Vísir - 24.06.1925, Blaðsíða 4

Vísir - 24.06.1925, Blaðsíða 4
VlSIK Hátt kaup. Þrifin og dugleg stúlka, sem er vön matreiðslu og getur tekið að sér forstöðu á heimili í forföllum húsmóðurinnarr óskast nú þegar til 1. október eða Iengur. Hátt kanp. Upplýsingar hjá Kolbeini Arnasyni Baldursgötu 11. Tvær gúðar stofnr óskast til leigu í haust, helst I nýju húsi. T. Fredriksen Sími 58. Hangikjöt. Hafið þið athugað það að hangi- kjöt er með því ódýrasta kjöti, sem við Islendingar notum. 50 sauðaföll verða seld á meðan birgðir endast, með gamla jóla* verðinu. ? 0 N Símar 448 og 1448. I “ I Kaupamaður og kaupakona óskast á gott heimili. Mega hafa með sér bam. Uppl. á Baróns- stig 22, uppi, eftir kl. 7. (512 Stúlka, sem getur séð um fá- ment heimili, yfir stuttan tíma, óskast. A. v. á. (504 Kaupamaður og kaupakona óskast austanf jalls. Uppl. Hverf- isgötu 50 kl. 5—7 í dag. (225 Kaupakona óskast austur í Biskupstungur. Uppl. á Vitastíg 7, kjallaranum. (523 Kaupakonur og kaupamenn vantar á gott heimili i Rangár- vallasýslu. Uppl. á Vatnsstíg 4 (vinnustofan). (522 Kaupakona óskast að Berg- þórshvoli í Landeyjum. Nánari uppl. í Iðnó kl. 12—1 og 6—7 síðd. (520 Kaupakona óskast á gott sveitaheimili. Hátt kaup. Uppl. á Grettisgötu 50, uppi. (518 Rösk stúlka óskast til hús- verka, með annari, hálfan eða allan daginn. A. v. á. (516 Kaupakona óskast á fyrir- myndar heimili. Uppl. Njálsgötu 13 B. (515 Kaupamann vantar allan hey- skapartímann. purrar slægjur. A. v. á. (513 Stúlka eða kona, sem vill bæta föt heima eða á verkstæði, get- | ur fengið atvinnu strax hjá O. | Rydelsborg. (526 | Allskonar hnífabrýnsla á Njáls- götu 34. " (224 Stúlka óskast í vist. A. v. á. (469 Telpa, 12—14 ára, óskast nú þegar A. v. á. (468 KomiS meö föt yöar til kemiskr- ar hreinsunar og pressunar til O. Rydelsborg, Laufásveg 25, þá verðiS þiS ánægð. (379 Síðastliðinn laugardag, tapað- ist kassi, á leiðinni frá Brúará til Hafnarfjarðar. Skilist gegn fundarlaunum á bifreiðastöð Zophoníasar. (509 'HUj/gr' Gylt hlekkja-armband tapaðist á mánudagskveld. Skil- ist á Vitastíg 20 gegn fundar- launum. (524 Fundnir peningar. Vitjist á Vesturgötu 33. (519 Bifreið fer austur að Torfa- stöðum á morgun. Nýja Bif- reiðastöðin í Kolasundi. Simi 1529. (514 Skó- og gúmmtviðgerðir Ferdin- and* R. Eiríkssonar, Hverfisgöhí 43, endast best. (278 Fasteignaeigendafélag Reykja- víkur. Skrifstofa í húsi Nathan & Olsen, þriöju bygö, nr. 37, er opin hvern virkan dag, kl. 5—6 síðd. (367 Sólarherbergi til leigu i Tjarn- argötu 37. (511 í góðu húsi, helst í Vestur- bænum, óskast 2—3 herbergi og eldhús, frá 15. júlí. A. v. á. (507 Siðprúður maður getur fengið leigt herbergi á Týsgötu 6. (505 gggr- Ibúð óskast til leigu 1. október. A. v. á. (466 Kaupi tómar blikkdósir. Mál- arinn. Simi 1498. (510 Ivvenreiðstígvél, legghá, hand saumuð, tiþsölu með tækifæris verði. Uppl. i síma 996. Laufás veg 14. (508 Agætt karlmannsreiðhjól til söliT, með tækifærisverði. Sig- urður pórðarson, á skrifstofu, Coplands. Simi 406. (506 Nýr dívan til sölu, með tæki- færisverði. Til sýnis á Hverfis- götu 18, kjallaranum. (521 Dragt til sölu á Hverfisgötu 32. (517 „SæpoIin“-sápan er keypt af öllum þeixn, sem hreinlæti unna. Fæst hjá flestum kaupmönnum. Biðjið um „Sæpolin“! (323 . Skemtikerra, ásamt vönduð- um aktýgjum, er til sölu með tækifærisverði. A. v. á. (488 Sykur, matvörur og þvotta- efni með lægsta verði, i versl. Símonar Jónssonar, Grettisgötu 28. Sími 221. (490' IFyrirliggjandi óvenjumiki'S a£ ódýrum vinnufata- og drengjafata- efnum. Sömuleiöis hversdagsfata- efni á fulloröna. Verö frá kr. 5,50- —20.00 meterinn. Gu'öm. B. Vik- ar, klæöskeri, Laugaveg 5. (394- Fyrsta flokks hifreiðar i lengrö og skemmri ferðir til leigu, fyrir lægsta verð. Zophonias. (1195 FÉLAGSPRENTSMIÐJAN. GRlMUMAÐURINN. trúunum aö krjúpa á kné, og hlýddu þeir ■ því og sýndu' sams konar auömýkt eins og feöur þeirra höföu sýnt 30 árum áöur, er þeir gengu fyrir hásæti Karls keisara. „Hvaö er ykkur á höndum, herrar?