Vísir - 16.08.1926, Síða 3

Vísir - 16.08.1926, Síða 3
TISIR ,ísja“ fer héSan á þriðjudagskvöld (17. ágúst) austur og norSur um land. . Vörur afhendist í dag. Getum ekki tekiS við á þriðjudag. íö úr prófastsstörfum séra Einars, i talar urn „prófastsnafn“ o. s. frv. í lítilsviröingartó.n. Segir dr. Jón tiiskup, að þa'ð sein hafi riðiS baggamuninn, að séra Einar fekk brauöið, hafi verið það, að hann var gamall skólabróðir og kunn- jngi Helga biskups Thordarsen, með öðrum orðum, ekki verðleikar séra Einars, heldur miður réttlátt meðhald Helga biskups. Eg, systkini mín og foreldrar vorum sóknarbörn séra Einars prófasts í mörg ár, er hann var á Setbergi i Eyrarsveit, og var okk- ur öllum því kunnugt, að hann var bæði elskaður og virtur af öllurn sem þektu hann. Bar það til, að hann var gáfað lipurmenni, ágæt- ur ræðumaður, skemtinn og orð- heppinn vel, eflaust ritfærasti prestur prófastsdæmisins eftir að Pétur biskup fór frá Staðastað og séra Sveinn Níelsson tók við. Auk þess voru öll skjöl og skilríki i hans höndum með bestu reglu. Um þetta heyrði eg einatt talað. Hverjir þessir „ýmsir“ hafi ver- ið, sem hneyksluðust á veitingn Stafiholts í hendur séra Einari, fær maður ekki að vita hjá herra Jóni biskupi. Mér er nær aö halda — svo að eg viðhafi orðalag bisk- ups — að þeir hafi verið fáir rnjög. Séra Einar hafði langan og merk- 3.n embættisferil að baki, er hann sótti um Stafholt, hafði þjónað prestsembætti í 33 ár og gegnt prófastsstörfum í 8 ár. Auk þess hafði hann fengið rnikla æfingn við skrifstofustörf hjá Sigurði landfógeta Thorgrímsen í 6 ár og sem settur sýslum. í Skaftafells- sýslum í næstu 2 ár áður en hann tók vígslu, og rækti hvorttveggja af mestu alúð. Að mínu viti slær það ekki hinum minsta skugga á ágæti Helga lektors Hálfdánar- sonar, þó að séra Einar prófastur sé látinn njóta sannmælis. Ævi- starf Helga lektors hófst aðallega fyrst eftir daga séra Einars, og viðurkenna allir, hve merkilegt það reyndist á allan hátt. Herra biskupinn má ekki taka það illa upp, þó að mér sárni það, að sjá hinum garnla sóknarpresti mínum séra Einari niðrað að ó- verðugu. Eg á svo margar fagrar endunninningar um þann mann. Man eg vel fermingarræðuna, er hann flutti, þegar eg fermdist, meðal margs fleira; hún var átak- anleg; man eg mikið úr henni enn. Textinn var þessi: „Vei þeim seni hneykslar einn af þessum smæl- ingjinn“ o. s. frv. Vel man eg það, aö hann var mjög hlyntur stefnu Fjölnismanna og var ákafur fylg- ýsmiaður hinna merku rita Tómasax Sæmundssonar (afa dr. Jóns bisk- pps) um að heyja Alþing að Þing- KÖUum. Vera má að herra biskupinn rengx mig um ýmislegt af því, er hér er sagt af séra Einari prófasti, «n þá ef ráð að leita til merkis- prestsins séra Þorkels Eyjólfsson- ar heitins, því að til mun vera rit- að álit hans á séra Einari og fleiri samtíðarmönnum. p. t. Reykjavík, 8. ágúst 1926. Stefán gamli Daníelsson frá Grundarfirði. Ifsniig De Valera strauk úr Lincoln-dýflissunni. Ensk blöð segja nýlega frá því, að ævisaga Michaels Collins sé um það bil að koma út. Er hún rituð af Piaras Beaslai, sem stóð framarlega í „Sinn Fein“, sjálf- stæðisflokknum írska. En svo sem rnenn vita, voru þeir Collins og De Valera þar fremstu menn. — Birtist hér í lauslegri þýðingu nokkur kafli úr bókinni, tekinn eftir „Manchester Guardian". (Árið 1918 höfðu Englendingar varpað De Valera og fleiri írskum sjálfstæðismönnum í fangelsi það, sem Lincoln-dýflissa nefnist, fyr- ir uppreisn gegn Bretum. Snemma árs 1919 slapp De Valera úr fangelsinu og segir hér frá atvik- um að því. Aðrir, sem nefndir eru í greininni, eru einnig merkir írsk- ir sjálfstæðismenn). Lincoln-dýflissan var að því lcyti einkennileg, að auk aðaldyr- anna voru á veggnum umhverfis einn fangagarðinn dyr, sem virt- ust snúa út að umheiminum. Væri hægt að ná lykli að þessum dyr- um, vóru líkur fyrir að hægt yrði að strjúka. Eamonn De Valera, sem var í haldi í Lincoln-dýfliss- unni, hepnaðist að ná vaxmóti af lykli að þessum dyrum, sem hann hafði séð einhversstaðar á glám- bekk. Þá lá það fyrir, að koma eft- irmynd af mótinu til vinanna fyt- ir utan fangelsið. Það að jólin voru í nánd, köm góðri hugmynd inn hjá föngunum. Sean Milroy, sem einnig var í Lincoln, teiknaði á póstkort tvær myndir af „jólum 1917 og 1918.