera ráð fyr- ir framvegis, heldur mætti þá miklu fremur búast við afturkipp, sem mundi koma hag einkasölunn- ar i gagnólíkt horf. Tolltekjurnar verða hins vegar stöðugri, þó að þær í stöku ári kunni að verða minni, og algerlega áhættulaus tekjustofn fyrir ríkissjóðinn. Enn verður að telja tekjurnar af einka- sölunni ótryggari fyrir ríkissjóð- inn heldur en tolltekjur samfara frjálsri verslun, vegna þess, að einkasölufyrirkomulagið felur í sér aukna smyglunarhættu. Það er nú vafasamt, hve langt er fært að fara í því, að skattleggja einstak- ar vörutegundir, hvort sem um munaðarvörur er að ræða eða aðr- ar, og hvort sem það er gert með tollálögum eða verslunarálagningu einmitt vegna smyglunarhættunn- ar. En smyglunarhættan hlýtur að aukast við þær aukahömlur, sem lagðar eru á viðskiftin með einka- sölu-fyrirkomulaginu, ekki sist eins og það er hér. Ef verslunin væri frjáls, myndu flestar verslan- ir geta fengið gjaldfrest hjá við- skiftavinum sínum erlendis, í stað þess að nú verða þær að greiða einkasölunni andvirði við móttöku. Auk þess gætu þær þá, án þess að útsöluverð þyrfti að verða hærra, lagt þeim mun meira á vör- una, sem reksturskostnaði einka- sölunnar nemur. En hann er, skv. íeikn. 1924, um 8% af innkaups- verðinu. Mundi þetta hvorttveggja auka tekjurnar af versluninni með þessar vörur, að töluveröum mun, frá því, sem nú er í smásölunni, með takmarkaðri álagningu, og draga mjög úr tilhneigingu til smyglunar, jafnvel þó að um svo háan toll væri að ræða, sem frv. fer fram á. En með þeim kjörum, er smásölum er gerður kostur á, í viðskiftum þessum, er þorra þeirra gert svo að segja ókleift að fást við tóbaksverslun á heiðarleg- an hátt. Hins vegar eru óhlutvönd- um mönnum opnaðar leiðir til gróðavænlegs verslunarreksturs með smyglaðar vörur eða jafnvel okursölu á einkasöluvörunum. Að þessu athuguðu, leggur meiri hl. 11. eindregið til, að horfið verði írá einkasölufyrirkomulaginu, og ræður háttvirtri deild til að sam- þykkja frumvarp það, sem hér liggur fyrir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.