Vísir - 24.08.1925, Síða 4
VffSIfl
Veggfóður
fjölbreytft úrval — lágft verð.
Mynciabú.ðin Laugav. 1.
Siml 555.
Fiskiveiðahlutafélagið
Kári
í Viðey hefir eftirleiðis útborgan-
ir sínar i Reykjavík á föstudögum
kl. 2 til 4 á samastað og áður.
Kjötfars
Besta, kjötfars bæjarins ásamt
söxuðu kjöti er ávalt best að
kaupa i
Kjötbúðinni í Von
Simi 1448.
s
I1
II
M
I
s
8
g
m
I
Baðker, Þvottaskálar
og Vatns-salerni
ásamt varahlutum og öllu
tilheyrandi.
Veggflisar, Gólffflísar.
Vaskar,
Skolppípnr 21/2~ & 4”
Annast um uppsetningu á
öllu þessu.
tsleifnr Jónsson
Laugaveg 14.
Fyrirliggjandi:
Mnrnsápa
er góð og ódýr hand-
sápa sem fer vel með
húðina. Biðjið kaup-
mann, sem þér verslið
við um hana.
Hessian 72
tjörubampnr.
Verðið mjög lágt.
Málarinn.
Sími 1498. Bankastræti 7.
Kruschen-salt
fæst í verslun
Goðafoss, Langav. 5
Verð kr. 3,50 glasið.
Stúdent vill taka a'ö sér heima-
kenslu. Tilboð merkt „Kensla“
sendist afgr. (320
| Mikið úrval
af
Snndföftnm
Nýkomið
Stúlka óskast fyrri hluta dags,
frá 1. sept. eöa nú þegar. Uppl.
Laugaveg 20 A, hjá Kristínu Sig-
uröardóttur. (315
Unglings stúlka óskast í vist nú
þegar. A. v. á. (321
Unglingstelpa óskast strax eða
1. sept. Grettisg. 44 B, uppi. (323
Blágrár ketlingur meö rauögult
hálsband er i óskilum á Lauga-
^eg 34- (313
. Hjól hefir veriö tekið í misgrip-
um við Kol & Salt portiö við
liöfnina. Vinsamlegast skiftist á
Lokastíg 4 og greiði auglýsinga-
kostnaðinn. Guðm. Bjarnason.(3i2
Bifreiðardekk á felgu nr. 35x5
tapaðist í gær frá Ölfusá til Rvík-
ur. Skilist gegn fundarlaunum til
Zophoniasar. (324
Keðju-gullarmband tapað-
ist gær frá Bræðraborgarstíg og
inn undir Tungu. — Skilist á afgr..
Visis gegn íundarlaunum. (322
Notaðir ofnar, 1 stór og 2 smærri,.
til sölu. Til sýnis eftir kl. 7 síðd.,.
Grundarstig 8, niðri. (3i8
Baðker, alveg nýtt, til sölu. með-
lágu verði, ef kaUp eru gerð strax.
A. v. á. (317
Nýr dívan til sölu með sérstöku
tækifærisverði, ef samið er strax.
Hverfisgötu 18. (3I(>
Leðurvörur svo sem: Dömu-
töskur, dömuveski og peninga-
buddur, ódýrast í Versl. Goðafoss,
Laugaveg 5. Simi 436. (222
Gott karlmannshjól til sölu. A.
v. á. “ (296
Stúdent óskar eftir herbergi á
kyrlátum stað. Tilbdð merkt „Her-
bergi“ sendist afgr. (319»
Tvær einhleypar stúlkur óska
eftir góðri stofu og aðgangi að eld-
húsi. A. v. á. (314
Góð íbúð, 2 eða 3 herbergi og
eldhús, óskast 1. október. Skilvís
greiðsla. A. v. á. (141
1 stórt eða tvö lítil samliggjandi
berbergi óskast 1. október. Uppl.
í síma 743. (293
Húsnæði. 2—3 herbergi ásamt
eldhúsi óskast 1. okt. fyrir fá-
menna, kyrláta fjölskyldu (3 í
heimili). Fyrirfram greiðsla fyr-
ir hálft til eitt ár. Tilboð auðkent::
„Húsnæði", sendist afgr. Visis. —
(301
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
GRÍMUMAÐURINN.
