Vísir - 21.08.1925, Page 2
vtam
Vísis-kaflið gerir alla glaða.
Höfam lyrirllggjandi:
Blandaða hænsnafóðrið góðkunna,
Hænsnamais,
Hænsnabygg,
Hestahafra,
Maismjöi.
Símskeyti
Khöfn, 20. ágúst. FB.
*
Byggingavcrkbann í Berlín.
SímaS er frá Berlín, aS vegna
ósamkomulags um laun á milli
vinnuveitenda og verkamanna;
hafi hinir fyrnefndu lýst yfir
byggingaverkbanni (lockout). —
Sextiu þúsundir verkamanna bí'öa
atvinnuhnekki viö verkbanniö.
Villidýr á almannafæri.
Símaö er frá París, aö leopardi
einn, er var nýfluttur í dýragarö
hafi sloppiö úr búri og reiki nú
um Boulogneskóg. Fólk er afskap-
lega hrætt, þar eö dýriö er alger-
lega ótamið. Eru gerðar tilraunir
til þess aö handsama þaö af mikl-
um mannsöfnuði.
Heimskautsför Amundsens.
Símaö er frá Osló, aö það sé
ákveðið, aö Amundsen geri tilraun
til þess að fljúga til norðúrpóls-
ins í loftskipi en ekki flugvél.
Kínverjar og Bretar.
Símaö er frá London, að Kína-
stjórn hafi bannað breskum skip-
um aö koma við í kínverskum
höfnurn. Eru Bretar mjög reiðir
yfir þessu tiltæki og er búist við
stór-alvarlegum afleiðingum.
Gyöingafimdi frestað.
Símaö er frá Vínarborg, að
Zionistafundurinn hafi verið af-
lýstur, (sbr. skeyti x gær).
Jafnaöarmenn og franska stjómin.
Símað er frá París, aö það hafi
verið ákveðið á socialistafundi að
hætta aö styöja stjórnina.
Mfred Olsen & Go. A. s.
Kanpmannahöfn.
Smurningsolmr
allar tegundir.
1 XJmboðsmenn:
Þórðnr Sveinsson & Go.
Utan af landi.
ísafiröi, 20. ágúst. FB.
Slys.
Ragnar Jóhannsson frá Garðs-
stööum, vélarmaður á m.k. Gylfa,
festist í hjólreim vélarinnar og
barst undir sveifluhjólið og beið
þegar bana.
Síldveiðin treg síðustu daga. —
Tiöarfar rnilt en þurklaust.
Drykkjnskapnr
eða
bindindl
Framh.
III.
Eg þykist þess fullviss, að þjóð-
inni hafi verið nauðugur einn kost-
ur, að ganga að kröfum Spánverja
um undanþágu frá bannlögunum,
að því er létt vín snertir. — Þáð
mun vera hin mesta heimska, eða
annað verra, að neita því, að þar
hafi ekki fullkomin nauðsyn rekið
á eftir. — En við þessa undanþágu
hefir víndrykkja hér í Reykjavík
magnast stórkostlega. Að minsta
kosti ber miklu meira á drykkju-
Gerið alvörn úr þvi tafarlanst
að fá yður
Kodak
u
Þér getið lært að fara með hann á
hálfri klukkustund.
Dragið það ekki, - fáið yður tafarlanst
.,KODAK
((
Hans Petersen.
skap nú á almannafæri, enda geta
menn, síðan „Spánarvínin" komu,
verið „löglega“ fullir, en áður var
það tæplega hægt, því að „lækna-
brennivínið“ var alt úti látið sem
meðul til lækninga, og menn verða
yfirleitt ekki staur-fullir af með-
ulum. — Að minsta kosti þótti
ýmsum varhugavert að sýna sig
„meðala-drukkna“ á almannafæri,
og fóru því heldur varlega. — En
nxi er hægðarleikur að kenna
Spánarvíninu um, ef menn hittast
stórdrukknir, jafnvei þó að þeir
kunni að hafa fengið „hressing-
una“ hjá leynisala eða samkvæmt
læknisávísun sér til heilsubótar.