“ — Á þeirri fyrri var mynd af ein* um fanganna þéttingsfullum, að reyna að koma lykli í ski'áargatið heima hjá sér, með undirskriftinni „Eg kemst ekki inn!“ Á hinni tnyndinni er sami fangi í fanga- klefa, heldur á heljarmiklum lykli í höndum og segir: „Eg kemst ekki út!“ Þessari mynd var smygl- að til vinar þeirra í Sheffield, og bréfi með. Þannig var háttað, að lykillinn var mynd af mótinu, sem De Valera náði. Þessi vinur þeirra í Sheffield var hræddur og eyðilagði bréfið, en sendi myndina áfram til Dublin. Á myndina var litið að eins sem gamansemi, og frekari ráðstafanir varð að gera áður en merking hennar skildist. Collins gekk þá þegar í málið. Lykill var smíðað- ur eftir þeim leiðbeiningum sem fengist höfðu, af Gerard Boland, bróður Harry’s Boland, og bakað- ur inni í köku af Mrs. MacGarry, og Collins sá um að hörð sykur- skán var sett á kökuna. Kakan var send inn i Lincoln- dýflissuna sem „gjöf“ til fang- anna, en lykillinn reyndist of litill. Samkvæmt nánari leiðbeiningum fékk Iri nokkur í Manchester til- búinn nýjan lykil hjá manni, sem hann vissi, að varm hjá lásasmið- um. Þessi lykill var einnig bakað- ur inn í köku í Manchester, ásamt þjöl, og írsk telpa í Manchester fór með kökuna til Lincoln. Þeir fáu menn utan fangelsisins, sem vissu um leyndarmálið, biðu nú árangursinsmeðmikilli óþreyju. Loks komu boð um, að síðari lyk- illinn hafi ekki getað orðið að gagni. Enn komu nýjar upplýs- ingar, og farið var að undirbúa smíði á enn nýjum lykli. Áður en því var lokið, komu boð um að ganga ekki fyllilega frá lyklinum, 'heldur senda hann inn ósorfinn. Svo var því gert. Einn fanganna, Alderman De Laughrey (sem nú er þingmaður á írlandi) hafði gutlað eitthvað við lásasmíöi, og tókst honum að at- huga læsinguna á þvottahúsi í fangelsinu. Hann sá, að það var fcrföld læsing, og jafnframt, að lykillinn, sem De Valera fann gat ekki komið að haldi sem þjófalyk- ill. Úr efninu sem smyglað var inn (einnig bökuðu inn i köku) tókst honum að smíða þjófalykil, sem líkur voru til að yrði að gagni. Nú kom það babb í bátinn að 4 irskir fangar struku (í jan. 1919) úr Uskfangelsinu. Þeirn hepnaðist að sleppa án nokkurrar hjálpar ut- an að. Bjuggu þeir til kaðalstiga úr handklæðum og brenni, festu á hann járnkróka og með því að ýta honum upp með stöng tókst þeim að festa hann ofan á vegginn umhverfis fangelsið. Þannig kom- ust þeir út og gengu til Newport 14 (enskar) mílur vegar. Föngun- um var ekki leyft að hafa nokkra peninga, en þessum fjórum stroku- mönnum hafði tekist að samka r.okkru að sér fyrir aulahátt fanga- varðar. Þeir gátu því keypt sér far til Liverpool, og þar voru þeir í vinahöndum. Collins varð mjög skelfdur er hann frétti um strokið frá Usk. Hann óttaðist að þetta yrði til þess, að fanganna yrði strangar gætt, svo að ómögulegt yrði að komast frá Lincoln; en uggur hans reyndist ástæðulaus. Loks var ákveöið að reyna að strjúka 3. febrúar, og það var á- kveðið að Sean MacGarry og Sean Milroy skyldu fylgja De Valera. Collins og Boland komu til Lincoln á tilsettum tíma. Fóru þeir siöan ásamt Frank Kelly inn á akur- lendið bak við dýflissuna. Til þess að komast þangað af þjóðvegin- um urðu þeir að klippa sundur nokkurar gaddavírsgirðingar, og gekk það slysalaust, en þeir mistu af Kelly í myrkrinu. Hinir lögð- ust niður þar sem þeir sáu fang- elsisgluggana. Svo var ákveðið, að þeir skyldu segja föngunum til, þegar alt væri í lagi, með því að bregða upp ljósi, en þeir skyldu svara