Vísir - 17.12.1925, Síða 3
V ÍSiR
Fyrsta skityröi fyrir gó&ri end
inga á bifreiðum er, að þær séu
nægilega oft smurðar. Eu það
kemur ekkí að fullum notum
nema að smumingin sé góð. Bif-
reiðastjórar! Besta smurning sem
þið getið fengið á bifreiðar ykkar er
1»
VEEDOL'
JÓH. OLAFSSONM& CO.
„Dýr matarkaup."
Út af grein, sem birtist í „Vísi“
í gær me'ö ofanritaöri fyrirsögn,
um verölag á vörum þeim, sem
„Niöursuðan Ingólfur“ hefir á
boöstólum, vildi eg mega biöja
blaðið fyrir þessar athugasemdir:
Háttv. greinarhöfundi finst síld-
arveröið hjá Niðursuðunni Ingólfi
óþarflega hátt,og gerir samanburð
á kjöt og síldarverði og kemst að
þeirri niðurstöðu, að síldarverðið
sé tiltölulega hærra.
Um þennan samanburð er það
að segja, að hann nær vitanlega
ekki neinni átt, enda er hann á
misskilningi bygður, eins og nú
skal sýnt fram á.
Ef gera á réttan samanburð á
kjöt- og síldarverði, verður að
leggja til grundvallar venjulega,
saltaöa síld og venjulegt saltkjöt.
Nú selur Niðursuðan Ingólfur
ágæta, norðlenska saltsíld í tunn-
um á 30 krónur tunnuna, og kem-
ur þá síldin til að kosta um 35
aura kílóið. Venjulegt saltkjöt
mun víst ekki fást fyrir minna en
1.75 kg. Eða m. ö. o. síldin er
þá 5 sinnum ódýrari en kjötið, og
er þá ekkert tillit tekið til þess, að
næringargildi síldar er miklu
meira en kjöts — að mig minnir
um 80% meira.
Og það hugsa eg, að ekki sé
völ á hollari né ódýrari vöruteg-
und hér á landi.
Að verðið sé hátt, 30 kr. fyrir
tunnuna, verður varla haldið fram
með sanngirni, — að minsa kosti
er álagningin ekki óþarflega há,
því hún er engin. Niðursuðan sel-
ur þessa síld fyrir nákvæmlega
sama verð og hún kostar félagið
hingað komin.
Af því mörgum þykir of mikið
að kaupa heila tunnu af síld í einu,
hefir Niðursuðan á boðstólum smá
kúta með síld, fyrir kr. 12.50 stk.
Þessi síld er skorin sundur, haus
og sporöur skorinn af og innýfli
og dálkur tekinn úr, svo hún er
að heita má beinlaus; en hún er
líka dálítið dýrari en hin; Niður-
suðan verður vitanlega að fá sinn
kostnað borgaðan, að viðbættri
hæfilegri álagningu. Og s.vo viss
er Niðursuðan, sem sagt, um, að
hún selji síld þessa við mjög sann-
gjörnu verði, að hún gefur fólki
kost á að kaupa sildina i heilum
tunnum á nákvæmlega sama verð
og hún gefur fyrir hana sjálf. Svo
nú er öllum innan handar að fá
sí-ld f-yrir sama verð og framleið-
andinn heimtar fyrir hana. Og það
mundi fólk gera, ef það héldi að
það borgaði sig betur.
Eftir því sem meira er við síld-
ina gert og til henhar kostað, eftir
því hlýtur hún auðvitað að verða
dýrari, og oftást nær er vinnan og
tilkostnaðurinn við að gera.hana
þannig úr garði, mikið meiri en
kaupendur alment í fljótu bragði
gera sér i hugarlund.
Ef háttv. „Kaupandi“ vill gefa
sig fram við mig, skal eg með á-
nægju sýna honum, svo að hann
megi sannfærast af eigin sjón.
Annars er einfaldasta ráðið til
að sjá hvort hinar ýmsu vöruteg-
undir eru seldar við sanngjörntt
verði, að bera þær saman við er-
lenda vöru sömu tegundar.
Þetta gerði eg að gamni mínu
í dag; eg keypti 2 dósir af út-
lendri appetitsíld; þær voru mis-
munandi stórar, en kostuðu samt
báðar jafnt, 1 krónu hvor. Nú tók
eg eina dós af appetitsíld frá Ing-
ólfi, sem seld er hér i búðum á
1 kr. 20 aura.
Vigtaði eg svo upp úr öllum
dósunum, og varð niðurstaðan sú,
að það var hélmingi meira i þeirri
íslensku en í þeirri stærri erlendu,
en rúmlega þrisvar sinnum meira
en í þeirri minni. Og útlenda appe-
titsíldin var síst betri.
Annars rniðar Ns. Ingólfur ekki
verð sitt við útlendu vöruna, held-
ur eingöng-u við raunverulegan til-
kostnað, að viðbættum hæfilegum
hagnaði.
Félagið hefir hingað til verið
í mjög vondum húsakynnum og
ýmislegt orðið þvi dýrara þess-
vegna í byrjun en þurft hefði ann-
ars, en nú er félagið að enda við
að koma sér fyrir i ágætum, nýj-
um húsakynnum, og undir eins og
hægt verður að lækka tilkostnað-
inn við einhverja vörutegund,
verður verðið tafarlaust lækkað,
enda er þegar búið að lækka eina
vörutegund úm 25%.
Rvík 16. des. 1925.
. G. J. ó.
Jolavörur!
Jólaverð!
Kaffi- og súkkulaSistell, 30 teg., frá 10—110 kr.
Matarstellin fallegu. — JJvottastell.
Kökudiskar. — Ávaxtaskálar. — Vínglös allskonar.
Hnífapör, margar teg. — Vatnsglös með skrautstöfum, alt
stafrófið.
Barnadiskar og bollar með myndum.
Barnaleikföng, stórt úrval og ódýrt, t. d. um 100 teg. Dúkkur
frá 0,25—35.00. Bílár, 30 teg., frá 0,50—7,50.
Jólatrésskraut allskonar. — Barnakerti.
Spil, stór, 0,65—3,50. — Myndabækur.
Munnhörpur o. m. m. fl.
K.
Bankastræti 11.
S í m i 9 15.
Brjostsykuf
WWWfWWWWWWWv
ýmiskonar
í 4 lbs glösnm.
Þórðnr Sveinsson & Co.
1
1
i
1
Mikið
nrval
af
tilbnnnm
fatnaði.
m-
Voruhúsið.
Hver sem kaupir fyrir
100 krónur
i einu' fær fallega brúðu sem
er 15 króna virði í kaup-
bætir.
Egill Jacobsen.
NB. Munið eftir 10°/0
afslætlinum.
Komið í Fatabúðina.
Þar fáið þið' failegustu, bestu og
ódýrustu jólafötin.
Allan fatnað er best að kaupa
Fatabúðinni.
Best að versla í
FATABtÐINNI.
Heildsala.
Epli (Jonathans) í kössum og
tunnum, Appelsínur (Valencia),
ágæt Vinber, góðar Rúsínur,
steinlausar Sveskjur, Fíkjur,
Döðlur og Kex (Snow Flake).
Ó d ý r t.
V O N , Sími 448.
Oljábrensla.
Látið gljábrenna og nikkelera
reiðhjól yðar í Fálkanum, því þá
hafið þér tryggingu fyrir vand-
aðri virinu. Hjólin eru gljábrend
þrisvar sinnum, og geymd ókeyp-
i? yfir veturinn.
Fálkinn,
Sími 670.