IV.
Því miður munu ekki vera mikl-
ar horfur á því, að Spánverjar falli
frá þeirri kröfu sinni — okkur að
skaðlausu — að leyfður skuli inn-
flutningur á vínum þeirra hingað.
— Og við erum áreiðanlega ekki
undir það búnir, að geta hafnað
kröfum þeirra um leyfi til vín-
flutninga hingað, því að mikil
hlunnindi koma í móti. — Og mér
j þykir, satt að segja, ekki mjög
l líklegt, að það komi fyrir á dög-
| um þeirrar kynslóðar, sem nú er
j fulltiða í landinu, að við verðum
i færir unx að hafna saltfiskmark-
aðinum á Spáni að miklu eða öllu
leyti. — Það væri æskilegt að vísu
að við gætum gert það, okkur að
skaðlausu eða skaðlitlu, en eg hefi
enga trú á að það heppnist. —
Svo sem kunnugt er, hefir tals-
vert verið til þess gert, að afla
nýrra markaða fyrir útflutnings-
vörur landsmanna. — Sendimenn
bafa farið víöa um lönd í markaðs-
leit, samið skýrslur um þau ferða-
lög o. s. frv., en því miður virð-
ist árangurinn ekki vera mikill að
svo komnu. — Og vjð því er ekki
heldur að búast. — Það tekur
áreiðanlega langan tíma, að afla
nýrra rparkaða. — Og það er hin
mesta skammsýni að ímynda sér,
að slíkir markaðir náist á svip-
stundu eða fáum árum. —Tilraun-
irnar taka vafalaust all-langan
tíma. — Væntanlegir neytendur
jxurfa að kynnást og smá-venjast
vörunum, sem að þeirn er haldið.
Og salan verður óhjákvæmilega
heldur lítil fyrst í stað, en vex svo
hægt og hægt á löngum tíma, ef
varan fellur í geð og er seld skap-
legu verði. — Að öðrum kosti
verður tilraunin árangurslaus. —
Það væri því hin mesta fásinna
og þjóðar-ógæfa, að fleygja frá
sér gömlum og góðum markaði
fyrir höfuð-afurðir landsins, í
þeirri veiku von, að takast mætti
að svæla út fiskinum fyrir eitt-
hvert verð í einhverjum[ löndum
öðrum. — Hitt er auðvitað sjálf-
sagður hlutur, að halda áfram að
leita fyrir sér um nýja markaðí,
sem ef til vill gæti komið í staðinn
fyrir saltfiskmarkað vorn á Spáni,
er stundir líða. — Og ríkissjóður
má með engu rnóti horfa í það, þó
að af þeim tilraunum kunni að
leiða all-verulegan kostnað.
Eg fæ því ekki betur séð, en að
það sé nokkurnveginn örugt, að
við verðum að hlíta Spánarmark-
aðinum enn um nokkurt skeið, og
sennilega —- því miður — að sætta
okkur við, að leyfður sé innflutn-
ingur á vínum Spánverja hingað
til lands.
(Niðurl.).
P-
Messað
verður í fríkirkjunni í Hafnar-
firði á sunnudaginn kl. 2 síðdegis.
Sira Ólafur Ólafsson.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík io st., Vest-
mannaeyjum g, ísafirði io, Akur-
eyri io, Seyðisfirði g, Grindavík
io, Stykkishólmi n, Grímsstöðum
7, Raufarhöfn 8, Hólum i Horna-
firði io, Þórshöfn í Færeyjum io,
Angmagsalik 7, Kaúpmannahöfn
17, Utsire 12, Tynemouth 14, Wick
12, Jan Mayen 7 st. (Mestur hiti
í Rvík siðan kl. 8 i gærmorgun 13
st., minstur 8. — Úrkoma mn\o.4).
— Loftvægislægð suðvestan við
írland. Veðurspá: Svipað véður.
Slys.
Maður datt af flutningabifreið
hjá Herkastalanum í gær og fót-
brotnaði. Hann heitir Ásbjörn