Vísir - 22.11.1926, Síða 2
V I I IR
\
) feiy m
Allir sem versla með spii,
ættu að muna eftir, að Holmblads-spilin frá S. Salo-
mon & Co. eru lang vinsælust allra spi'a, sem hér fast.
flöfom 6 tegandir íyrírliggjandi
UPPBOÐIÐ
lieldup áfram í dag
og á morgun.
Jóh. Ölalsson & Co.
Símskeyti
—o—
Khöfn, 20. nóv. FB.
Hækkun frankans.
Símað er frá París, að helstu
mönnum í mörgum iðngrein-
um þyki hin stöðuga hækkun
frankans varhugaverð og eru
þeir þeirrar skoðunar, að nauð-
synlegt sé, að verðfesta frank-
ann mjög bráðlega. Poincaré er
álitinn vera þeirrar skoðunar, að
það beri að fresta verðfesting-
unni enn um skeið, uns frank-
inn hefir enn hækkað nokkuð.
Fjárhagur rikisins fer sifelt
batnandi. Morganlánið hefir
verið endurgreitt. Verslunar-
jöfnuðurinn er hagstaiður. Af
þessum ástæðum aðaUega lítur
stjórnin svo á, að ekki saki, þó
verðfestingin verði látin bíða
eins og sakir standa enn.
Nicaragua og Mexico.
Símað er frá Washington, D.
G„ að ríkið Nicaragua hafi beð-
ið Bandaríkin um hjálp gegn
Mexicönskum óaldarflokkum.
Stjómin íhugar málið. —- Telur
hún framferði Mexicana skað-
legt Bandaríkjunum.
Jámbrautarslys á Englandi.
Símað er frá London, að jám-
brautarslys hafi orðið á línunni
á milli Birmingham og York. —
9 Iétn lífið og' 10 særðust.
Utan af landi.
—o—
Seyðisfirði, 20. nóv. FB.
]?að hefir snjóað mikið síð-
ustu daga. Nú er norðaustan
snjóhríð og gæftaleysi. Afli er
dágóður, þegar gefur á sjó.
Hænir.
Slys.
Síðastl. laugardagskveld vildi
það sorglega slys til á Lagar-
fosisi, að maður féll þar fyrir
íxjrð og druknaði. Hann hét
Ingólfur Einarsson, ættaður frá
Tóttum við Stokkseyri, ókvænt-
ur maður á besta aldri. —
Lagarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum á föstudag, áleiðis til lit-
fanda, og hrepti stórviðri á
iaugardag.
Dr. ]Hi) biskop tlelpson
liefir, aS gefnu tilefni, láti'íS svo
ummælt viö Vísi:
„Fyrirspyrjandi viröist gera ráö
fyrir, að það sé skylda biskups að
veita vígslu til prestsembættis
hverjum kandídat, sem hennar
beiðist og hvert á land, sem hann
ætlar sér. En þetta er misskilning-
ur. Embættisskylda mín í þessu
tilliti nær ekki út fyrir takmörk
hinnar ísl. þjóðkirkju. En biskup
getur með sérstöku leyfi lands-
stjórnar veitt vígslu mönnum, sem
starfa utan þjóðkirkju, þegar þess
er óskað af hlutaöeigandi söfnuði
og sá söfnuður stendur á sama
játningar-grundvelli og þjóðkirkj-
an — hinum evang. lúterska.
í því tilfelli, sem hér liggur
fyrir, er um hvorugt þetta að
ræða. Söfnuður sá, sem hefir kall-
að umræddan kandídat, hefir ekki
látið neina ósk í ljós um það, að
eg vígði þennan kandídat, sem
hann hefir ráðið til sín. Og eg hefi
enga tryggingú fyrir að hann hirði
um, að eg veiti honum vígslu, því
að söfnuður þessi stendur alls ekki
á sama játningar-grundvelli og
þjóðkirkja lands vors. Söfnuður-
inn heyrir til kirkjufélagi, sem
kallar sig „Sa’mbandski rkjufélag
nýguðfræðinga og annara frjáls-
trúarmanna“. Og aðaleinkenni
þess er, að það er játningarlaust,
en um játningarlaust kirkjufélag
verður aldrei sagt, að það standi
á sama grundvelli og það kirkju-
félag, sem heimtar af þjónutn sín-
um, að þeir á vígsludegi lofi há-
tíðlega að prédika í anda vorrar
evangelisku lútersku kirkju. En
að kirkjufélag þetta er játningar-
laust, orsakast aftur af því, að þeir
„aðrir frjálstrúarmenn", sem getur
um í nafni félagsins, eru únítar-
ar, sem eins og kunnugt er standa
ekki á evangelisk-lúterskum trú-'
argrundvelli, en eru í beinni and-
stöðu við hann. Ög nýguðfræð-
itigar, sem hinda bandalag til
kirkjulegs félagsskapar við únit-
ara, gerðu það vitanlega ekki, ef
þeir hefðu nokkrar mætur á þess-
um grundvelli, sem hinir hafna.
