Vísir - 14.09.1925, Blaðsíða 5
VÍSIR
14. sept. 1925.
Eftirlit.
--X—
Erlendis munu ví'ðast hvar vera
settar fastar reglur um það, að bif-
reiðir sé ekki of hlaðnar, hvorki af
farþeg-um né farangri. — Þetta
mun þó einkum taka til bifreiða
þeirra, sem til mannaflutninga eru
notaðar. — Þar er fólki ekki káss-
að sarnan, jafn vel hverju ofan á
annað, eins og i bifreiðinni getur
tollað, heldur er t. d. fjögra manna
bifreið einungis notuð fyrir fjóra
farþega o. s. frv.
Hvervetna, þar sem reglur þess-
ar hafa verið settar, eruhafðar hin-
ar ströngustu gætur á, að þeim sé
hlýtt og hvergi út af brugðið.’ —
Vöruflutningabifreiðir („kassabif-
reiðir“), sem til mannaflutninga
cru notaðar, bera það oftast með
sér, skýrt og ótvirætt, meö auglýs-
'ingu (utan á bifreiðinni sjálfri),
hversu marga farþega hún megi
flytja í. senn, og komi það fyrir,
sð út af sé brugðið, er sá, sem sök-
ina ber, látinn sæta ábyrgð.
Þetta eru vitanlega alveg nauð-
synlegar varúð ir-ráðstafanir. Það
liggur i augum uppi, að bifreið,
sem hlaðin er langt yfir það, sem
henni er ætlað að bera, er slysa-
hættara en litt hlaðinni bifreiö og
farþegum tiltölulega meiri háski
búinn, ef eitthvað ber út af, ef þeir
eru margir saman. — Bifreiðinni
sjálfri er og rniklu hættara við
bráðu sliti/bilun og áföllum, ef
hún er ofreynd af óhæfilegum
þunga. Og sérstaklega mun vera
hætt við áföllum éða bilun, ef svo
stendur á, að ekið er í hliðarhalla
eða upp og ofan brekkur.
Á eggsléttum vegum og halla-
lauSum, svo sem viða i Danmörku,
er hættan aúðvitað miklu minni, en
þó hafa Danir sett reglur um far-
þegafjölda i bifreiðum þar í landi,
miðað við stærð og burðar-þol bif-
reiðanna. — Og þeir hafa strangt
eftirlit með þvi, að settum reglum
i þessu efni sé hlýtt. Þar er mönn-
um ekki látið haldast það uppi
bótalaust, að kássa fólki sarnan í
bifreiðirnar og hlaða þær svo, að
langt sé fram yfir það, sem þeim er
ætlað að bera.
Eg veit nú ekki til, aö hér á landi
sé því nein takmörk sett, hversu
marga farþega bifreið megi flytja
í senn. — Hitt mun sönnu nær, að
einatt sé miðað við það, hversu
marga hún geti rúmað i mesta lagi.
Og almenningur hér er ótrúlega
þolinmóður og tilhliðrunársamur
og sættir sig við þrengsli og lítið
rúm. — Mun eigi ótítt, að liver
sitji undir öðrum, er sæti þrýtur. —
Þetta er ákaflega óþægilegt fyrir
jólkið og varasamt, og auk þess
áhætta ei'gi all-lítil fyrir eigendur
og umráðamenn bifreiöanna, því
að vitanlega slitna þær fyrr og ver,
ef þær eru sífeldlega ofhlaðnar. Og
auk þess er slysahættan langt um
meiri, eigi síst þar ; em svo er hátt-
að, sem hér á landi víða, að bif-
reiða-vegir eru slæmir, ósléttir og
grýttir og á sumum stöðum lim
miklar brekkur að fara, upp og
ofan.
í einhverjum ;— líklega nokkuð
mórgum ■—■ af svo nefndum „kassa-
jifreiðum", sem hér eru í notkun,
mun vera sætarúm fyrir allmarga
farþega, og talað.hefir verið um
yfir 20 farþega í einum og sarna
gninum samtímis. — Þetta er
óskapleg hleðsla og voöi á ferðum,
ef eitthvað verulega ber út af, en
slíkt getur vitanlega altaf komið
fyrir, þrátt fyrir hina mestu var-
færni af hálfu bifreiðastjóranna.
— En þeir rnunu vera upp og ofan,
eins og gengur og gerist, en þó
miklu fleiri, nú orðið, gætnir menn
en gapar, enda er það hinn'mesti
voði, aö sleppa bifreiö í hendur
ógætinna og óreglusamra manna.
