Vísir - 12.09.1925, Qupperneq 2
Vísis-kaffið gerir aUa glaða.
Höfam fyrirliggjandi:
Lauk,
Kartöflur.
Símskeyti
Bús og eldhúsáhöld
Miklar Ibirgðir. Fjölkreytt úr-
val. Lægst verð.
li
8
i?
I
u
Wl ••
I
THE FIR3T Pfl.TENTéo
SWISS M\LK CHOCOLA.TE
H992Q (WITH ALMOMDS «. HONEY)
Fæst alsstaðar. Hverju stykki fylgir
„100 krðna miði.“
Hættið að biðja um „átsúkkulaði". Biðjið um
„ TOBLEROI\E“
— Af bragðinu skulu þér þekkja það.
li
3
1
i
—O—1
Khöfn, ii. sept. FB.
Amundsen ætlar að fljúga yfir
norðurheimskautið næsta sumar.
Simað er frá Osló, að á aðal-
fundi norska loftsiglingafélagsins
hafi Riiser Larsen lagt fram fyr-
irhugaða tilhögun á næsta pólflugi.
Amundsen hefir keypt ítalskt loft-
skip, sem er 18500 kubikmetrar að
rúnijmáli, og hefir 3 vélar og er
hver 250 hestafla, hraði 115 km.
Leiðin Kingsbay-Alaska er að eins
3400 km. Áhöfn skipsins 16, þar
af allir gömlu polfararnir. Af stað
vérður farið á vori komandi.
Landganga Frakka og Spánverja
í Afríku.
Símað er frá Paris, að land-
ganga spánsk-frönslcu flotaher-
mannanna hafi tekist eftir langa
og hárða skothríð. Herinn heldur
áleiðis til höfuðborgarinnar, en
Marokkómenn fara uiídan á flótta.
Vígbúnaður Frakka í Sýrlandi.
Simað er frá Jerúsalem, að
Frakkar hafi safnað saman 25.000
manna og búist til stórárásar á
hendur uppreisnaijmönnum.
Tyrkir krefjast yfirráða í Mosul.
Símað er frá Genf, að Tyrkir
krefjist þéss, að alþjóðaratkvæði
verði látið úr skera um yfirráðin
yfir Mosul.
Godarheimt
skjala, handrita og gripaúrsöfnum
í Kaupmannahöfn.
Niðurl.
TJm 2. Dr. Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður hafði sajmið skýrslu
um þau bréf og bækur, er skila
þæri úr Árna safni Magnússonar.
Til viðBótar þeirri skýrslu lét ís-
lenski hluti nefndarinnar sérfróð-
an mann gera skýrslu um ýms
handrit, er væntanlega mundi
mega krefja, auk þeirra, er dr. J. Þ.
hafði talið. Danski hluti nefndar-
innar og sérfræðingar hans lögðu
til, að skilað yrði þvi úr Árnasafni,
er hann hefði, að þvi er víst væri
eða ætla mætti, fengið til láns úr
skjalasöfnum íslenskra stofnana
Versl. B. H. BJARNASON.
eða embætta, og eigi skilað. En
áður en danska stjórnin afræður
þetta mál, þarf það að fara til Há-
skólaráðs danska háskólans (Kon-
sistorium), er svo sendir það
Safnsnefnd Árna Magnússonar. En
vanséð er, hverjar verða tillögur
þaðan.
Um 3. Matthías þjóð)menjavörð-
ur Þórðarson gerði í sumar að til-
hlutan próf. E. A. skrá yfir muni,
er hann taldi rétt að krefjast úr
þióðmenjasafni Dana; voru það
60 hlutir. Siðan komst þó íslenski
h!uti nefndarinnar að raun um það,
að reynandi væri að fara fram á
að fá fleirum munum skilað, og
lét því sérfróðan mann kanna
safnið betur, og hefir verið farið
fram á að fá milli 40 og 50 muni,
auk þeirra 60, er M. Þ. hafði skráð.
Vegna naums tíma, höfðu enn eigi
fengist svör við kröfum þessum
um afhendingu gripanna. — Var
tilætlunin, að prófessor Arup og
Bjarni Jónsson, sem eigi gat far-
ið hei(m nú þegar, vegna lasleika,
gengi í gegnum skrárnar tvær yfir
þessa jmuni, bæði þá, er M. Þ. hafði
gert, og hina, er íslenski nefndar-
hlutinn lét síðar gera, og fengi
* svör sérfræðings Danmerkur, er
leitað er til um þetta mál.
Af hálfu íslands verður að
leggja mikla áherslu á það, að
þessum málum reiði vel af. Sér-
staklega er það afaráríðandi vegna
rannsókna sögu vorrar, að vér fá-
um það, er talað er um, að Rík-
isskjalasafnið skili.
Flest hitt er vér kröfðumst.skift-
ir minna máli i|m sögurannsóknir
vorar, en hefir auðvitað safngildi
mikið, að minsta kosti sumt af því.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11 árd., sira
Friðrik Hallgrímsson.
I fríkirkjunni kl. 2 síðd., síra
Árni Sigurðsson; kl. 5 síðd., síra
Flaraldur próf. Níelsson.
heldur Prentarafélagið
í^Iðnó á. morgnn
kl. 5 síðdegfis.
Fjöldi gagulegra og eignlegra mana.
Veitingar á svölunum uppi.
3SEIHC
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2 síðd., síra Ólafur Ólafsson.
í Landakotskirkju: Idámessa kl.
9 árd. og kl. 6 síðd. guðsþjónusta
með predikun.
Jarðarför
Jóns Jónatanssonar fór fram i
gær, að viðstöddu fjölmenni. Hús-
kveðju flutti præp. hon. síra Krist-
inn Daníelsson, en síra Friðrik
Hallgrímsson talaði í dómkirkj-
unni. Bened. Þ. Gröndal orti erfi-
ljóð. — Verkstjórafélagið gekk
undir tmerki sinu fyrir líkfylgdinni.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 10 st., Vestm.-
eyjum 10, ísafirði 9, Akureyri ir,
Seyðisfirði 8, Grindavík 10, Stykk-
ishólmi 12, Grímsstöðum 8, Rauf-
arhöfn 9, Hólum í Hornafirðii 9,
Þórshöfn í Færeyjujm 8, Angmag-
salik (í gær) 7, Kaupmannahöfn
12, Utsire 10, Tynemouth 8, Leir-
vík 9, Jan Mayen 2 st. (Mestur
hiti í Rvík síðan kl. 8 í gærmorgun
12 st., minstur 9 st. Úrkoma mm.
5.5). Loftvægislægð fyrir suðvest-
an land. — Veðurspá: Suðlæg átt.
Úrkoma á Suðurlandi og Vestur-
landi. Þoka á suraum stöðum við
Suðurland og suðvesturland.
S j ómannastofan.
Guðsþjónusta á morgun kl. 6
síðd. Allir velkomnir.
Sextugsafmæli
á í dag frú Ingibjörg Zakarías-
dóttir, Grundarstíg 4.
Skyndi-
salan
í dag:
Sterkar kvcndragtlr á 25,00
krónur. Léreft frá 0,75 mtr.
FJónel frá 0,90 mtr. Morgun* *
kjóJatau frá 5 kr. í kjólinn.
Tvisttau og molskinn afarödýrt.
Ullarvara, Prjónayara, nær-
fatnaður og skyrtur. Nokkur
'stýkki eftir af ensku hermanna
regnfrökkunum. Hvítar peys-
ur og fleira.