með því að kveikja á eld- spýtum í klefaglugga. Á tilsettum tínm var merkið gef- iö og svarað þegar í stað. Collins og Boland stóðu upp og gengu að dyrunum. Þegar þangað kom sáu þeir, að utan við dyrnar var ann- að hlið úr jámi. Collins hafði liaft með sér annan lykil af sömu gerð ogþann, er innvarsendur, og þess- um lykli stakk hann nú í skráar- gatið á hliðinu. Hann virtist hæfi- lega stór, en þegar reynt var að snúa honum brotnaði liann í skránni. í þeim svifum opnast dyrnar hinum megin hliðsins, og mátti þar líta De Valera, Mac- Garry og Milroy. En nú varnaði Ódýrastu eigaretturnar ,Bláa Bandið* ÍO stk. 40 aura. « VeFslunin Vísir. hliðið, með brotinn lykilinn í skránni, þeim allrar undankomu. Collins mælti og var dapur í bragði: „Við höfum brotið lykil í í skránni, De Valera!" ■— De Valera beit á jaxlinn og bölvaði í hljóði og reyndi að koma sínum eigin lykli i skrána hinum megin frá. Fyrir dæmalausa hepni tókst honum að ýta brotna lyklinum út með sínum eigin, og að opna hliðið. Þeir félagar gengu nú yfir akr- ana; mættu nokkrum hermönnum, sem ekki voru á verði; kallaði Bo- land til þeirra „sælir strákar", og héldu þeir siðan leiðar sinnar til Lin,coln. Veðrið í morgtm. Hiti í Reykjavík n st., Vest- mannaeyjum 10, ísafirði 10, Akur- eyri 12, Seyðisfirði 9, Stykkis- hólmi 13, Grímsstöðum 12, Rauf- arhöfn 10, Hólum í Hornafirði 8, Þórshöfn í Færeyjum 10, Kaup- mannahöfn 15, Utsira 13, Tyne- mouth 14, Leirvík 13, Jan Mayen 3. Engin skeyti frá Grindavik né Angmagsalik. •— Mestur hiti hér í gær 16 st., minstur 10; úrkoma 0.9 mm. — Loftvægislægð fyrir sunnan land. — Horfur: I dag: Austlæg átt, hæg á Norðurlandi. Skýjað loft og smáskúrir á Suð- urlandi. Þurt á Vesturlandi, Norð- urlándi og Austurlandi. í nótt: Austlæg átt, allhvöss við Suður- land, hæg annars staðar. Dálítil úrkoma á Suðausturlandi, þurt annars staðar. Gamalmennaskemtunin í gær var mjög vel sótt og fór hið besta fram. Voru þar margir ræðumenn, svo sem Hognestad biskup, báðir prestar dómkirkju- safnaðarins, síra Árni Sigurðsson, S. Á. Gíslason, og Guðrún Lárus- dóttir las upp sögu. Einnig söng kirkjukórið. — Lúðrasveit Rvíkur ætlaði að skemta þarna, en fyrir sérstök forföll gat ekki orðið af því. Hefir hún heitið að spila síðar til ágóða fyrir Elliheimilið. Vísir hefir verið beðinn að skila þakk- læti til allra, sem veittu hjálp sína á einhvern hátt. Misskilningur er það hjá Morgunblaðinu í gær, aö Guðmundur landlæknir Björnson hafi verið sá fyrsti, er hingað kom með reiðhjól, helduf var það Guðbrandur Finnbogason, sem lengi var verslunarstjóri hjá Fischersverslun, tengdafaðir Ölafs Davíðssonar í Hafnarfirði. Eru um eða yfir gó ár Síðan hann kom FLIK-FLAK Jafnvel viákvœmuata litirþola Plik-Flak þvottinn. Sérhver mialitnr kjóll eða dúkur úr finusta efnum kemur óskemdur úr þvottinum. Flik-Flak er alveg óskaðlegt: f. Kostakjör! Það sem eflir er af Sumsrkápum selst fyrir iiálfvirði. I með fyrsta reiðhjólið hingað, svp| að þar skeikar nokkuru um tima-í talið hjá Morgunblaðinu. X. Bjami Sæmundsson, fiskifræðingur, var meðal far- þega hingað á Esju. Hafði hanri verið um hríð við rannsóknír á! skipinu „Dana“ fyrir Norðurlandí. Steig hann af því á Austfjörðum og hefir verið um tíma á Norð- firði við rannsóknir á fiskí. Kristín Guðmundsdóttir, Óðinsgötu 21, á 84 ára afmæii 1 dag. Helga Jónsdóttir, Sölvhóli hér í bænum, á sjötugs- afmæli í dag. Dr. phiL Lindroth prófessor í norrænu við háskói- ann í Stokkhólmi kom hingatf með Suðurlandi í gær. Hefir hapri dvalist um hríð hér á iandi. Sundmót K. R, í Hólminum (örfirisey) í gær- kveldi fór vel fram. Fyrst þreyttu 1 drengir 50 stikna sund. Keppendur voru tíu, og var fyrstur Magnúe Jyíagnússon á 40,8 sek., annar Axeí Kaaber á 43,2 sek., þríðji Láru? Scheving á 52,2 sek, Þá var 30P stikna sund, fyrír drengí; þar vaf

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.