Hún talaði mjög lágt. Mark einn heyrði
hvert orS, sem hún sagSi. Hann laut niS-
ur, tók undir höku henni og lyfti höfSinu
upp, svo aS hettan féll aftur og ljósiS úr
austurglugganum féll beint framan í hana
og á hiS fagra hár hennar.
„Eg kem rakleiSis úr kastalanum,“
sagSi hún og talaSi nú greinilegar en áS-
ur, þegar hún hafSi kastaS mæSinni,
„láttu vini þína drepa mig, ef þeir vilja
.... liertoginn af Alba sór rangan eiS
.... sendimaSur var farinn af staS í gær-
kveldi til Dendermonde .... “
„Hvernig veistu þaS?“ spurSi Mark
stillilega.
„ViS Greta hej^rSum hertogann tala um
þaS við föður minn rétt í þessu,“ svaraði
hún. „Hann bað um vopnahlé til þess að
fá tóm til að draga lið að sér .... Hann
býst við, að liðið verði komið lúngað fyr-
ir sólarlag .... varðliðið við borgarhlið-
in bíður vopnað, og þrjár þúsundir manna
eru í kastalanum og eiga að gera útrás,
þegar sést til hjálparliðsins.“
Frásögn Lenóru varð alls ekki vefengd.
J’eir, gem næstir henni stóðu, sögðu þeim,
sem fjær voru, og flaug fregnin þá um
alla kirkjuna eins og eldur í sinu. — „peir
eru að ráðast á okkur! Fimm þúsundir
Spánverja á leið frá Dendermonde og eiga
að brytja okkur alla niður!“
„GuS miskunni sálum okkar!“
„Guð miskunni konum okkar og böm-
um!“
Dauðans angist gréip margan mann;
þeir æddu út úr kirkjunni og hlupu i of-
boði beint af augum eins og lcindur og
boðuðu þessar hræðilegu fréttir víðsvegar
um borgina, kölluðu liástöfum á guð og
báðu liann að frelsa alla. Eins og við var
að búast, greip ótti mikill konur og börn,
sem þá voru úti á götum hópum saman,
og eins liina hljóðu menn, sem störfuðu
að greftrun þeirra, sem fallið höfðu. Inn-
an lítillar stundar voru æpandi menn, kon-
ur og börn í stórhópum á liverju torgi.
Allir æddu aftur og fram, hljóðandi, vein-
andi og ráðþrota. peir, sem setið höfðu
inni allan daginn, — annað hvort til að
forðast margmenni eða til að búast guð-
rækilega við dauða sínum, — þustu nú út
til þess að vita, hvaða ólán hefði dunið
yfir þá, eða hvort nú væri í raun og veru
komið að síðustu og efstu stundu þeirra
allra.
Inni í kirkjunni voru hefndarópin
hljóðnuð, drápgirnin var horfin. Hinn gíf-
uriegi háski, sem gleymst hafði í svip i
hefndar-æðinu, lagðist nú á alla eins og ill-
spá og feigðarboði. Allir litu nú föilir og;
óttaslegnir til þess eina manns, sem enm
virtist vera glaður og bera vonarbjarma
í brjósti.
En Mark van Rycke virtist ekkí vita af
því í svip, að á hann mændi allra augu,
óttaslegin og horfin frá allri sundrungu.
Hann studdi Lenóru, sem smátt og smátt
var að hressast og komast til sjálfrar sín.
Fáein augnablik lét hann ótta manna og:
æði geisa, án þess að gefa því gaum. pau
fáu augnablik gleymdi hann hættum og
dauða, vinum sínum, #veröldinni, öllu,
nema því, að Lenóra hefði komið til hans
á því augnabliki, sem hann þráði liana
heitara og innilegar en nokkuru sinni áð-
ur, og að hún hefði liorft til hans þeim
augum, sem lýstu betur en- öll orð, þeirri
ást, sem hún bar til hans.
En ekki liðu nema fáein augnablik, þá
bað hann síra van der Schlioht að annast
um liana, en þegar hann losaði sig að lok-
um úr faðmi liennar, með liinni innilegustu
nærgætni, þá livíslaði hann í eyra henni:
„Guð launi þér, frú mín! Með ást þína að
skildi, finn eg að eg gæti sigrað allan heim-
inn.“
Að svo mæltu liorfði hann enn við hin-
um óttaslegna mannsöfnuði.