Af þessum ástæðum hefi eg
ekki séð mér fært að veita um-
ræddum vígslubeiðanda prests-
vígslu.
Að eg haustið 1921 veitti, með
leyfi réttra stjórnarvalda, öðrum
kandídat vígslu til prestsþjónustu
í ísl. söfnuði vestra, er rétt. En
það gerði eg bæði eftir beiðni
hlutaðeigandi safnaðar, og eftirað
fengin var og í mínar hendur
komin skýlaus yfirlýsing um, aö
söfnuður þessi stæði á sama
evangel. lúterska grundvellinum
°g þjóðkirkja vor. Sú yfirlýsing
hljóðar svo:
„We deny any connection with
unitarians, declare ourselves in
harmony with evangelical luther-
an church in Iceland. If further
declarations are required wire
Quilllake cong.
I. V. Bjarnason pres.“
Á íslensku: „Vér afneitum sér-
hverju samhandi við únítara,
teljum oss í samhljóðan við evan-
gelisk-lúterska kirkju á íslandi.Sé
frekari yfirlýsingar óskað, þá sím-
ið til Quill-Lake safnaðar.
I. V. Bjarnason forseti."
„Sambands-kirkjufélagið" var
ekki komið á fót, þegar þetta
gerðist og söfnuðurinn, seni hér
beiddist vígslu handa prestsefni
sínu, því ekki heldur kotninn inn í
félag það, sém ekki var stofnað
fyrr en ári síðar.
Við það sem nú hefir verið tek-
ið fram bætist ennfremur það, að
Sambandskirkjufélagið er í lreinni
andstöðu við hið evang.lút. kirkju-
félag íslendinga í Vesturheimi,
sem mest og best hefir unnið að
kristindómsmálum meðal landa
vorra vestra síðan er þaö var
stofnað. Þjóðkirkja vor vill ekki
veita þeirri andstöðu neinn stuðn-
ing, en telur sér miklu fremur
skylt eftir megni að styðja
„Kirkjufélagið“ í starfi þess, þar
sem þeir agnúar, sem áður voru
á samvinnu við það, eru nú úr
sögunni og með því fengin öll
skilyrði fyrir hróðurlegri sain-
vinnu á sameiginlegum grundvelli
evangelisk-lúterskrar kristindóms-
skoðunar.“
Veðrið í morgun.
Frost um land alt, þar sem til
hefir spurst. í Reykjavík 4 st„
ísafirði 1, Akureyri 2, Seyðisfirði
1, Stykkishólmi 1, Grímsstöðum 5,
(engin skeyti frá Vestmannaeyj-
um, Grindavík, Raufarhöfn og
Hólum í Hornafiröi), Þórshöfn í
Færeyjum hiti 5 st., Kaupmanna-
höfn 7, Utsira 7, Tynemouth 5,
Hjaltlandi 8, Jan Mayen frost 5
st. Ekkert skeyti frá Angmagsa-
lik. — Mestur hiti hér í gær 1 st.,
minstur -f- 5 st. — Loftvægislægð
fyrir suðvestan land. Kyrt veður
i Norðursjónum. — Horfur tvö
næstu dægur: Suðvesturland: 1
d a g: Hægviðri. í n ó 11: Senni-
lega allhvass á austan. Úrkoma. -
Faxaflói og Breiðafjörður: í
d a g : Hægur vindur. í n ó 11:
Vaxandi austan átt. Sennilega úr-
komulaust. — Vestfirðir og Norð-
urland: I dag: Hæg norðanátt.
í n ó 11:' Fremur hæg austanátt.
— Norðausturland og Austfirðir:
I n ó 11: Fremur hæg austanátt.
snjókoma. í nótt: Sennilega
k}rrt veður og þurt. - Suðaustur-
land: í dag: Norðlæg átt. Þurt
veður. í n ó 11: Vaxandi atistlæg
átt.
Kvöldvökurnar.
