Vísir - 30.01.1926, Síða 3

Vísir - 30.01.1926, Síða 3
V 1 S IR Reynið nýju lom Di og Ioioéii sioann. í heildsöln hjá: TóbaksversL Islands. h f. •Gulifoss fer héSan í kveld til Hafnar- fjaröar og þaðan til útlanda á morgun. Meöal farþega ver'ða: Sigfús Blöndahl konsúll, Sighvat- ur Blöndahl kaupmaöur, Ólafur Johnson konsúll, Oddur Her- mannsson skrifstofustj., Ingimar Brynjólfsson, Gunnar Kvaran, Eiríkur Leifsson og frú, Siguröur 'Birkis, Sig. Stefánsson stúdent, Guörún Thomsen, Hjalti Jónsson, capt. Wind. Sjómannastofan. Guðsþ jónusta á morgun kl. 6. Sira Bjarni Jónsson talar. St. Framtíðin nr. 173 kýs embættismenn og gerir aör- ar áríöandi ráöstafanir á fundin- um á mánudagskveldi'ð kemur. Skorar á meölimi sína aö mæta. 25 ára starfsafmæli átti Berklavarnafélagið danska {Nationalforeningen til Tuberku- iosens Bekæmpelse) 16. þ. m. Skrautlegt minningarrit (með myndum), eftir Chr. Jensen, var gefiö út um starfsemi félagsins og liefir Vísi veriö sent það til um- sagnar. Var svo til ætlast, aö þaö yrði komið hingað fyrir afmælis- jdaginn, en kom ekki fyrr en í mánaðarlok. —■ Fáar þjóðir munu bafa gert meira en Danir til þess að útrýma berklaveiki og hafa all- ir helstu menn þeirra verið að verki'í félagi þessu. Ritið er hið íróðlegasta og mjög til þess vand- :að á allan hát't. Skipafregnir. Goðafoss er á Hvammstanga í •dag. Lagarfoss er í Leith. Villemoes fór héðan kl. 12 í dag til Englands. Sækir steinolíufarm. Sado fór frá Djúpavogi i gær á leið hingað. ísland kom kl. 1 í nótt til Vest- mannaeyja og er væntanlegt hing- að seint í kveld. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í hjóna- ,band ungfrú Alma Andersen og Eiríkur Leifsson kaupmaður. Síra Jóhann Þorkelsson gefur þau sam- au. Þau fara héðan á Gullfossi tii útlanda. Varðskipið Fylla kom hingað kl. 4 1 morgun frá Daumörku. Maí kom af veiðum í gærkveldi og fór áleiðis til Englands í- nótt. Hansk-Islandsk Kirkesag (desemberblaðið) flytur grein úm heimilisháttu á íslensku prests- setri, eftir íslenska prestskonu, skemtilega og sannorða lýsingu, með mynd af Oddastað. Fremst í sama blaði er mynd af jólapósti á íslandi, og er hún eftir Lárus Sig- urbjörnsson (Gíslasonar). Skipakaup. H.f. Sleipnir seldi í gær Glað, hið nýja skip sitt. Kaupandi er Ingvar kaupm. Ólafsson. Skipið heitir nú Ólafur og fer til veiða i kveld. Skipstjóri Bergþór Teits- son. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 2 kr. frá S. J., 2 kr. frá P. Landpóstar fara héðan norður og vestur í fyrramálið. Gjöf til Hallgrímskirkju, afh. Vísi: 5 kr. frá N. N. Bæjaxstjómarkosningar i Vestmannaeyjum fóru á þá leið í gær, að kosnir voru af borgara- lista Jóhann Jósefsson, alþm. og Sigfús Scheving, en af alþýðulista ísleifur Högnason, kaupfélags- stjóri. — Atkvæðamagn listanna var 591 gegn 360 atkv. N. F. Siðasti laugardagur mánaðarins, kl. 8. Gengi erl. myntar. Sterlingspund........kr. 22.15 100 kr. danskar .... — 112.78 100 —-• sænskar .... — 122.14 100 — norskar .... —• 92.76 Dollar ................ — 4.56% 100 frankar franskir —- 17.42 100 — belgiskir — 20.92 100 — svissn. . — 88.15 100 lírur.............. — 18.61 100 pesetar.............— 64.68 100 g>rllini ...........— 183.44 100 mörk þýsk (gull) ,— 108.61 ávarp. Islenskar konur ætla að reisa hús á Arnarhólstúni. Alþingi hefir gefið lóð til þess. Hlutafélag' hefir verið stofnað í þessum tilgangi 15. des. sjðastl., og heitir félagið „Hlutaíélagið Kvennaheimilið". í samþyktum félagsins, 3. gr., er komist svo að orði: Tilgangur fé- lagsins er að koma upp, samkomu- húsi i Reykjavik handa islenskum konum, þar sem þær geti dvalið um lengri eða skemri tima. — For- göngukonur þessa fyrirtækis voru nefnd, kosin af Bandalagi kvenna, og hefir verið leitað aðstoðar allra kvenfélaga