“ spurði Alba hertogi stuttlega. Nokkurir menn úr hinum illræmda blóð- dómi sátu honum til beggja handa, en þó skör lægra. Þar var Alberic del Ríó, mjúk- ur á manninn og undirlægjulegur; þar var Viglíus 0g de Noircarmes, hershöfðingi, og Hessels, sem allir voru miklir fjandmenn Vilhjálms af Óraníu, eins og Alba hertogi, — en nokkuð frá öðrum sat don Juan de Vargas, sem þá var nýkominn frá Brússel. „Hvað er ykkur á höndum, herrar?“ hafði Alba spurt þóttalega, og eftir nokkur augnablik tók Deynoot til máls, en hann hafði orð fyrir nefndarmönnum. Hann var óframfærinn í fyrstu, en sótti i sig veðrið, eftir því sem á leið. „Það fékk okkur þungrar sorgar,“ mælti hann, „þegar við urðum þess varir í gær- kveldi, að heimsókn yðar hágöfgi væri ekki gerð í vináttuskyni og velvildar. Hinar ströngu skipanir, sem yðar hágöfgi hefir birt, og þau höft, sem lögð hafa verið á frjáls- ræði borgara í Ghent, hafa fylt hjörtu okk- ar þungum harmi.“ „Bin svívirðilegu svikræði ykkar, hafa fylt hjörtu okkar reiði,“ mælti Alba hertogi hranalega, „og ekkert, nema mildi okkar miskunnsama, einvalda konungs, hefir varn- að okkur að brenna þessa bölvuðu borg til ösku og brytja niður hvern borgara, án þess að gefa þeim nokkurn kost á að bæta fyrir helvískar athafnir sínar, með því að gefast upp skilmálalaust.“ „Við berum fylsta traust til hinnar alkunnu mildi herra konungsins,“ mælti Deynoot auð- mjúklega, „og leggjum skilyrðislaust og ör- uggir örlög okkar fögru borgar í hendur yðar hágöfgi.“ „Örlög þessarar borgar eru í minni hendi,“ mælti Alba hertogi kuldalega, „samkvæmt valdi hins einvalda konungs og með hjálp þeirra hersveita, sem eg hefi yfir að ráða. Eg sagði ykkur í gærkveldi, hvaða skilyrði eg setti, til þess að eg hlífði borginni við algerri eyðingu. Eg er ekki vanur að skifta um skoðanir á einni nóttu.“ „Ó! Yðar hágöfgi! En það er ekki á valdi borgarbúa, að verða við því eina skilyrði, sem mýkja mætti reiði hins einvalda kon- ungs yðar og okkar.“ „Hvers vegna,“ spurði Alba drembilega, „er þá verið að eyða mínum tíma og ykkar í orðagjálfur, sem ekki kemur að neinu haldi ? Annað hvort verður Vilhjálmur af Óraníu framseldur mér í hendur, eða eg læt hermenn mína brenna borg ykkar um sólarlag á morgun. í allra heilagra nafni! Er það ekki svo ljóst mál, að allir megi skilja?“ „Full-ljóst að vísu, því miður!“ svaraði' Deynoot, og í sömu andrá sá hann fyrir hug- skotssjónum sínum hinn unga og háa mann,. sem stóð á pallinum í borðsal klaustursins; hann minntist orða hans og hinnar göfugu; fórnar, sem hann vildi færa. Honum fanst rödd hans hljóma um hinn litla sal hertogans,, og honum flugu í hug mörg þau orð, sem. hann hafði sagt. „Þið eigið erfiðara hlutverk fyrir hönd- um,“ hafði hann sagt glaðlega, „þið verðið- að flaðra og skríða og brjóta odd af oflæti ykkar.“ Gott og vel! Guð vissi, að þeir hefðl gert alt þetta og enn meira! Þeir höfðu kæft niður reiði sína og brotið odd af oflæti sínu fyrir ósvífnum hermönnum, og nú voru þeir að flaðra og skriða fyrir harðstjóra, sem þeir höfðu andstygð á. Ghent! Ástkæra borg, sem einu sinni varst heimkynni frjálsra manna. Hvað verða borg— arar þínir að þola þinna vegna? Og Deynoot, sem kominn var af frjálsum. mönnum að langfeðgatali, varð nú að sleikja duftið fyrir hásæti Alba hertoga! Hann þvingaði sig til þess að tala i auðmýktarrómi og leit á harðstjórann þögulum bænaraugum. „Hvað getum við gert,“ mælti hann ófram- lega, „til þess að sanna drottinhollustu okk- ar? Eg grátbæni yðar hágöfgi að líta á van- mátt okkar. Vilhjálmur af Óraníu er ekki í Ghent, og við vitum ekki, hvar hans sé að* leita.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.