Eg veit ekki hversu arðvænleg-
ur atvinnurekstur bifreiða-akstur
(fólksflutningar) muni vera hér á
landi, en líklegt nuétti þó virðast,
að þar væri nokkur hagnaðar-von,
ef á það er litið, hversu margir
gefa sig viö þessu starfi. — En
sé þvi í raun og sannleika þann
veg háttað, að bifreiöirnar þurfi
aö tefla á allra fremsta hlunn um
farþega-fjölda, til þess að þær
geti borið sig í rekstri með núver-
andi fargjöldum, þá er það ekki
álitamál, aö fargjöldin verða að
hækka svo, að bifreiða-akstur geti
borið sig fjárhagslega, þó að far-
jiegafjöldi yrði takmarkaður. —
Fólk rnundi líka alveg vafalaust,
allur þorrinn að minsta kosti,
greiða hærri fargjöld með ljúfu
geði, ef rýmra yrði um það í bif-
reiðunum, en oft og einatt á sér
stað nú, og það vissi að eigandi
farkostsins eða útgerðarmaður
jryrfti að fá hærra gjald, til þess
að vera sæmilega haldinn með við-
skiftin. — Það er ekki lítið í það
varið. fyrir fólk, að hafa góð sæti
óg nökkurnveginn rúmt um sig,
þá sjaldan það „lyftir sér upp í
bifreið“. — Hitt eru hálfgerð vand-
ræði og veldur óánægju, er fólki
er hrúgaö saman í eina og sömu
bifreiðina, svo að enginn hefir al-
mennilegt sæti, eða svigrúm til að
hreyfa sig.
Loks er þess að geta, og mun
jnað skifta miklu 'máli í augum al-
mennings, að i ofhlaðinni bifreið
er örúggleikinn um slysalausa ferð
miklu minni, en þar sem fáir eru
saman komnir og bifeiðin létt hlað-
in.
Ýmsum kann að virðast þetta
svo lítilfjörlegt mál, að ekki taki
því, að stofna til neinna umbóta. --
Það er liinn mesti misskilningur.
— Hér er einmittt brýn þörf á um-
bótum. — Þeir, sem í útlöndum
hafa verið og séð þá takmörkun,
sem þar er á því höfð, hversu
mörgum farþegum megi aka í
einni bifreið í senn, eru öldungis
hissa á þeirri léttúð, sem hér rík-
ir i þvi, að ofhlaða bifreiðirnar.
— Og enn þá méira furða þeir sig
þó á eftirlitsleysinu af opinberri
hálfú, því að vegirnir, sem bifreiö-
um er beitt á í þessu landi, eru
niiklu verri en hvervetna í öðrum
löndum, þar sem bifreiða-notkun
er mikil. — En einmitt það atriði,
að vegirnir eru tiltakanlega slæm-
ir, mælir sterklega með þvl, að
,Það er litla, daglega skamtinum að þakka“!
pir
Jlr
sögði faisir gömln og vanheilu.
peir, sem nota Kruschen salt, eru ávalt hraustir og kátir.
Kruschen salt leysir upp og hreinsar óhrein og' skaðleg
efni úr blóðinu.
J>að heldur meltingunni í besta lagi og hreinsar slím og
óhreinindi úr nýrum, lifur og öðrum líí'færum. — pað örf-
ar heilbrigða efnaskiftingu likamans, sem er skilyrði góðrar
líðunar.
Takið lítinn skamt daglega.
fæst í glösum (endast 100 daga) hjá lyfsölum og kaupmönnum.
Aðalumboðsmenn:
0. Johnson & Kaufaer,
Reykjavík.
Skóbúð Reykjavíkur.
Aðalstræti 8,
hefur lang fjölbreyttast úrval af skófatnaði, við
hvers manns hæfi. Verðið mun lægra en áður.
Rykfrakkar og Regnkápur
nýls.omiS,
Versl. (jullfoss.
Sími 599. — Laugaveg 3
H.f. Þvottahúsið Mjallhvít.
Sími 1401. - Sími 1401.
Þvær hvitan þvott fyrir
65 aura kílóið.
Sækjum og sendum þvottinn.
ekki sé alt látið drasla eftirlits-
laust.
Eg leyíi mér að stinga upp á
þvi, að hér veröi sem allra fyrst
settar reglur um það, hversu marga
farþega bifreiðir megi flytja í einú,
miðað við stærð þeirra og buröar-
magn.
Þegar búið er að setja þær
reglur, þarf að auglýsa þær fyrir
öltum almenningi og sjá um að
jicim veröi fylgt.
Ferðamaður.
Veggfóðnr
nýkomið.
Verð frá 40 aurum ensk rúlla.
Hvítur maskínupappír.
Hessian. Málninga vörnr.
Máiarinn.
Bankastræti 7. Simi 1498.
Starfsstúlkur
óskast að Vífilsstöðum 1. október.
Upplýsingar hjá yfirhjúkrunar-
konunni. Síml 265.
I