í kvöld kl. 7J4 lesa þeir Einar
H. Kvaran, rithöfundur, Dr.
Guðm. Finnbogason og Matthías
Þórðarson, fornminjavörður. ör-
fáir miðar eru enn óseldir og fást
í bókaversl. Sigf. Eymundssonar.
— Þess skal getið, að þeir, sem
hafa keypt miða, mega lána öðr-
um miðana, ef þeir geta ekki
komið sjálfir.
Knattspymufélag Rvíkur
er nú að byrja á vetrariþróttum
sínum. Er það nokkuð seinna en
undanfarin-ár, vegna viðgerðar á
gólfi fimleikahúss Barnaskólans.
Er gleðilegt að Jietta gamla og
góða íþróttafélag þarf ekki að
stöðva hina miklu íþróttastarf-
semi sína, þvi að slíkt hefði veriö
mjög bagalegt íþróttanna vegna,
því að K. R. mun nú líklega vera
fjölmennasta íþróttafélag lands-
ins. Æfir það nú fimleika, ísl.
glímu, gidska glimu, hnefleika og
hlaup. Kennarar þess eru Jón
Þorsteinsson frá Hofsstöðutn,
Sigurjón Guðjónsson stud. theol.
og Eiríkur S. Bech verksm.stjóri.
Æfingatafla félagsins er auglýst
hér í blaðinu í dag. íþ.
Háskólafræðsla.
í kveld kl. 6-7 í háskólanum:
I.icentiat Dag Strömbáck flytur
erindi.
Flyt erindi
um vígsluneitun biskupsins og
afstöðu hans til trúarjátninganna í
Nýja Bíó n.k. föstudag kl. 7)4 e. h.
Ludvig Guðmundsson.
E.s. ísland
mun hafa komið til Vestmanna-
eyja laust íyrir. hádegi í dag, og
er ekki væntanlegt hingað fyrr en
í nótt. Hefir seinkað vegna and-
viðr-is og hafði niist bát.
Skipafregnir.
Gullfoss fer frá Seyðisfirði í
kveld, áleiðis til útlanda.
Esja fór frá Sauðárkróki í
morgun. Er á austurleið.
Goðafoss er á Vopnafirði, á
noröurleið.
Nonni er á Seyðisfirði á leið
hingað.
Villemoes kom til Kaupmanna-
hafnar í gær.
Kristján Berndsen,
verslunarmaðiir, á fimtugsaf-
mæli á morgun.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur árshátíð sína annað kveld
kl. 8 síöd. í Iðnó.
Almennan bindindisfimd
heldur st. Víkingur nr. 104 í
Goodtemplarahúsinu í kveld, og
hefst hanu kl. 8)4. —. Málshefj-
andi verður síra Friðrik Hall-
grímsson, en fleiri hafa lofað að
taka til máls. Allir eru velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
Hjúskapur.
í fyrradag voru gefin saman i
hjónaband Marta S, H. Kolbeins-
dóttir og Axel Grímsson, hús-
gagna- og trésmiður. Síra Bjarni
Jónsson gaf þau saman.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 10 kr. frá konu, 1
kr. frá dreng. 5 kr. frá bónda.
Búð
eða hentugt pláss til aS innrétta
í brauð- og mjólkursölubúð óskast
helst í veaturbænum.
Tilboö sendist strax, merkt:
„Búð‘‘, á algreiðslu Vísis.
Bjúgaldin,
Epli,
Vinber,
nýkomin i
Versl. Vísíp.
ÞAKKIR.
Þakklæti fyrir góðgjörö gjalt
guði og mönnum líka.
Með klökku hjarta kveð eg alla
núna vini og vandamenn og þakka
þeim allan þann óteljandi vel-
gjörning mér auðsýndan á um-
liönum árum, sem eg hefi dvalið
hér, og að síðustu nú við burtför
mina héðan. Eg bið guðs mildu
hönd aö styðja 'þá og styrkja i
hinum striða straumi lífsins. Frið-
ur guðs sé með þeim öllum.
Norðurpól, Laugaveg 125.
19. nóvember 1926.
Margrét Þórðardóttir.
Jólapóstamir
út um land. Norðan og vestan-
póstar fara frá Rvík 1. des. og
austanpóstur 5. des. Allir þeir sem
ætla að senda vinum og vanda-
mönnum sínum jóla- og nýárskort
ættu að kaupa ]iau í Safnahúsinu,
því að aldrei hafa kortin verið
jafn falleg og eins mikið úrval
sem nú.
Helgi Árnason.