bæjarins 0 g fjölda málsmetandi kvenna víðsvegar um land alt. Undirtektir hafa verið góðar, þar sem til hefir frést, enda er hér um nauðsynjamál að ræða. Húsi því, er hér er til stofnað, er ætlað að vera einskonar mið- stöð fyrir félagsstarfsemi íslenskra kvenna á sem flestum sviðum. Það á að vera fyrir fundi þeirra og samkvæmi. Það á að vera athvarf konum hvaðanæva af landinu, er hingað koma ókunnar og þurfa aðstoðar og leiðbeiningar við til að koma sér fyrir og geta veitt þeim gistingu um lengrieðaskemri tíma. Þar á Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur að vera og léttur að- gangur að góðum bókum og blöð- um i vistlegum lestrarsal, Þar eiga' þær konur, sem fáa þekkja, að eiga vísan góðan félagsskap í tóm- stundum sinum. — Samfara rekstri þessa heimilis verður hússtjórnarkensla og þá jafnframt mat- og kaffisala. Þarna ætti og að vera aðalstöð fyrir verslun með íslenskan heimilis- iðnað og kaup á efni og áhöldum til hans. — En fyrst og fremst á húsið a'ð vera fögur umgerð um líf og starf kvenna utan heimil- anna. Húsið á að vera komið upp 1930. Þar eiga íslenskar konur að hittast á 1000 ára hátíð Alþingis. Leyfir hráðabirgðastjórn hluta- félagsins sér hér með að skora á alla, er skilja nauðsyn þessa fyrir- tækis, karla jafnt sem konur, aö styðja það með þvi að kaupa hlutabréf félagsins. Sjá hlutaútboð félagsstjórnarinnar á öörum stað í blaðinu. Bríet Bjamhéðinsdóttir. Guðrún Pétursdóttir. Inga L. Lárusdóttir. Laufej- Vilhjálmsdóttir. Stein- unn Hj. Bjamason. Trolle & Rothe hf. Rvík, v Elata vátryggingarskrifstofa landsins. Stofnuð 1910. Annast vátryggingar gegn Sjó og brunatjóni með bestu fáanlegu kjörum hjá ábyggilegum fyrsía tlokks vá- tryggingarfélögum. Margar miljónir króna greíddar inníendum vátryggj- endum í skaðabætur Látið því að eins okkur annast allar yðar vátrygging- ar, þá er yður áreiðanlega borgið. ,Helm Royal1 átsúkknlaði. —o--- Meö stofnsamningi dags. 15. desember 1923 hafa eftirtaldar konur og féíög ákveðið að stofna hlutafélag í þeim tilgangi að koma upp samkomuhúsi í Reykjavík handa íslenskum konum: Bandalag kvenna, Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur, Thorvald- sensfélagið, Anna Guðmundsdótt- ir, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Cam- illa Bjarnarson, Elin Briem Jóns- son, Eufemía Waage, Gróa Ander- sen, Guðrún Bjarnadóttir, Guörún Eyjólfsdóttir, Guðrún Pétursdótt- ir, Halldóra Bjarnadóttir, Hólm- fríður Þorláksdóttir, Inga L. Lár- usdóttir, Ingibjörg ísaksdóttir, Kristín Símonarson, Laufey Vil- hjálmsdóttir, Lovísa ísleifsdóttir, Margrét Th. Rasmus, Ragnhildur Pétursdóttir, Sigríður Pétursdótt- ir, Steinunn Hj. Bjarnason, Theó- dóra Thoroddsen, Vigdís Árna- dóttir og Þuríður Lange. Samkvæmt nefndum samningi skal nafn félagsins vera „Hlutafé- lagið Kvennaheimilið". Upphæð hlutafjár er fyrst um sinn ákve'ð- in kr. 10.000.00, og stjórn félags- ins er heimilt að hækka hlutaféð upp í kr. 100.000.00,og mun stjórn- in nota þá heimild eftir því sem fé safnast. Stærð hluta skal vera 25, 50, 100 og 500 kr. Stofnendur hafa skrifað sig fyrir hlutum að upphæð kr. 4.325.00. Afgangurinn er ætlast til að fáist með almennu útboði. Hluthafar skulu sæta inn- lausn hluta sinna, ef félagsfundur samþykkir að leysa inn hlutina. Til sölu á hlutabréfum þarf sam- þykki félagsstjórnar, sem hefir forkaupsrétt að hlutabréfum f. h. félagsins. Hlutabréf skulu nafn- skráð. Stjórn félagsins skipa und- irritaðar konur. Endurskoðendur hafa verið kosnir frú Eufemía Waage og frú Rósa Þórarinsdótt- ir. Varastjórn; Frú Margrét Th. Rasmus og frú Ragnhildur Pét- ursdóttir. Samkvæmt ofanrituðu og m,eð tilvísun til stofnsamningsins og samþykta fyrir félagið, er mun verða til sýnis hjá hr. Eggert P. Briem, á skrifstofu Eimskipafé- lags íslands, leyfir stjórnin sér hér með f. h. stofnenda félagsins, að gefa almenningi kost á, að skrifa sig fyrir hlutum í þvi. Tek- ið verður á móti hlutafjárloforð- um af stjórn félagsins og á eftir- töldum stöðum, til 25. júlí 1926: Bókaverslun Arinbjarnar Svein- bjarnarsonar, Laugaveg4i, Hann- yrðaversluninni á Laugavegi 23, hjá frú Hólmfríði Þorláksdóttur, Bergstaðastr. 3, Lesstofu kvenna, Þingholtsstr. 28, Mjólkurbúðinni á Vesturgötu 12 (Lovísa Ólafs- dóttir), Sápuversluninni, Austur- stræti 17, Smjörhúsinu Irma, Hafnarstræti 22, Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4. Gjalddagi lofaðs hlutafjár er í síðasta lagi 25. júlí 1926. Árangur af hlutafjársöfnuninni verður birtur í „19. júni“, „Tim- anum“, „Verði“ og dagblöðum Reykjavíkur. Reykjavík 25. janúar 1926. Bríet Bjamhéðinsdóttir, form., Þingholtsstræti 18. Guðrún Pétursdóttir, gjaldkeri, Skólavörðustíg 11 A. Box 686. Inga L. Lárusdóttir, Sólvöllum. Sími 1095. Box 41. Laufey Vilhjálmsdóttir, Klapparstig 44. Steinunn Hj. Bjamason, ritari, Aðalsræti 7. 111 yopn. --X— Hr. Ólafur Friðriksson bæjar- fulltrúi hefir undanfarin missiri sýnt óvenjulegan áhuga um fugla- og refarækt hér i bænum, og hafa ýmsir bæjaxmienn — ef til vill einkurn börn — átt margar skemti- og fróðleiksstundir við at- hugun á dýrum þessum, mönnum hefir þar komið bending til hinn- ar frjálsu náttúru. Og enda þótt mjög hafi orkað tvímælis um það, að hverju leyti unt mundi að temja dýr þessi þann veg að þau biðu eigi tjón á eðli sínu, mátti öllum vera það ljóst, að hér var einung- is um tilraun að ræða. En það er síður en svo, að hr. Ó. Fr. hafi fengið að vei'a í friði með tilraunir sínar. Blaðaskamm- irnar hafa dunið á honum jafnt og þétt fyrir þetta „arðvænlega fyrir- tæki“ — og hvað eftir aniiað hafa verið rofnar girðingarnar um- hverfis dýrin og þeim hleypt út í veður og vind. Grunur leikur og á því, að sumir „gjöfulir vegfai’ endur“ hafi skotið að fuglunum þeim fæðutegundum, er þeim voi'u síst til þrifa, og þann veg flýtt fyrir hnignun þeirra. 1 vor hóf Ólafur refaeldi hér austanvert í melahallanum; þetta var á afskektum stað og gátu nú bæjarbúar með engum rökum kvartað undan hvimleiðum þef af þessu fyrirtæki. Þania blasti við augum vegfar- enda einhver skemtilegasta 0g ein- kennilegasta grein islensks dýra- lífs, og hefði mátt svo virðast sem flestum hefði átt að vera þetta baga laust. — Nei, óekkí! Núna í bæjarstjónxarkosningahríðinni liafa einhvei-jir „framtakssamir Bowtrees Toffee er best og ljúfengast. JFæst í öllum búðum á 5 aura stykk- ið. Safnið umbúða miðunum. Þeir verða keyptir í Landstj örnunni. K. F. U. M. Ylfingar þeir, sem ætla að selja Skáta- blaðið eru beðnir að koma kl. 10 f. li. á morgun í Miklagarð. Nýkomið: Viktorínbannir ódýrt. V0N og Brekknstíg 1. menn“ ekki getað séð „atvinnu“ Ó. Fr. í friði, heldur rofið girð- inguna og hleypt refunum út. Það mun vera rétt, sem stend- ur í „Morgunblaðinu“ 26. þ. m., að „venjan er það, að sleppi ref- ir, sem aldir hafa verið upp með mönnum, þá verða þeir hinir skæðustu dýrbitir.“ En hverjum er slíkt að kenna, mundi það eigi þeim að kenna, sem rjúfa tvöfald- ar girðingar og hleypa refunum út? Sá er þetta rjtar, er ekki fylgis- maður Ólafs Friðrikssonar i þjóð- málum, en hann er heldur ekki meiri andstæðingur hans en það, að hann getur ómögulega séð að þessar refaeldistilraunir Ó. Fr. komi lands eSa bæjarmálum nokk- uS við, og honum hefði þótt, og lxtur svo á, að flestum mundi þótt hafa ósvífið, ef einhverjir A-lista- menn hefðu brotist inn í vöru- geymslu B-listamanns til ráns eða þjófnaðar,enda þótt sá hefði ómót- mælanlega verið jafnsekur um þá ósvinnu að bjóða sig fram til bæj- arstjórnar eins og Ó. Fr. Jak. Thor.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.